Morgunblaðið - 01.09.1987, Qupperneq 67

Morgunblaðið - 01.09.1987, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987 67 Minning: Jóhann Jóhannsson Fæddur 13. janúar 1905 Dáinn 23. ágúst 1987 í dag verður til hinstu hvílu bor- inn frændi minn, Jóhann Jóhanns- son, rakarameistari. Hann átti ættir að rekja til Dalamanna, fæddur á Goddastöðum í Laxárdal, fjórði í röð sjö systkina. Jóhann dvaldist í sinni æsku- byggð fram undir tvítugt, en þá lá leið hans eins og svo margra ann- arra hingað til Reykjavíkur. Þar nam Jóhann iðngrein sína og vann að henni alla sína starfsævi, rúm 60 ár. Jóhann var tvíkvæntur, fyrri kona hans var Anna Bergmann Sig- urðardóttir, en þau slitu samvistum eftir 5 ára sambúð. Þau eignuðust eina dóttur bama, Esther skrif- stofustúiku hér í bæ. Seinni kona Jóhanns var Anna María Ólafsdóttir og var hjónaband þeirra mjög farsælt. „Sælasti mað- urinn, hvort sem hann er bóndi eða konungur, er sá sem nýtur friðar heima“ er haft eftir þýska skáldinu Goethe. Enda var heimili þeirra hjóna jafnan sælureitur, þar sem rósemi ríkti. Ég fann þar strax þennan sérstaka frið, þegar ég sem áhuga- samur piltur kom í heimsókn til frænda, þeirra erinda að tefla við hann skák. Heldur gengu þær viðureignir mjög á einn veg, því Jóhann var framúrskarandi skákmaður á sínum yngri árum og tefldi á opinberum kappmótum. Þar komst hann í allra fremstu raðir hérlendis, varð m.a. skákmeistari Hafnarfjarðar og á Haustmóti Taflfélags Reylqavíkur árið 1935 varð hann í 2. sæti fyrir ofan þekkta meistara á borð við Eggert Gilfer og Baldur Möller. En Jóhann lét sér ekki skáksigr- ana nægja. Hann var einnig spila- maður góður og skipti yfir í bridgeíþróttina. Við græna borðið átti hann eftir að láta mjög að sér kveða, spilaði sig fram í fremstu raðir og keppti fyrir íslands hönd á Evrópu- og Norðurlandamótum. A Norðurlandamóti í Noregi vöktu þeir félagar mikla athygli í síðustu umferðinni, er þeir lögðu að velli sjálfa Evrópumeistarana, ítali. „Bláa sveitin" fræga, heims- meistari árum saman, með þá Belladonna og Garozzo í broddi fylkingar varð sem sagt að lúta í lægra haldi fyrir íslendingunum. Jóhann varð á sínum ferli marg- faldur íslands og Reykjavíkurmeist- ari í bridge, bæði í tvímenning og sveitakeppni, og spilaði þá mest með Guðmundi Ó. Guðmundssyni. Eftir að Jóhann hætti að spila opinberlega, var oft gripið í spil í heimahúsum, og höfð að því ómæld ánægja. Að leiðarlokum minnist ég dreng- skaparmanns og bið Guð að blessa hann og hans__nánustu. Jóhann Örn Sigurjónsson Minning: Guðný Sigrirðardó ttir Fædd 21. desember 1896 Dáin 21. ágúst 1987 Ég vil minnast ömmu minnar, Guðnýjar Sigurðardóttur, er kvödd var 28. ágúst sl. Hún lést að morgni 21. ágúst á heimili sínu Ásvallagötu 57. Amma fæddist 21. desember 1896 í Flatey á Breiðafírði og var næst elst sex systkina. Foreldrar hennar voru Guðrún Frumrós Magnúsdóttir og Sigurður Sigurðs- son. 27. ágúst 1921 giftist hún Pétri Einarssyni frá Ási í Melasveit. Þau eignuðust ekki böm en 1926 tóku þau að sér móður mína Auð- björgu og varð það þeim til mikillar gleði þegar hún kom til þeirra. Afí Pétur lést þann 18. ágúst Birting af- mælis og minningar- greina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins i Hafnar- stræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar get- ið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersia er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. 1971 eftir langvarandi veikindi. í veikindum hans kom vel í ljós sú þrautseigja og hlýja sem amma átti til þegar á þurfti að halda. Hún var ávallt tilbúin að rétta fram hjálparhönd til þeirra sem hún vissi að þurftu þess með og að gleðja fjölskyldu sína hvenær sem tiiefni gafst. Með þessum orðum vil ég þakka ömmu fyrir alla þá umhyggju sem hún sýndi mér og minni fjölskyldu alla t(ð. Guð varðveiti hana. Pétur Jónsson Þá er horfín á braut hún amma Guðný, sem okkur þótti svo vænt um. Amma kvaddi þennan heim eftir nærri því níutíu og eins árs viðdvöl og skilur eftir sig ljúfar minningar hjá okkur, sem hana þekktum. Oft er við dvöldum hjá henni fræddi hún okkur um lífíð í gamla daga og sagði frá æskustöðvunum í Flatey á Breiðafírði, sem henni þótti svo vænt um. Þegar við bjuggum í sveitinni var alltaf mikil tilhlökkun þegar von var á ömmu, því alitaf var eitthvað með í töskunni til að gleðja okkur. Nú er hennar tími liðinn og vissu- lega er söknuðurinn mikill. En núna er hún í góðum höndum og minn- ingin um hana lifír með okkur þótt hennar sjálfrar njóti ekki lengur við. Hvíli elsku amma í friði. Pétur og Gunna t Móðir mín, Stefanía Eirfksdóttir bókavörður, Lindarbraut 16, lést á heimili sinu föstudaginn 28. ágúst. Jarðarförin auglýst síðar. Stefanfa Pitts. Lokað Vegna jarðarfarar ÞÓRDISAR STEFÁNSDÓTTUR verð- ur umboð Tryggingastofnunar ríkisins í Kópavogi lokað frá kl. 13.00 í dag. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Legsteinar BKARGAR GERÐIR Marmrex/Gmít Steinefnaverksmiðjan Helluhrauni 14, sími 54034, 222 Hafnarfjöröur t Ástkær móðir mín, JÓNÍNA KRISTRÚN NARFADÓTTIR, Skeiðarvogi 20, lést í Borgarspítalanum 24. ágúst. Jarðarförin fer fram fimmtudag- inn 3. september kl. 15.00 frá Fossvogskirkju. Gylfi S. Ingólfsson. t Útför eiginkonu minnar, móður okkar, dóttur og tengdamóður, GERTRUD HAUTÁSGRÍMSSON, Skriðustekk 27, sem lést 26. ágúst sl., fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 2. sept. kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Islands. Páll Ásgrímsson, Margrét Pálsdóttir, Gertrud Sledz, Asgrfmur Þór Pálsson, Joachim Keahler, Sigurður Þór Pálsson, Þorgeir Valur Pálsson, Lára B. Helgadóttir, Halldór P. Þrastarson. t - Móðir okkar og tengdamóðir, ÞÓRDÍS STEFÁNSDÓTTIR, Holtagerði 48, Kópavogi, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudag 1. septem- ber kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Landssam- tök hjartasjúklinga. Edda G. Ríkharðsdóttir, Brandur St. Guðmundsson, Stefán Kj. Ríkharðsson, Rikharð Ottó Ríkharðsson, Ásthildur Þorvaldsdóttir. t Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, AÐALBJARGAR HALLDÓRSDÓTTUR, Vöröustig 5, Hafnarfirði, Georg Sigurðsson, börn og barnabörn. t Inniiegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug viö andlát og útför KATRÍNAR KJARTANSDÓTTUR, Njarðargötu 47. Sérstakar þakkir til hjúkrunarliðs kvennadeildar Landspítalans fyrir frábæra hjúkrun og umönnun. Aðalheiður Kjartansdóttir, Kjartan Ó. Kjartansson, Helga Ragnarsdóttir. t Hugheilar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall og minningarathöfn RAGNARS JÓHANNS ALFREÐSSONAR frá Hrauni, Efstahrauni 16, Grindavfk. Sigrfður Sigurðardóttir, Þorvaldur Ragnarsson, Jón Agnarsson, Hrefna Ragnarsdóttir, Sigurður Gíslason, Gísli Sigurðsson, Höröur Sigurðsson, Margrót Sigurðardóttir. t Hugheilar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur hlýhug og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföð- ur, afa og langafa, LÁRUSAR JÓHANNS GUÐMUNDSSONAR frá Byrgisvík, Silfurgötu 39, Stykkishólmi, er lést 9. ágúst sl. Guð blessi ykkur öll. Elfn Elfsabet Bjarnadóttir, Birna Lárusdóttir, Hörður Kristjánsson, Hallfreður Lárusson, Hjördís Þorvarðardóttir, Sigrún Lárusdóttir, Björgvin Þorvarðarson, Svala Lárusdóttir, Sigurður Örn Gfslason, Erla Lárusdóttir, Róbert Jörgensen, barnabörn og barnabarnabörn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.