Morgunblaðið - 18.08.1987, Blaðsíða 50
T86I T8ÚDÁ .81 HUDAQUl<nfl<t .GIQAJaHUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1987
Tiina við störf á skrifstofu Smjörlíkis hf. en hún hefur verið þar í starfsþjálfun í sumar. Morgunbiaðið/KGA
ÚTSALA
ÚTSALA
AFSLÁTTUR
»hum«wl^
SPORTBÚÐIN
Ármúla 40 Reykjavík s:83555
Islendingar með
afbrigðum vin-
gjarnlegir
- segir Tiina Kangasoja frá Finnlandi
TIINA er nemandi í markaðsfræðum við Tampere-háskól-
ann í Finnlandi og er nú stödd á íslandi á vegum AIESEC
sem eru alþjóðleg skiptinemasamtök viðskipta- og hag-
fræðinema.
Morgunblaðið átti stutt samtal
við Tiinu fyrir skömmu og var hún
fyrst spurð um starfsemi skipti-
nemasamtakanna.
„Samtökin eru alþjóðleg og eru
þátttökulönd núna um 60 talsins.
Þau voru stofnuð árið 1948 og
höfðu það markmið að veita nem-
endum kost á þjálfun og vinnu sem
tengdist námi þeirra".
„Það er mjög mikilvægt fyrir
nemendur £ið kynnast því hvemig
viðskipti eru stunduð í ólíkum lönd-
um vegna þess að hvert land hefur
sína siði og reglur í viðskiptum jafnt
og öðru“.
Tiina leigir íbúð ásamt nokkrum
öðrum skiptinemum á vegum sam-
takanna en á íslandi eru nú um tíu
skiptinemar frá Þýskalandi, Aust-
urifti, Tyrklandi, Póllandi, Júgó-
slavíu og Kanada. Hún kvað það
mjög þroskandi að búa með fólki
frá svo mörgum ólíkum löndum og
sagði að auk þess sem þau lærðu
mikið hvert af öðm reyndi einnig
töluvert á aðlögunarhæfni og per-
sónuleika hvers og eins.
„Ég hafði dálitlar áhyggjur af
því að ég kynntist engum Islending-
um ef ég byggi með AIESEC
krökkunum en ég hefði ekki þurft
þess. íslendingar em með afbrigð-
um vingjamlegir og mér hefur
reynst auðvelt að kynnast þeim.
Ég hafði búist við því að íslending-
ar væm mjög líkir Finnum en þeir
virðast vera mun vingjarnlegri og
tilfinninganæmari en Finnar".
Aðspurð sagði Tiina að skipti-
nemar á vegum AIESEC héldu
hópinn og væm fundir haldnir á
hveijum þriðjudegi. Auk þess er
farið í ferðalög um helgar og hefur
nú þegar verið farið í Skaftafell,
Þórsmörk og á fleiri staði. Um
næstu helgi stendur til að heim-
sækja Vestmannaeyjar.
Tiina segir að flestir skiptinem-
amir séu mjög ánægðir með dvöl
sína hér á landi en þeir hafí auðvit-
að verið misjafnlega heppnir með
vinnu. „Ég hef t.d. verið alveg sérs-
taklega heppin að fá vinnu sem
tengist að einhveiju leyti því sem
ég er að læra" sagði Tiina.
Þegar Tiina var spurð að því
hvað hefði komið henni mest á óvart
á íslandi sagði hún það vera biðrað-
armenninguna eða öllu heldur skort
á henni.
„Fyrst í stað fannst mér ég alls
staðar vera fyrir fólki. Hvar sem
ég kom í banka eða aðrar stofnanir
þar sem fólk fer venjulega í biðrað-
ir til þess að fá afgreiðslu þá tróð
fólk sér áfram með olnbogaskotum
og öðmm tiltækum ráðum. Það má
segja að þetta hafi komið mér einna
mest á óvart".
Tiina var að lokum spurð að því
hvort hún hefði kynnt sér skemmti-
staði borgarinnar í sumar.
„Ég hef farið bæði á „Borgina"
og Casablanca en Gaukur á stöng
er í mestu uppáhaldi hjá mér. Þang-
að fer ég stundum oft í viku. Mér
fínnst stemmningin þar alveg frá-
bær og ekki síst þegar lifandi tónlist
er á staðnum".
Tiina hefur dvalið hér á landi
síðan í lok maí og fer aftur til náms
í Finnlandi í byijun september. Hún
sagði að auðvitað hlakkaði hún til
þess að fara heim en hún væri stað-
ráðin í því að koma einhvem tímann
aftur til Islands þótt síðar verði.
Þangað til getur hún omað sér við
góðar minningar frá sumrinu sem
nú er að líða.
Morgunblaðið/Sverrir
Eigendur Spes, Kolbrún Gísladóttir t.v. og Guðrún S. Sigurðardóttir
í nýju versluninni.
Ný snyrtivöruverslun í Kleifaseli
NÝ snyrtivöruverslun hefur ver-
ið opnuð í Kleifaseli 18. Verslun-
in ber nafnið Spes og eru
eigendur Kolbrún Gísladóttir og
Guðrún S. Sigurðardóttir.
í snyrtivöruversluninni er lögð
sérstök áhersla á persónulega ráð-
gjöf við val á förðunar- og húð-
snyrtivörum. Einnig er á boðstólum
ókeypis sýnishom til að auðvelda
val á réttu vörutegundinni, en þær
helstu em Clarins, Helena Rubin-
stein, Lancome, Jean d’Avéze og
Margaret Astor. Auk snyrtivara
fást skartgripir og fleira.
I