Morgunblaðið - 01.09.1987, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
47
Slökkvibíl ekið á brott frá ÞingvaUabænum.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Branamálastofnun með
fyrirvaralaust æfing-
arútkall á Þingvöllum
Selfossi.
Trausti Þorláksson og Guðmundur Haraldsson frá Brunamálastofn-
un tóku á móti slökkviliðsmönnum á Þingvöllum og tilkynntu að um
æfingu væri að ræða.
ELDUR í Þingvallabænum.
Þannig hljóðaði tilkynningin sem
slökkviliðið á Selfossi fékk um
klukkan hálf tvö á þriðjudag.
Ekki var um eld að ræða heldur
æfingu hjá Brunamálastofnun til
að kanna viðbrögð slökkviliðsins
og mætingu. Slökkvilið úr
Reykjavík var einnig boðað.
„í mínum huga er þetta ekkert
annað en gabb," sagði Eggert Vig-
fússon slökkviliðsstjóri á Selfossi.
Hann sagði það algjöran óþarfa að
láta slökkviliðið keyra 45 kílómetra
til að kanna viðbrögð við útkalli.
Það væru til útkallsskýrslur sem
sýndu viðbrögð slökkviliðsmanna.
Hann sagðist ekki finna að því að
slökkviliðið væri prófað heldur að
óþarfi væri að tætast alla þessa
leið. Það hefði verið fyrir sig að
stöðva bflana við Biskupstungna-
brautina því það væri aðeins
reikningsdæmi hvað langan tíma
það tæki að aka á Þingvelli á bflun-
um.
Guðmundur Haraldsson og
Trausti Þorláksson sem tóku á
móti slökkviliðsmönnum á Þingvöll-
um sögðust ekki geta prófað
slökkviliðið nema kalla það út. Þessi
prófun væri liður í prófun um allt
land. Það væri verið að prófa hvem-
ig menn mættu og hvemig liðið
væri. Guðmundur sagði að skipulag
væri í heildina séð gott. Þetta væri
gert til þess að Brunamálastofnun
gæti gert sér betur grein fyrir
ástandinu. Hann sagði að æskilegt
væri að dælur væm staðsettar á
nokkmm stöðum á svæðinu svo
grípa mætti til þeirra á meðan aðal-
liðið væri á leiðinni.
Eggert Vigfússon slökkviliðs-
stjóri sagði að erfitt væri um vik
að setja upp dælur vegna mannfæð-
ar á stöðunum og einnig vegna
mikils kostnaðar. Hann benti a
varðandi Þingvelli að hann hefði
lagt til að vatnsveitan þar yrði end-
urbætt og settar upp slöngur með
góðum vatnsþrýstingi, í hótelinu,
Þingvallabænum og í kirkjunni. Ef
eldur kæmi upp og fólk væri á
staðnum gæti það haldið eldi í skefj-
um á meðan slökkviliðið væri á
leiðinni.
Eggert sagðist hiklaust kalla
þessa æfingu gabb og svo var og
að heyra á slökkviliðsmönnunum
sem kváðust alveg vita hvað þeir
væm fljótir á Þingvelli í útkalli. í
þessari æfíngu Bmnamálastofnun-
ar mættu 9 slökkviliðsmenn strax
og fóm á þremur bflum með stóran
hluta búnaðar slökkviliðsins og vom
36 mínútur á leiðinni. Eftir að þeir
vom famir vom fljótlega 6 menn
tiltækir í slökkvistöðinni.
- Sig.Jóns.
Á 2. hæð í Garðastræti 2 hefur Karl Jóhann opnað saumastofusina.
Klæðskerameistarí opnar stofu
KARL Jóhann Lilliendahl, nýút-
skrifaður klæðskerameistari,
hefur opnað saumastofu i
Garðastræti 2.
Síðustu daga hefur verið unnið
að því að fullbúa húsnæðið til
móttöku fyrir viðskiptavini.
Á boðstólum er úrval fatnaðar
svo sem stakir jakkar, jakkaföt
með vesti og vetrarfrakkar. Vetr-
arfrakkamir fást bæði tilbúnir og
eftir máli.
Karl saumar aðallega úr
Dormeuil efnum en það fyrirtæki
var stofnað í Frakklandi 1842.
Árið 1863 opnaði svo Dormeuil
útibú í Bretlandi en þaðan fær
Karl sín efni.
Dormeuil sér flestum frægustu
tískuhúsum Frakklands fyrir efn-
um og er í dag eitt stærsta
fataefnafyrirtæki í Evrópu, segir
í frétt frá Karli Jóhanni Lilliendahl.
Karl Jóhann Lilliendahl klæð-
skerameistari.
Heba heldur
vió heilsunni
Haustnámskeið
4ra vikna námskeið
hefjast 7. september.
í Hebu geta allar konur á öllum
aldri fundið eitthvað við sitt hæfi.
Hebukerfið er hannað af íþrótta-
kennurum og býður upp á 5 flokka:
1. Rólegt, 2. Almennt, 3. Fram-
hald, 4. Of þungar „engin hopp“.
5. Nýtt: Tímar fyrir konur eftir
barnsburð.
Nuddtimar — Ijós — sauna —.
Morgun- dag- og kvöldtímar, tvisv-
ar, þrisvar og fjórum sinnum í viku.
íþróttakennarar kenna.
Innritun og upplýsingar um flokka
í símum 42360 og 41309.
Heilsurœktin Heba
Auðbrekku 14. Kópavogi
10% stgr. afsl
meðan sýningin
„Veröldin ’87" stendur
Jíafa ‘Royal
Hvítar baðinnréttingar
í miklu úrvali
■ - • '.-T .•ví^SÍ
Baðinnréttingar fyrir þá sem hafa
góðan smekk
Utsölustaðir:
Atlabúðin
Málningarþjónustan
Vöruval
Valberg
Har. Johansen
Brimnes
Akureyri,
Akranesi
ísafirði
Ólafsfirði
Seyðisfirði
Vestmannaeyjum
og flest kaupfélög um land allt.
m*QMÍsen
Suðurlandsbraut 10 S. 686499