Morgunblaðið - 01.09.1987, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
19
Auður Hafsteinsdóttir.fiðluleikari, Guðríður S. Sigurðardóttir.píanó-
leikari og Pétur Jónasson.gítarleikari spila á tónleikunum í Norræna
húsinu i kvöld.
Norræna húsið;
Tónleikar ungra
einleikara í kvöld
ekki sjálfstæði og alfullveldi lands-
ins;
í fjórða lagi: Það að segja að
afstaða Alþýðubandalagsins til
hersins hafí aukið umsvif útlend-
inga við hervarnir á íslandi, er
fjarstæða. Hitt er eðlilegra að
spurt sé hversu fyrirferðarmikill
væri erlendur her orðinn í landinu
og með hvaða afleiðingum ef ekki
hefði frá upphafí verið fyrir hendi
almenn andstaða við veru hans,
harðsnúin pólitísk forusta fyrir
þeirri andstöðu og öflugt menning-
arlegt andóf gegn hersetunni hér
og áhrifum hennar.
Minna má á í þessu sambandi
óskir Bandaríkjastjórnar um þrjár
lokaðar herstöðvar til 99 ára. Þeirri
kröfu var hafnað vegna þess að
andstæðingar hersins höfðu sterka
þjóðfélagslega stöðu. Það sakar
ekki að geta þess að ein þessara
þriggja herstöðva átti að vera í
Skeijafírði. Má leiða hugann að
því hvaða áhrif það hefði haft á
þróun höfuðborgarinnar síðustu 40
árin ef íslensk stjórnvöld hefðu
fallist á þessa kröfu. Einnig er ljóst
að vinstri stjómimar ’56—’58 og
’71—’74 höfðu vemleg áhrif, ekki
síst vegna þess að við myndun
þeirra varð Bandaríkjamönnum
ljóst að þeir gátu ekki treyst því
að íslendingar væm ætíð í tjóður-
bandi þeirra.
Stjómarþátttaka Alþýðubanda-
lagsins á áranum ’78—’83 og hið
fræga „stöðvunarvald" flokksins
gagnvart hemaðarframkvæmdum
sem Morgunblaðið skrifaði látlaust
um hafði samskonar áhrif og
bægði frá um árabil þeirri hol-
skeflu hemaðamppbyggingar sem
skall jrfír um leið og NATO-sinnar
sátu einir við stjómvölinn.
í fímmta lagi: Ástæða þess að
öll þau mál sem snerta vem hers-
ins hér og stöðu íslands í vígbúnað-
aráætlun Bandaríkjamanna og
NATÓ hafa verið feimnis- og puk-
ursmál, er sú að brautgöngumenn
og hlífískildir hersetunnar á íslandi
hafa íklæðst leyndinni, laumast í
skuggunum og forðast ljós umræð-
unnar af ótta við andúð þjóðarinn-
ar á hernáminu. Andstæðingar
hersetunnar hafa hins vegar í ræðu
og riti, bókmenntum og listum sem
og á hinum faglega vettvangi hald-
ið uppi umræðum og andófí. Þess
mætti Hannes og reyndar fleiri
minnast að þær umræður sem nú
eiga sér stað fara fram eftir að
herstöðvaandstæðingar hafa ámm
saman rejmt að fá íslenska ráða-
menn til að horfast í augu við eða
viðurkenna, eftir atvikum, það sem
er að gerast á landinu og um-
hverfís það.
Þegar Hannes vildi
reka herinn
Að lokum þetta. Þeir tugir þús-
unda atkvæðisbærra íslendinga
sem fylgt hafa Alþýðubandalaginu
að málum á undanfömum ámm
og áratugum svo og allur sá fjöldi
annar sem andvígur hefur verið
hersetunni en fylgt hefur öðmm
stjómmálaflokkum em ekki fáeinir
„aular“ eins og lesa má út úr orð-
um dr. Hannesar Jónssonar, heldur
vemlegur hluti upplýstra þegna í
lýðræðisríki sem hafa fullan rétt
til sinnar skoðunar til að kjósa
þann stjómmálaflokk (eða flokka)
sem ber þær skoðanir fram og
þeim ber skýlaus réttur til þess að
þeirra sjónarmið njóti sama réttar
og sömu virðingar í þjóðfélaginu
og önnur í þessum efnum. Mér
fyrir mitt leyti fínnst a.m.k. óþarft
að sitja þegjandi undir skítkasti
af því tagi sem hinn opinberi emb-
ættismaður dr. Hannes Jónsson
sendiherra lætur yfír flokk minn
ganga í Morgunblaðinu 7. ágúst sl.
Ef undirrituðum skjátlast ekki
þeim mun meir þá er dr. Hannes
Jónsson sendiherra einn og sami
maðurinn og Hannes Jónsson
blaðafulltrúi ríkisstjómar Ólafs
Jóhannessonar sem var við völd á
ámnum 1971—1974. Sú ríkisstjóm
hafði það í málefnasamningi sínum
að láta herinn fara og hafði uppi
tilburði í þá átt þar til samstaðan
brast í Framsóknarflokknum.
Þessi fyrrverandi blaðafulltrúi kall-
ar nú stefnu þeirrar ríkisstjómar,
sem hann talaði fyrir, „ aula-
stefnu".
Það væri svo fróðlegt, ekki síst
fyrir framsóknarmenn, að fá að
heyra álit núverandi utanríkisráð-
herra og formanns Framsóknar-
flokksins á þessum aulastimpli
undirmannsins. Er undirmaður
Steingríms Hermannssonar, með
hans vilja og samþykki að stimpla
alla hemámsandstæðinga aula?
Þar með talið þá sem stutt hafa
Framsóknarflokkinn og jafnvel se-
tið á Alþingi á hans vegum. Hvað
heita þeir Guðmundur Bjamason
og Páll Pétursson t.d. í munni
þessa starfsmanns flokksform-
annsins?
Þeir menn sem gæta eiga hags-
muna, og koma fram sem fulltrúar
þjóðarinnar allrar hafa að sjálf-
sögðu rétt til sinnar persónulegu
skoðunar eins og aðrir þegnar.
Hitt er jafn ljóst að stöðu sinnar
vegna er æskilegt að þeir ígmndi
orð sín ekki síst þegar íjallað er
um viðkvæm deilumál í þjóðfélag-
inu.
Þær tilraunir hemámssinna sem
lengi hefur bryddað á að afgreiða
herstöðvaandstæðinga sem fá-
mennan og einangraðan hóp
óraunsærra vitleysinga em tilraun-
ir til sögufölsunar og þjóðarlygi
sem aldrei má láta ómótmælt
hversu þreytandi sem mönnum
þykir hin röklausa síbylja. Einu
gildir að sjálfsögðu hveijir þennan
hljóðabelg troða og verður síst
meira risið á málflutningnum þó
greinarhöfundur skarti sendiherr-
atitlum.
Höfundur er þingmaður Alþýðu-
bandalagsins úr Norðurlandskjör-
dæmi eystra.
SÍÐARI tónleikar í annarri um-
ferð í keppni ungra einleikara á
Norðurlöndum verða haldnir í
Norræna húsinu i kvöld kl. 20.30.
Þessi umferð fer fram sem tón-
leikar og er öllum heimill
aðgangur.
Tveir einleikarar koma fram á
þessum tónleikum, þau Pétur Jón-
asson gítarleikari og Auður
Hafsteinsdóttir fíðluleikari.
Guðríður S. Sigurðardóttir leikur
undir á píanó.
Pétur Jónasson leikur verk eftir
Manuel Maria Ponce, Kjartan Ól-
afsson og Heitor Villa-Lobos.
Auður Hafsteinsdóttir leikur verk
eftir Brahms, Karólínu Eiríks-
dóttur og H. Wieniawski.
Hótel Saga:
Hljómsveit
Grétars í
Súlnasal
HLJÓMSVEIT Grétars
Örvarssonar hefur verið
ráðin til að leika í Súlna-
sal, Hótel Sögn, frá
september og fram til
áramóta.
Hljómsveitin mun leika lög
sem höfða til ungs fólks á
öllum aldri. Nýlega lauk
hljómsveitin við upptöku á
lagi eftir þá Grétar Orvarsson
og Karl Órvarsson og heitir
það „Viltu bregða þér í
sveiflu" og verða þetta jafn-
framt kjörorð hljómsveitar-
innar.
mjómsveit Grétars Örvars-
sonar, frá vinstri Grétar
Örvarsson, Gylfi Gunnarsson,
Eiður, Steingrímur ÓIi og
Hilmar Jensson.
Tílboð!
Stærö
Fura
150x195
115x195
Staðgr.
37.300
25.200
MASSÍVT
FURURÚM
Lánakjör meö vöxtum
5.000,-út 5000,-
á mánuði í 8 mánuði
4000,-út 4000,-
á mánuði í 6 mánuði
mmmmmmam
Ókeypis heimakstur
og uppsetning
á 5 tór-Reyhja víHurs væðin u
incunR&cvm
Crensúsueg 3 sími 681144