Morgunblaðið - 01.09.1987, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
SSSr. „... « m
Síu 1 r * i
Fyrsta hliðin risin. Ólafur uppi á grunninum en Magnús kíkir næstu hlið.
Hér hefur öll grindin verið reist. Næst er að klæða.
Endurbygging' hins níræða
húss „Pöntun“ í fuUum gangi
- Bjarnfirðingar vernda seyðfirskar minjar
Laugarhóli, Bjarnarfirði.
Endurbygging húss sem
hefði kannski átt að vera
verndað hús á heimaslóðum,
er orðin stærsta byggingar-
framkvæmdin í Bjarnarfirði í
ár. Þetta er bygging hússins
Pöntun frá Seyðisfirði, sem nú
er að rísa á Bakka og var upp-
runalega hús Pöntunarfélags
Fljótsdalshéraðs á Seyðisfirði.
Það var byggt þar árið 1898
svo það er I raun nírætt á þessu
ári.
Þegar fréttaritari snéri sér til
Sigurðar Magnússonar frá Þór-
arinsstöðum varðandi sögu
hússins, veitti hann eftirfarandi
upplýsingar: „Húsið byggði Pönt-
unarfélag Fljótsdalshéraðs 1898.
Það var 12,80 m á lengd og 9 m
á breidd, kjallari undir öllu hús-
inu, hæð og ris með 4,30 m
breiðum kvisti. Árið 1918 á húsið
Framtíðin hf. Hinar sameinuðu
íslensku verslanir hf eiga svo
verslunarhús og hafskipabryggju
árið 1930, en Harald Jóhansen
kaupmaður á íbúðarhúsið. Þá
eignast það Guðmundur Emilsson
á 6. áratugnum og síðasti eig-
andi á Seyðisfírði er svo Kolbeinn
Agnarsson.
Húsið er svo rifíð 1985 og selt
til endurbyggingar og flutt að
Bakka í Bjamarfírði.
Húsið þótti sérlega falleg
bygging og þegar það var rifíð
eftir 87 ára veru á Seyðisfírði,
var ekki að fínna í því fúna viði.
íbúðarhúsið Pöntun, var komið á
skrá þeirra húsa sem mælt var
með að yrðu friðlýst, en þau voru
allmörg á Seyðisfírði.
Pöntunarhúsin voru í fjölda ára
afgreiðsluhús fyrir Eimskip og
Ríkisskip."
Pöntunarfélag Fljótsdalshér-
aðs er í raun stofnað 1885, eða
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar
Glæsilegur fatnaður
fyrir dömur og herra. 10-50% afsláttur þessa
viku.
Tískuhúsið Ina,
Hafnarstræti 16.
Kýr til sölu
Nokkrar snemmbærar kýr til sölu.
Upplýsingar í síma 93-51353.
kennsla
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Laufásvegi 2
sími 17800
Innritun er hafin
Vefnaður 7. sept.
Útskurður 16. sept.
Prjóntækni 23. sept.
Leðursmíði 26. sept.
Þjóðbúningasaumur 2. og 3. okt.
Tauþrykk 6. okt.
Fatasaumur 12. okt.
Bótasaumur 13. okt.
Tuskubrúðugerð 13. okt.
Knipl 14. okt.
Spjaldvefnaður 22. okt.
Vefnaður, uppsetning 2. nóv.
Myndvefnaður 5. nóv.
Baldýring 9. nóv.
Saumagínugerð 20. nóv.
Innritun fer fram á skrifstofu skólans að
Laufásvegi 2. Námskeiðaskrá afhent þar og
hjá ísl. heimilsiðnaði Hafnarstræti 3. Upplýs-
ingar í síma 17800.
Frá Menntaskólanum
íKópavogi
Skólinn verður settur í samkomusal skóla-
byggingarinnar kl. 14.00, föstudaginn 4.
september. Kennarafundur verður miðviku-
daginn 2. september kl. 14.00.
Skólameistari.
tonlisuirskólinn ármúla í-í sími:392l()
Frá Nýja tónlistarskólanum
Innritun skólaárið
1987-’88
Fimmtudag og föstudag 3. og 4. sept. frá
kl. 17-19 mæti nemendur frá í fyrra og stað-
festi umsóknir sínar með greiðslu á hluta
skólagjaldsins
Mánudag og þriðjudag 7. og 8. sept. frá kl.
17.00-19.00 verður tekið á móti umsóknum
nýrra nemenda.
Innritun í forskóla fyrir börn 6-8 ára fer fram
alla dagana.
Ekki verður svarað í síma á meðan á innritun
stendur.
Frá Nýja tónlistarskólanum.
Frá Tónlistarskóla
V' Garðabæjar
Innritun fyrir skólaárið 1987-1988 fer fram
dagana 1.-4. september. Tekið er á móti
umsóknum og greiðslu skólagjalda í skrif-
stofu skólans, Smiðsbúð 6, 2. hæð, kl.
14.00-18.00 daglega.
Skólastjóri.
Skólar — leikskólar
— fýrirtæki — einstaklingar
Steinleir, jarðleir og gifs
Nú er rétti tíminn að undirbúa fyrir veturinn.
Hafið strax samband við okkur með pantanir
í steinleir, jarðleir, leir sem ekki þarf að
brenna og gifstegundir.
Upplýsingar í síma 685411.
GI_IT
Höfðabakka 9, 112 Reykjavík.
Aðalfundur Heimdallar
veröur haldinn í Valhöll laugardaginn 12. september kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Lagðir fram endurskoöaöir reikningar.
3. Umræður um skýrslu og reikninga.
4. Lagabreytingar.
5. Umræður og afgreiösla stjórnmálaályktunar.
6. Kosning formanns, stjórnar og tveggja endurskoöenda.
7. Önnur mál.
Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stórn eigi siöar en tveim-
ur sólarhringum fyrir aðalfund. Heimdellingar eru hvattir til aö sækja
fundinn.
Stjórn Heimdallar.