Morgunblaðið - 01.09.1987, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
Metsölublaó á hverjum degi!
Einstaka tré þurfti að smíða að
nýju. Hér er Valur að „snikka"
til nýtt tré úr rekavið af Strðnd-
um.
fyrir rúmum hundrað árum, skv.
„Þættir úr sögu Austurlands“.
Helstu hvatamenn eru Þorvarður
Kjerúlf, læknir á Ormsstöðum og
Páll Vigfússon, cand phil og rit-
stjóri. Fyrst var verslunarhöfnin
í Lagarfljótsósi. Otto Wathne,
með aðstöðu sína á Seyðisfírði
verður í raun fyrsti pöntunar-
stjóri þess, flyst starfsemin á
Seyðisfjörð og er fyrst í leiguhús-
næði. Er Tryggva Gunnarssyni
og Gránufélaginu kennt um að
svo fór vegna dugleysis við að
standa að uppbyggingu við Lag-
arfljótsósa.
Gekk nú á ýmsu uns hús fé-
lagsins risu á Seyðisfírði.
Vörukaup frá útlöndum voru t.d.
75 þúsund krónur árið 1892.
Hús það sem hér um ræðir er
svo byggt af Pöntunarfélaginu
árið 1898. Þess má einnig geta
að matsverð þess árið 1918 er
krónur níu þúsund. Þá eru auk
þess geymsluhús metið á tuttugu
og Qögur þúsund, lóð metin á
Qögur þúsund, hafskipabryggja
metin á níu þúsund og fímm
hundruð, bátabryggja metin á
fímm hundruð og sjógarðar
metnir á tvö hundruð krónur.
Nú er svo hafín endurbygging
hússins í Bjamarfírði og eru það
bændur á Bakka er að henni
standa, þau Amlín Óladóttir
kennari á Hólmavík og Magnús
Rafnsson maður hennar, sem auk
þess að vera bóndi á Bakka er
einnig vel þekktur þýðandi er-
lendra bóka og áður skólastjóri
við Klúkuskóla að Laugarhóli.
Bygging hússins hófst síðari
hluta sumars og miðar vel. Að
vísu varð að skipta út einstaka
tijám en fúi fyrirfínnst vart í
neinu því timbri er flutt var, eft-
ir að hafa staðið í 87 ár á
Sevðisfírði.
I júlílok safnaðist saman fjöldi
manns að Bakka og var þá grind
hússins reist. Síðan hafa heima-
menn og nokkrir kunningjar
unnið að gerð þess og klæðningu.
Hvílir verkið aðallega á herðum
þeirra Ólafs Ingimundarsonar,
smiðs og bónda á Svanshóli og
Magnúsar Rafnssonar á Bakka,
en þeir vom verktakar við bygg-
ingu sundskýlanna við Gvendar-
laug hins góða á Laugarhóli á
síðasta og þessu ári.
- SHÞ
LANDSINS MÝKSTA KAFFIDÓS
Það er góð hugmynd, að geyma kaffið
í Merrild-pokanum, því að hluti af
angan og bragði kaffisins tapast, ef
þú hellir því úr pokanum í kaffidós.
Ef þér finnst best að geyma kaffið
í sérstakri kaffidós, þá settu
Merrild-pokann í dósina og á þann
hátt, tryggir þú að kaffið haldi
ilm sínum og bragði betur.
Merrild-gæðakaffi, sem bragð er af,
enda framleitt úr bestu fáanlegum
kaffibaunum frá Brasilíu, Kólumbíu
og Mið-Ameríku.
MmíCd
setur brag á sérhvern dag.