Morgunblaðið - 01.09.1987, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
Einlægni frá Kína
Erlendar bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Black Tears, stories of war-tom
China eftir Peng Ko
Þýðandi úr kínversku á ensku:
Nancy Ing
Formáli:C.T.Hsia
Útg.Chinese Materials Center
Publications, Taiwan 1986
Peng Kong er höfundanafn Peng
Yao, sem er einn þekktasti rithöf-
undur Taiwan. í þessari bók hefur
þýðandinn Nancy Ing valið smásög-
ur sem flestar snúast um baráttuna
við Japani á sínum tíma. En þama
er einnig ein nútímaástarsaga.
Peng Ko er fæddur í Tientsin í
Kína árið 1926 og fór til grunn-
skólanáms í Peking ungur. Þaðan
flúði hann, þegar styijöldin við Jap-
ani hófst fyrir alvöru. Hann hélt
þó áfram námi annars staðar og
seinna hélt hann til Bandaríkjanna
og lagði stund á blaðamennsku og
bókasafnsfræði við háskóla þar.
Seinna flutti hann til Taiwan og
kenndi þar við háskólann um hríð.
Hann er einnig þekktur blaðamaður
og skrifaði um árabil í Hsien Sheng
Daily og varð seinna ritstjóri Centr-
al Daily News. Hann hefur sent frá
|__jl4120 20424
Sýnishorn úr söluskrá:
Hraunhólar — Gbæ
Tæpl. 140 fm einb. á einni hæð
ásamt ca 60 fm háalofti og 60
fm bilsk. Stórkostl. 3200 fm
cignarlóð. Ákv. sala. Verð 7,5
millj. Laús strax.
Garðabær
Mjög gott nýl. ca 200 fm einb. á
tveimur hæðum. Suðursv. Sökklar
fyrir bílsk. Verð 7,3 millj. Ákv.
sala.
Ásbúð — Gbæ
Skemmtil. ca 200 fm endaraðh.
á tveimur hæðum ásamt ca 40
bílsk. Gott útsýni. Góður garð-
ur. Ákv. sala.
Miðvangur — Hf.
Vorum að fá í sölu glæsil. enda-
raðh. á tveimur hæðum, ca 190
fm. Ákv. sala.
Kjarrmóar — Gbæ
Vorum að fá í cinkasölu mjög
gott raðh. ca 156 fm á tvcimur
hæðum. Innb. bílsk. Suðursv.
Fráb. staðs. Ákv. sala.
Unnarbraut — Seltj.
Mjög góð sérh. ca 100 fm ásamt
50 fm í kj. Fráb. staðs. Gott út-
sýni. Laus fljótl. Ákv. sala.
Espigerði
Mjög góð 4ra herb. íb., 110 fm
br. á 2. hæð. Ákv. sala. Lítið áhv.
Nýbýlav. m. bílsk.
Góð 3ja herb., ca 80 fm íb. Sér-
inng. I kj. er aukahcrb., sér-
þvottah., geymsla og snyrting.
Laus strax. Ákv. sala. Verð 4,1
millj.
Öldugata
2ja hcrb. ósamþ. kjíb. í ágætu
standi. 40 fm nettó. Ákv. sala.
Verð 1100 þús.
Miðtún
Óvcnju góð 2ja herb. kjíb. Mikið
endum. Laus fljótl. Verð 1950þús.
Erum með söluumboð
fyrir Aspar-einingahús
Heimasímar:
622825 - 667030
f^móstööin
I HÁTÚNI 2B • STOFNSE TT 1958
Sveinn Skúlason hdl. 53
sér átta skáldsögur, allnokkur smá-
sagnasöfn, ritgerðir, þýðingar og
þrjár ferðabækur. Að því er mér
skilst hefur hann fengið ýmsa viður-
kenningu vegna ritstarfa sinna.
Níu smásögur þessarar bókar
fjalla flestar um erfíðleika vegna
Japanstríðsins eins og fyrr segir.
Fyrsta sagan Svört tár gerist í Pek-
ing, rétt áður en stríðið brýzt út.
Ungur drengur segir söguna og það
er með hans augum, sem við kynn-
umst annarri aðalpersónunni
krypplingnum Li kolakaupmanni.
Samskipti drengsins og krypplings-
ins eru dregin upp fyrir lesanda á
mjúkan og myndrænan hátt. Ekki
sízt verður síðasti fundur þeirra
eftirminnilegur. Þá er svo komið
að Peking er að falla í hendur kom-
múnistanna. Og gamli krypplingur-
inn fómar öllu til að bjarga vini
sínum. Því að vini sínum vinnur
maður allt
í „Fílabeinskúlunum" er tíu ára
bam einnig sögumaður. Eftir ýms-
um sólarmerkjum að dæma gerist
sagan ögn síðar. Fjölskylda hefur
verið neydd frá heimili sínu og leit-
ar skjóls hjá ættingjum. Sagan lýsir
hugarvíli bamsins, þegar það veit
ekki, hveijum það á að treysta í
þessum valta heimi. Og sektar-
kennd þess, þegar það rennur upp
fyrir því, hveiju það hefur komið
af stað.
Sögumar í bókinni em snotrar
og þekkilegar og þótt ekki sé hróp-
að hátt er býsna þungur undirtónn-
inn. Kannski er þó mest um vert
að kynnast eilítið nýjum heimi svo
framandlegum. En einlægnin situr
í fyrirrúmi. Síðasta sagan „Ryk-
kom“ er frábrugðin hinum, sem
flestar bera auk þess keim af því
að vera um margt byggðar á eigin
reynslu höfundar. í Rykkomi segir
frá ungri stúlku frá kommúnista
Kina og ungum manni frá Taiwan.
Þau hittast f lyftu í bandarísku stór-
hýsi. Og það fer ekki betur en svo,
að rafmagnið fer af.. Og þau era
sem sagt lokuð inni í lyftunni tvö
Peng Ko
og ein. Stúlkan frá kommúnista
Kína er tortryggin í garð unga
mannsins. Þau þreifa hægt og hik-
andi fyrir sér. Það lítur ekki út
fyrir að þau geti skilið hvort annað
þótt þau tali sama málið? En samt
er ekki vonlaust um það.
Rykkom vakti mikla athygli og
umræður á Taiwan, þegar Peng
Ko birti hana fyrir fáeinum áram.
Og menn skiptust í tvö hom um
skoðun sína á sögunni. Það má
skilja, eftir að maður hefur til dæm-
is verið á Taiwan og kynnzt hinni
opinbera afstöðu til meginlands-
kommanna. Ég efast um ég hefði
skilið það áður. Sennilega hefði ég
bara flissað og fundizt sagan bama-
leg og boðskapur hennar fáránleg-
ur.
Þegar á allt er litið fínnst mér
meiri veigur í þeim smásögum sem
eru sýnilega byggðar á reynslu
höfundar. Þar er margt vel gert sem
hlýtur að hafa áhrif á lesanda.
Austurstræti
FASTEIGNASALA
Austurstræti 9 SImi 2®555
Seltjarnarnes
Vorum að fá í sölu ca 110 fm íb. ásamt bílskýli. íbúð-
in er á 2. hæð í blokk með tvennar svalir. Frábært
útsýni. Til afh. eftir ca 1 mán. Hagstæð áhv. lán.
Nánari upplýsingar á skrifstofu.
Ólafur Öm heimasími 667177, ^ Lögmaður Sigurberg Guðjónsson.
Til sölu sérh. í tvíbhúsum í Suðurhlíðum Kópavogs.
Allar íb. eru með 3 svefnherb., stofu og borðst. ásamt
lokuðu bílskýli. íb. verða afh. tilb. u. trév. eftir ca 10-12
mán. Húsin að utan og bílsk. og öll sameign fullfrág.
Gangst. á lóðinni verða með hitalögnum.
Brúttóstærð íbúða 159-186 f.m. Verð frá 5700-6250
þús.
Nánari uppl. og teikningar á skrifstofunni.
Fasteignasalan 641500
EIGNABORG sf.
Hamraborg 12 - 200 Kópavogur
Sölum.: Jóhann Hálfdánars. Vilhjálmur Einarss. Jón Eiriksson hdl. Rúnar Mogensen hdl.
P.D. í essínu sínu
P.DJames: A Taste for Death
Útg. Faber&Faber 1987
P.D. James er löngu kunn
íslenzkum lesendum, því að bækur
hennar hafa þó nokkrar verið
þýddar á íslenzku, sjónvarpið hef-
ur sýnt myndaflokka, sem eru
gerðir eftir sögum hennar og
margir hafa auk þess lesið bækur
hennar í framútgáfum og ýmissa
bóka hennar hefur verið getið í
þessum dálkum undanfarin ár.
Margir nefna hana „Drottningu
glæpasagnanna“ og kalla hana
arftaka Agöthu sálugu Christie.
Að mínum dómi eiga þær þó harla
fátt sameiginlegt, varla nokkuð
fleira en það, að bækumar hennar
P.D. renna út eins og heitar lumm-
ur, ekki síður en Agöthu áður og
fyrram, og raunar enn.
P.D. James er að mínu viti
langtum alvarlegri höfundur en
Agatha, sem lék sér að því að búa
til nógu sannfærandi morðflækju
og síðan gekk sagan út á að greiða
úr henni, en með því að koma sér
upp ákveðnu Agöthu-kerfí, sögðu
margir, að það hefði verið léttur
leikur að leysa gátuna. Löngu
áður en hin íðilsnjöllu hjálparmenn
Agöthu Hercule Poirot og Fröken
Marple vora komin með lausnina.
P.D. hefur Adam Dagliesh sér
til fulltingis í bókum sínum, flest-
um, að ég hygg. Og hann er betri
en enginn þótt oft taki það hann
nokkum tíma að finna lausnina.
En það sem mér fínnst höfuðprýði
á bókum P.D er, að hún nálgast
glæpinn og sakamanninn á mjög
vandlegan og yfírvegaðan hátt.
Sagan gengur aldrei út á það eitt
að hespa af rannsókn og láta snið-
ugu rannsóknarlögguna sýna snilli
sína með því að leysa málið í einum
grænum hvelli. Hún ákveður sögu-
þráðinn og persónumar, atburðar-
ásina og hún lýsir þessu öllu út í
æsar. Stundum er hún langdregin
og virðist víkja af leið, en það
kemur smám saman í ljós, að flest
skiptir það máli fyrir framvindu
sögunnar, þótt í ítarlegasta lagi er.
Hér er um langa og mikla sögu
að ræða, á fímmta hundrað blaðsí-
P.D. James
ður í allstóra broti. Og sögunni
skipt niður í „bækur" eins og P.D.
gerir gjaman. Tveir menn fínnast
látnir í skrúðhúsi í St. Matthews
kirkjunni í Paddington. Öldruð
kona og lítill drengur fínna tvo
menn myrta, flæking nokkum,
sem oft leitaði skjóls í skrúðhús-
inu, og fyrverandi ráðherra í
brezku ríkisstjóminni, sem hafði
nýlega sagt af sér. Af nokkuð
óskýram ástæðum. Adam Dagli-
esh tekur að sér málið og það leita
á hann margar spumingar. Hvem-
ig stóð á því að ráðherrann
fyrverandi Sir Paul Berowne lagði
sig til svefns í skrúðhúsinu en fór
ekki heim til sín. Og hver er dreng-
urinn litli, sem fann líkin. Hvað
með Föður Bames. Er hann gran-
samlegur. Hvemig sem á málið
er litið virðist ekkert gefa til kynna
um ástæður fyrir þessu. Né hvem-
ig þetta bar að.
I löngu máli tekur nú P.D. sig
til og gerir öllum persónum og
sögu þeirra, hugrenningum og
fortíð rækileg skil. Og bætir inn
í eftir þörfum. Það er ekki alveg
einfalt að lesa þessa bók, lesandi
verður að hafa töluvert fyrir. Hann
verður líka að sýna nokkra þolin-
mæði. En hana ættu dyggir P.D
lesendur nú fyrir löngu að hafa
tileinkað sér.
MYNDLIST
Erlendar bækur
Siglaugur Brynleifsson
Walter Koschatzky: Die Kunst
der Zeichnung — Die Kunst der
Graphik — Dir Kunst des Aqua-
rells. Deutscher Taschenbuch
Verlag 1985-86.
Raphael. Introduction by Ric-
hard Cocke and Pierluigi
Vecchi. Penguin Classics of
World Art. Penguin Books 1987.
Vermeer. Introduction by John
Jacob and Piero Bianconi.
Penguin Classics of World Art.
Penguin 1987.
Picasso. Introduction by Denys
Sutton and Paolo Lecaldano.
Penguin Classics of World Art.
Penguin 1987.
Walter Koschatzky er listfræð-
ingur. Las listasögu og heimspeki.
Forstöðumaður „Neue Galerie" í
Graz og frá 1962 forstöðumaður
grafíska safnsins „Albertina" í
Vínarborg, sem er eitt mesta safn
grafískra verka í heiminum. Hann
hefur skrifað mörg rit um list-
fræði.
Höfundurinn telur að teikningin
sé elsta form myndlistar, skil-
greinir hugtakið teikning og rekur
hugmyndir listamanna um þýð-
ingu teikningarinnar innan
. myndlistarinnar. Hann lýsir því
sem með þarf til þess að teikna.
Þar kemur margt til greina, því
snemma byijuðu menn að krota á
hellisveggi. Fjölmargar teikningar
era birtar í ritinu og í lokin skrár
yfir heimildarrit og listi yfír teikn-
ingar, sem birtar eru.
Grafíkin hefur orðið nú á dögum
ein vinsælasta grein myndlistar,
bæði meðal listamanna og þeirra
sem viða að sér myndlistarverkum.
Margföldun þessara verka gerir
það að verkum að flestir geta veitt
sér þau. í þessu riti lýsir höfundur-
inn þróun þessarar myndlistar-
greinar og þeim breytingum í
tækni sem orðið hafa í aldanna
rás. í bókarlok er skrá yfír fag-
hugtök á fímm tungumálum auk
registurs.
Talið er að til þess að gera góða
vatnslitamynd þurfí mikla tækni,
hugkvæmni og einstaka einbeit-
ingu. Höfundurinn segir sögu
þessarar listgreinar og birtar era
myndir til skýringar. í bókarlok
eru skrár um listamenn, bókaskrár
og listi yfír myndir.
Þessar þijár bækur Koschatzk-
ys era ágæt heimildar- og upp-
flettirit - um þessar greinar
myndlistar, vel unnar og vandaðar.
Penguin Classics of World Art
er endurútgáfa, sem upphaflega
var gefin út af Rizzoli Editori
1966. Síðan gefín út í London á
sjöunda og áttunda áratugnum og
nú gefin út í bókaröð í Penguin.
Þessar þijár bækur eru þær
nýjustu sem út koma. Þessir mál-
arar era öllum kunnir, ótölulegar
endurprentanir verka þeirra era á
markaðnum, sérprentaðar og í
bókum. Magnið er geysilegt, en
vinnsla mismunandi. Þessar eftir-
prentamir í litum eru meðal betri
endurprentana. Alls hafa birst á
annan tug bóka í þessari bókaröð,
meðal þeirra eru Botticelli, Manet,
Caravaggio, Giotto, Mantegna
etc.etc.