Morgunblaðið - 22.09.1987, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 22.09.1987, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1987 Reuter Spandau-fangelsið rifið Vinna er nú hafin við að rífa Spandau-fangelsið í Vestur-Berlín og var meðfylgjandi mynd tekin i gær. Síðasti fanginn i Spand- au var stríðsglæpamaðurinn Rudolf Hess. Hann var hægri hönd Adolfs Hitler og sat inni i Spandau i fjóra áratugi. Hann framdi sjálfsmorð i fangelsinu 17. ágúst sl. Persaflóastríði: Reagíiu hvetur Irani til að fallast á vopnahlé New York, Bahrain, Reuter. RONALD Reagan, Bandaríkja- forseti, hvatti Irani í gær til þess að fara að tilmælum Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna (S.þ.), sem krafðist tafarlauss vopnahlés i Persaflóastriðinu 20. júli sl. Reagan ávarpaði Allsheijarþing S.þ. í gær og skoraði hann á Sayy- ed Ali Khamenei, forseta írans, sem ávarpar þingið í dag, þriðjudag, til þess að fallast á ályktun Öryggis- ráðsins. „Bregðist forsetinn jákvætt við væri það mikill áfangi og fagnaðar- efni. Verði svar hans hins vegar neikvætt er ekki annarra kosta völ en grípa til refsiaðgerða," sagði Reagan. Fulltrúar írana voru ekki við- staddir þegar Reagan flutti ræðu sína og heldur ekki fulltrúar Afg- ana. Eduard Shevardnadze, ut- anríkisráðherra Sovétríkjanna, fór hins vegar fyrir sovézku sendi- nefndinni og ritaði hann ört niður minnispunkta meðan á ræðunni stóð. Bandaríkjamenn vilja að Örygg- isráðið samþykki vopna- og við- skiptabann á íran ef íranir skirrast við vopnahléskallinu. írakar hafa sagst tilbúnir til að lýsa yfir tafar- lausu og skilyrðislausu vopnahléi. Javier Perez de Cuellar, fram- kvæmdastjóri S. þ. sagði hins vegar eftir friðarför sína til Persaflóaríkj- anna í síðustu viku, að íranir væri einungis tilbúnir til að leggja niður vopn að ákveðnum skilyrðum upp- fylltum. Leiðtogar Arabaríkja ákváðu um helgina að koma saman til sérstaks fundar um ástandið á Persaflóa. Fundurinn verður haldinn í Jórd- aníu 8. nóvember næstkomandi. Arabaríkin hafa hótað að rjúfa stjórnmálasamband við írani og grípa til ýmissa refsiaðgerða. Ut- anríkisráðherra Arababandalagsins ákváðu hins vegar um helgina að bíða átekta þar til Öryggisráð S.þ. hefði fjallað og tekið afstöðu til krafna Bandaríkjamanna um þving- anir gegn íran. Um helgina bættust fjögur brezk kafbátaleitarskip í hóp þeirra her- skipa, sem nú vemda siglingaleiðina á Persaflóa. Einnig bættust ítölsk skip í hóp þeirra. Irakar hæfðu tankskip við olíu- höfn írana á Khrag-eyju á laugar- dag og var óttast að Iranir myndu svara fyrir sig en fregnir fóru ekki af hefndarárás. írakar sögðust einnig hafa gert velheppnaðar loft- árásir á mikilvæg skotmörk á olíusvæðum í íran. Sven Andresson. Fundur N orður-Atlantshaf sþingsins í Osló: Sviþjóð: p j • P • 1 g* -| Sven Anders- SOVGtstjOFIHIl heiUF eUdUF- son íatmn sk0ga(j öryggismálastefnuna Stokkhólmi, Reuter. SVEN Andersson, fyrrum ut- anrikis- og varnarmáiaráðherra Sviþjóðar, lést í gær. Hann var 77 ára að aldri. Andresson var fyrst kjörinn á þing fyrir sænska Jafnaðarmanna- flokkinn árið 1941. Hann gegndi stöðu samgöngu- og vamarmála- ráðherra áður enn hann varð utanríkisráðherra árið 1973. Þeirri stöðu gegndi Andersson til ársins 1976. Andersson var einnig formaður rannsóknamefndar sem skipuð var eftir að sovéskur kafbátur strand- aði við Karlskrona, skammt frá einni helstu flotastöð Svía, árið 1981. Var þetta síðasta embættis- verkið sem Andersson vann sem fulltrúi Jafnaðarmannaflokkins. Kína: - segir háttsettur embættismaður NATO Bílaþjófur líflátinn Peking, Reuter. ÞJOFUR frá Hong Kong, sem uppvís varð að þjófnaði á fjölda bifreiða í Kína, var liflátinn á laugardag, að sögn fréttastof- unnar Nýja Kína. Að sögn fréttastofunnar höfðu Huang Baoxiang og samverka- maður hans stolið 18 fólks- og sendibifreiðum í Canton í Suður- Kína og Shenzan, sem er við landamæri Hong Kong. Þénuðu þeir um 1,84 milljóna yuan, eða jafnvirði hálfrar milljónar dollara, eða 20 milljóna króna, á sölu þeirra. ^ Osló, Reuter. ÝMISLEGT gefur til kynna að Sovétstjómin hafi endurskoðað stefnu sina í öryggismálum frá því Mikhail S. Gorbachev, leið- togi sovéska kommúnistaflokks- ins, komst til valda, að sögn háttsetts embættismanns innan Atlantshafbandalagsins. Vera kann að þessi endurskoðun sé ríkjum Atlantshafsbandalagsins hagstæð. Henning Wegener, einn aðstoð- arframkvæmdastjóra Atlantshafs- bandalagsins, skýrði fulltrúum Norður-Atlantshafsþingsins, en svo nefnast samtök þingmanna frá Norður-Ameríku og Evrópu, frá þessu í gær. Þingmennimir eru nú staddir í Osló en Norður-Atlants- hafsþinginu er ætlað að vera tengiliður milli þingmanna aðild- arríkjanna og Atlantshafsbanda- lagsins. Wegener sagði ýmislegt í ræðum Gorbachevs gefa til kynna að Sovét- stjómin hefði tekið upp ný gmnd- vallarstefnumið í öryggismálum. Sagði hann að ekki mætti túlka þessar vísbendingar á þann veg að Atlantshafsbandalaginu væri óhætt að draga úr vamarviðbúnaði sínum en ýmsilegt mjög athyglisvert hefði komið fram í ræðum Gorbachevs Sovétleiðtoga. Wegener sagði ummæli Gorbac- hevs stangast á við stefnu Sovét- stjómarinnar undanfarin ár sem hefði einkennst af þrotlausri vígvæðingu. Wegener kvað það á hinn bóginn með öllu óljóst hvort þessara nýju viðhorfa myndi gæta NUMERIÐ sést best þegar dósin ertóm. Sól gos - meiriháttar gos í samningaviðræðum um takmörk- un hefðbundins vígbúnaðar. Hinum nýju viðhorfum lýsti hann á þann veg að Sovétstjómin virtist nú við- urkenna að ríki þyrftu að taka tillit til öryggishagsmuna annarra ríkja og að koma þyrfti á jöfnuði milli ríkja Atlantshafsbandalagsins og Varsjárbandalagsins með einhliða afvopnun af hálfu Sovétmanna. Þá sagði Wegener Sovétmenn telja að stefna bæri að því að afstýra öllum átökum en ekki einungis kjam- orkuátökum og að taka þyrfti tillit til getu hvorratveggju risaveldanna til að hrinda af stað skyndiárás. Loks nefndi Wegener að Sovétmenn viðurkenndu nú að mikilvægt væri að hugsanlegir samningar um tak- mörkun vígbúnaðar kvæðu skýrt á um eftirlit. Wegener sagði einnig að sér- fræðingar Atlantshafsbandalagsins teldu sig hafa orðið vara við stefnu- breytingu Sovétmanna varðandi beitingu kjamorkuvopna. Áður hefði herfræði þeirra miðast við að geta veitt ríkjum Atlantshafsbanda- lagsins þungt högg þegar í upphafi kjamorkuátaka en nú væri lögð áhersla á þá ábyrgð sem fylgdi beitingu þess háttar vopna. 188 fulltrúar frá öllum aðild- arríkjum NATO sitja fund Norður- Atlantshafsþingsins í Osló. Helsta umræðuefnið er samskipti austurs og vesturs og staða Atlantshafs- bandalagsins í ljósi viðræðna risa- veldanna um takmörkun vígbúnað- ar og afvopnun. Uppræting meðal- og skammdrægra flauga: Samkomulagið kann að Feynast of áhættusamt - segir yfirmaður herafla NATO í Evrópu New York, Reuter. JOHN Galvin, yfirmaður herafla Atlantshafsbandalagsins i Evr- ópu (SACEUR), segir i viðtali við bandaríska timaritið Newsweek, sem birtist á sunnudag, að sam- komulag risaveldanna um upprætingu skammdrægra og meðaldrægra kjamorkuflauga kunni að reynast of áhættusamt. Telur hann áríðandi að hefð- bundinn vigbúnaður Atlantshafs- bandalagsins verði styrktur og fjarskiptatækni bætt. „Undanfarin 30 ár hafa Sovét- menn kostað kapps um að efla hefðbundinn vigbúnað sinn. Hann er nú mjög hreyfanlegur, gífurlega öflugur og unnt er að beita honum með mjög skömmum fyrirvara," segir Galvin. „Ef Sovétmenn sjá sér fært að fjarlægja kjamorkuvopn frá Evrópu telja þeir sig geta unnið sigur á ríkjum Vestur-Evrópu með skyndiárás þar sem beitt væri hefð- bundnum vígbúnaði." Galvin er 58 ára gamall Banda- ríkjamaður og tók hann við stöðu yfírmanns herafla Atlantshafs- bandalagsins i júnimánuði af landa sinum Bemhard Rogers. í viðtalinu við Newsweek segir Galvin að uppræting meðaldrægra og skammdrægra kjamorkueld- flauga muni koma til að veikja stöðu bæði Atlantshafsbandalagsins og Sovétríkjanna í hemaðarlegu tilliti. „Mér sýnist að innan tveggja vikna eftir að átök blossuðu upp við Sov- étríkin þar sem beitt væri hefð- bundnum vígbúnaði mjmdum við þurfa að grípa til kjamorkuvopna til þess að gera andstæðingum okk- ar ljósa nauðsyn þess að vopnaskak- inu yrði hætt, “ segir hann einnig. Til að draga úr hættu á beitingu kjamorkuvopna telur Galvin nauð- synlegt að hefðbundinn herafli Atlantshafsbandalagsins verði treystur og að fjarskiptabúnaður verði bættur til muna. Þá kveðst John Galvin Galvin einnig líta svo á að end- umýja þurfí vígvallarvopn með kjamorkuhleðslum auk þess sem bæta þurfi kjamorkusprengjur sem unnt er að koma fyrir í flugvélum og flugskeyti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.