Morgunblaðið - 01.09.1987, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
38
Suður-Kórea:
32 lágu í valnum
Seoul, Reuter.
LÍK þrjátíu og tveggja tnanna, þar á meðal sjö ungra stúlkna, úr sér-
trúarflokki fundust í verksmiðju í Suður-Kóreu á laugardag. Lögregla
telur ljóst að um fjöldasjálfsmorð hafi verið að ræða. Leit stendur
enn yfir af 60 öðrum verkamönnum sem saknað er úr verksmiðj-
unni, sem er í bænum Yongin 80 km suður af Seoul.
Líkin fundust á skemmulofti yfir
kaffístofu verksmiðjunnar. Flest
fórnarlömbin voru bundin á höndum
og fótum og pappír hafði verið troð-
ið upp í nasir og munnvik þeirra.
Fataleifar á hálsi bentu til að fólkið
hefði verið kæft. Einnig fannst eitur
í mörgum líkanna við krufningu og
sex tómar lyflakrúsir fundust í ná-
grenninu. Líklegast er talið að um
fjöldasjálfsmorð hafí verið að ræða
en lögregla útilokar ekki þann mögu-
leika að einn verkamannanna sem
fannst hengdur í lofti verksmiðjunn-
ar hafí kyrkt hina áður en hann
framdi sjálfsmorð.
Á meðal hinna látnu var eigandi
verksmiðjunnar, hin 48 ára gamla
Park Soon-ja, og þijú böm hennar.
Greint hefur verið frá því að verka-
mennimir kölluðu hana „mömmu"
og verksmiðjuna, þar sem leikföng
vom framleidd, kölluðu þeir „himna-
ríki“. Park, sem talin er hafa skuldað
um það bil 8 milljónir Bandaríkjad-
ala, virðist hafa haft undarleg tök á
starfsfólki sínu. Hún fékk það til að
láta eigur sínar af hendi og flytjast
í nokkurs konar vinnubúðir. Þar fóm
fram trúarlegar athafnir á hveiju
Á myndinni má sjá hina hörmulegu aðkomu í verksmiðjunni.
kvöldi. Bömum verkamannanna var
haldið sér, í vel búnum einkaskóla
og þeim bannað að gefa sig að öðm
fólki.
Park hvarf fyrir viku, eftir að
nokkrir starfsmanna hennar vom
handteknir fyrir að leggja hendur á
innheimtumenn.
Filippseyjar:
Kommúnistar hyggjast
notfæra sér ástandið
Manilu, Waahington, Reuter.
SKÆRULIÐAR kommúnista á Filippseyjum hótuðu í gær að not-
færa sér umrótið í kjölfar byltingartilraunarinnar á föstudaginn til
að gera nýjar árásir á hinn sundraða herafla landsins. Einnig var
orðrómur á kreiki um að uppreisnarmenn innan hersins hefðu kom-
ið á fót eigin ríkisstjóm.
í yfírlýsingu frá kommúnistum
sagði meðal annars að klofningur-
inn innan hersins skapaði „stórkost-
legt tækifæri fyrir uppreisn okkar."
Flokkur vopnaðra manna, sem talið
var að væm kommúnistar,
sprengdu í loft upp stóra eldsneytis-
birgðastöð fyrir utan Manilu á
sunnudagsnóttina, aðeins nokkmm
stundum eftir að hermenn hliðhollir
stjóminni unnu sigur á uppreisnar-
mönnum.
Bandaríkjastjóm hvatti filipps-
eysku stjómina til þess að grípa til
aðgerða gegn kommúnistum og
sameina herinn til þess verkefnis.
Fidel Ramos, yfírmaður hersins,
viðurkenndi að það myndi taka tíma
að skapa einingu innan hersins á
ný, en að því væri nú unnið af full-
um krafti.
Ramos sagði að að allir foringj-
ar, sem ekki væm á sínum stað á
hádegi, yrðu handteknir, en her-
menn, sem hefðu aðeins hlýtt
skipunum án þess að vita hvort þær
væm löglegar eða ekki, yrðu teknir
til viðtals og ferðafrelsi þeirra skert.
Yfír 800 uppreisnarmenn hafa verið
handteknir.
Fréttamenn Reuters-fréttastof-
unnar í Baguio, norður af Manilu,
sögðu í gær að spenna ykist í borg-
inni þar sem frést hefði að leiðtogi
uppreisnarmanna, Gregorio
„Gringo" Honasan, hefði sett á fót
bráðabirgðastjóm. Honasan flúði í
þyrlu er ljóst var að hann gæti
ekki haldið Aguinaldo-herbúðunum
í Manilu. Ekki er vitað hvar hann
heldur sig nú, en sumir heimildar-
manna Reuters töldu jafnvel að
hann færi huldu höfði í Manilu.
í óundirrituðu skjali, sem frétta-
menn hafa fengið í hendur, er
krafíst nýrra forsetakosninga og
sagt að landið hafí verið sett undir
bráðabirgðastjóm „þar til stjóm-
málaástand kemst í eðlilegt horf.“
Þar er stjóm Aquinos sökuð um
MARGRÉT Höke, sem njósnaði
fyrir Sovétmenn í átta ár þegar
Reuter
Aquino sæmir særðan hermann
sinn heiðursmerki á sjúkrahúsi í
Manilu í gær.
hún var ritari forsetaembættis-
ins í Vestur-Þýskalandi, var
fundin sek um landráð í gær
og dæmd tíl að sitja átta ár f
fangelsi.
Höke er 51 árs gömul og var
handtekin fyrir tveimur árum. Var
hún einn af mörgum ógiftum ritur-
um, sem útsendarar sovésku
leyniþjónustunnar KGB tældu í
svokallaðar „hunangsgildrur"
sínar. „Hún var hættulegur njósn-
ari og afar mikilvæg fyrir KGB,“
sagði Klaus Wagner, dómari í
Dusseldorf, þegar hann kvað upp
úrskurð sinn.
Wagner sagði verst að Höke
hefði látið KGB hafa trúnaðarskjöl
vestur-þýska utanríkisráðuneytis-
ins, þar sem fjallað væri um
umræður innan Atlantshafsbanda-
lagsins árin 1982 og 1983 um
staðsetningu kjamorkuflauga í
Evrópu. Þessi skjöl hefðu síst af
öllu mátt koma fyrir augu ráða-
manna í Moskvu, sem hefðu viljað
leggja allt í sölumar til að grafa
undan samstöðu Atlantshafs-
bandalagsríkja um að koma fyrir
kjamorkuflaugum til mótvægis við
flaugar Sovétmanna.
Sækjandi krafðist þess að Höke
yrði dæmd í ellefu ára fangelsi,
en dómarinn tók tillit til þess að
landráð og að hafa sýnt linkind í
viðskiptum við skæruliða múslima
og kommúnista.
Juan Ponce Enrile, einn helsti
leiðtogi stjómarandstöðunnar á
Filippseyjum, sagði í gær að upp-
reisnin hefði orðið vegna þess að
stjómin hefði skellt skollaeyrum við
kröfum illa búinn og láglaunaðra
hermanna. Hann sagðist ekki hafa
átt aðild að uppreisninni, en vildi
þó ekki fordæma hana.
Aquino forseti hélt sjónvarpsá-
varp í gær og sagði að allar frekari
tilraunir til uppreisnar gegn henni
og stjóm hennar yrðu brotnar á bak
aftur. „Markmið þeirra var greini-
lega að drepa forsetann og fjöl-
skyldu hennar," sagði Aquino. „Á
föstudaginn kenndum við þeim sína
beiskustu lexíu. Við getum farið
yfír hana með þeim aftur ef þeir
vilja."
hún hefði játað sekt sína og hún
hefði verið dregin á tálar og dæmdi
hana til átta ára fangelsisvistar.
Sagði Wagner að Höke hefði
verið ritari forsetaembættisins í
tíu ár þegar Franz Becker fékk
hana til að ganga til liðs við KGB
árið 1968.
Sagði hann að fjöldi skjala hefði
farið um hendur hennar frá þeim
tíma. Forseti sambandslýðveldis-
ins er nánast valdalaus, en afrit
af öllum helstu skjölum og stjóm-
argögnum berast inn á skrifborð
hans engu að síður.
Lét Höke Sovétmenn hafa upp-
lýsingar um vetraræfingar NATO,
Vestur-þýsku leyniþjónustuna
BND og upplýsingar um hagi og
einkalíf starfsmanna stjómarinn-
ar.
Þau skjöl, sem Höke lét af
hendi, þóttu mörg hafa verið svo
mikilvæg að hluti réttarhaldanna
yfír henni fór fram fyrir luktum
dymrn.
Árið sem Höke var handtekin
rak hvert njósnahneykslið annað
og tók steininn úr þegar Hans
Joachim Tiedge, sem verið hafði
einn helsti njósnaveiðari Vestur-
Þjóðveija, reyndist hafa verið
tvöfaldur f roðinu og flúði austur
yfír.
Kvikmyndaleikarinn
Lee Marvin látinn
Tuc«on, Arizona, Reuter.
Bandariski
leikarinn Lee
Marvin lést úr |
hjartaslagi á
föstudaginn í
borginni Tuc-
son f Arizona,
63 ára að aldri.
Árið 1965 fékk
Marvin Óskars-
verðlaunin fyrir Keuter
leik sinn í Marvin.
myndinni „Cat Ballou" en þar
lék hann drykkfelldan byssub-
ófa og kúreka. Þar þótti hann
fara á kostum en við afhendingu
verðlaunanna sagði Marvin að
hesturinn f myndinni hefði átt
skilið að fá verðlaunin fyrir af-
rek sín.
Marvin fæddist í New York
1924 og var af auðugu fólki. Hann
var margsinnis rekinn úr skóla en
gerðist loks landgönguliði í flotan-
um. Að svo búnu hélt hann heim
til New York og hóf nám í leiklist.
Marvin lék fíölmörg hlutverk á
sviði áður en hann sló í gegn í
leikritinu „Billy Budd.“ Frá 1961
lék hann í mörgum sjónvarpsþátt-
um og kvikmyndum og fyrir utan
„Cat Ballou" má nefna „Point
Blank", „The Big Red One“, „The
Professionals", „The Dirty Dozen",
„Paint Your Wagon" og „Ship of
Fools".
Er Marvin var spurður hvers
vegna hann léki alltaf harðsoðna
ofbeldismenn svaraði hann því til
að ofbeldi hefði alltaf verið til í
heiminum.
„Það er ofbeldi í hveijum blóð-
dropa í mér þvf að ég er, eins og
allir aðrir menn, kominn af hellis-
búunum. Annars væri ég ekki til“,
bætti hann við.
V estur-Þýskaland:
Forsetaritari dæmdur í 8
ára fangelsi fyrir njósnir
Bonn. Reuter.
Noregur:
Nýr yfir-
maður
hersins
Osló, Reuter.
NÝR yfírmaður herafla Norð-
manna var skipaður í gær til
að taka við af Fredrik Bull-
Hansen, sem nú lætur af störf-
um eftir litríkan feril.
Nýi yfirmaðurinn heitir Vig-
leik Eide og er fímmtíu og
þriggja ára að aldri. Hann er
fyrrum yfirmaður hersveita
Norðmanna í norðurhluta lands-
ins.
Bull-Hansen var umdeildur
maður, meðal annars gagnrýndi
vamarmálaráðherrann Johan
Jörgen Holst hann fyrir að láta
í ljós persónulegar skoðanir á
vamarmálum, sem ekki vom
samhljóða stefnu stjómar
Verkamannaflokksins. Bull-
Hansen hafði til dæmis ráðist á
þá ákvörðun stjómarinnar að
hafna aðild að geimvamaáætlun
Bandaríkjamanna og taldi að
útgjöld Norðmanna til vamar-
mála væm alltof lítil til þess að
landið gæti staðið við skuld-
bindingar sínar í NATO.
Sovétríkin:
Kona verður
sendiherra
Moskvu, Reuter.
SOVÉTMENN útnefndu í gær
konu sem sendiherra Sovétríkj-
anna í Sviss. Nýi sendiherrann
(sendifrúin?) heitir Zoya Novoz-
hilova og mun vera eina konan,
sem gegnir þessum starfa fyrir
land sitt.
Novozhilova er fædd árið
1943 og var hátt sett í ungliða-
hreyfingu Kommúnistaflokksins
frá 1972 til 1981, en þá var hún
aðstoðarmenntamálaráðherra í
Rússneska sovétlýðveldinu.
Stríðsástandi
aflétt
Vín, Reuter.
ALBANIR fögnuðu á laugardag
ákvörðun Grikkja um að aflétta
stríðsástandi, sem hefur ríkt
milli þjóðanna í orði frá árinu
1945, þrátt fyrir að þær hafí
tekið upp stjómmálasamband
árið 1971.
„Albanska stjómin fagnar
þessari aðgerð Andreasar Pap-
andreou, sem fór með vandamál
þetta af pólitísku raunsæi," seg-
ir í yfírlýsingu albanska utanrík-
isráðuneytisins.. Aðstoðamt-
anríkisráðherra Albaníu mun
halda í opinbera heimsókn til
Aþenu í þessari viku, að sögn
austurrísku fréttastofunnar
APA, og erlendir sendimenn í
Aþenu segja að samskipti
ríkjanna fari nú batnandi.
Mannskæður
fellibylur í
Kóreu
Seoul, Reuter.
FELLIBYLURINN Dinah, sem
gekk yfír S-Kóreu í gær, kost-
aði að minnsta kosti tuttugu og
þijá llfíð og fimmtíu og tveggja
sjómanna er saknað, en illviðrið
sökkti skipi þeirra úti fyrir aust-
urströnd Kóreuskaga.
Kóreskir embættismenn
sögðu að 150 manns hefðu misst
heimili sín I óveðrinu og vatn
hefði flætt yfír 86.000 hektara
akurlendis. Eignatjón var metið
á um 15 milljarða won, sem
samsvarar um 760 milljónum
króna. Röð fellibylja hefur hijáð
Kóreumenn í sumar og f júlí lét-
ust 600 manns af þeirra völdum.
Að sögn lögreglu í Japan lét-
ust tvö gamalmenni á eynni
Kyushu er fellibylurinn gekk þar
yfír og 49 slösuðust.