Morgunblaðið - 22.09.1987, Side 24

Morgunblaðið - 22.09.1987, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1987 Grein í New York Times: „Island flaggar vodka“ BANDARÍSKA blaðið New York Times skýrir í langri frétt sl. miðvikudag, 16. september, frá herferð, sem nú er á döfinni þar vestra til þess að auglýsa Eld- urís, vodka-drykk Afengis- og tóbaksverzlunar ríkisins. Fréttin er undir yfirskrift, sem þýða má „ísland flaggar vodka“. Fer hún hér á eftir í lauslegri þýðingu: Það er til sovézkt vodka, sænskt, franskt og írskt. Jafnvel japankst. Og hvers vegna ekki íslenzkt líka? Glenmore bruggverksmiðjumar í Louisville, Kentucky, er um það bil að setja á markað íslenzkt vodka, Eldurís. Fólu þær fyrirtækinu Gry- bauskas & Partners í New York að kynna það og verður markaðssetn- ing fyrst um sinn einskorðuð við Kentucky, Maryland og Washing- ton D.C. Fyrirtækinu var falið að finna leiðir til að aðgreina íslenzka eldvatnið frá hinum ýmsu innfluttu tegundum. , „Við ætlum þessu vodka að ná fótfestu, það á ekki að lenda í hópi þeirra drykkja sem hverfa nær jafn- harðan," sagði Roland V. Giy- bauskas, forstjóri auglýsingastof- unnar. Heildarsala á vodka í Banda- nkjunum hefur minnkað á undanf- ömum árum, að sögn Donnan-Ann P. Hayden, upplýsingastjóra Glen- more. Sala á innfluttu vodka hefur þó aukizt á sama tíma. Hlutdeild þess í markaðnum hefur aukizt úr 1% 1980 í 5,9%. Eldurís er í álitlegri flösku og lítur því út fyrir að vera í flokki dýrari innfluttra vodka-drykkja. Verðið verður á bilinu 12-14 dollar- ar, eða hið sama og á Absolut, Stolichnaya og Finlandia, sem eru söluhæstu innfluttu vodkadrykkim- ir. Sala þeirra er í sömu röð og þeir eru ritaðir hér að framan. Grybauskas og Glenmore ætla að reyna að höfða til hinna forfröm- uðu og eftirsóttu vodkaneytenda með öðrum hætti en hingað til. Hyggjast þau nota ímynd Islands, sem óspillts land lengst í norðri, til þess að vekja löngun hjá mönnum til þess að smitast yfír á drykkinn. I þessu skyni hafa þau ákveðið í fyrstu atrennu að skrifa hálfri milljón hugsanlegra neytenda og segja þeim hversu stórkostlegt land ísland sé. „Landið hefur á sér dul- rænan blæ,“ sagði herra Grybausk- as. „Allir hafa heyrt þess getið en vita lítið meira". Sagan segir að víkingamir hafí geflð landinu óaðlaðandi nafn til þess að geta notið kosta þess einir. Það var haft til viðmiðunar við gerð Eldurís, sem Tiefur á sér ímynd THE NEW YOKK. IIMES, WEUNEEDAY, SEE'I EMBEK 16, 1967 Advertising Daniel F. Cuff Ieeland Joins Vodka Parade THERE is vodka from the Soviet Union, vodka from Sweden, from Finland, France and Ire- land. Japan even. So why not vodka from lceland? The Glenmore Distilleries Com- pany of Louisville, Ky., is about to in- Jroduce Eldurís — Eldur meaning fire and ís, ice in Icelandic. It’s pro- nounced El-dur-ees. The job of de- Smith Barney In Ad Change John Houscman won't be making commcrcials, thc old- íashioned way or otherwisc, for Smith Barncy, Harris Upham & Company anymore. Thc investment firm is drop- ping Mr. Houseman as its ad- verlising spokesman in favor of another iawyerly actor, Leo McKern, who plays a barrister, Rumpole of the Bailcy, in a tclcvision series of the same namc shown on British and Amcrican tclevision. Mr. Houscman had bcen hired after or Úrklippan úr New York Times þar sem skýrt er frá herferð til að kynna vodka-drykkinn Eldurís. hreinleika, snyrtileika og tærleika loftsins. Fyrst munu hinir vænlegu fá póstkort. A framhliðinni verður mynd af Eldurís-flösku en á bak- hliðinni skilaboðin: „Bragð hins spennandi lífs - handan við haf er land þar sem eldfjöll og jöklar eru í sambýli. Þar eru árstíðir aðeins tvær, björt og dökk. Þú munt upp- götva það eftir tvær vikur. Þá færðu pakka frá landi elds og ísa.“ Tveimur vikum síðar dettur síðan myndarlegur bæklingur inn um bré- flúguna hjá hinum sömu, prýddur íslandsmyndum íslenzkra ljósmynd- ara. I meðfylgjandi bréfí er rætt um „fágætt og gott skynbragð" viðtakandans, „ævintýralöngun hans, þrá til að uppgötva eitthvað nýtt, og góðan smekk“. í kjölfar þess berst síðan annað póstkort þar sem íslenzka hugtakið skál er út- skýrt og bent á að Eldurís sé hentug hátíðargjöf og upplagður til að dreypa á um jólin. Póstkynningin- unni verður síðan fylgt eftir með auglýsingum í blöðum og tímarit- um. Póstkynningu verður beitt, sagði James E. Overall, yfírmaður hönn- unardeildar Grybauskas, vegna þess að „ég vildi ræða við hina út- völdu eins og vini, til þess að koma staðreyndum um landið til skila“. Overall varð sér úti um þessar staðreyndir með heimsókn til Is- lands. Fór hann ásamt frú Hayden og Cheryl Suhr, einum af yfirmönn- um Glenmore, og þeirra beið ýmislegt óvænt. Þau uppgötvuðu til dæmis hræðslutilfinninguna, er þau flugu umhverfis snævi þakta Ijallstinda í Cessnu sem flaug þang- að sem henni sýndist sjálfri því flugmaðurinn var yfirleitt hálfur útum gluggann við að taka ljós- myndir. Þau fylltust samt öll aðdáunar á íslandi og Overall lagði þunga áherzlu á að þar væri loft tærast á jörðinni. Eldurís er framleiðsla tó- baks- og áfengiseinkasölu íslenzka ríkisins, Áfengis- og Tóbaksverzlun Ríkisins. Það er annað söluhæsta vodkað á íslandi. Hið söluhæsta er innflutt og ódýrara, Smimoff." Feröaskrifstofan Atlantik — Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar ÍSLENDINGAR 60ÁRA OG ELDRI Mallorka 5.ok(óber viðbötarsæti Eins og kunnugt er efnir ferðaskrifstofan Atlantik til tveggja sólarlandaferða til Mallorka í haust í samstarfi við félagsmála- stofnun Reykjavíkur. Um er að ræða fjögra vikna ferðir, 26. september og 5. október. Báðar ferðirnar eru löngu uppseldar en okkur hefur nú loksins tekist að tryggja nokkur viðbótarsæti þann 5. október. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Atlantik. Athugið að ferðir þessar eru opnar öllum landsmönnum. OTC<lMW Ferðaskrifstofa, Iðnaðarhúsinu, hallveigarstíg 1 símar 28388 og 28580 Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson Egilsstaðir: 100 ára afmælis Eiðakirkju minnst Egilsstöðum. EITT hundrað ára afmælis Eiða- kirkju var minnst fyrir skömmu með hátíðarguðsþjónustu að við- stöddu fjöimenni. Settur biskup, Sigurður Guð- mundsson, prédikaði. Sigmar Torfason, prófastur á Skeggjastað og Einar Þorsteinsson, sóknarprest- ur á Eiðum, þjónuðu fyrir altari. Séra Bjami Guðjónsson, sóknar- prestur á Valþjófsstað og Vigfús Ingvarsson, prestur á Egilsstöðum, aðstoðuðu einnig við athöfnina. Að lokinni hátíðarguðsþjónustu bauð kvenfélag Eiðahrepps kirkju- gestum til kaffísamsætis en kvenfé- lagið hefur allt frá stofnun látið sér annt um kirkjuna. Kirkju er fyrst getið á Eiðum í kirknatali Páls Jónssonar biskups 1197 og var þá bændakirkja en síðan 1883 hefur hún verið í umsjón forráðamanna Eiðaskóla. Prestar sátu á Eiðum til 1856 en síðan þjón- ustuðu Hjaltastaðaprestur og síðan Kirlq'ubæjarprestur sókninni í 100 ár. Árið 1956 urðu Eiðar aftur prestsetur. — Björn Ekki HEWPA hundrað þúsund krónum. Sól gos - meiriháttar gos

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.