Morgunblaðið - 01.09.1987, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
75
VELVAKANDI
SVARAR ( SÍMA
691100 KL. 13-14
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Bönnum
plastpoka
Mengunin er að gera meginland
Evrópu nánast óíbúðarhæft. Súrt
regn, dauðir skógar, geislavirkni,
slys í efiiaverksmiðrjum, ofnotkun
áburðar, ofveiði land— og sjávar-
dýra og svo mætti lengi telja. Allt
er að breytast til hins verra. Ég
spái því að eftir svo sem aldarfjórð-
ung muni Evrópubúar flykkjast í
stórum hópum til landa sem nú telj-
ast vanþróuð til að setjast þar að
ef ekkert verður að gert.
Við íslendingar erum sem betur
fer fámennir og einangraðri en
flestir. Iðnríkin í austri og vestri
færast þó sífellt nær og okkur hef-
ur orðið vel ágengt með samstilltu
átaki við að gera landið sem líkast
öðrum Evrópulöndum hvað þetta
snertir. Reyndar höfum við notið
dyggrar aðstoðar sauðkindarinnar
við að gera landið að eyðimörk en
það er stórpólitískt mál og ekki
heiglum hent að halda uppi árásum
á sauðkindina og ætla ég þvi að
leyfa henni að bíta í friði.
Ég ætla í staðinn að gera að
umtalsefni annan skaðvald sem
ekki ætti að þurfa borgarastyijöld
til að losna við, plastpoka. Plast-
pokar eru orðnir eins konar
samnefnari neysluþjóðfélagsins og
notkun þeirra óhófleg. Innkaupa-
töskumar sem settu svip sinn á
húsmæður á fyrri hluta aldarínnar
eru orðnar fárinu að bráð og bréf-
pokar sjást hvergi annars staðar
en í ríkinu og þar er þess vandlega
gætt að láta plastpoka utan um
bréfpokana svo að viðskiptavinimir
verði nú ekki taldir neinir afdala-
menn sem geyma eigur sínar í svo
afkáralegum hirslum.
Plastpokamir flúka síðan um all-
an bæ, fylla öskuhauga og tunnur,
óforgengilegir, óásjálegir og óþol-
andi. Bréfþokar em gerðir úr efni
sem endumýjast, plastpokar úr efiii
sem er að ganga til þurrðar. Bréf-
pokamir eyðast á skömmum tíma
úti í náttúmnni, plastpokamir eyða
náttúmnni á skömmum tíma.
Ég vil banna plastpokana og
hefja bréfpokana aftur til fyrri vegs
og virðingar.
Spakur
Morgunblaðið/Júlíus
Lágmarkshraði
Ég vil gjaman taka undir með
þreyttum ökumanni sem skrifar í
Velvakanda miðvikudaginn 26.
ágúst og er að gagmýna skrif konu
f Borgamesi sem hafði orðið fyrir
því að lögreglan setti út á það að
hún þótti aka of hægt.
Ég ætla alis ekki að mæla með
hraðakstri og er nokkuð sáttur við
þau hraðatakmörk sem gilda á veg-
um landsins og þótt svo væri ekki
myndi ég að sjálfsögðu sætta mig
við þau og hlíta þeim. Það em allt
of margir sem gera það ekki og aka
mun hraðar en lög gera ráð fyrir
og ber að sjálfsögðu að fordæma
það.
Mér flnnst hins vegar litlu betra
athæfi þeirra sem em þeirrar skoð-
unar að leyfilegur hámarkshraði sé
of hár fyrir þá og aka mun hægar
en hægt er með góðu móti að rétt-
læta og tefja þannig fyrir samborg-
umm sínum og valda óþarfa
slysahættu, oft ekki minni en þeir
sem aka of hratt.
Aksturshraða á alltaf að miða
Viðsjárverðir sölumenn
Nú verður það æ algengara að
sölumenn hvers konar vamings og
þjónustu mæti við útidyr hjá okkur
og vilji selja sitt.
Fyrir þremur ámm keypti ég af
slíkum farandtryggingasala
líftryggingu með upsöfnunarrétti
frá Alþjóða líftiyggingafélaginu og
var þó tregur til en lét til ieiðast
eftir að maðurinn var búinn að
sannfæra mig með útreikningum
um hvað greitt yrði til baka strax
eftir þijú ár. Endurgreiðslan átti
að vera samkvæmt útreikningum
hans sem svaraði 75% af iðgjöldum,
verðtryggt, en þau 25% sem eftir
stæðu, jafngiltu iðgjaldi af tiygg-
ingu án uppsöfnunar. Allt leit þetta
mjög vel út.
Nú þegar ég hyggst segja upp
tryggingunni og fá greidda upp-
söfnunina mfna kemur f ljós að hún
er engin. Meira að segja að það
borgaði sig alls ekki að segja trygg-
ingunni upp og fá greidda uppsöfn-
un fyrr en eftir 10 ár. Þar sem ég
hafði alls ekki hugsað mér að festa
sparifé til 10 ára eða meira var ég
nú alls ekkert jrfír mig hrifínn.
Svör forsvarsmanns fyrirtækis-
ins em svo einfaldlega þau að
sölumaðurinn hefði ekki mátt segja
neitt sem ekki stæðist og því beri
fyrirtækið enga ábyrgð á vinnu-
brögðum hans. Gaf hann mér síðan
upp nokkur símanúmer og sagði
mér að ég gæti sjálfur haft upp á
þessum manni. Ekki veit ég hvað
ég hefði átt að segja við þennan
sölumann því að mínu mati hlýtur
fyrirtækjum að bera skylda til að
sjá um að sölumenn þeirra fari með
rétt mál en gangi ekki í hús og
beinlínis ljúgi að fólki til að fá það
til að kaupa af þeim.
Blöðin með útreikningingunum
hef ég ekki, þannig að erfítt er að
fyrir mig að sanna mitt mál.
Sölumaður þessi var sagður dug-
legur við söluna en ekki fékkst svar
um hve mörg af skírteinum hans
eru enn gildi en fyrir víst veit ég
að tveir vinnufélagar mínir eru
hættir að endumýja sínar trygging-
ar vegna þess að ekki stóðst það
sem hann sagði. Hann er nú farinn
að selja bækur og fleira vítt um
landið en vonandi ekki með sömu
vinnubrögðum.
Því vil ég vara fólk sérstaklega
við þessum sölumönnum því að ekki
er allt gull sem glóir og því er ekki
óeðlilegt að fá umhugsunartíma
þegar um er að ræða atriði sem
skipta menn þúsundum króna eins
og er í mínu tilviki.
Óskar Arnórsson, Akranesi
við aðstæður og getur auðvitað
verið erfitt að meta hver hæfilegur
ökuhraði er í hvetju tilviki og frek-
ar skal aka of hægt en of hratt en
í blíðskaparveðri að sumri til og um
hábjartan daginn er erfítt að fínna
afsökun fyrir því að aka ekki rétt
undir löglegum hámarkshraða.
Ef menn treysta sér ekki til þess
vegna þess að þeir telja að öku-
mannshæfíleikar þeirra séu ekki
nægir eða af því að bifreiðin er
ekki í nægilega góðu ástandi eiga
þeir alls ekki að fara út á þjóðveg-
ina.
Vegimir eru samgönguæðar og
hafa kostað þjóðarbúið gífurlega
flárhæð. Sífellt er veitt meira fé í
þá til þess að gera samgöngur
greiðari og því er ansi hart að þurfa
að sætta sig við að þessi fjárfesting
nýtist ekki að fullu vegna þess að
örfáir Ökumenn, það þarf ekki
marga til, aka ekki eins og ætlast
er til.
Geri ég það að tillögu minni að
sett verði lög sem gera lögreglu-
þjónum kleift að sekta þá sem tefja
umferð að ástæðulausu til jafns við
þá sem aka of hratt. Að sjálfsögðu
yrði að taka tillit til aðstæðna, það
getur vart verið ófyrirgefanlegt að
aka of hægt á fáfömum sveitaveg-
um og auðvitað á alls ekki að sekta
þá sem eðli málsins vegna komast
ekki hraðar en eiga brýnt erindi
um vegina eins og til dæmis bænd-
ur á dráttarvélum.
Brýnast er auðvitað að koma í
veg fýrir að menn gerist sjálfskipað-
ir lestarstjórar á þennan hátt á
hringveginum í nágrenni
Reykjavíkur, á Reykjanesbrautinni
(Keflavíkurveginum) og á öðmm
vegum sem mikið hefur verið lagt
í að gera greiðfæra og margir eiga
leið um, þar á meðal í Borgarfirðin-
um þar sem fyrmefnd kona var
stöðvuð af lögreglu.
G.Þ.
Sjö hvolpar
Kæra fólk um land allt
Ef ykkur langar $ lítinn og sætan
hvolp, karlkyns eða kvenkyns þá
biðjum við ykkur endiiega að hafa
samband við okkur því að tíkin
okkar er nýbúin að eignast 7 hvolpa.
Hvolpamir em af smáhundakyni
og em tæplega eins mánaðar gaml-
ir. Hringið endilega í síma 99—6862
eða komið, ef þið hafíð áhuga.
Fjölskyldan Hvitárbakka,
Biskupstungnahreppi
Hjartans þakkir til allra þeirra sem glöddu
mig á 80 ára ajmœli mínu þann 11. ágúst.
GuÖ launi ykkur jyrir þaÖ. Lifið heil.
Jóhanna Einarsdóttir,
Óðinsvöllum 19, Kefíavik.
Morgunblaðið - Keflavík
Umboðsmaður er Elínborg Þorsteinsdóttir,
Heiðargarði 24, sími 92-13463.
fHtfjgisii&lftMfe
HALLANDS LÁNS
LANDSTING
Lénssjúkrahúsið í Halmstad auglýsir lausar
stöður sjúkraþjálfara (sjukgymnastik)
Sjúkraþjálfi fullt starf, umsóknarnúmer 1354/87
Ráðning: sem fyrst.
Sjúkraþjálfi 75% starf, umsóknarnúmer 1355/87
Ráöning: sem fyrst.
Sjúkraþjálfi 75% starf, umsóknarnúmer 1356/87
Ráðning: sem fyrst.
, Sjúkraþjálfi fullt starf, umsóknarnúmer 1357/87
Afleysingarstaða: veitttil 9 mánaða, viðkomandi hefji störf sem fyrst.
Upplýsingar: Liselotte Wágö yfirsjúkraþjálfi, sími: 35-13 46 81 og Hed-
vig Johnson, ritari starfsmannadeildar, sími: 35-13 11 52.
Skilmálar: Prófskírteini fylgi umsóknum. Þeir sem vilja að fyrri störf
verði metin til launa greini frá því sérstaklega.
Umsóknir skal senda starfsmannadeild sjúkrahússins 301 85 Halm-
stad. Umsóknir verða að hafa borist 10. sept. 1987.
Með umsóknum skal fylgja: afrit af vottorðum og prófskírteinum, með-
mæli og upplýsingár um fyrri störf. Jafnframt skal þess getið hvenær
viðkomandi getur tekið til starfa.
HALLANDS LANS LANDSTING
^HJólbörur*
Traust v-þýsk vara frá ABH
85 lítra
16 tommu dekk
Léttar og meðffærilegar
kr. 5.700,-
Þekking Reynsla Þjónusta
A FALKIN N
SUOURIANDSBRAUT 8. SÍMI 84670