Morgunblaðið - 06.08.1987, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 06.08.1987, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, FTMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1987 55 Þessir hringdu .. . Einar keypti Herdís- arvík Gestur Sturluson hringdi: „Föstudaginn 31. júlí birtist grein eftir Svein Bjömsson list- málara sem bar yfirskriftina „Á að gera fólksvang að öskuhaug- um?“. Grein þessi er hin ágætasta í alla staði og er gott innlegg í baráttuna gegn mengun og sóða- skap. Þó er í þessari grein ein villa sem mig langar að leiðrétta. Sveinn segir að Einar Benedikts- son skáld hafi keypt Krýsuvíkina. Þetta er ekki rétt, ég veit ekki til að Einar hafi keypt Krýsuvíkina. Aftur á móti keypti hann Herdís- arvík sem var næsta byggt ból fyrir austan Krýsuvík og er í Sel- vogshreppi í Ámessýslu." Hvar eru gjöldin? Laufey Elsa Þorsteinsdóttir hringdi: „Eg er kaþólsk og var að frétta það um daginn að þau kirkjugjöld sem við greiðum með sköttunum okkar og átti að skipta á milli kaþólsku kirkjunnar og þjóðkirkj- unnar eftir að breytt var um fyrirkomulag á innheimtu þeirra hefðu aldrei skilað sér til kaþólsku kirkjunnar. Við erum víst bara 1700 á öllu landinu og sjáum eft- ir þessu þótt upphæðin sé kannski ekki há. Áður var látið nægja að safna fijálsum framlögum og við' borguðum ekkert í gegnum Gjald- heimtuna. Ég vona að einhver treysti sér til að segja frá afdrifum þessara peninga." Vakandi starfi í vertu M.J. frá Búrfelli hringdi: „Þessar vísur urðu til við lestur á ísköldum sannleik um gott veð- ur, góða bíla og góða bílstjóra sem Samvinnutryggingar birtu í Morgunblaðinu föstudaginn 31. júlí sl. Það væri vonandi að menn hefðu þetta í huga í umferðinni. Láttu þinn lífsferil sýna listir við náunga þinn hendi með hjálpina þína hlýlega tala og vinn. Sig^ur í huga með sértu sofandi ekki í dag. Vakandi starfí í vertu viljir guð blessi þinn hag.“ Ókurteisir dyraverðir Hildur hringdi: „Ég og móðir mín brugðum okkur á skemmtistaðinn Lennon um daginn og urðum fyrir heldur óskemmtilegri reynslu. Skömmu eftir að við vorum komnar inn elti einn dyravarðanna okkur uppi og skipaði okkur að koma okkur út. Við spurðum um skýringu en hann neitaði alfarið að útskýra hvers vegna við yrðum að fara. Við vildum þá fá að tala við yfir- mann hans en það var ekki hægt því að hann var sagður erlendis. Þetta finnst mér dálítið gróft og er ákaflega sár enda hef ég aldr- ei sýnt dyravörðunum þama annað en fyllstu kurteisi." Vötn á hálendinu sam- eign allra Vigfús Guðmundsson hringdi: „í tilefni af umræðu sem hefur verið um veiðirétt á vötnum á hálendinu langar mig að koma því á framfæri að ýmsir eru þeirr- ar skoðunar að öll þjóðin eigi þessi vötn í sameiningu. Vil ég gera að tillögu minni að seld verði veiði- leyfí í þessi vötn fyrir skikkanlegt verð og ágóðinn notaður til að vinna að uppgræðslu landsins." Sérstakir afsláttar- miðar fást Sveinn Björnsson hringdi: „Okkur hjá SVR langar til að koma með nokkrar athugasemdir vegna skrifa Hönnu í Velvakanda sl. föstudag um undarlegan af- slátt hjá SVR. Þeir aðgöngumiðar sem eru seldir í vögnunum sjálfum eru ekki afsláttarmiðar heldur hugsaðir fyrir þá sem ekki hafa afsláttarmiða eða skiptimynt til að greiða fargjaldið með. Raunar er okkur ekkert allt of vel við að selja þessa miða um borð í vögn- unum því að það tefur óneitanlega fyrir vagnstjórunum. Hins vegar fást raunverulegir afsláttarmiðar, 26 saman á 530 krónur, víða og þetta notfæra þeir sér sem ferðast mikið með vögnunum. Þá kostar hver ferð 20 krónur og 38 aura í stað 28 króna ef greitt er með skipti- mynt.“ Á berjamó Oddfríður Sæmundsdóttir hringdi vegna kvæðis sem birtist í Velvakanda sl. sunnudag og heitir Á beijamó. Hún vissi ekki eftir hvem kvæðið er en hún hafði lært þriðja erindið öðruvfsi en það birtist í blaðinu. Hana minnti að það væri á þessa leið: Ó, hjartans bam mitt hættu, að harma og gráta mig. Þú finnur einhvem annan, sem elskað getur þig. Þá móðurhönd, sem mjúk er, þann mann, sem býðst þér veg og segir: Sigga litla, með sama róm og ég. Hvert flutti Stalín Krímtatarana? 0348—3340 hringdi: „Má fréttastofa ríkisútvarpsins ekki segja frá því að Stalín flutti Krímtatarana til Síberíu en ekki í næsta þorp? Svífur andi Stalíns enn yfir fréttastofunni?" Af ríkis- og einkabönkum Leiðari Morgunblaðsins 12. júlí var um ríkisbanka, verðbólgu og einkabanka svo kallaða. Eins og áður og lengi heldur leiðarahöfund- ur því fram að einkabankar séu betri og hagkvæmari en ríkisbankar og hefur nú fengið sem liðsauka Þorvald prófessor Gylfason, einn af þessum ungu fijálshyggjumönn- um, lærðum frá Ameríku. En óneitanlega er það dálítið fyndið að í þessu sama Morgunblaði, 12. júlí, er sagt frá því að á fyrra helmingi þessa árs hafi 100 bankar orðið gjaldþrota í Bandaríkjunum og á síðasta árí hafi 138 bankar farið á hausinn, sem sagt á einu og hálfu ári höfðu 238 bankar í Bandaríkjun- um orðið gjaldþrota, ef til vill hafa einhveijir tapað þar fé sem ekki máttu við því. Ekki voru þetta ríkis- bankar, þeir eru ekki til f því landi, en eitthvað virðist hafa skort á að margumtöluð hagkvæmissjónarmið hafi verið ráðandi f öllum þessum einkabönkum. Mál Útvegsbankans og Hafskips eru svo einstæð og sérstök og eng- in rök með eða móti neinu og lágkúra að nota þau mál sem rök gegn ríkisbönkum. Bankastjórar Utvegsbankans voru grandvarir og heiðarlegir menn og vildu gera sitt besta þó þetta færi svona. Þeir sem skrifa leiðara í blöð, prófessorar og aðrir, sem hafa að- stöðu til að hafa áhrif á hugmyndir fólks og skoðanamyndun, eru skyld- ugjr til að færa rök fyrir máli sínu. Til þessa hafa ekki verið færð nein haldbær rök fyrir því, að einkabönk- um yrði betur stjórnað en ríkis- bönkum, né þeir þjónuðu undirstöðu atvinnuvegar þjóðarinnar betur eða hlytu meira trausts almennings. En traust almennings er mikilsvert at- riði, því að umtalsverður hlutur þess fjár sem bankamir hafa handa á milli eru spariskildingar fátæks fólks, sem vill eiga fyrir útförinni, frekar en eyða í óþarfa. En áróður- inn gegn ríkisbönkunum er bara einn þáttur í trúboði ftjálshyggju- postulanna. Það er þekkt fyrirbæri Til Velvakanda í lesendabréfsdálki blaðs yðar þann 1. ágúst sl. er bréf „íbúa við Njálsgötu" þar sem ákveðnum til- mælum er meðal annars beint til embættis lögreglustjórans í Reykjavík, um aukið eftirlit hvað varðar ökuhraða og bifreiðastöður á gangstéttum. Af þessu tilefni óskast eftirfar- andi birt. Ifyrstu 20 dagajúlímánað- ar sektaði lögreglan 75 ökumenn fyrir að hafa lagt bifreiðum sínum ólöglega á Njálsgötu. Auk þessa vora nokkrar bifreiðar fjarlægðar með kranabifreið. Ffylgst hefur verið með hraða ökutækja á Njálsgötu og 23. júlí sl. kl. 22—22.30 var gerð sérstök úr allri sögu að gáfaðir, menntaðir og ágætir menn geta verið haldnir blindri ofsatrú á kennisetningar, stundum með skelfilegum afleiðing- um. Fijálshyggjutrúboðið hefur þegar valdið upplausn og óbætan- legum skaða og mun þó meiri verða ef ekki verður stungið við fótum. Þetta mætti leiðarhöfundur áður- nefnds Morgunblaðs gjaman hugleiða og líka ýmsir fleiri. Ingi Jónsson, Njálsgötu 75. hraðakönnun með ratsjártæki. Þá var mældur hraði 227 ökutækja og reyndist hraðinn vera frá 14 til 51 km á klst., meðalhraði 20 km á klst. Á Njálsgötu er 30 km hámarks- hraði og af þessum 227 ökutækjum sem mæld voru reyndust 22 vera yfir 30 km, þar af 7 yfir 40 og 1 yfir 50 km. Þá má geta þess að lögregluþjón- ar verða varir við að ökumenn aka hraðar þegar umferð er minni. Þá hefur gangandi lögregluþjónn farið við og við um Njálsgötu í al- mennu eftirliti, en eftirlitsferðum á lögreglubifhjólum og bifreiðum haldið óbreyttum. Böðvar Bragason Aukið eftirlit með umferð á Njálsgötu Hjartans þakkir til allra þeirra jjölmörgu œtt- ingja og vina sem glöddu mig á sjötugsafmœli mínu 21. júlí sl. GuÖ geymi ykkur öll. Elísabet Jónsdóttir, Hlíðavegi 14, ísafirði. Hjartans þakkir til allra þeirra jjölmörgu œtt- ingja og vina sem glöddu mig á sjötugsajmœli mínu 14. júlí sl. Guð geymi ykkur öll. Svanfríður Gísladóttir, Hlíðarvegi 8, ísafirði. Ég þakka mínum jjölmörgu jélögum, vinum og vandamönnum hlýjar kveÖjur, árnaÖaróskir oggjafir á 70 ára afmœli mínu hinn 9. júlísl. Megi ykkur veröa allt aÖ óskum. Sveinn Björnsson. Námskeið Námskeið eru haldin í stjörnukortagerð (Esoteric Astrology) og sálarheimspeki. Stjörnukortarannsóknir. Upplýsingar í síma 79763 til 17. ágúst og eftir 7. sept. Ættarmót á Ketilási Afkomendur Sigurlaugar Sæmundsdóttur og Kristjáns Jóhanns Jónssonarfrá Lambanesi koma saman á Ketilási 14.-16. ágúst nk. Mótið hefst með varðeldi föstudagskvöldið kl. 22.00 í Val- garðslundi. Þeir sem ekki hefur náðst til vinsam- iegast hafið samband. Nánari upplýsingar og tilkynning um þátttöku í símum: Bára 95-5576, Elva 91-37114, Kristin 91-23765. Mætid vel. Bladburðarfólk óskast! Athugið: Aðeins til afleysinga ! AUSTURBÆR VESTURBÆR Laugavegur neðri Aragata Lindargata frá 1 -40 Nesvegur Lindargata frá 40-63 Tjarnarból ÚTHVERFI KÓPAVOGUR Síðumúli Hrauntunga Ármúli frá31-117 Ártúnsholt — iðnaðarhverfi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.