Morgunblaðið - 01.09.1987, Blaðsíða 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
fclk í
fréttum
Á söngnámskeiði
hiá Nikolai Gedda
Gunnar Guðbjömsson er 22 ára
Reykvíkingur sem var á nám-
skeiði hjá hinum heimsfræga
söngvara Nikolai Gedda úti í Vínar-
borg nú fyrir skömmu. Fólki í
fréttum lék forvitni á að vita meira
um þennan unga söngvara, og gerði
sér ferð á Hressó til að ná tali af
honum.
Gunnar sagðist hafa heyrt af
námskeiðinu hjá kunningjafólki
Sigurðar Demetz, söngkennara
hans, og hafi hann þá sent bréf til
Gedda ásamt segulbandsupptöku
af söng sínum. Hann þurfti samt
að fara til Vínar upp á von og óvon,
'því Gedda vill heyra í fólki í eigin
persónu áður en hann tekur það í
kennslu. Það fór þó svo að Gunnar
komst inn á námskeiðið, og naut
hann svo leiðsagnar í „Wienermei-
sterkurz" hjá Gedda tvær fyrstu
vikumar í ágúst.
Það er mikill heiður að komast
í námskeið hjá Nikolai Gedda, því
Gedda hefur í áratugi verið einn
þekktasti og besti söngvari í heimi.
Hann er þekktur fyrir Qölhæfni sína
í sönglistinni - hann getur sungið
aiánast allar stfltegundir - og hann
er líka tungumálasnillingur. Gunnar
sagði að Gedda hefði ráðlagt sér
að ná góðum tökum á viðkomandi
tungumáli áður en hann færi að
syngja á því, og Gunnar fékk tæki-
færi til þess að bæta sig bæði í
þýskunni og í ítölsku - en hann fór
á óperuhátíðina í Veróna eftir að
hann lauk námskeiðinu í Vín. Þess
má geta að Gedda kom hingað til
íslands árið 1960, og söng þá í
ópemnni Rígólettó í Þjóðleikhúsinu.
Gunnar kynntist mikið af erlendu
tónlistarfólki úti í Vín, en margir
nemendumir á námskeiðinu em
atvinnusöngvarar sem vilja halda
sér við og líka læra eitthvað nýtt.
*\ð námskeiðinu loknu vom haldnir
lokatónleikar, og eftir þá höfðu tveir
menn samband við Gunnar og vildu
Gunnar Guðbjörnsson.
ráða hann til sín sem atvinnusöngv-
ara.
Gunnar sló þó ekki til, því hann
vill fyrst ljúka sínu námi hér á
landi. Gunnar hefur verið síðustu
§ögur árin í söngnámi hjá Sigurði
Demetz í Nýja Tónlistaskólanum,
og lýkur burtfararprófi þaðan nú
um jólin. Eftir það stefnir Gunnar
að því að halda utan til frekara
náms, og hugsanlega fer hann til
Stokkhólms á næsta ári og fær þar
frekari tilsögn hjá Nikolai Gedda.
Um framtíðaráform sín sagði
Gunnar að honum fyndist líklegt
að hann flentist erlendis, því tæki-
Morgunblaðið/BAR
færin væru svo mörg og markaður-
inn svo stór fyrir atvinnusöngvara,
eins og hann fékk nasasjón af í
Vín. Blaðamaður spurði hvort við
íslendingar fengjum þó ekki öðm
hvom að heyra í honum. „Jú, þegar
ég er orðinn heimsfrægur", sagði
Gunnar og hló. Gunnar hefur ann-
ars sungið nokkuð hér á landi, m.a.
með Islensku Hljómsveitinni og
Karlakómum Fóstbræðmm.
Eins og áður sagði er Gunnar
aðeins 22 ára gamall, og það er því
full ástæða til að fylgjast grannt
með þessum efnilega tónlistar-
manni í framtíðinni.
Óvænt sumarleyfi
Alvöru blómabarn, eða „uppi“ í hippagæru?
Hippatískan
blómstrar
áný
Þeir em margir sem líta með
söknuð í huga aftur til sjö-
unda áratugarins, þegar hug-
sjónahippar töluðu og sungu um
ást og frið með blóm í hárinu, og
enginn var upptekinn við að keppa
að fé, frama og magasári eins og
í dag. Nú virðist sem hippatískan
sé aftur að ryðja sér nokkuð til
rúms, a.m.k. fyrir vestan haf.
Friðarmerki og marglitir bolir
blómstra á ný, þegar ný kynslóð
reynir að herma eftir klæðnaði
forfeðra og -mæðra sinna.
„Fólk á okkar aldri er að beij-
ast á móti íhaldssemi og „uppum",
það reynir að endurlifa fijálsræð-
isbyltingu hippaáranna með því
búa til og lita sín eigin föt“ segir
hin 23 ára gamla Cheri Weitman,
sem er fatahönnuður.
Ekki em þó allir á því að end-
urlífgun hippatískunnar fylgi
afturhvarf til hugsjóna blóma-
bamanna. Víða er hægt að fá
marglit „hippaföt" úr silki og ray-
oni í fínum tískubúðum, og
fatahönnuðurinn Joan Zappola -
sem eitt sinn sat á Woodstock-
rokkhátíðinni með blóm í hári -
selur nú nýríkum „uppum" sér-
hannaða kvöldkjóla í hippastfl á
minnst 60.000 krónur stykkið.
Hún Katrín Ólöf Egilsdóttir, 8 ára stelpa frá Tálk-
nafirði, hefur heldur betur verið í sviðsljósinu
að undanfömu. Hún hringdi og bað um óskalag á Rás
2 um daginn, og sagði aðspurð að hún gæti ekkert
ferðast í sumar, því að það væri ekki til bfll á heimil-
inu. Kristinn Bárðarson, deildarstjóri hjá BSÍ, heyrði
í Katrínu litlu í útvarpinu, og fannst að við svo búið
mætti ekki una. Hann bauð því Katrínu og systur
hennar, Huldu, að koma til Reykjavíkur og ferðast
um með langferðabflum BSÍ.
Katrín og Hulda fóm upp að Surtshelli, til Gullfoss
og Geysis, og inn í Þórsmörk, og svo var þeim boðið
á landbúnaðarsýninguna Bú ’87 af forstöðumönnum
hennar. Þær komu svo fram á Rás 2 og í sjónvarp-
inu, þannig að það er óhætt að segja að það hafi
ræst úr sumarleyfinu hjá þeim systmm.
. Fólk í fréttum spurði Kristin hvort menn gætu
ícríað út boð í framtíðinni hjá honum með því að
hringja í útvarpið og biðja um óskalag. Hann sagði
að það gæti verið erfitt því að hann hlustaði næstum
aldrei á útvarp, og það hefði verið algjör tilviljun að
hann hafí heyrt í Katrínu. Það væri hins vegar aldrei
að vita hvort hann fengi einhveijar svona grillur í
framtíðinni, ef tilefni gæfíst.
Morgunblaðið/Sverrir
Frá vinstri: Kristinn Bárðarson, Katrín Ólöf Egils-
dóttir, 8 ára, og Hulda Egilsdóttir, 11 ára.
— Það er síminn til hennar. Hver
skyldi það nú vera?