Morgunblaðið - 22.09.1987, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1987
7
V estmannaeyjar:
Þjóðarbúið hagmðist í fyrra
um 1,3 milljarða króna
vegna ferskfiskútflutnings
- segir Jóhannes Kristinsson skipstjóri í Vestmannaeyjum
V estmannaeyj um.
„SÖLUVERÐ þess afla sem Gámavinir sf. sendu í gámum
á erlenda markaði fyrstu 8 mánuði þessa árs nemur alls
um 885 milljónum króna og á síðasta ári var seldur fiskur
frá okkur fyrir 540 milljónir. Að halda því fram að þjóðar-
búið hafi tapað á þessum útflutningi er algjör firra,“ sagði
Jóhannes Kristinsson skipstjóri, forsvarsmaður Gámavina í
Vestmannaeyjum, í samtali við Morgunblaðið.
Rætt var við Jóhannes um
gámaskýrsluna svokölluðu, um
stöðu og horfur í fiskvinnslu í
Vestmannaeyjum á tímum vax-
andi gámaútflutnings. Skýrslu
þessa samdi Hilmar Viktorsson,
viðskiptafræðingur hjá Ráðgarði,
fyrir atvinnumálanefnd Vest-
mannaeyja. Eins og áður hefur
komið fram í Morgunblaðinu hefur
skýrsla þessi verið mikið umtöluð
í Eyjum og verið skiptar skoðanir
um niðurstöður skýrsluhöfundar.
Jóhannes sagði að skýrslu
þessa hefði átt að senda öllum
hagsmunaaðilum í sjávarútvegi í
Eyjum en þeim Gámavinum hefði
aldrei borist skýrslan og hann
hefði því þurft að útvega sér hana
eftir krókaleiðum. „Við teljumst
því ekki vera í hópi hagsmunaað-
ila þrátt fyrir okkar miklu
umsvif,“ sagði Jóhannes.
í skýrslu Hilmars er því haldið
fram að þjóðarbúið hafí tapað á
síðasta ári 600—800 milljónum
króna á gámaútflutningi. Tapið á
útflutningi þorsks og ýsu hafí
verið um 1 milljarður en hagnaður
af útflutningi kolategunda og
annarra blandaðra tegunda hafi
verið talsverður. „Þessir útreikn-
ingar Hilmars standast ekki,“
sagði Jóhannes Kristinsson.
„Hann notar ekki sömu forsendur
varðandi þorsk og ýsu annars
vegar og kolategunda hins vegar.
Koladæmið er ekki ósennilegt og
allir eru sammála um hagræði
þess að flytja út kola en ég get
sýnt fram á, með því að nota sömu
reikningskúnstir og Hilmar notar
í koladæminu og snúi þeim yfír á
bolfiskinn, þá skilar gámaútflutn-
ingurinn 1,3 milljarði króna
umfram fískvinnsluna. Hann gef-
ur sér allar hagstæðustu tölur
fyrir frystinguna, notar 168 cent
pr. lbs. sem er óraunhæft og not-
ar nýtingarhlutfall sem ekki
þekkist. Þá notar hann annars
vegar skilaverð til útgerðar varð-
andi gámana en hins vegar hæsta
brúttóverð erlendis fyrir frysta
fískinn.
Þá er því haldið fram að bæjar-
félagið tapi svo og svo miklu
vegna gámanna. Þetta er rangt
því bæjarsjóður og hafnarsjóður
hafa aldrei haft eins miklar tekjur
og eftir tilkomu gámanna. Hér
koma nú 2—3 skip á viku sem
ella hefðu ekki komið og greiða
viðkomugjöld, um 6 milljónir á
ári, auk vöru- og aflagjalda. Það
er staðreynd sem allir vita sem á
annað borð vilja vita að ef gám-
amir hefðu ekki komið til hefði
bátum hér fækkað um 12—15 sem
hefði haft í för með sér að fólki
hefði fækkað hér um 1200—1500
manns.
Mér fínnst satt að segja að
helsta meinið í fískvinnslunni hér
í Eyjum sé að vinnslan er að fær-
ast á mjög fáar hendur sem svo
hefur alltof mikla yfírbyggingu.
Ég hefí ekki trú á því að bæjarbú-
ar vilji að mjög svo fámennur
hópur manna neðan Strandvegar
ráðskist með hag allra bæjarbúa."
Jóhannes sagði að það hefði
ekki komið nægilega fram í um-
ræðunni um gámaútflutninginn
að fískvinnslan í Eyjum á yfír að
ráða 70% kvótans og hún hefði
árlega flutt út verulegt magn af
ferskum físki, ýmist í gámum eða
látið skip sín sigla með afla. Hann
sagðist vera hlynntur því að settur
yrði á stofn fískmarkaður í Eyjum
og taldi gólfmarkað vera raun-
hæfari kost en fjarskiptamarkað.
„Það er mikið talað um að físk-
vinnslufólk sé að flýja Vest-
mannaeyjar og er gámunum
kennt um, en það er ekkert talað
um að ef gámamir hefðu ekki
komið til væru hér 1200—1500
manns færra en nú er. Ýmsir, og
þar á meðal skýrsluhöfundur, geta
ekki hugsað sér að sjómenn séu
með þreföld laun fískvinnslufólks
en hins vegar get ég vel hugsað
mér að fiskvinnslufólk hafí þref-
alt meiri laun en það hefur í dag.
Mér fínnst agalegt að öll þjóðin
skuli láta blekkja sig með alls
konar skýrslum, nefndarálitum og
öðm fargani. Fjölmiðlar grípa
þetta á lofti, rífa út tölur og slá
þeim upp, samanber þetta eins
milljarðs tap á gámaútflutningn-
um, án þess að sannreyna nokkuð
hvað á bak við er,“ sagði Jóhann-
es Kristinsson gámavinur. Hann
hefur samið skýrslu upp á 9 blað-
síður sem svar við fjölmörgum
fullyrðingum sem fram koma í
skýrslu Hilmars Viktorssonar og
sent atvinnumálanefnd Vest-
mannaeyja.
- hkj
GRÍPTU
100.000 krónur
Sól gos - meiriháttar gos
HUTSCHENREUTHER
GERMANY
„Portofmo“
Nýtt matar- og kaffistell
frá Hutschenreuther, framleitt úr
postulíni af bestu gerð
SILFURBUÐIN
KRINGLUNNI—REYKJAVÍK SÍMI 689066