Morgunblaðið - 01.09.1987, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 01.09.1987, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987 Fínnska ríkið 1egg- ur fé inn á banka Flugvélasmiðir mótmæla Þúsundir ísraela, sem starfa við flugvélaiðnað, stöðvuðu umferð á aðalveginum miUi Jerúsalem og Tel Aviv í gœr. Aðgerðir flugvélasmiðanna voru liður í mótmælum gegn ákvörðun ísraelsstjórn- ar um að hætta við smíði Lavi-orrustuþotunnar. Ákvörðun stjómarinnar hefur valdið mikilli ólgu i landinu, ráðherrann Moshe Ahrens hefur sagt af sér og margir líta svo á að herveidisímynd ísra- els hafi beðið hnekki. Á myndinni sjást flugvélasmiðir ráðast á bifreið, en á innfelldu myndinni má sjá hina umdeildu Lavi-þotu í flugskýli. ur og láti framkvæma fóstureyðing- ar. Þessi könnun er gerð nú nokkru fyrir heimsókn Jóhannesar Páls páfa II til Bandaríkjanna og Kanada í september. Bandarískir kaþólikkar drógu ekki f efa, að páfi hefði nokkuð til síns máls í viðvörunum og umvönd- unum, lytu að Jarðneskum" málum. Þannig sögðust 75% kaþólikka og 56% mótm ælenda, sem voru spurð- ir að yfirlýsingar páfa um efnis- hyggju, eigingimi og græðgi til gaeða ættu fullan rétt á sér. Fram kom, að 53% bandarískra kaþólikka telja páfann óskeikulan, þegar hann fjallar um kenningar Líbýumanna, um að þeir hefðu fellt 460 manns, væru þó sennilega ýkt- ar. Fréttamönnum voru sýnd hertekin hergögn, eldflaugar og loftvamabyssur. Haski sagði að Líbýumenn virtust hafa góða stjóm á öllu og ekki óttast að her Chad reyndi að ná bænum aftur. í gær skýrði útvarpið í Trípólí, höfuðborg Líbýu, frá því að frá og með gærkvöldinu yrði loftárásum á Chad hætt til að halda upp á af- mæli byltingar Gaddafis IJbýuleið- toga, en hann náði völdum í ágústlok 1969. Ósigur Chadbúa nú bindur enda á þriggja vikna herferð þeirra til að frelsa norðurhluta landsins úr höndum Líbýumanna. Aouzou- ræman svokallaða, sem er álíka að flatarmáli og ísland, liggur með- fram hinum alþjóðlega viðurkenndu landamæmm ríkjanna og hefur ver- ið hemumin af Líbýu síðan 1973. Líbýumenn gera kröfu til svæðisins samkvæmt samningi frá 1935, sem var undirritaður af fyrrum nýlendu- hermm landanna, Ítalíu og Frakk- landi, en aldrei staðfestur. Frakkar, sem hafa 1200 manna lið í suðurhluta Chad, fyirum ný- lendu sinnar, munu ekki skipta sér af stríði ríkjanna að sögn Andrés Bandarískir kaþólikkar: Meirihluti leiðir hjá sér siðfræðileg páfaboð New York, Reuter MIKILL meirihluti bandarískra kaþólikka er þeirrar skoðunar, að þeir geti leitt hjá sér boð páf- ans um siðfræðileg efni og veríð engu að sfður góðir og gegnir kaþólikkar. Einkum og sér í lagi á þetta við um rétt til fóstureyð- inga og til að nota getnaðarvara- ir. Það er vikuritið Time sem birtir niðurstöður skoðanakönn- unar um viðhorf kaþólikka um helgina. Þar kemur fram að 93% banda- rískra kaþólikka segja það eðlilegt, að menn séu ekki alltaf sammála páfa. 78 prósent segja að þeir telji, að menn eigi sjálfir að taka ákvörð- un um, hvort þeir noti getnaðarverj- Krists, en 37% telja hann óskeikulan þegar hann snýr sér að siðfræðileg- um málefnum. í Bandaríkjunum er fjórði stærsti söfnuður rómversk kaþólskra í heim- inum, á eftir Brasilíu, Mexico og Ítalíu. Loks má geta þess að samkvæmt skoðanakönnuninni hafa kaþólikkar í Bandaríkjunum ekki sömu skoðan- ir og hin opinbera stefna kaþólsku kirkjunnar er. Meirihluti kvaðst til að mynda fylgjandi kvenprestum, að leyft yrði að kaþólskir klerkar fengju að giftast og meirihluti studdi einnig, að skilnaðir og ný hjónabönd yrðu leyfð innan kaþólsku kirlqunn- Eftirlýstur Síki gripinn Nýju Delhi, Reuter INDVERSKA lögreglan handtók um helgina Rajinder Singh, al- þekktur undir nafninu Jinda, en hann hefur veríð eftirlýstur síðustu sextán mánuði. Hann er talinn standa á bak við ótal pólitísk morð og hryðjuverk og umfangs- mikil leit að honum hefur staðið yfir mánuðum saman. Jinda hefur verið foringi þeirra Sfka í Punjabríki, sem hafa barizt fyrir, að það fái sjálfstæði frá Indl- andi. Hann var handtekinn í janúar 1986, en slapp úr haldi. Álitið er, að Jinda hafi einnig skipulagt mót- mælaaðgerðir Sfkha f Delhi og víðar um Indland. Lögreglustjórinn f Delhi skýrði fagnandi frá handtöku Jinda um helgina. Hann sagði, að hann hefði náðzt eftir mikinn eltingaleik og hefði lögregla sært hann skotsá- rum. Félagi hans sem náðizt lfka Satnam Singh Bawa, var eftirlýstur fyrir glæpi í Punjab. Hann var sömu- leiðis handtekinn. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunbladsins í Helsinki. FINNSKA ríkisstjómin ætlar á næsta árí að leggja inn u.þ.b. einn milljarð marka (samsv. 10 milljörðum ísl. króna) á banka- reikning f Finnlandsbanka, seðlabankanum finnska. Féð er ekki nein venjuleg fjárfesting heldur á að geyma það þangað til nýtt skattakerfi tekur gildi, en það mun væntanlega gerast eftir tvö ár. Ráðherrar í finnsku ríkisstjóm- inni komust seint í háttinn á fimmtudaginn en þeir voru að klára ^árlagaframvarp ríkisstjómarinnar fyrir árið 1988. í stómm dráttum gekk stjómarflokkunum vel að ná endum saman en auk skattamálsins var deilt um framlag ríkisins til landbúnaðarins og um hvemig á að fjármagna aðgerðir sem stuðla að aukinni atvinnu. Meginlínur frumvarpsins vora skýrðar á föstu- daginn en fjárlagafmmvarpið verður birt í heilu lagi eftir hálfan mánuð. Helst er búist við deilum á þjóð- þinginu um þau mál sem varða atvinnulöggjöfina svokölluðu. Fyrri ríkisstjóm setti lög um skyldu þjóð- félagsins að sjá atvinnulausum fyrir vinnu en íjármögnun þessara að- gerða virðist vera erfið. Ríkisstjóm- in vill nú fara hægt af stað en til þess þarf lagabreytingu sem stjóm- arandstaðan gæti komið í veg fyrir. Peningamir, sem ríkið ætlar að leggja inn á bankareikning, sam- svara þeirri upphæð sem ríkissjóður væntanlega fær „í aukatekjur" á næsta ári ef skattaálagning verður ekki leiðrétt sem samsvarar verð- bólgu. Raunvirði heildarskatta landsmanna verður þess vegna meira en búist var við, en þetta fé á að nota til að greiða niður skatta árið 1989, þegar endumýjun skattakerfisins hefur tekið gildi. Jafnaðarmönnum og hægri- mönnum hefur rejmst erfitt að ná Tvöföld tví- buragifting Moskva, Reuter SKRÁSETJARANUM í Gifting- arhöllinni í Leningrad hnykkti við, þegar hjón sem hann hafði rétt lokið við að gifta, komu aft- ur inn og báðu um að vera gefin saman. I ljós kom þó fljótlega, skrásetjaranum til léttis, að eðli- legar skýringar voru á málinu; Nazarov tvíburabræðumir sem eru við nám í Landvarnarskólan- um, voru að giftast tvíburasystr- unum Galinu og Marinu Sheinykh, fóstruskólakennurum. saman um hvort skerða eigi kaup- mátt skattgreiðenda á næsta ári en Erkki Liikanen, fjármálaráð- herra, (jafn.) tókst loksins að sannfæra hægrimenn um nauðsyn þessarar aðgerðar. Flokksstjóm hægri manna hefur oft ítrekað að ekki megi láta skattana hækka eft- ir því sem verðbólgan eykst. Búist er við að verðbólgan í Finnlandi verði 3—5% á þeim tíma sem um er að ræða. Hægri menn hafa lagt mikla áherslu á að framkvæma heildar- endurskoðun skattakerfisins m.a. til þess að auka vinnugleði þjóðar- innar, en jafnaðarmenn hafa efast um að sú endurskoðun gagni öðram en þeim tekjuháu. „Sparisjóðsbók" ríkissjóðs hjá Seðlabankanum kem- ur þess vegna bæði hægrimönnum og jafnaðarmönnum að gagni. Sjóð- inn á eingöngu að nota í það að minnka þær hugsanlegu neikvæðu afleiðingar sem nýtt skattakerfi getur haft í for með sér. Jafnaðar- menn þurfa ekki að óttast ásakanir um að hugsa bara um þá tekjuháu í þjóðfélaginu en hins vegar leggja þeir sjóðinn að veði fyrir að hægri menn fái sína breytingu á skatta- kerfinu. Líbýski herinn hrekur stjórn- arhermenn Chad frá Aouzou París, Bordeaux, Beirút, Reuter. LÍBÝSKAR hersveitír ráða nú Iögum og lofum i eyðimerkur- bænum Aouzou í norðurhluta Chad og hafa hrakið stjóraar- hermenn Chad á brott. Breskur blaðamaður, sem staddur er í Aouzou, skýrði frá þessu í fyrra- dag og franskur starfsbróðir hans staðfesti fregniraar í gær. Chadíska útvarpið hélt því enn fram í gær að hermenn stjómarinn- ar héldu stöðvum sínum umhverfís bæinn og þar væri enn barist af hörku. Blaðamanni franska blaðsins Liberation sagðist hins vegar svo frá að líbýskir hermenn hefðu sýnt fréttamönnum bæinn, lík hermanna Chad lægju út um allt og hersveit- imar, sem náðu bænum af Líbýu- mönnum fyrir þremur vikum, væra augljóslega flúnar. „Meðfram tólf kílómetra vegar- spotta á leiðinni til Aouzou era ummerki orrastunnar nánast óbærileg," sagði Pierre Haski í frétt sinni. „Stirðnuð lík hermanna Chad liggja sviðin við hjól farartækja þeirra, aðrir sundurtættir af sprengjum og með iðrin úti, frá þeim leggur nádauninn í hitanum." Haski sagði að yfírlýsingar Girauds, vamarmálaráðherra Frakklands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.