Morgunblaðið - 22.09.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.09.1987, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1987 Bordeaux: Opinber heim- sókn forsetans hefst í dag Bordeaux. Frá Bemharð Valssyni, frétta- ritara Morgainblaðsins. í DAG hefst opinber heimsókn forseta íslands, Vigdísar Finnbogadóttur, í Bordeaux í Frakklandi. Heimsóknin stendur fram á föstudag og er tilefni hennar „íslands- vika“, sem haldin verður frá og með morgundeginum í Bordeaux. Forsetinn verður viðstaddur opnun hátíðarinn- ar á morgun. í dag, eftir komu sína hingað til Bordeaux, mun forsetinn verða viðstaddur umræðuþing um íslenska sögu, en umræðum stýra þeir Regis Boyer, prófessor við Sorbonne-háskóla, og Alaen Narez, prófessor í skandinavískum bókmenntum við háskólann í Bordeaux. Auk þeirra verða þar stödd fjögur íslensk skáld sem munu halda fyrirlestra um íslen- skar samtímabókmenntir. Einnig skoðar Vigdís íslenska málverka- sýningu og fýlgist með knatt- spymuleik Islands gegn Gerondins Bordeaux. Á fimmtudag heldur forsetinn til Rochefort þar sem hún mun meðal a.nnars skoða Margaux- höllina. Á föstudag verður Vigdís sæmd heiðursorðu frá háskólanum í Bordeaux. „Ekkí rætt við okkur“ „SAMBANDIÐ hefur ekki rætt við okkur um eitt né neitt,“ sagði Davíð Oddsson borgar- stjóri, en Samband íslenskra sam vinnuf élaga hefur sýnt áhuga á að kaupa 24 hektara af Smárahvammslandi í Kópa- vogi og flytja þangað starfsemi sina. „Ef Sambandið hefur einhvem áhuga á lóðarmálum hlýtur fyrsta skrefið að vera að ræða við okkur en þeir hafa ekki óskað eftir við- ræðum við borgaryfírvöld. Þeir voru með eina af bestu lóðunum í bænum, á homi Háaleitis og Ofanleitis, til skamms tíma en afsöluðu sér henni þegar þeir ák- váðu að hætta við að selja hús sitt við Sölvhólsgötu og byggja nýjar aðalbækistöðvar. Síðan hef- ur ekkert verið rætt við okkur." Samkvæmt skattskrá fyrir árið 1987 greiðir Samband íslenskra samvinnufélga 51.678.350 krónur á árinu í aðstöðugjöld en það eru tekjur sem renna til sveitarfélags- ins auk fasteignagjalda. Heildar- gjöld fyrirtækisins eru rúmar 97 milljónir króna á árinu. Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambands íslenskra samvinnufé- laga, sagði að engin endanleg ákvörðun hefði verið tekin um kaup á Smárahvammslandinu. „Við höfum undanfarið skoðað möguleika og það fleiri en einn, vegna sölu á Sambandshúsinu sjálfu og húsinu við Lindargötu, en það hefur engin endanleg ákvörðun verið tekin enn,“ sagði Guðjón. Fiskverðsdeilan á Eskif irði: Áhöfnin á Hólmatindi styður aðgerðir Hólmanessmanna Nefnd þriggja manna skipuð til að fara með samningsumboð Á sameiginlegum fundi áhafna Eskifjarðartogaranna Hólma- ness og Hólmatinds í gærkvöldi samþykkti áhöfn Hólmatinds að fara að dæmi áhafnarinnar á Hólmanesi og fara ekki á sjó fyrr en samkomulag hefur náðst um nýtt fiskverð. Jafnframt var samþykkt skipun þriggja manna nefndar til að fara með samn- ingsumboð áhafnanna. Hólmanes hefur legið við bryggju síðan á föstudag vegna ágreinings áhafnar við útgerðina um fiskverð. Telja fulltrúar sjómanna að sjómenn annars staðar á Austfjörðum fái greitt hærra fiskverð en greitt er á Eskifirði. Aðalsteinn Jónsson, for- stjóri Hraðfrystihúss Eskifjarðar, sagði í samtali við Morgunblaðið, hingað til hefði verið miðað við verð á Vestfjörðum en sjómenn vildu miða við Fáskrúðsfjörð, þar sem fram að þessu hefði verið stuðst við verð á Fiskmarkaðinum hf. í Hafnarfírði. Aðalsteinn vildi taka sérstaklega fram að allar viðræður og samskipti aðilanna tveggja færu fram í mestu vinsemd. „Við höfum miðað fískverð við Hafnarfjörð en verð þar hefur verið svo óraunhæft að þeirri viðmiðun hefur verið hætt," sagði Kjartan Reynisson, á skrifstofu Kaupfélags FáskrúðsQarðar. „Enn er vika eftir af þessu samkomulagi og það hefur ekki verið fundað um hvað eigi að taka við. Við teljum ekki grundvöll fyrir okkur að borga heilu togara- farmana á 40-50 krónur kílóið en þannig hefur Hafnaifyarðarverðið verið. Við teljum það verð óraun- hæft þar sem ekki fer nógu mikið magn í gegnum markaðinn í Hafn- arfirði til að hægt sé að taka mark á honum.“ Bremerhaven:________ Meðalverð rúmar 50 kr. SNORRI Sturluson RE seldi I Bre- merhaven í gær um 140 tonn fyrir rúma 7,1 milljón króna og var meðalverð 50,56 krónur á kilóið. Aflinn var aðallega karfi og er þetta mun betra verð en fengist hefur á ferskfiskmörkuðum í Vestur-Þýskalandi um langt skeið eða síðan ormafárið svonefnda kom þar upp fyrr í sumar. Afgangurinn af afla Snorra Sturlusonar, um 50 tonn, verður boðinn upp í Bremerhaven í dag og gera menn sér vonir um að svipað verð fáist fyrir þann físk. Að sögn Tómasar Kristjánssonar hjá LIU, sem sér um sölu á afla íslenskra fískiskipa erlendis, er hæpið að draga einhveijar ályktanir af þessari sölu Snorra Sturlusonar í Bremer- haven enda hefur Þýskalandsmark- aður verið mjög sveiflukenndur og viðkvæmur síðustu vikumar. Vörður ÞH seldi í Hull í gærmorg- un um 52 tonn fyrir rúmar 2,9 milljónir króna, eða 55,95 krónur að meðaltali. Um 27 tonn af aflanum var þorskur og fengust fyrir hann 63,76 krónur að meðaltali. Um 212 tonn af gámafíski voru seld á Bret- landsmarkaði í gær fyrir um 15,9 milljónir króna eða 75,00 krónur að meðaltali. Rúmlega helmingur af- lans var þorskur sem fór á 72,30 krónur að meðaltali. Gullhringur úr Viðeyjar- kirkjugarði GULLHRINGUR sá sem fannst í kirkjugarðinum í Við- ey fyrir skömmu er nú í vörzlu Þjóðminjasafnsins. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu á sunnudag fannst hringurinn á fingri mjög há- vaxins manns og á kistulokið hafði verið lögð þriggja blaða lilja úr bronsi. BÍIAR blaoB blaðC Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra á Alls- heijarþingi SÞ í gærkvöldi: Vísum á bug sjálf- STEINGRÍMUR Hermannsson utanrikisráðherra sagði i ræðu sinni á 42. Allsheijarþingi Sam- einuðu þjóðanna, sem hófst í New York í gær, að íslendingar visuðu á bug afskiptum „sjálf- skipaðrar lögreglu”, af nýtingu auðlinda, hversu voldug sem slík þjóð kunni að vera og þeir kasti ekki steinum sem i glerhúsi búa. Steingrímur sagði einnig í þessu sambandi að íslendingar myndu virða rétt sérhverrar þjóðar til eðli- legrar nýtingar auðlinda sinna innan eigin lögsögu án afskipta annarra. Hafí slík nýting áhrif á hagsmuni annarra leggðum við áherslu á alþjóðlegt samráð og vísindalegt eftirlit. Ennfremur teldu Islendingar að allar lífverur ættu rétt á vemd, en jafnframt að þær skuli nýttar á skynsamlegan hátt. Utanríkisráðherra sagði að þó margt hefði áunnist með starfí Sameinuðu þjóðanna virtist það vera nokkuð almenn skoðun, að Allsheijarþinginu og Öryggisráðinu hafí of oft mistekist hlutverk sitt. Hann lýsti afstöðu íslensku sendi- nefndarinnar til þeirra heimsmála sem efst hafa verið á baugi. I lok ræðu sinnar lýsti hann ánægju sinni með að fundur leið- toga tveggja voldugustu ríkja heims skyldi haldinn á Islandi á síðasta ári og þann árangur sem fundurinn skilaði. „Ég vil gjaman að land mitt geti orðið griðarstaður þeirra sem vilja hittast í friði til að leita lausna á hinum flölmörgu vanda- málum sem hijá mannkynið. í þeim tilgangi býð ég ekki aðeins leiðtoga risaveldanna, heldur ykkur alla, velkomna til íslands," sagði ut- anríkisráðherra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.