Morgunblaðið - 01.09.1987, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
33
Morgunoiaoio/ raii uagojartsson
Sigríður Sigurðardóttir nýráðinn safnvörður í Skagafirði.
skal fyrir og hvemig. Ég vil t.d.
benda á að hvergi svo ég viti hefur
verið lögð áhersla á að taka til varð-
veislu gömul útihús úr torfí og
gijóti, fjárhús, flós og hlöðu, en ég
veit um slík hús hér í nágrenninu
í ótrúlega góðu ástandi, á Tyrfings-
stöðum á Kjálka. Mér finnst
athugandi að varðveita þessi úti-
hús. Ef athugaðir em þeir gömlu
bæir sem víðast hýsa byggðasöfn,
þá er um að ræða höfðingjasetur,
stórbýli þar sem búið hafa héraðs-
höfðingjar. Spumingin er hvort slík
húsakynni gefa ekki ranga hug-
mynd um lifnaðarhætti og húsakost
hjá almúga manna hér á landi fyrr
á tímum. Ég er spennt fyrir því að
ná í gamlan kotbæ af minn gerð-
inni og púsla honum inn í þessa
mynd.“
Þá sagði Sigríður tíma til kominn
að taka til handargagns gömlu
hestavélamar sem notaðar vom í
sveitinni og ollu byltingu í atvinnu-
háttum þar. Þessar gömlu vélar era
víðast týndar eða þá að þær em
að hverfa ofan í jörðina sem hvert
annað drasl. „Ég hef öragglega
næg verkefni fyrst um sinn,“ sagði
Sigríður. „Og ég hlakka til að ta-
kast á við þetta verkefni".
Þess má geta í lokin að mikill
straumur innlendra og erlendra
ferðamanna koma í Skagafjörð
sumar hvert til þess að skoða þessi
gömlu hús og muni og era Glaum-
bær og Víðimýrarkirkja fjölsóttastir
þessara staða. í júlímánuði s.l.
komu t.d. í Glaumbæ nærri sjö
þúsund manns.
- P.D.
Af sölumálum íslenska HM-liðsins:
Tveir hestanna enn óseldir
Farið með þá á
skeiðmeistara-
mótið í Þýska-
landi í október
Ekki hefur enn tekist að selja
alla hesta íslensku keppnissveit-
arinnar sem keppti á nýafstöðnu
heimsmeistaramóti í Austurríki.
Þeir Spói frá Geirshlið sem
Reynir Aðalsteinsson keppti á og
sigraði í gæðingaskeiði, 250
skeiði og samanlögðum fimm-
gangsgreinum og Þrymur frá
Brimnesi sem Erling Sigurðsson
keppti á eru enn óseldir. Erling
og Þrymur urðu sem kunnugt
er ! öðru sæti í gæðingaskeiði
og þriðja sæti í 250 metra skeiði.
Þá var stóðhesturinn Djákni frá
Hvolsvelli ekki seldur.
Spói er nú í Þýskalandi hjá manni
að nafni Rittmann en Þrymur er
hjá Jóhannesi Hoyos í Austurríki.
Að sögn þeirra Erlings og Reynis
munu þeir báðir stefna með hestana
á skeiðmeistaramótið sem haldið
verður í nágrenni Bonn um miðjan
október verði hestamir ekki seldir
fyrir þann tíma. Er því ljóst að
minnsta kosti þrír keppendur munu
mæta á mótið frá íslandi farí svo
að hestamir seljist ekki, því Sigur-
bjöm Bárðarson hyggst mæta á
mótið með Kalsa frá Laugarvatni.
Um verðið á þeim hestum sem
era seldir hafa gengið miklar trölla-
sögur og hafa heyrst tölur upp í
eina milljón króna. Lætur nær að
verðið sé á milli fjögur og fimm-
hundrað þúsund króna en sá
ódýrasti mun hafa selst á milli tvö
Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson
Þrátt fyrir gott gengi á Heimsmeistaramótinu hefur ekki tekist að
selja Spóa keppnishest Reynis Aðalsteinssonar.
og þijúhundrað þúsund. Ekki hefur
fengist staðfesting á söluverði
Bijáns en vafalaust hefur hann selst
hæstu verði. Óstaðfestar fregnir
herma að söluverðið hafi verið á
bilinu sex til sjöhundrað þúsund.
Kolbeinn frá Sauðárkróki var
seldur til Hamborgar, Brandur frá
Runnum var seldur til Sviss og
Waiter Schmitz, Þýskalandi keypti
Biján frá Hólum, Isak frá Runnum
og Valdísi frá Vallanesi. Blika frá
Kirkjubæ var seld til Noregs en
stóðhesturinn Djákni frá Hvolsvelli
var sendur óseldur til Noregs þar
sem hann verður hjá föður eigan-
dans sem er ungur piltur á Hvol-
svelli.
EIRIABYRGÐ!
10.000 króna tékkaábyrgð,
gegn framvísun bankakorts.
mm
rá 1. september 1987 hækkar tékka-
ábyrgðin úr 3.000 krónum í 10.000 krónur
á hvern tékka, - gegn framvísun banka-
korts.
Á bankakortinu eru tvö öryggisatriði sem
þurfa nauðsynlega að koma heim og saman
þegar tékki er innleystur, til þess að við-
komandi banki eða sparisjóður ábyrgist
hann:
1115 0000 0003 3081
KAKKI rÆP'MC ARrtúvxít
7I7S 9955-2006 121053-519
JÓNÍNA JÓHANNSOÓTTIR
utDiaOr 01/89
1. Rithandarsýnishorn.
2. Númer bankakortsins.
Meiri ábyrgð með bankakorti
- því máttu treysta!
<
to
-
Alþýðubankinn,
Búnaðarbankinn,
Landsbankinn,
Samvinnubankinn,
Útvegsbankinn,
V erzlunarbankinn
og Sparisjóðirnir.