Morgunblaðið - 22.09.1987, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1987
37
Keflavíkurflugvöllur:
Fengu verðlaun
annað árið í röð
Keflavík.
ÍSLENSKIR starfsmenn hjá
verslun varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli hlutu svokölluð
„Bingham-verðlaun" í ár, og er
það annað árið í röð sem þeir
hljóta þessa útnefningu. Verð-
launin eru veitt þeirri verslun
utan Bandaríkjanna í Navy Ex-
change-verslanakeðjunni sem
þykir best rekin ár hvert. Versl-
anirnar eru 260 talsins í 19
löndum.
Trausti Bjömsson framkvæmda-
stjóri verslunarinnar sagði að
óneitanlega væri ánægjulegt að
verða þessa heiðurs aðnjótandi tvö
ár í röð. „En þetta er verk margra,
hér vinna um 100 íslendingar sem
margir hafa margra ára reynslu hjá
fyrirtækinu og ég kalla þá gjaman
hinn „harða kjama". Það er fyrst
og fremst þessu fólki að þakka
hversu vel hefur gengið," sagði
Trausti.
Verðlaunin verða afhent í Banda-
ríkjunum við hátíðlega athöfn í lok
nóvember og mun starfsmaður árs-
ins, Þómnn Teitsdóttir verslunar-
stjóri, taka við verðlaununum ásamt
Thomas Rizzo yfirmanni Navy Ex-
change á Keflavíkurflugvelli.
- BB.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Þau fengu „Bingham-verðlaunin“ annað árið í röð fyrir vel rekna
verslun ásamt fleiri starfsmönnum. Fremst til vinstri er Helga Jó-
hannsdóttir elsti starfsmaðurinn sem unnið hefur í 35 ár hjá fyrirtæk-
inu og henni á hægri hönd er Thomas Rizzo yfirmaður Navy
Exchance á Keflavíkurflugvelli. Aftari röð frá vinstri: Trausti Björns-
son framkvæmdastjóri, Þórunn Teitsdóttir verslunarstjóri og „starfs-
maður ársins 1987“, Anna Margrét Hauksdóttir verslunarstjóri og
Svavar Halldórsson vöruhússtjóri.
Jólaferð Faranda
til Vínarborgar
JÓLAFERÐ Faranda í ár verður
til Vínarborgar. Einnig efnir
ferðaskrifstofan í októberbyijun
til ferðar til ísraels og Egypta-
lands öðru sinni.
Lagt verður af stað í jólaferðina á
Þorláksmessu og komið heim
3.janúar. í fréttatilkynningu Faranda
segir, að samið hafi verið um að-
göngumiða á gamlaárskvöldshljóm-
leikana sem Herbert von Karajan
stjómar að þessu sinni. Meðal ann-
arra tónlistarviðburða sem þátttak-
endur geta notið má nefna Kátu
ekkjuna, Hans og Grétu, Meistara-
söngvarana frá Numberg, La
Boheme, Valkyijumar.
Ferðin til ísrael og Egyptalands
er þriggja vikna ferð. I ísrael verður
staðnæmst í Tel Aviv og seinna verð-
ur svo nokkrum dögum eytt í
Jerúsalem. Auk þess er farið vítt og
breitt um ísrael, til Sesariu og síðar
Haifa, Gólanhæða og Galileuvatns.
Þá er ferð til Nasareth og niður í
Jórdandal, upp á Massada og Qumr-
an, þar sem hin frægu handrit
fundust á sínum tíma.
Síðan tekur við akstur til Kairó í
Egyptalandi. Efnt verður meðal ann-
ars til skoðunarferðar út til pýramíd-
anna, áður en haldið er á ný til ísraels
og nú til baðstrandarborgarinnar
Eilat, þar sem ferðalangamir dvelja
í sex daga.
Allt fyrir verslanir
Hillur fyrir heimilið
t
Lagerhillur
Skúffukerfi
Bókasafnsbúnaður
Útfærum lausnir
arkitekta
EKKI
BRRR
OFRRR
ii
IWTTj
Hjólaskápar
Vaskar fyrir heimili og
stór eldhús
búningsklefar
fyrir vinnustaði
Harðplast borðplötur Allar gerðir ofna Sérsmíðum úr ryðfríu
„PERSTORP" stáli
Söludeildin býðurykkur
velkomin.
Veitum alhliða þjónustu:
Mælum upp.
Gerum tillögur að lausn.
Verðtilboð.
Önnumst uppsetningar ef
óskað er.
IF.OFNASMIBJAN
Söludeild
HÁTEIGSVEGI 7 S: 21220.
Dísel-
stilllngar
Látiðokkuryfirfara
olíuverk og spissa í
fullkomnum tækjum.
BOSCH
Viðgerða- og
varahiuta þjónusta
B R Æ Ð U R N I R
DlÖRMSSONHF
Lágmúla 9, síml 38820.
UOSASTILLINGA-
VERKSTÆÐI
OSRAM
bílperur
WAGNER
Ijósa samlokur
Sundaborg 13, sími 688588.
Eigum fyrirliggjandi
Ijósastillingatæki