Morgunblaðið - 01.09.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.09.1987, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987 Nýir aðilar takavið rekstri Naustsins NÝIR aðilar munu taka við veit- ingarekstri i Naustinu frá og með 1. október nœstkomandi. Það eru hjónin Kristjana Geirsdóttir og Sveinn Hjörleifsson, sem undan- farin ár hafa starfað við veitinga- stjórn í Hollywood og Broadway, og Sturla Pétursson framreiðslu- maður og Rósa Þorvaldsdóttir kaupmaður. Kristjana sagði í samtali við Morg- unblaðið að ætlunin væri að lagfæra ýmislegt innanstokks, en þó myndi húsið halda sinum upprunalega svip. Bryddað yrði upp á ýmsum nýjung- um í rekstrinum og í Geirsbúð yrði komið upp nýjum bar með tilheyr- andi barstemmningu og lifandi tónlist, þar sem boðið yrði upp á smárétti. Kristjana sagði ennfremur að lögð yrði áhersla á að vinna Naustinu aftur þann sess og þá sér- stöðu, sem húsið hafði á blómaskeiði sínu. Hæstiréttur: Haraldur o g Hrafn sóttu um TVEIR menn hafa sótt um stöðu hæstaréttardómara, en Halldór Þorbjörnsson lét af þvi starfi i gær. Umsækjendumir tveir eru þeir Haraldur Henrysson, sakadómari, og Hrafn Bragason, borgardómari. Lög- um samkvæmt gefur Hæstiréttur umsögn um umsælq'endur áður en forseti íslands skipar í stöðuna, sem verður að öllum líkindum á næstu dögum. Kaupsamningur við Boeing heimilar skipti á flugvélum í kaupsamningi Flugleiða við Bo- eing-flugvélaverksmiðjuraar um kaup á Boeing 737-400-þotum er ákvæði um heimild til að skipta á B 737 og Boeing 7J7-fIugvéIum. Þetta kemur fram I frétt I Flug- tíðindum, fréttablaði um flugmál. Þar er haft eftir Sigurði Helgasyni forstjóra Flugleiða að: „Með því að setja þetta ákvæði inn í samninginn vildum við leggja áherslu á sveigjan- leika. Boeing 7J7-flugvélin á að vera tilbúin til flugs árið 1992 og á þessu stigi veit enginn nákvæmlega hvað hún verður tæknilega fullkomin í endanlegri mynd. Nú þegar gefur Boeing t.d. upp að hún verði a.m.k. 20% ódýrari í rekstri en þotur búnar nýjustu gerðum þotuhreyfla." Ræður for- sætisráð- herraá Akureyri Mistök voru gerð við vinnslu á sunnudagsblaði Morgunblaðsins, þegar sagt var frá ræðu Þorsteins Pálssonar, forsætisráðherra, á Akureyri. Þar var vísað til ræðu forsætisráðherra i Akureyrar- kirkju og tilkynningar hans um að rfkissljórnin hefði ákveðið að styrkja starfsemi Leikfélags Ak- ureyrar. í frétt blaðsins sagði ranglega, að forsætisráðherra hefði skýrt frá þessari ákvörðun ríkisstjórnarinnar á þingi Lands- sambands sjálfstæðiskvenna, sem haldið var á Akureyri um helgina, en þar flutti ráðherrann einnig ræðu. Biður Morgunblaðið alla sem hlut eiga að máli velvirðingar á þessum mistökum. Morgunblaðið/Þorkell Valur Araþórsson, Jón Sigurðsson og Kristján Ragnarsson svara spurningum fréttamanna eftir fund sinn í gær. Garðar Garðarsson hrl og Skúli Ólafs eftir fund sinn með við- skiptaráðherra og tilboðshöfum í hlutabréf Útvegsbankans hf. Útvegsbankinn hf: Mögiileikar á þríhliða kaupum á lilutabréfunuin Viðskiptaráðherra segist ekki útiloka að starfsfólk og viðskiptamenn Útvegsbankans hf., sem nú eru að kanna mögu- leika á hlutafjársöfnun á breiðum grundvelli, komi inn í viðræður við Sambandið og þá 33 aðila sem gert hafa tilboð i hlutabréf ríkisins í bankanum og þessir þrír hópar sameinist um hlutafjárkaupin. Ráðherra hefur óskað eftir að Sambandið og aðilamir 33 ræði saman um sameiginleg kaup á hlutabréf- unum og munu þeir síðar- nefndu taka afstöðu til þessa á fundi í dag. Jón Sigurðsson viðskiptaráð- herra hélt í gær annan sameigin- legan fund með Vali Amþórssyni stjómarformanni Sambandsins og Kristjáni Ragnarssyni fulltrúa þeirra 33 fyrirtækja og aðila tengdum sjávarútvegi sem gert hafa tilboð í hlutabréf ^ríkisins í Útvegsbankanum hf. Á þennan fund komu einnig Skúli Ólafs við- skiptafræðingur og starfsmaður Útvegsbankans og Garðar Garð- arsson hæstaréttarlögmaður sem fulltrúar starfsmanna og við- skiptamanna bankans sem nú kanna hlutafjársöfnun. Jón Sigurðsson sagði eftir fundinn að það yrði athugað hvort starfsmenn og viðskiptamenn bankans gætu orðið þátttakendur í lausn þessa viðfangsefnis sem sala hlutabréfa ríkisins í bankan- um er. Hann vildi ekki segja að sú lausn væri í sjónmáli en líkur væru á að viðræður um hana væru framundan. Þegar Jón var spurður hvort til greina kæmi að hlutabréfunum yrði skipt jafnt milli þessara þriggja aðila sagði hann að verkefnið sem fyrir lægi væri að selja takmarkaða fjárhæð af hlutafé bankans og ef þrír kæmu til sögunnar hlytu viðræður að snúast um hvemig heppilegast væri að skipta hlutafénu. Kristján Ragnarsson og Valur Amþórsson vildu ekkert segja um viðbrögð þeirra umbjóðenda við að þessir 3 aðilar sameinuðust um að kaupa bréfin. Kristján sagði að þessari spumingu hefði ekki verið beint til þeirra en þeir hefðu alltaf fagnað því að eignaraðildin að bankanum yrði dreifð og því væri ekkert á móti fleiri sam- eignaraðilum. Valur Amþórsson sagði að samráð hefði verið haft hans meg- in og hann hefði skýrt þau sjónarmið sem þar hefðu komið upp en vildi ekki skýra frá þeim fýrr en aðilamir 33 væra búnir að halda sinn fund. Skúli Ólafs, talsmaður starfs- fólks og viðskiptamanna Útvegs- bankans, sagði við Morgunblaðið að verið væri að kanna hug fólks og athuga hvort það treysti sér að leggja fram hlutafé. Stefnt væri að stofnun víðtæks almenn- ingshlutafélags sem gæti keypt öll hlutabréfin. Skúli sagði þó ekki fullljóst hvort aðeins væri tekið við tilboði í hlutabréf ríkisins í heilu lagi eða hvort bréfín væra á markaði eins og áður og hver sem er gæti keypt hlutabréf. Ráðherra hefði upplýst að allir gætu farið í viðskiptaráðu- neytið og skrifað sig fýrir hluta- bréfum. Hinsvegar væri ekki ljóst hvað yrði um þær uppáskriftir ef öðra hvora tilboðinu, sem þegar hefur borist í öll bréfin, yrði tekið og því væri knýjandi að fá ákveðna afstöðu í málinu. Skúli sagði að erfitt yrði fyrir svona hóp að gera eitt tilboð með litlum fyrirvara og óljóst hvemig standa þyrfti að slíku með trygg- ingar og annað þess háttar. Skúli sagði hinsvegar að markmiði hópsins væri náð ef þeir tveir aðilar sem gert hafa tilboð í bréf- in og starfsfólk og viðskiptamenn gætu sameinast á einhvem hátt um kaupin á bréfunum. Kaupmáttiir launa í iðn- greinum aldrei meiri en nú — samkvæmt athugnnum Félags íslenskra iðnrekenda ATHUGANIR Félags íslenskra iðnrekenda benda til að kaup- máttur launa i iðngreinum hafi aldrei verið meiri en nú, og jafnvel að kaupmáttur launa almennt sé sá mesti sem mælst hefur. FÍI og Vinnuveitendasamband- ið hafa unnið að athugunum á kaupmætti launa út frá niðurstöð- um Kjararannsóknanefndar úr kjararannsóknum á 1. ársfjórð- ungi þessa árs og sagt var frá í Morgunblaðinu fyrir helgi. í sam- tali við Morgunblaðið sagði Ólafur Davíðsson, framkvæmdastjóri FÍI, að sú mikla kaupmáttar- hækkun, sem varð frá 4. ársfjórð- ungi 1986 til 1. ársfjórðungs 1987, eða um 6%, og launaþróun í sumar, svo sem fastlaunasamn- ingar í ýmsum greinum og launaskrið, bendi til að kaup- mátturinn hafi enn aukist tölu- vert. Ólafur sagði að endanlegar nið- urstöður væru ekki komnar úr þessum athugunum en svo virtist sem ekki vantaði mikið upp á að kaupmáttur almennt hafí náð því sem hann hefur farið hæst áður þótt hann hafi ekki aukist í eins stórum stökkum undanfarið og í kringum síðustu áramót auk þess sem verðbólgan hefði verið á tals- verðu skriði á sama tíma. Hægt væri að sýna tölur um að kaup- Alþýðubandalagið: SVAVAR Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurbjörs á landsfundi flokksins í haust. Segir Svavar að endurnýjunarreglur flokksins geri ráð fyrir að formenn væru ekki lengur við völd en sex ár og hefði hann þegar verið form- máttur iðnaðarmanna hefði aldrei verið meiri eftir fastlaunasamn- inga og Iaunaskrið sumarsins, en tölur um verkafólk væru óljósari og þar yrði að bíða niðurstaðna frekari kannana. Ólafur sagði að tölur um fólk aður í 7 ár. Svavar hefur einnig sagt í flöl- miðlum að hann telji að þeir sem era hvað mest markaðir af innan- flokksátökum í Alþýðubandalaginu eigi að láta af störfiim og að þessi ákvörðun hans ætti að auðvelda endurskipulagningu innan forys- tunnar. í öðrum starfsgreinum eins og þjónustu og verslunargreinum bentu til þess sama. Þannig sýndu tölur Kjararannsóknanefndar að kaupmáttur kvenna í afgreiðslu- störfum á 1. ársfjórðungi þessa árs hefði aldrei verið meiri. Svavar Gestsson hættir sem for- maður í haust
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.