Morgunblaðið - 01.09.1987, Page 78
- 78
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
RÆÐUR FLUTTAR Á 125 ÁRA AFMÆLIAKUREYRAR
Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands:
Akureyri er til fyrirmyndar
ÞAÐ fylgir því sérstök tilfinning
að koma í Eyjaíjörð. Fegurð Qarð-
arins er einstök vegna þess milda
yfirbragðs sem gróðursæld og land-
kostir skapa. Fjöllin teygjast fram
og umlykja þessa byggð eins og
mjúkir vemdarvængir. Hér eru ein-
hver ákjósanlegustu lífsskilyrði í
landinu, enda blómstra hér eins og
-^hvergi annars staðar hinir uppruna-
legu lífshættir þjóðarinnar, —
nýting lands og sjávar. Slíkt um-
hverfi hlýtur að skapa gott mannlíf,
— og slíkt umhverfí geymir þá
byggðarperlu sem Akureyri er.
Þess vegna þarf aðkomumaður
ef til vill ekki að undrast þá alúð
nostursemi og fortíðarumhyggju,
sem einkennir þennan fagra stað.
Hér haldast í hendurmeð óvenjuleg-
um hætti þeir margslungnu þættir
sem þurfa að fléttast saman til að
birta blómlegt líf. Hin ákjósanlegu
lífsskilyrði hafa lagt manninum til
sérstaka verklagni, sem leiðir til
velsældar, og þegar vel tekst til —
eins og hér — einnig til andlegrar
menningar. Slíkur staður hefur að
sjálfsögðu alið listamenn til hugar
og handar, fagurkera oggóðskáld.
Á þessari afmælishátíð Akur-
eyrar finnum við íslendingar öll til
stolts með heimamönnum. Því með
orðum skáldsins á Sigurhæðum:
Eitt er landið, ein vor þjóð,
auðnan sama beggja;
eina tungu, anda, blóð,
aldir spunnu tveggja;
Saga þín er saga vor
sómi þinn vor æra...
Akureyri er til fyrirmyndar. Hér
urðu menn skjótir til skilnings á
nauðsyn þess að flytja gróðurinn
inn í bæ sinn, sem nú er að verða
ósk allra landsmanna sem í þétt-
býli búa. Hér sáu menn snemma
fegurð gamalla húsa og gildi þess
að varðveita þau með þeirri reisn,
sem við alla daga skuldum fortíð-
inni. Með þessari umhyggju hafa
Akureyringar fellt bæ sinn haglega
inn í fegurð fjarðarins. Og lengi
hefur Akureyri búið menntunar-
löngun mikils hluta landsmanna
örvandi athvarf.
Ég áma Akureyrarbæ og öllum
íbúum heilla á merkum tímamótum.
Megi gifta alla tíma fylgja þessu
byggðarlagi með hina sigildu hvatn-
Vigdís Finnbogadóttir
ingu séra Matthíasar að leiðarljósi.
Munið að skrifa meginstöfum
manna vit og stórhug sannan.
Gleðilega afmælishátíð.
Gunnar Ragnars forseti bæjarstjórnar:
Fagna komu
góðra gesta
Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra:
Avarp
í Akureyrarkirkju
Það fór vel á því að fyrsta atriði
þeirra hátíðarhalda, sem við stönd-
um fyrir í dag, þegar 125 ár eru
liðin síðan Akureyri fékk kaupstað-
arréttindi, var að fagna komu
forseta íslands til bæjarins, en á
hátíðarfundi, sem var haldinn fyrir
stundu gafst tækifæri til þess að
bjóða hana velkomna. Ég vil hér
enn á ný þakka henni þann heiður,
~ ‘tsem hún sýnir okkur Akureyringum
með heimsókn þessari og við vonum
að hún megi eiga hér góðan og
eftirminnilegan dag.
Þorsteinn Pálsson, forsætisráð-
herra, og Jón Sigurðsson, sem nú
gegnir störfum félagsmálaráðherra,
sátu einnig þennan hátíðarfund
ásamt eiginkonum sínum, en þau
heiðra okkur einnig með nærveru
sinni á þessum degi.
Á meðal gesta okkar hér í dag
eru þrír fyrrverandi bæjarstjórar á
Akureyri, þeir Magnús Guðjónsson,
Bjami Einarsson og Helgi M. Bergs,
og er það okkur sérstök ánægja að
þeir skuli hafa getað þekkst boð
okkar um að koma til þessara hátíð-
arhalda ásamt konum sínum. Það
eru ekki margir sem hafa gegnt
þessu embætti, því á undan þeim
var það aðeins í höndum tveggja
manna, þeirra Jóns Sveinssonar og
Steins Steinsen, sem báðir eru látn-
ir.
Það er oft úr vöndu að ráða,
þegar bjóða á til afmælis, ekki síst
þegar aftnælisbamið er vinmargt
og sem betur fer á það við um
Akureyri. Við höfum ekki leitað
langt jrfir skammt. Náið og gott
samband og samstarf hefur ætíð
verið á milli sveitarfélaganna á
Eyjafjarðarsvæðinu og bæjarfélag-
anna á Norðurlandi. Með bættum
samgöngum og sameiginlegri notk-
'■-un auðlinda hefur þetta samband
verið æ nánara og mikilvægara.
Þessir nágrannar okkar eru því
miklir aufúsugestir, en hér í dag
em fulltrúar frá öllum sveitarfélög-
um við Eyjaflörð og kaupstöðum á
Norðurlandi auk fulltrúa Fjórð-
ungssambands Norðlendinga. Um
leið og þeir eru boðnir velkomnir
til bæjarins í dag viljum við undir-
strika þá miklu möguleika, sem við
eigum f sameiningu til þess að efla
þennan landshluta, og það munum
við gera með áframhaldandi sam-
jþeldni.
Alþingismenn kjördæmisins eru
boðnir velkomnir svo og borgar-
stjórinn í Reylgavík og formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
sem hafa sýnt okkur þann heiður
að koma til þessara hátíðarhalda.
Það er rétt ár síðan Reykvíkingar
héldu sína 200 ára afmælishátfð
með mikilli reisn og kom þá enn
einu sinni í ljós, hvem hug lands-
menn bera til höfuðborgar sinnar.
Það hafa löngum verið góð tengsl
á milli Akureyrar og Reykjavíkur,
en ekkert er nauðsynlegra þessari
þjóð en skilningur á milli landshluta
á högum hvers annars.
Bæjarstjóm Akureyrar og Akur-
eyringar fagna komu allra þessara
ágætu gesta til bæjarins. Það er
von okkar að þessi dagur verði eftir-
minnilegur. Akureyringum öllum
nær og íjær óska ég til hamingju
með daginn og það er von forráða-
manna bæjarins, að hátíðardag-
skráin sé þannig úr garði gerð, að
allir fái sem flest við sitt hæfi.
Ég gat þess í upphafí, að fyrr á
þessum morgni var haldinn hátíð-
arfundur í bæjarstjóm Akureyrar.
Það þótti fara vel á því, að ganga
frá endurskoðuðum og breyttum
samþykktum að stjóm bæjarins í
framhaldi af nýjum sveitarstjómar-
lögum á þessum fundi og hafa nú
þessar samþykktir verið staðfestar
af bæjarstjóm. Þá hefur bæjarstjóri
lagt í það allnokkra vinnu að fá
meiri festu í gerð og lögun skjaldar-
merkis Akureyrar og samþykkti
bæjarstjóm reglugerð þar um. fer
einnig vel á þessu þar sem oft hef-
ur verið nokkuð á reiki bæði lögun
merkisins og meðferð og notkun
þess og ætti það nú að liggja Ijósar
fyrir. A 100 ára afmæli bæjarins
fyrir 25 ámm síðan var ákveðið að
ráðast í byggingu fyrir starfsemi
Amtsbókasafnsins. Sú bygging reis
á næstu árum og hefur Amtsbóka-
safnið og þessi bygging verið eitt
af mestu menningarverðmætum
þessa bæjar og ein stílfegursta
bygging sem hér er. Þetta er eitt
af því marga, sem bærinn er þekkt-
ur fyrir. Safnið hefur vaxið gífur-
lega mikið á þeim árum, sem liðið
hafa og löngum verið uppi hug-
myndir um stækkun þess á einhvem
hátt eða jafnvel útibú þess í öðmm
bæjarhlutum. Þá hafa verið allmikl-
ar og vaxandi umræður um aðstöðu
til ýmis konar menningarstarfsemi
hér í bænum og er þess skemmst
að minnast, þegar menningarmála-
neftid bæjarinns gekkst fyrir
málþingi um þau mál á sl. vetri og
lét gera úttekt á því húsnæði, sem
við búum yfír til sýninga, tónleika,
fundahalda og hvers kyns annarrar
menningarstarfsemi. Þessar um-
ræður og úttektir leiddu til þess að
farið var að gefa þvi gaum hvort
ekki mætti slá nokkrar flugur í einu
höggi, því um leið og ráðist yrði í
nýbyggingu til þess að skapa safn-
inu bætta aðstöðu þá yrði um leið
gert ráð fyrir því að í henni gæti
um leið rúmast aðstaða til menning-
arstarfsemi á þeim sviðum sem
áður er getið og á þann hátt mætti
gera Amtsbókasafnið á Akureyri
Gunnar Ragnars
að enn meiri menningar- og félag-
smiðstöð en nú er. Niðurstaða í
þessu máli liggur nú fyrir því nú
hafa allir bæjarfulltrúar sameinast
um tillögu, sem gerir einmitt ráð
fyrir þessu og var sú tillaga sam-
þykkt á hátíðarfundinum áðan og
ákveðið að leggja fram fjárupphæð
til þess að ráðast í hönnun nýrrar
byggingar, sem síðan verður tengd
hinu eldra safnhúsi. Þetta er gjöf
Akureyringa til sjálfra sín og með
nokkru sanni má segja til ná-
grannabyggðarlaga okkar einnig
svo mjög sem þetta safn á ítök hjá
þeim ekki síður en Akureyringum.
Það er alltaf að verða betur ljóst,
að ein höfuðforsendan til þess að
byggð haldist í jafnvægi og að
byggðakjamar geti eflst er að skil-
yrfi séu til þess að halda uppi
öflugri menningarstarfsemi. Það er
t.d. engum vafa undirorpið að hið
mikla og fjölbreytta menningarlíf
sem hefur verið hér á Akureyri á
sinn stóra þátt í því að hér hefur
myndast stærsti þéttbýliskjaminn
utan Reykjavíkur. Hér hafa ríkt
langar hefðir í þeim efnum og þetta
hérað hefur borið af sér marga af
fremstu listamönnum þjóðarinnar.
Með þeirri samþykkt, sem öll bæjar-
stjóm hefur staðið að í dag, er
undirstrikað að við ætlum að halda
menningarlegri reisn okkar áfram.
Okkar ágætu gestir og góðir
Akureyringar.
Við höldum í dag upp á 125 ára
kaupstaðarafmæli Akureyrarbæjar.
Sumum finnst ef til vill að tilefnið
sé ekki nægjanlegt. Slíkt sé nægj-
anlegt á heilum og hálfum ár-
hundruðum. Við erum á öðm máli.
Það er sjálfsagt á a.m.k. 25 ára
fresti að minnast upprunans og
brautryðjendanna, staldra við og
átta sig á þeim miklu breytingum
og framfömm, sem átt hafa sér
stað. Það hefur líka færst í vöxt,
að bæjar- og sveitarfélög minnast
ýmissa merkra atburða í sögu sinni
og um leið og við þannig höldum
tengslum á milli fortíðar og nútíðar
þá em þessir atburðir einnig kjörið
tækifæri til nánari tengsla á milli
granna og jáfnvel landshluta og
vettvangur til þess að upplýsa þjóð-
ina um sögu og hagi einstakra
byggðarlaga.
Að svo mæltu vil ég bera fram
þá ósk, að þessi dagur verði eftir-
minnilegur gestum okkar um leið
og ég býð þá enn einu sinni vel-
komna. Við bæjarbúar óskum okkur
til hamingju á þessum tímamótum
og þökkum forsjóninni fyrir það
sem við höfum öðlast á 125 ámm.
Forseti íslands, háttvirt bæjar-
sijórn Akureyrar, virðulega
samkoma:
Mér er það mikil ánægja og heið-
ur að vera hér í boði bæjarstjómar-
innar á þessum merkisdegi, þegar
öld og fjórðungur aldar er liðin frá
því Akureyri varð sjálfstæður kaup-
staður með bæjarstjóm. Ég færi
ykkur kveðjur og ámaðaróskir fyrir
hönd Jóhönnu Sigurðardóttur, fé-
lagsmálaráðherra.
Nýliðið er annað stórafmæli í
sögu Akureyrar, þegar tvær aldir
vom liðnar frá því bærinn fékk fyrst
kaupstaðarréttindi. Það er engin
tilviljun að varanleg búseta og föst
verslun hófst á Akureyri í sama
mund og einokuninni var aflétt.
Saga Akureyrar er samofin verslun-
arsögunni.
Bæjarmenningin fylgdi hér í kjöl-
far fíjálsrar verslunar og efldist
síðar með þróun sjávarútvegs og
iðnaðar. Þessi fjölþætti og myndar-
legi atvinnurekstur er nú traust
undirstaða undir velmegun og
menningu í bænum. Velfamaðar-
óskir Matthíasar Jochumssonar til
Akureyrar árið 1890 hafa reynst
áhrínsorð, er hann kvað:
„Saga þín er enn í æsku,
eyrar rósa. fjórðungsbót!
Dafria þú í fullu frelsi
framatíma gaktu mót;
stunda mennt og styrk þinn anda,
stattu fast á landsins rót!“
Akureyri hefur sannarlega
stundað mennt og staðið fast á
landsins rót. Það er þjóðamauðsyn,
að í öllum landshlutum eflist höfuð-
ból eins og Akureyri, ekki eingöngu
á sviði framleiðslu, verslunar- og
þjónustu heldur einnig hvað varðar
menntun og menningu. í þessu efni
er Akureyri lýsandi fordæmi.
Akureyri hefur lengi verið fram-
úrskarandi skólabær, sem fleiri en
Akureyringar hafa notið. Sá, sem
hér stendur, er einn þeirra mörgu
aðkomumanna, sem hafa stundað
nám í Menntaskólanum á Akureyri.
Ég stend eins og þeir í ævilangri
þakkarskuld við þennan bæ og
Akureyrarskóla, sem fóstraði okkur
jafnvel og sitt eigið fólk. Það fer
vel á því, að einmitt á þessu merkis-
ári í sögu Akureyrar skuli hefjast
í bænum háskólastarf eins og verð-
ur í haust.
En Akureyri er ekki síður rækt-
unarbær en skólabær. Hér stendur
skrúðgarðarækt og skógrækt með
miklum blóma, og ber hæst Lysti-
garðinn, sem bæði gleður augað og
þjónar fræðunum. Akureyringar
era í þessu eins og í sínum atvinnu-
rekstri miklir snyrtibændur og
bærinn hefur lengi verið afbragð
annarra bæja um yfirbragð. Hér
hæfir búskaparlagið þeirri glæsi-
legu umgjörð sem náttúran hefur
Jón Sigurðsson
búið Akureyri, þar sem Súlur horf-
ast í augu við Kaldbak, sem gnæfir
í hánorðri sem útvörður Eyjafjarð-
ar, þegar ekið er út Drottningar-
brautina.
Akureyri sannar þá kenningu
Halldórs Laxness að það sé yfir
höfuð að tala mjög dýrt að vera
íslendingur, svo glæsilega er hér
búið. Fyrir nokkram áram fór ég
hér um bæinn stutta skoðunarferð
með mörgu fólki af Norðurlöndum.
í þeim hópi vora margir víðförlir
og glöggskyggnir menn. Þegar við
höfðum lokið hringferð um bæinn,
sem hófst í Lystigarðinum, vora
gestimir beðnir að geta sér til um
íbúafjöldann. Flestir gátu sér til,
að hann væri á bilinu 40 til 50
þúsund en ekki 13-14 þúsund eins
og raun er á og þótti vel útbúin
bær handa svo mörgu fólki.
En Akureyringar rækta fleira vel
en garðinn sinn. Okkur íslendingum
er gjamt að segja, að í tungu lands-
ins mæltri, skráðri og ortri sé saga
þjóðarinnar, líf hennar og reynsla
geymd betur en í mannvirkjum.
„Tungan geymir í tímans straumi
trú og vonir landsins sona“ eins og
Matthías Jochumsson kvað, svo ég
vitni aftur í þetta stórskáld Akur-
eyrar.
Mér er það stöðugt undranar-
og aðdáunarefni hversu vel Akur-
eyringar varðveita sitt mælta mál.
Norðlenski framburðurinn virðist
hér standa af sér útjöfnun ijölmiðl-
anna. Mér fannst til um það, þegar
ég kom til Akureyrar aftur eftir
nokkurra ára útivist, hversu vel
mælt Akureyraræskan er og hefur
haldið skýram framburði með ein-
kennum síns héraðs. Þetta ásamt
mörgu öðra ber vitni um festu og
grósku í menningarefnum í bænum
og sýnir, að Akureyringar ganga
mót framtíðinni með styrkum anda.
Ég lýk máli mínu með því að áma
Akureyringum allra heilla á þessum
afmælisdegi.