Morgunblaðið - 01.09.1987, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
5
Morgunblaðið/Sigurður Jðnsson
Kristján Friðrik Olgeirsson með konu sinni og bömum, talið frá
vinstri: Sigurrós, Kristján, Arnar, Sandra Gunnarsdóttir og
yngsta barnið, Oigeir Sturla, í fangi móður sinnar. Myndin var
tekin fyrir rúmum fimm árum.
Bjargað eftir 4 tíma
volk úti fyrir Alaska
„Flotgallarnir komu í veg fyrir að
við blotnuðum,“ segir Kristján
Friðrik Olgeirsson skipstjóri á
Veigu Mary
Selfossi.
ÍSLENSKUR skipstjóri á
bandarískum 86 feta fiskibát,
Kristján Friðrik Olgeirsson,
varð fyrir þvi aðfaranótt 12.
ágúst að bátur hans, Veiga
Mary, sökk er hann var á karfa-
veiðum út af ströndum Alaska
á Davidsons-banka, sem er á
Norður Alaska flóa, Kyrrahafs-
megin. Kristján og áhöfn hans,
fjórir vanir bandarískir sjó-
menn, komust í flotgalla og í
björgunarbát og var bjargað
rúmlega fjórum klukkustund-
um síðar um borð í linubát.
Kristján sagði að báturinn hefði
snögglega fyllst af sjó að aftan.
Sennilega hefði opnast suða ein-
hvers staðar og sjór komist í
bátinn. Þegar þetta gerðist voru
allir í koju nema Kristján, sem fór
upp á klukkutíma fresti til að
fylgjast með. Daginn áður höfðu
þeir fengið 30 tonn af karfa og
tvö til þrjú af þorski og menn því
þreyttir eftir mikla töm.
Þegar Kristján athugaði stöð-
una klukkan þijú var allt í lagi,
en klukkutíma síðar varð hann
var við að fjögurra feta sjór var
kominn í skutinn og lunningin að
aftan komin í kaf. „Við sendum
strax út neyðarkall og strand-
gæslan svaraði okkur. Við vomm
alveg rólegir, fórum allir í flot-
galla og síðan í björgunarbátinn,"
sagði Kristján. Hann sagði að
báturinn hefði sigið hratt og oltið
eftir klukkutíma og þeir því þurft
að hafa hraðann á. Sjálfur fór
hann berfættur í gallann, því ekki
var tími til að klæðast sérstak-
lega.
Kristján sagði að það hefði
valdið sér nokkrum áhyggjum að
hann hafði ekki séð bát á þessum
slóðum í tvo daga og átti því al-
veg eins von á að enginn væri
nærri. Veðrið fór versnandi, átta
til tíu feta sjór var og nokkur vind-
ur. Það var svo strandgæsluflug-
vél sem fann þá fjórum
klukkustundum síðar og skömmu
seinna kom línubáturinn Miss
Correne og tók þá upp. „Það var
gott að heyra í flugvélinni þegar
hún flaug yfir og vita að við vor-
um fundnir," sagði Kristján
Friðrik. Hann sagði og að engum
þeirra hefði orðið meint af, enda
enginn blotnað, það væri göllun-
um að þakka, enda eins gott, því
sjórinn væri kaldur á þessum slóð-
um.
Kristján Friðrik Olgeirsson er
29 ára gamall Reykvíkingur og
hefur verið búsettur í Banda-
ríkjunum í 8 ár ásamt konu sinni,
Söndru Gunnarsdóttur, og eiga
þau þrjú böm. Hann sagði að
bærinn Blane, þar sem þau væru
búsett, væri mikill útgerðarbær á
landamærum Bandaríkjanna og
Kanada og mikið gert út á lax.
Hann sagði að þeir hefðu verið á
tilraunaveiðum þegar óhappið
varð. Það væri verið að auka það
að vinna fiskinn í landi í stað
þess að selja hann strax um borð
í móðurskip sem lægju þama úti,
rússnesk, japönsk eða kóresk.
Hertar reglur gerðu það að verk-
um að menn væru að breyta
þessu.
Kristján sagðist nú vera að bíða
eftir öðrum bát og yrði örugglega
kominn af stað aftur eftir tvo til
þijá mánuði.
— Sig.Jóns.
Aðalfundur Stéttarsambands bænda á Eiðum:
Spenna vegna kosn-
ingar nýs formanns
AÐALFUNDUR Stéttarsam-
bands bænda var settur á Eiðum
í gærmorgun. Ingi Tryggvason
flutti yfirlitsskýrslu formanns
og Jón Helgason landbúnaðar-
ráðherra ávarpaði fundinn. í
gær voru almennar umræður,
þar sem mest var rætt um fram-
leiðslustjórnun, og málum síðan
vísað til nefnda. Nefndir starfa
í dag og síðdegis hefst af-
greiðsla mála. Fundinum lýkur
á morgun með kosningum i
stjórn Stéttarsambandsins.
Ingi Tryggvason gefur ekki kost
á sér til endurkjörs í stjóm Stéttar-
sambandsins á þessum fundi.
Miklar breytingar verða á stjóm-
inni því útlit er fyrir að kosnir
verði að minnsta kosti 3 til 4 aðrir
nýir stjómarmenn. Manna á meðal
á fundinum er mikið rætt um eftir-
mann Inga og em 3 menn einkum
nefndir, Haukur Halldórsson í
Sveinbjamargerði, Böðvar Pálsson
á Búrfelli og Þórólfur Sveinsson á
Feijubakka. Fleiri koma einnig til
greina. Venjan er sú að stjóm
Stéttarsambandsins skipti með sér
verkum strax þegar hún hefur
verið kosin, en á þessum fundi ligg-
ur fyrir tillaga um að formaður
verði kosinn beinni kosningu á
aðalfundinum. Verði tillagan sam-
þykkt má búast við spennandi
kosningum á morgun.
Fjöldi tillagna liggur fyrir fund-
inum, frá bændafélögum um
landið, stjóm og einstökum fulltrú-
um.
international
5PECTOR'5
'l/Ulfan <Kecýjcvi & (MtKcinteÁa&arK
Laugavegi 45 - Sími 11388
Hvað gerist á Laugaveginum á laugardaginn?
Metsölublaó á hverjum degi!