Morgunblaðið - 01.09.1987, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
71
Hljómleikaferð Ma-
donnu um heims-
byggðina lauk með
hljómleikum í Basel í
Sviss í gær, og hafa þá
alls 1,35 milljón aðdáenda
séð söngkonuna í Japan,
Bandaríkjunum og Evr-
ópu. Það er víst lítil hætta
á að hún falli í gleyms-
kunnar dá strax að
heimsreisunni lokinni, því
hún er með fleiri jám í
eldinum en sönginn.
Nýbyijað er að sýna
kvikmynd Madonnu,
„Whos that Girl“, í
Bandaríkjunum. Myndin
sú hefur hlotið misjafna
dóma, og getum við ekki
stillt okkur um að birta
hluta úr umsögn eins
gagnrýnanda í illkvittnari
kantinum: „Madonna
gengur um með ýktum
mjaðmadillum, blikkar
augunum eins og hún
væri í akkorði, og er í einu
orði sagt svo óþolandi
sykursæt, að hver heil-
brigður maður getur ekki
að því gert að óska þess
að steðji detti í höfuðið á
henni."
Ekki beint falleg lýsing,
en Madonna getur auð-
veldlega lejrft sér að blása
á orðljóta gagnrýnendur.
Hún er nýbúin að gera
samning við framleiðend-
ur Dynasty-sjónvarps-
þáttanna, og á hún að fá
sem svarar 2 milljónum
íslenskra króna fyrir
hvem hinna 8 þátta sem
hún kemur fram í. Þá er
uppi orðrómur um að
Madonna hafí áhuga á
endurgera hina sígildu
mynd frá 1930, „Blái en-
gillinn", með sjálfrí sér í
aðalhlutverki. Þegar þessi
orðrómur var borinn undir
Marlene Dietrich, sem nú
er 85 ára og býr í París,
sagðist hún hvorki vilja
heyra eða sjá þessa Ma-
donnu, eða hafa nokkuð
að gera með slíka mynd.
Plötur Madonnu hafa
nú selst í um 55 milljónum
eintökum, og menn giska
á að auður hennar nemi
um 5 milljörðum íslenskra
króna. Hún þarf því ekki
að hafa áhyggjur af
Poppstjarnan Madonna á einum tónleikanna í heimsreisunni.
mörgu, nema þá ef vera
skyldi eiginmanninum,
honum Sean Penn, sem
er eins og margir vita hinn
mesti gallagripur.
Hann var dæmdur í 32
daga fangelsi um daginn
fyrir að lemja samleikara
sinn í kvikmyndinni „Col-
ors“, en fulltrúar réttví-
sinnar hafa gefíð Sean
leyfí til að fresta innise-
tunni þar til tökum á
myndinni er lokið. Ma-
donna flutti frá Sean fyrr
f sumar og skilnaðarum-
ræður voru komnar á
fullt, en nú mun Madonna
hafa séð aum á Sean, og
ætlar að gefa honum eitt
tækifæri í viðbót til að
bæta sitt ráð eftir að hún
kemur heim úr heimsrei-
sunni.
MADONNA
minnir á si g
CWOP
■wjfiiy
STURTUKLEFAR
0G
BAÐVEGGIR
ÚRÁLI0G HVÍTU ‘
Pottfeen
Suðurlandsbraut 10. S. 686499.
10% Stgr. afsláttur meðan sýningin „Veröldin '&7U stendur