Morgunblaðið - 01.09.1987, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
69
Þröstur náði tveimur
áföngum á þremur vikum
Skák
Margeir Pétursson
Þröstur Þórhallsson stefnir nú
hraðbyri að því að verða okkar
næstí titilhafi, því á aðeins þrem-
ur vikum hefur hann náð tveimur
áföngum að alþjóðlegum meist-
aratitli. Hinn fyrri var á alþjóð-
lega mótinu í Gausdal i Noregi.
Þar náði Þröstur tilskildum ár-
angri, fimm og hálfum vinningi
af níu mögulegum. Eftír aðeins
tveggja daga hvíld hélt Þröstur
til Lundúna til að tefla í hinu
árlega skákmóti Lloyds bankans.
Þar hefur honum vegnað svo vel
að hann hafði náð lágmarkinu,
sex vinningum, tveimur umferð-
um áður en mótinu var lokið.
Þröst skortír því aðeins einn
áfanga tíl að hljóta titilinn og
gæti náð honum á Skákþingi ís-
lands á Akureyri, sem hefst um
miðjan september. Tækist það
væri um mettíma að ræða á ís-
landi og þótt viðar væri leitað.
Síðustu umferð á Lloyds Bank
mótinu átti að tefla í gærkvöldi og
þótt margir kunnir stórmeistarar
tefli á mótinu átti Þröstur mögu-
leika á verðlaunasæti. Staðan fyrir
síðustu umferðina var þessi:
1-2. Wilder (Bandaríkjunum) ogC-
handler (Englandi) 7 V2 v.
3-4. Rogers (Ástralíu) og Benjamin
(Bandaríkjunum) 7 v.
5-12. Þröstur Þórhallsson, Nunn
(Englandi), Anand (Indlandi),
Ivanov (Kanada), Zuger (Sviss),
Dlugy, Kudrin og Federowicz (allir
Bandaríkjunum) 6 V2 v.
Fleiri íslendingar taka þátt í
mótinu. Hannes Hlífar Stefánsson,
sem er aðeins fimmtán ára gamall,
hefur hlotið fimm og hálfan vinn-
ing, Jón Garðar Viðarsson frá
Akureyri hefur fimm vinninga og
Amþór Sævar Einarsson, sem er
búsettur í Svíþjóð, hefur fjóran og
hálfan vinning.
Þrátt fyrir ágæta frammistöðu
Hannesar og Jóns eiga þeir ekki
möguleika á áfanga að þessu sinni,
þar sem þeir hafa ekki teflt við
nægilega stigaháa andstæðinga.
Þröstur hefur lagt mikla rækt
við skákina í sumar og árangurinn
nú er bein afleiðing af aukinni
ástundun. Sama er að segja um
Hannes Hlífar, þótt herzlumuninn
hafi skort hjá honum. Hann hlaut
fimm vinninga af níu mögulegum
í Gausdal og stóð lengi vel að vígi
á mótinu, þar til hann lék af sér
drottningunni gegn Piu Cramling
með gjörunna stöðu. Hannes er í
framför, en þarf að lesa sér betur
til og vegna skorts á einbeitingu
leikur hann stundum herfilega af
sér. Hæfileikana skortir hins vegar
ekki á þeim bæ og tfmaspursmál
að honum takist að bæta úr þessu.
Þröstur Þórhallsson hefur ekki
fengið áfanga sína á silfurfati. í
Gausdal þurfti hann að tefla við sjö
titijhafa í níu umferðum og var oft
í krappri vöm. Það var ekki fyrr en
í síðustu umferð að rofaði til, hann
átti að mæta titillausum finnskum
skákmanni og þurfti að vinna til
að ná áfanganum. Það er erfitt að
tefla slíkar skákir, en eftir byijunar-
örðugleika sagði styrkleikamunur-
inn til sín.
Hvítt: Þröstur Þórhallsson
Svart: Lindstedt (Finnlandi)
Spánski leikurinn
1. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Bb5
- a6 4. Ba4 — Rf6 5. 0-0 — Rxe4
6. d4 - Be7!?
Svartur hefur valið opna afbrigði
spænska leiksins, en þessi leikur
hans er mjög óvenjulegur, hér er
næstum alltaf leikið 6.— b5 7. Bb3
- d5.
7. Hel - f5 8. dxe5 - 0-0 9.
Bb3+ - Kh8 10. Rbd2?!
Þessi leikur er ekki nægilega
beittur, því nú hefði svartur átt að
leika 10. — d5 og hefur þá góða
stöðu. Til að halda frumkvæðinu
þurfti hvítur að leika 10. Bd5 eða
10. Rc3.
10. - d6? 11. Rc4! - b5 12. exd6!
- Bh4 13. g3 - bxc4 14. Ba4
Þresti hefur tekist að færa sér í
nyt mistök svarts í tíunda leik.
Hann vinnur nú manninn til baka
og svartur hefur veikt stöðu sína
verulega. Með næsta leik svarts
fylgdi jafnteflisboð, sem var að
sjálfsögðu hafnað.
14. - Bxg3 15. hxg3 - Bb7 16. d7!
Þetta frípeð er sem fleinn í holdi
svarts, sem sér sitt óvænna og legg-
ur út í vafasama kóngssókn.
16. - Df6 17. Bf4 - Had8 18.
Bxc7 — Dh6
Svart dreymir um stórsókn á
kóngsvæng. Eftir 19. Bxd8 Rxd8
er hótunin 20. — Rg5 mjög óþægi-
leg. Þröstur reynist þeim vanda
vaxinn að sigrast á þessum kaffi-
húsatöktum andstæðingsins.
19. Bxc6 - Dxc6 20. Bxd8 - Kg8?
Bjartsýni svarts er gengin út í
öfgar, hann hefur séð að 20. — Rd2
gengur ekki vegna 21. He8, svo
hann ákveður að hóta 21. — Rd2.
En einnig f því tilviki reynist hvítur
eiga vöm.
21. Bh4 - Rd2
MEÐ EINU SÍMTALI
er hægt að breyta innheimtuað-
ferdinni. ÉrtTr það verða áskri
argjöldin sku
viðkomandi greiðslukortareikn
ing manaoariega.
SÍMINNER
B 691140
691141
Þröstur Þórhallsson
menn og tvo þekkta Englendinga,
alþjóðlega meistarann Littlewood
og stórmeistarann Glenn Flear.
Þresti tókst að snúa á Flear í
tvísýnu hróksendatafli. Jafntefli
hefur hann gert við alþjóðlegu
meistarana Zuger, Sviss, Emst,
Svíþjóð og Igor Ivanov frá Kanada,
sem var með tapað en slapp fyrir
hom. Langskemmtilegasta skák
Þrastar á Lloyds Bank-mó'tinu var
viðureign hans við Paul Littlewood,
sem er úr þekktri skákfjölskyldu.
John faðir hans var t.d. í enska
landsliðinu. Paul varð Bretlands-
meistari fyrir nokkmm ámm, en
hefur ekki lagt skákina fyrir sig
og teflt lítið upp á síðkastið. Gegn
Þresti beindi hann skákinni
snemma inn á ótroðnar slóðir, en
taflmennska hans varð fálmkennd
og viðbrögð okkar manns vora hár-
rétt.
Hvítt: P. Littlewood (Englandi)
Svart: Þröstur Þórhallsson
Drottningarbragð
1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rf3 -
d5 4. Bg5 - c6 5. Rbd2
Mun eðlilegri staðsetning fyrir
riddarann er að sjálfsögðu 5. Rc3,
en Littlewood vill greinilega forðast
troðnar slóðir.
5. - h6 6. Bxf6 - Dxf6 7. Db3
- a5 8. c5?
Hvítur leggur of mikið á stöðuna
með þessum leik. Sjálfsagt var 8. e4
8. - Rd7 9. e4 - e5! 10. exd5 -
exd4 11. Re4 - De7 12. 0-0- 0
Hvítur er nú þegar lentur í hrika-
legum vandræðum vegna losara-
legrar stöðu sinnar. Langhrókunin
var eina úrræði hans úr því sem
komið var.
12. — Rxc5 13. Rxc5 — Dxc5+
14. Kbl - a4!
Þar sem hvítur er langt á undan
í liðsskipan mætti halda að hann*
hefði sóknarfæri, en fmmkvæðið
er í raun 0 g vem í höndum svarts.
15. Dc4 - Bf5+ 16. Kal - a3!
17. Hel+
Hér og í næsta leik á hvítur ekk-
ert betra en að skipta upp á drottn-
ingum og reyna að halda jafntefli
með peði minna. Ógæfa hvíts er
hins vegar rétt að byija.
17. - Kd8 18. dxc6?? - axb2+
19. Kxb2
19. - Hxa2+!!
Þessum þmmuleik var óvart leik-
ið með smelli sem heyrðist langt út
í sal. Littlewood átti ekki annað
úrræði en að gefast upp.
22. He8! - Rxf3+ - 23. Dxf3 -
Dxf3 24. Hxf8+ - Kxf8 25.
d8=D+ - Kf7 26. De7+ - Kg6
27. De8+ - Kh6 28. De3+ og
svartur gafst upp.
Þröstur hefur einnig fengið erf-
iða andstíæðinga í London, en
aðeins tapað einni skák, fyrir
undramanninum Anand frá Ind-
landi, sem er heimsmeistari í flokki
20 ára og yngri og virðist aldrei
þurfa að hugsa sig um. Þröstur
hefur unnið þijá titillausa skák-
Ferðaskrifstofan Atlantik —
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
ÍSLENDINGAR
60ÁRA
OG ELDRI
Mallorka 5.október
viðbótarsæti
Eins og kunnugt er efnir ferðaskrifstofan Atlantik til tveggja
sólarlandaferða til Mallorka í haust í samstarfi við félagsmála-
stofnun Reykjavíkur.
Um er að ræða fjögra vikna ferðir, 26. september og 5. október.
Báðar ferðirnar eru löngu uppseldar en okkur hefur nú loksins
tekist að tryggja nokkur viðbótarsæti þann 5. október.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Atlantik og á fundinum í
VR húsinu Hvassaleiti 56—58, miðvikudaginn 2. september kl.
4.00.
Athugið að ferðir þessar eru opnar öllum landsmönnum.
<VTC<VIVTH<
Ferðaskrifstofa, Iðnaðarhúsinu, Hallveigarstíg 1 símar 28388 og 28580