Morgunblaðið - 22.09.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1987
29
Sviss:
Þekktur italskur glæpa-
maður gefur sig fram
Genf, Reuter.
LICIO Gelli, leiðtogi leyniregl-
unnar P-2 á ftalíu, sem tengist
einu stærsta fjársvikamáli sem
upp hefur komist þar í landi, gaf
sig fram i Genf í Sviss í gær.
Gelli hefur lengi verið eftirlýstur
bæði á Ítaiíu og í Sviss.
Gelli er sakaður um að hafa ver-
ið í tygjum við hryðjuverkamenn
sem viðriðnir voru sprengjutilræði
í Bologna.á Ítalíu árið 1980 en þá
fórust 85 manns. Þá er hann einnig
viðriðinn mikið fjársvikamál sem
upp komst árið 1982 og leiddi til
þess að Banco Ambrosiano, stærsti
einkabanki Ítalíu, varð gjaldþrota.
í ágústmánuði 1983 tókst Gelli að
stijúka úr Champ-Dollon-fangels-
inu í Sviss skömnmu áður en
framselja átti hann til Ítalíu.
Gelli stjómaði ólöglegri leyni-
reglu fram til ársins 1981 þegar
upp komst um starfsemi hennar.
Fýrirskipuð var opinber rannsókn
og leiddi hún í ljós að 1.000 framá-
menn á Ítalíu, þar á meðal ráð-
herrar, kaupsýslumenn og
herforingjar, höfðu tekið þátt í
starfsemi reglunnar sem sögð var
vinna að því að kollsteypa þjóð-
skipulaginu. Hneykslismál þetta
varð til þess að ríkisstjóm Amaldos
Fanfani hrökklaðist frá völdum.
Gelli var handtekinn í Genf í sept-
ember árið 1982 eftir að hann hafði
reynt að að svíkja tugi milljóna
íslenskra króna út úr banka þar í
landi með því að framvísa fölsuðum
skjölum. Utibú Banco Ambrosiano
í Suður-Ameríku höfðu lagt fé þetta
inn á svissneska bankareikninga en
Robert Calvi, fyrmrn bankastjóri
Banco Ambrosiano, var náinn sam-
starfsmaður Gellis. Calvi, sem var
nefndur „bankastjóri Guðs“ vegna
tengsla hans við Páfagarð, fannst
látinn í London árið 1982 og hafði
hann verið hengdur í brú yfir Tham-
es.
Lögfræðingar Gellis birtu yfirlýs-
ingu í gær þar sem sagði að hann
væri hjartveikur og þyrfti þegar í
stað á læknishjálp að halda. „Hann
vildi ekki ljúka ævi sinni sem eftir-
lýstur sakamaður í útlegð," sagði
þar ennfremur. Líklegt er talið að
Gelli verði fyrst látinn svara til saka
í Genf en síðar verði hann fluttur
til Ítalíu.
LÍCÍO Gelli. Reuter
Indíánar í Kanada tóku páfa með kostum og kynjum. Var honum
m.a. færður þessi fatnaður en hann sameinar i senn gamlar hefðir
frumbyggjanna og þá tísku, sem hveijum páfa byijar.
Páfi í indíánabyggðum í Kanada:
Hvatti til „nýs
sáttmála“ við
frumbyggjana
Fort Simpson, Róm, Reuter.
Jóhannes Páll páfi II kom til
Kanada á laugardag og á
sunnudag talaði hann til um
3000 manna, sem safnast höfðu
saman við Mackenzie-fljót í
Norðvesturhéruðunum. Skor-
aði hann þar á meirihluta
Kanadamanna að gera „nýjan
sáttmála“ við frumbyggja
landsins.
„Koma páfa getur stuðlað að
því, að frumbyggjar þessa lands
fái aukna sjálfstjóm, að þeir fái
að ráða meiru um sín eigin ör-
lög,“ sagði Joe Mercredi, einn af
frammámönnum í samtökum
frumbyggjanna, indíána og eski-
móa, en þau beijast fyrir fullum
yfirráðum yfir gömlum veiðilend-
um og að frumbyggjamir fái
sjálfír vald til að úthluta heimild-
um til náma- og olíuvinnslu.
í ræðu sinni við Mackenzie-fljót
hvatti páfí til nýrra viðræðna milli
stjómvalda og frumbyggja og
sagði, að Kanada gæti orðið öðr-
um ríkjum til fyrirmyndar um
gott samband milli fmmbyggja
og þeirra, sem síðar settust að í
landinu.
Drengir og einnig stúlkur að-
stoðuðu við messu, sem haldin var
á sunnudag í indíánaþorpinu Fort
Simpson. Stafaði það af einhveij-
um misskilningi enda vill Páfa-
garður ekki, að kvenþjóðin komi
nálægt messugjörðinni. Páfí lét
sér þó hvergi bregða og hafði
ekki orð á.
Páfí kom í gær til Rómar úr
Vesturheimsferðinni, sem stóð í
11 daga. Kom hann til níu borga
í Bandaríkjunum og lauk förinni
í hinum afskekktu indíánabyggð-
um í Kanada.
Bretland:
Námamenn í yfirvinnubanni
St. Andrews, frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunbladsins.
Yfirvinnubann námamanna hófst í gær og er ástæðan ágrein-
ingur milli Sambands breskra kolanámamanna og stjómar breska
kolanámafyrirtækisins um agaregiur. Átökin milli námamanna
og fyrirtækisins veturinn 1984-85 hófust með yfirvinnubanni.
Fyrir nokkru var almenn at- til yfirvinnubanns og hófst það í
kvæðagreiðsla í Sambandi
námamanna, sem lýtur forystu
Arthurs Scargill, um agareglur,
sem stjóm breska kolanámafyrir-
tækisins vildi setja. Var þeim
hafnað af miklum meirihluta en
stjóm fyrirtækisins segir, að þess-
ar reglur séu nánast þær sömu
og gilda í öðmm iðnaði. Forystu-
menn námamanna vildu ekki
sætta sig við ákvæði um hvemig
skera skuli úr ágreiningi og ekki
við það, að hægt sé að segja
manni upp vegna hegðunar hans
annars staðar en á vinnustað.
Eftir samningaviðræður, sem
sigldu endanlega í strand í síðustu
viku, boðaði stjóm námamanna
gær. Scargill vildi sjálfur grípa til
harkalegri aðgerða en fékk því
ekki ráðið. Yfírvinnubannið nær
eingöngu til kolavinnslunnar en
ekki til viðgerða og viðhalds, sem
má vinna að um helgar. Þetta
veldur því, að full vinnuvika næst
í kolavinnslunni. Áætlað er, að
yfírvinnubannið muni aðeins
valda 1% samdrætti i vinnslunni
og ekki fara að hafa áhrif fyrr
en eftir sex vikur. Kolabirgðir em
miklar í landinu.
Ekki er talið, að svipuð átök
séu í uppsiglingu nú og veturinn
1984-85. Margir námamenn hafa
ekki enn náð sér fjárhagslega eft-
ir verkfallið þá og em því tregir
til að endurtaka það. Þó hafa
námamenn í Jórvíkurskíri krafíst
harðari aðgerða og ætla að hafa
um það almenna atkvæðagreiðslu.
Lýðræðislega námamannasam-
bandið, sem stofnað var til höfuðs
Scargill í átökunum ’84-’85, mun
ekki grípa til neinna aðgerða enda
hefur það samþykkt hinar nýju
agareglur. Það hefur hins vegar
hafíð herferð til að laða til sín
nýja félaga, sérstaklega í nýrri
námu í Selby, sem verður mjög
tæknilega fullkomin þegar hún
tekur til starfa síðar á þessu ári.
Þar hafa herskáir vinstrimenn
hvað eftir annað stöðvað vinnu
með fulltingi námamannasam-
bandsins en margir námamenn
era mjög óánægðir með þá þróun
og em tilbúnir til að ganga í hið
nýja félag.
GERNI JET TURBO
HREINSITÆKI
Hreinsun verður leikur einn
GERNi JET, ný gerð af háþrýsti-
hreinsitæki með Trubo spíss.
Mjög handhæg — létt og af-
kastamikil.
Aðeins 18 kg á þyngd og með
allt að 120 BAR þrýsting.
Ýmsir fylgihlutir, t.d. fyrir sand-
blástur.
Þú sparar tíma, fé og fyrirhöfn
með GERNI JET.
Skeifan 3h - Sími 82670