Morgunblaðið - 22.09.1987, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 22.09.1987, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1987 Svipmyndir úr borginni / óiafur Ormsson HAU STSTEMMNIN G Umferðin hér í borginni minnir oft einna helst á rallýakstur. Kappaksturinn hefst strax að morgni og stendur yfir langt fram yfír miðnætti. Tillitsleysi og óvarkámi einkennir akstur margra bifreiðastjóra þó sem bet- ur fer séu til undantekningar og í umferðinni að fínna bifreiða- stjóra og það allnokkra sem virða almennar umferðarreglur. Þegar skammdegið fer í hönd er full ástæða til að minna ökumenn á að fara varlega. Ekki er síður ástæða til að sýna tillitssemi við vegfarendur og þá sem eru á hjól- um. Á gangi um Skúlagötuna hitti ég um daginn hjólreiðamann, ágætan kunningja, sem var hálf miður sín. Hann hafði lagt af stað að heiman á nýju reiðhjóli. Hann hefur verið bifreiðastjóri næstum í heilan mannsaldur og keypti sér reiðhjól. — Ég varð að koma hreyfíngu á skrokkinn. Að verða sextugur og að hlaupa í spik. Hann fór að heiman frá sér við Barónsstíginn og hjólaði niður Grettisgötuna og yfír á Snorra- braut. Þegar hann kom þar á hjólinu þar sem eru gatnamót, ekur fólksbifreið upp að honum og í aftursætinu situr eldri maður sem honum fannst hann kannast við. Farþeginn í aftursætinu skrúfar niður rúðu og kallar allt í einu: — Hvað sé ég? Þú ert þó ekki búinn að missa réttindin, þitt svartnætti, ökuníðingur? Hjólreiðamaðurinn sagði að sér hefði brugðið og í flýti sett hett- una á úlpunni yfír höfuðið og reynt að láta bera sem minnst á sér þar til hann sagðist hafa jafn- að sig og svarað manninum í aftursætinu svo undir tók í ná- grenninu: — Það er líklega langt síðan þú hefur þurft að skrifta, gamli vagnhestur. Þá sagði hjólreiðamaðurinn að fólksbifreiðin hefði horfíð eins og þrýstiloftsþota niður Snorrabraut- ina og inn Laugaveginn. Hjól- reiðamaðurinn varð ekki fyrir frekara ónæði þetta kvöld. Hann hefur haldið áfram að hjóla eftir kvöldmat dag hvem eins og ekk- ert hafí uppá komið og hjólar nú oft langleiðina upp í Breiðholt. Stundum er eins og annar hvor Islendingur sé að kaupa íbúð eða að byggja. Til þess að standa í slíkum stórframkvæmdum þurfa flestir að taka lán, og það mörg lán. Vaxtapólitíkin í landinu er ekki beint hagstæð þessa dagana. Vextir af skuldabréfum hafa hækkað úr tuttugu prósent fýrr í sumar í rúm þrjátíu prósent nú í september. Og vextimir fara yfír fjörutíu prósent í lok ársins ef nú fer sem horfír, sagði einn íbúðar- kaupandi, er ég hitti á fömum vegi. Við gengum frá Kjarvals- stöðum um Norðurmýrina og það var þugt í honum hljóðið. Yfirvof- andi hækkun á vöxtum af húsnæðismálalánum og hann var einmitt að fá þaðan lán til fjöru- tíu ára til að kaupa þriggja herbergja íbúð. Við fómm um Bollagötuna. Á homi Gunnars- brautar og Auðarstrætis, á róluvellinum, vom nokkrir krakk- ar í rólunum. — Krakkamir þurfa ekki að hafa áhyggjur af vaxtapólitíkinni. Það þurfum við aftur, fullorðna fólkið. Mikið vildi ég annars vera krakki í rólu, sagði hann og kveikti í sígarettu sýnilega nokk- uð spenntur. Svo em þeir til sem alltaf em jafn bjartsýnir og kannski aldrei eins og á haustin. Sveinbjörn Þor- kelsson, barþjónn á Gauk á Stöng, er einn þeirra. Við hittumst óvart undir ljósastaur í kvöldhúminu rétt upp úr klukkan hálf ellefu. Hann er kominn með snyrtilegt yfírvararskegg, ljúfur drengur, á miðjum aldri og hefur þegar gefið út einar þrjár ljóðabækur sem þykja bara góðar. Við ræddum hagsmunamál rithöfunda þama undir ljósastaumum og svo áhugasamir um framtíð íslenskra bókmennta að við vissum ekki hvað tímanum leið. Þar til að svartur köttur gekk yfír að ljósa- staumum og rak trýnið upp að okkur að Sveinbjöm leit á úrið og við sammála um að slíkan fund, undir ljósastaumum, þyrftum við að endurtaka. Inni í Dugguvogi er Skákprent til húsa í þriggja hæða steinhúsi. Ég átti erindi við forstjórann dag einn snemma í september. Hann hefur nú í tuttugu og fímm ár gefíð út tímaritið Skák og mikinn flölda bóka. Reksturinn hefur ámm saman verið í jámum, svo ekki sé sterkara að orði kveðið. Þar er unnið eitt kraftaverk á dag og oft er svo sem búið að afskrifa forstjórann. Einmitt þegar menn héldu að búið væri að draga fýrir tjöldin, þá er hann klappaður upp. Hann var ekki alveg sáttur við það að stjómendur hljómsveita fengju Bröstes-verðlaunin dönsku, bjartsýnisverðlaunin. — Að minnsta kosti tvisvar sinnum hafa menn haft orð á því að ég kæmi nú kannski til greina, sagði hann. Bætti því jafnframt við að sér fyndist að hugsjónamenn ættu að fá slík verðlaun. — Hefurðu tekið eftir því að þau fá yfírleitt menn úr ríkisgeiranum? Af hverju ekki úr einkaframtakinu, ég bara spyr, sagði hann. Og í framhaldi af því sagði hann að eitt sinn hefði Siguijón Þorbergsson, út- gefandi og forstjóri, gefíð út blað sem hét Húrra og árlega veitt Húrra-verðlaunin fyrir afglöp, en það er nú önnur saga. Ég stopp- aði í stutta stund. Innan dyra i Skákprenti var nóg að starfa. Birgir Sigurðsson er þar drifkraft- urinn og einn af þessum mönnum sem er ómissandi þegar prent- verkið er annars vegar og forstjór- inn slíkur skipuleggjandi í síma að gjaman mætti veita honum Sérstök verðlaun ... Sljórnmálaályktim aðalfundar Heimdallar: Ágóði af sölu ríkisfyrirtækja renni til félagslegra málefna Á AÐALFUNDI Heimdallar sem haldinn var laugardaginn 12. september sl. var samþykkt eftir- farandi stjórnmálaályktun: Heimdallur fagnar áformum ríkis- stjómarinnar um einkavæðingu ríkisfyrirtækja og hvetur til að nú verði gerð gangskör að þeim málum. Það eru hagsmunir unga fólksins að stórfyrirtæki á borð við Póst og síma og ríkisbankana séu gerð að almenningshlutafélögum. Reynslan frá nágrannalöndunum sýnir að þar sem slíkt hlutafjárútboð hefur verið viðhaft er hlutur ungu kynslóðarinn- ar stærstur. Það hlýtur að verða atvinnulífínu styrkur ef unga fólkið hefur beina hagsmuni af góðri af- komu fyrirtækja. Samfara því að ríkisfyrirtækin em seld þarf að tryggja með löggjöf að þau hljóti ekki áfram einokunarað- stöðu ef um slíkt er að ræða og lendi heldur ekki í höndum auðhringa. Þess vegna leggst Heimdallur gegn sölu ríkisbanka til Sambands íslenskra samvinnufélaga. Löggjöfín verður að tryggja að öll fyrirtæki hafi jafna samkeppnisaðstöðu, óháð rekstrarformi. Til þess að ráða bót á halla ríkis- sjóðs og skuldastöðunni við útlönd eru skattahækkanir ekki rétta leiðin, þótt einstakir ráðherrar í ríkisstjóm vilji enn þyngja skattbyrði almenn- ings. Skorað er á ráðherra og þingmenn Sjálfstæðisflokksins að standa í vegi fyrir öllum áformum um auknar álögur á almenning, þeg- ar hefur verið of langt gengið í fyrstu aðgerðum ríkisstjómarinnar. Ríkisútgjöld hafa aukist meir hér á landi hlutfallslega en í nágranna- , löndunum á síðustu árum. Það er langmikilvægasta hlutverk ríkis- stjómar Þorsteins Pálssonar að ná ríkisútgjöldum niður með ráðdeild og hagræðingu í ríkisrekstrinum og með því að setja þak á ríkisútgjöldin til þess að stöðva hina sjálfvirku útgjaldaaukningu. Fjármagni, sem aflast með sölu ríkisfyrirtækja, ber að veita til fé- lagslegrar uppbyggingar þar sem þörffln er mest: • Undirstöður menntakerfisins þarf að treysta, bæði með betri laun- um kennara og bættri aðstöðu nemenda. Einnig verði valfrelsi, fjöl- breytni og svigrúm fyrir nýjar hugmyndir og rekstrarform í skóla- málum aukið. Tryggja þarf öllum möguleika til framhaldsnáms, meðal annars með eflingu Lánasjóðs íslenskra námsmanna. • Aðbúnaður fatlaðra, öryrkja og aldraðra er til skammar í velferðar- þjóðfélagi sem þykist hafa efni á að eyða fé í meðal annars áróðurs- málgögn stjómmálaflokkanna, svo dæmi um þarfleysuna sé nefnt. Al- menn siðferðisviðhorf leggja okkur skyldur á herðar að búa betur að þessum hópum. • Mikilvægt er að treysta stoðir húsnæðiskerfísins. Það skiptir höf- uðmáli að ungt fólk geti eignast þak yfir höfuðið, óski það þess. Leggja ber áherslu á að þeir, sem eru að byggja eða kaupa húsnæði í fyrsta sinn, gangi fyrir um lánveitingar. • Byggja þarf upp öflugar vamir gegn fíkniefnavandanum. Þar em fyrirbyggjandi aðgerðir, fræðsla og endurhæfingarstarf mikilvægari hertum lagasetningum og refsing- um, sem þó verða einnig að koma til. Hinu opinbera ber að sýna fmm- kvæði í þessum málum og greiða götu félagasamtaka og einstaklinga sem að þeim starfa. Heimdallur hvetur til þess að átak verði gert í umhverfísmálum og að þjóðin taki höndum saman við upp- græðslu landsins. Sveitarfélögum ber að sýna lífríkinu við strendur landsins þá virðingu að koma upp fullkomnara skólpkerfi en nú er víðast við lýði. Jafnframt því sem Heimdallur hvetur opinbera aðila til að ganga á undan með góðu for- dæmi er minnt á að umgengnin við landið og umhverfí okkar er fyrst og fremst undir almenningi komin. Hinn almenni borgari er því hvattur til að sýna náttúru landsins, sem er einhver dýrmætasta eign Islendinga, virðingu með því að valda ekki á henni spjöllum með sorpi eða ágangi. Almennar umgengnisreglur hljóta að sitja í fyrirrúmi, jafnt í byggðum sem óbyggðum. Heimdallur hvetur neytendur til að veita framleiðslugreinunum að- hald með eigin verðgæslu og gæðaeftirliti og stuðla þannig að heilbrigðri samkeppni, auknum vörugæðum og sanngjarnara verði til neytenda. Ljóst er að ekki má sofna á verðin- um þegar varnir landsins eru annars vegar. Atlantshafsbandalagið hefur tryggt frið í álfunni og Norður- Ameríku undanfarin 38 ár og reynslan sýnir svo ekki verður um villst að öryggishagsmunir landsins verða best tryggðir með veru okkar í vamarbandalagi vestrænna þjóða. Eindrægni aðildarríkja NATO hefur knúið Sovétríkin að samningaborð- inu og eru nú mestu afvopnunar- samningar mannkynssögunnar innan seilingar. NATO er stærsta friðarhreyfíngin. Nauðsyn vamarstöðvar er jafn mikil og fyrr. Heimdallur lýsir yfír fullum stuðningi við þá utanríkis- stefnu sem fylgt hefur verið frá 1949 og varar eindregið við hvers konar hentistefnu. Eftir það áfall, sem Sjálfstæðis- flokkurinn varð fyrir í síðustu kosningum, er ljóst að sjálfstæðis- menn þurfa að leggja mikla rækt við innra starf flokksins. Það er brýnna en nokkru sinni fyrr að sjálf- stæðismenn standi einhuga að því að opna flokksstarfið, þannig að þeir sem aðhyllast sjálfstæðisstefn- una sjái ekki framar ástæðu til að eyða atkvæðum sínum á sundrungu máttvana vinstriflokka. Heimdallur er tilbúinn að leggja sitt af mörkum í þessu jákvæða uppbyggingarstarfí og mun áfram veita kjömum fulltrúum flokksins nauðsynlegt aðhald. 51 #r= RENOLD kedjur tannhjól og girar BJW 'tí r (!) ,(tj <king pgYNsuA pUÓN USTA pEl<i FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.