Morgunblaðið - 01.09.1987, Page 37
Bandaríkin
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
37
Skaut fimm ætt-
ingja sína til bana
Boston, Reuter.
VÍETNAMSKUR nóttamaður
skaut á sunnudag fimm ættingja
Flotaæfingar NATO:
Sovésk skip
fylgjast með
Ósló, Reuter.
SEX sovésk herskip eru nú komin
á vettvang til að fylgjast með
stærstu flotaæfingum NATO á
þessu ári á Norður-Atlantshafi að
sögn starfsmanna i norska varnar-
málaráðuneytinu.
Til skipanna sem búin eru háþró-
uðum eftirlitsbúnaði sást í alþjóðlegri
siglingarleið undan ströndum Hjalt-
lands, Færeyja, Noregs og V-Þýska-
lands, norður af Skagerak í
Danmörku og f Ermarsundi. Flotaæf-
ingum NATO er ætlað að prófa hvort
bandalagið er fært um að halda
lífsnauðsynlegum siglingaleiðum
milli Evrópu og Bandaríkjanna opn-
um á hættutímum.
150 skip og 250 flugvélar frá 10
Atlantshafsbandalagsríkjum, þar á
meðal Spáni og Frakklandi, taka
þátt í æfíngunum.
sina til bana og framdi að þvi
loknu sjálfsmorð. Sögðu nágrann-
ar að verið kynni að hann hefði
reiðst þegar fjölskylda hans þjóf-
kenndi hann.
Að sögn lögreglu myrti Min Lee,
sem búsettur var í New York, §órar
konur og einn karlmann í íbúð
frænda síns í Boston. Særði hann
eina konu alvarlega og fjögurra ára
stúlkubam.
Lögregla þurfti túlk til að ræða
við nágrannana, sem eru víetnam-
skir. Sagði túlkurinn, Tuan Tran,
að nágrannamir hefðu sagt að Lee
hefði verið æfur út í ættingja sína
þar sem þeir hefðu fyrir fjórum árum
sakað sig um að stela af þeim fé.
„Hann sagði þeim að þau hefðu svert
mannorð sitt og nafn ijölskyldu
sinnar," sagði Tran.
Lögregla sagði að Lee hefði myrt
tvær ungar konur fyrir utan fjölbýl-
ishúsið í Boston og þvi næst hlaupið
inn í íbúð frænda síns á fyrstu hæð
og haldið áfram skothríðinni. Um
fimmtíu lögregluþjónar umkringdu
bygginguna. Tveimur klukkustund-
um síðar hleypti Lee af síðasta
skotinu. Þegar lögregla kom inn í
bygginguna var sat Lee örendur í
eldhússtóli.
Reuter
Lögreglan í Boston bjargar nlu mánaða barni út úr íbúðarhúsi, þar
sem byssumaður gekk berserksgang og myrti fimm menn.
Thailand:
Talið að
83 manns
hafi farist
Bangkok, Reuter.
ÓTTAST er að allir allir farþegar
og áhöfn Boeing 737 vélar Thai-
flugfélagsins hafi farist í gær
þegar þotan stakkst í sjóinn á Anda-
man-hafi. Talið er að flugmaðurinn
hafi sveigt af stefnu til þess að
forðast árekstur við aðra vél, en
þotan steyptist niður sem hún nálg-
aðist áfangastað sinn, ferðamanna-
eyjuna Phuket. Alls voru 83 um
borð í vélinni, flestir Thailending-
ar, en auk þeirra vou 37 útlending-
ar af ýmsu þjóðerni um borð.
Flugvallarstjórinn á Phuket, Prayo-
on Thaweesang, sagðist óttast hið
versta: „Ég held ekki að nokkur lifí
af. Vélin sökk undir eins.“ Hann sagði
að tólf lík hefðu fundist en engin
merki væru um að einhverjir hefðu
komist af.
Um borð í vélinni voru 74 farþegar
og níu áhafnarmeðlimir. Vélin var á
leið frá borginni Haad Yai í suðaustur
hluta landsins til eyjarinnar Phuket,
sem er vinsæll ferðamannastaður.
Samkvæmt fyrstu skýrslu flugum-
ferðarstjóra kann flugstjórinn að hafa
misst stjóm á henni þegar hann rejmdi
að forðast aðra vél sömu tegundar á
vegum Dragon Air. Málsatvik eru þó
enn of óljós til þess að hægt sé að
fullyrða um ástæðu og aðdraganda
slyssins.
Persaflói:
Skípaárásir hefjast
á ný af fulliim krafti
Bahrain, Reuter.
ÍRANSKIR byltingarverðir réðust í gær á gámaskip frá Kuwait, en
írakar gerðu fimmtu árás sína á írönsk olíuskip frá því um helgi.
Með þessu lýkur sex vikna hléi, sem verið hefur á þessum skærum
íraka og írana, sem dregið hafa aðrar þjóðir inn í þennan þátt
Persaflóastríðsins. Á sama tíma fylgdu sex bandarísk herskip tveim-
ur olíuskipum frá Kuwait um norðanverðan flóann.
„Þolinmæði beggja aðila er
greinilega á þrotum og stjómvöld
í Bagdað hafa greinilega ákveðið á
laugardag að kominn væri tími til
þess að láta sverfa til stáls að nýju,“
sagði vestrænn stjórnarerindreki
við Persaflóa í gær. Á laugardag
hófu írakar á ný árásir á olíustöðv-
ar út af strönd írans. Ástæðuna
sögðu þeir vera þá að þeir hefðu
Íireyst á að bíða eftir viðbrögðum
rana við ályktun Öryggisráðs SÞ
um tafarlaust vopnahlé í Persaf-
lóanum. Um helgina skýrðu Iranir
loks frá því að þeir gætu ekki fall-
ist á ályktunina, þó svo vissulega
væri þar sumt sem þeir gætu tekið
undir.
í gærmorgun gerðu íranskir bylt-
ingaverðir árás á Kuwaiskt vöru-
flutningaskip. Þeir voru á þremur
hraðbátum og skutu af vélbyssum
og sprengjuvörpum. Ekkert mann-
tjón varð, en mikill hluti farms
þeirra varð eldi og sprengingum að
bráð.
Nokkrum klukkustundum síðar
réðust íraskar árásarflugvélar á
olíustöðina á Larak-eyju og skutu
m.a. eldflaug inn í vélarrúm 20.000
tonna olíuskips þar. Ekki er enn
vitað hversu alvarlegu tjóni þeir
ollu eða hvort mannskaði hafí orðið.
Sólarhringi áður en íranir réðust
á flutningaskipið fór skipalest
Bandaríkjanna um suðurhluta fló-
ans og er væntanleg til Kuwait í
dag. Herskipavemdin er hin öflug-
asta frá því að Bandaríkjamenn
tóku hana upp á Persaflóa og er
talið að með því vilji Bandaríkja-
stjóm sýna að hún er til alls búin
ef upp úr sýður á flóanum.
Suður-Afríka:
Sex látnír og fimmtíu
saknað eftir námaslys
Verkfall námamanna brotið á bak aftur
Welkom, Suður-Afríku, Reuter.
NÍUTÍU og tveir verkamenn festust í gullnámu í Suður-Afríku eftir
að sprenging lokaði göngunum. Tuttugu og sjö námamönnum hefur
verið bjargað og lík sex manna hafa fundist. Fimmtíu er enn saknað.
Talið er að margir mámamenn
séu fastir í lyftu, sem hangir í fjög-
urhundruð metra hæð frá botni
gangnanna, að því er haft var eftir
eigendum námunnar. Talsmaður
eigendanna, Gary Maude, sagði að
ekki væri talið að spellvirki hefði
verið framið í námunni. Að hans
sögn heyrðu björgunarmenn óp
námamanna er þeir hófu björgunar-
störf við St. Helena-námuna við
Welkom, suðvestur af Jóhannesar-
borg.
Sprengingin varð í sömu mund
og áttatíu námamenn voru að fara
niður í námuna í lyftu í gærmorg-
un.Af mælitækjum mátti lesa að
lyftan hefði fest um 900 metra
undir yfírborði jarðar, en að sögn
talsmannsins var ekki vitað um slys
á mönnum.
Um þrjú hundruð menn, sem
voru niðri í göngunum, tókst að
bjarga sér um neðanjarðargöng og
upp önnur námaop áður en björgun-
armenn komu á vettvang.
Hvítir námaeigendur brutu á
sunnudag á bak aftur verkfall
svartra námamanna. Létu þeir ekki
að kröfum námamanna, sem lögðu
niður vinnu fyrir rúmum þremur
vikum, nema að litlu leyti.
Um 250 þúsund námamenn
sneru aftur til vinnu í fyrradag eft-
ir að sambandi sex stærstu
námafélaga í Suður-Afríku tókst
að knýja fram samkomulag eftir
þriggja og hálfrar klukkustundar
viðræður við stéttarfélag náma-
manna.
Námamenn létu tilleiðast að setj-
ast við samningaborðið eftir að
fjöldaúppsagnir tóku gildi. Féllust
þeir á að koma aftur til vinnu ef
þeir fengju ýmis fríðindi, en þeim
tókst ekki að fá þá launahækkun,
sem verkfallið snerist um. Tilboð
námaeigenda um fríðindi var svipað
því, sem námamenn felldu með yfír-
gnæfandi meirihluta nokkrum
dögum áður.
Átök á Persaf lóa:
ANNÁLL
LOFTARASIR íraka um helgina á olíustöðvar og olíuskip írana mörkuðu
nýjan kafla í átökum á Persaflóa, en undanfamar sex vikur hafði verið hlé
á skipaárásum stríðsaðila. Þessi angi Persafióastríðsins er sá þáttur þess,
sem snertir aðrar þjóðir en írani og íraka hvað mest og hafa meira en
330 skip af öllu þjóðemi orðið fyrir árásum, flest þó frá Kuwait. Með
árásunum freista stríðsaðiljar þess að lama olíuútflutning óvinarins, en
hann er sem kunnugt er helsta telqulind ríiqanna. Vegna þessa hefur olíu-
verð verið óstöðugra en ella, auk annarrar spennu, sem stríðið veldur.
Meðal annars hafa Bandaríkjamenn, Bretar og Frakkar sent herskip á fló-
ann til þess að tryggja óheftar skipasiglingar um hann. Bandaríkjamenn
hafa reyndar takmarkaðra hagsmuna að gæta, þar sem aðeins lítil hluti
olíu frá Persaflóa fer til Bandaríkjanna. Það sem máli skiptir er þó ekki
hver kaupir olíuna, heldur hvert gangverð hennar er, en öll spenna á flóan-
um veldur olíuverðhækkunum. A það hefur þó verið bent að olíuverð hafí
lítið sem ekkert hækkað og öðru hverju jafnvel lækkað. Ástæða þess er sú
að framboð OPEC-ríkjanna hefur reynst meira en áætlað var, en hefðu
Persaflóaátökin ekki átt sér stað má ætla að olíuverð hefði lækkað verulega.
Hér á eftir fer annáll helstu atburða á Persaflóa frá þvi að írakar réðust
fyrir misgáning á bandarísku freigátuna Stark.
17. maí 27.júlí
írösk herþota gerir eldflaugaárás á íranir tilkynna að hefndarráðstafanir
Stark 140 km norðaustur af Bahrain.
37 bandarískir sjóUðar farast, en
stjómvöld i Bagdað biðjast afsökunar
og segja árásina hafa verið óhapp.
20.júní
írakar hefja skipaárásir á ný, eftir hlé
í kjölfar árásarinnar á Stark, og laska
olíuskip frá Möltu við Kharg-eyju.
25.júní
íranir binda enda á vopnahlé sitt á
Persaflóa og gera árás á tvö skip á
vegum Kuwait-manna: norska skipið
Mia Margrethe og líberíska skipið
Stena Concordia.
6. júlí
írakar ráðast á skipið Nikos Kazantz-
akis frá Kýpur þar sem það er að lesta
benzín við Kharg-eyju. Sfðasta skipa-
árás íraka til þessa.
lS.júlí
íranskir byltingarverðir gera árás á
franska gámaskipið ViUe d'Anvers
skamt frá strönd Saudi-Arabfu norðar-
lega á flóanum. Sfðasta skipaárás
frana til þessa.
20. júlí
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sam-
þykkir kröfu um tafarlaust vopnahlé
Irana og íraka.
23. júli
Utanrikisráðherra írans, Ali Akbar
Velayati, segir að ályktun Öryggis-
ráðsins ekki aðgengilega nema að
hluta, en segir að Iransstjóm skýri frá
afstöðu sinni i smáatriðum sfðar. frak-
ar segjast fyrir sitt leyti geta fallist á
ályktunina ef franir hlíti henni einnig.
24. júlí
Olfuskipið Bridgeton, sem er i eigu
Kuwait-manna en lögskráð f Banda-
rfkjunum, siglir á tundurdufl þar sem
það er á leið tU Kuwait f fylgd banda-
riskra herskipa. fransstjóra tílkynnir
að hún muni fyrirskipa hefndarárásir
á bandamenn lraka við flóann f hvert
sinn, sem frakar ráðast á olfustöðvar
f fran eða út af strönd þess.
þeirra verði bundnar við sjálfann fló-
ann.
28. júlí
írakar ftreka að ekki geti verið um
einhliða vopnahlé að ræða.
10. ágúst
Bandariska olfuskipið Texaco Caribb-
ian siglir á tundurdufl á Ómanflóa og
er það f fyrsta sinn, sem átökin á
Persaflóa breiðast út fyrir Hormuz-
sund. Skipið var með fullfermi af
franskri olfu. frakar hefja á ný loftár-
ásir á olfulindir og hreinsunarstöðvar
á meginlandinu.
11. ágúst
Saddam Hussein, forseti íraks, lýsir
yfir „rétti" fraka til þess að ráðast á
skip, sem þjóni frönskum hagsmunum.
15. ágúst
Birgaskipið Anita frá Sameinuðu
furstadœmunum springur f loft upp
og sekkur eftir að hafa siglt á tundur-
dufl skammt frá Fiqairah-höfn utan
við mynni Persaflóa. Sex farast og
fimm sœrast. franir ftreka að þeir
muni ráðast á skip bandamanna íraka,
hveijir sem þeir séu, ef frakar ráðast
á frönsk skip á flóanum.
28. ágúst
franir tilkynna að þeir muni svara
ályktun Öryggisráðsins formlega að
viku liðinni, en f svarinu mun koma
fram að þeir fallist á hluta hennar,
en sumir kaflarnir séu þó frönum óað-
gengilegir.
29. ágúst
Óstaðfestar fregnir herma að írakar
hafi ráðist á Rakhsh-olfulindina og
olfuhöfn á Sirri-eyju þar sem kviknað
hafi f hinu 236.807 tonna olfuskipi fr-
ana, Alvand.
31. ágúst
Skipaárásir hefjast að nýju. íranskir
byltingarverðir ráðast á olfuskip frá
Kuwait, en flugsveitir fraka fara f
fimmtu árásarförina gegn frönskum
olíuskipum á þremur dögum.