Morgunblaðið - 26.09.1987, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER xá87
Nýjar aðgerðir í landbúnaðarmálum:
Þörf fyrir útflutningsbætur
minnkar um 200 milljónir kr
Fullt samkomulag um aðgerðimar á milli
bændaforystunnar og sijórnvalda
Framkvæmdanefnd búvörusamninga reiknar með að spara um
200 milljónir kr. af útflutningsbótum ef góður árangur verður af
sérstöku átaki til að minnka kindakjöts- og mjólkurframleiðsluna
sem Jón Helgason Iandbúnaðarráðherra kynnti í gær. Ef nefndin
nær markmiðum sínum, sem eru að minnka kindakjötsframleiðsluna
um 1.000 tonn og mjólkurframleiðsluna um 4 milljónir lítra, notast
þessi hluti útflutningsbótanna til annarra þarfa landbúnaðarins,
meðal annars til að flýta fyrir búháttabreytingum.
Jón Helgason landbúnaðarráð- mannafundinum kom skýrt fram
herra og fulltrúar bænda og ríkis-
valdsins í framkvæmdanefnd
búvörusamninga kynntu í gær um-
rætt átak. Felst það í reglugerð um
stjóm sauðfjárframleiðslunnar á
næsta verðiagsári, sem ráðherra
undirritaði í gær, og samkomulagi
ríkis og bænda um framkvæmd
gildandi búvörusamninga. Á blaða-
VEÐUR
að fullt samkomulag er á milli
bændaforystunnar og stjórnvalda
um þessar aðgerðir.
Meðal nýmæla í aðgerðunum er
að landinu er skipt í mjólkurfram-
leiðslu- og sauðfjárræktarsvæði og
er tekið mið af niðurstöðu skýrslu
um þróun sauðfjárræktar í því efni.
Við úthlutun fullvirðisréttar fyrir
Morgunblaðið/KGA
Jón Helgason landbúnaðarráðherra og Haukur Halldórsson formað-
ur Stéttarsambands bænda á blaðamannafundi þar sem kynntar
voru nýjar aðgerðir til að draga úr búvöruframleiðslunni.
__________________________________ næsta verðlagsár verður tekin frá
ákveðin framleiðsla vegna leiðrétt-
inga. Skerðingin sem af því leiðir
verður minnst hjá bændum á svo-
kölluðum sauðfjárræktarsvæðum
(0,3%) en mest á mjólkurfram-
/ DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
leiðslusvæðunum (0,9%). Svokölluð
blönduð svæði verða þar mitt á
milli, með 0,6% skerðingu.
Mismunun svæðanna kemur
einnig fram í því að sauðfjárbændur
á mjólkurframleiðslusvæðum fá boð
um betri kjör ef þeir selja eða leigja
fullvirðisrétt. Einnig eiga kúabænd-
ur á þessum svæðum möguleika á
að fá aukningu á fullvirðisrétti í
mjólk gegn því að afsala sér full-
virðisrétti í kindakjötsframleiðslu.
Mjólkurframleiðslusvæði í þessu til-
viki er svæðið frá Mýrasýslu til
Rangárvallasýslu og Eyjafjarðar-
og Suður-Þingeyjarsýsla.
Fleiri nýmæli eru í hinum nýju
reglum, meðal annars eftirfarandi:
Heimilaður er flutningur fullvirð-
isréttar í mjólk og sauðfé á milli
verðlagsára, allt að 5%.
Bændur fá greiðslur fyrir þann
fullvirðisrétt sem þeir nota ekki.
Um leið verður lokað fyrir mögu-
leika þeirra til að leigja réttinn
öðrum en stjómvöldum. Með þessu
er verið að reyna að koma í veg
fyrir að fullvirðisrétturinn virki
framleiðsluhvetjandi.
Sérstök kjör em boðin þeim
bændum sem náð hafa 67 ára aldri
og vilja selja eða leigja fullvirðis-
rétt í sauðfé.
Stefnt er að því að fullvirðisrétt-
ur á ríkisjörðum sem losna úr ábúð
og ekki hafa framtíðaraðstöðu til
sauðíjárhalds verði geymdur samn-
ingstímann.
Sauðfjárframleiðendum í þéttbýli
er gefinn kostur á að hætta fram-
leiðslu í haust gegn því að fá vissa
verðábyrgð fyrir afurðirnar.
VEÐURHORFUR I DAG, 26.09.87
YFIRLIT á hádegi í gær: Um 800 km suður af landinu er 1018
mb. hæð, sem þokast austur, og önnur álíka yfir Austur-Græn-
landi. 1012 mb. smálægð á Breiöafiröi hreyfist suðaustur og
grynnist. Suöur af Hvarfi er að myndast lægð sem mun fara norð-
norðaustur.
SPÁ: í dag lítur út fyrir hæga sunnan- og suðvestanátt á landinu.
Norðan og austan til á landinu léttir til en suðvestanlands fer að
rigna undir kvöldið. Hiti 4—10 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
SUNNUDAGUR OG MÁNUDAGUR: Sunnan- og suðvestanátt -
víða allhvöss — einkum sunnan- og vestanlands. Skúrir eða rigning
verða um mest allt land, þó má búast við þurru veðri norðaustan til
á landinu.
TAKN:
Heiðskírt
y, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* •* *
* * * * Snjókoma
-| o Hitastig:
10 gráður á Celsius
V Skúrir
*
V El
— Þoka
— Þokumóða
’, 5 Súld
OO Mistur
—(- Skafrenningur
(7 Þrumuveður
&
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík hltl 6 8 veáur skýjað skúrás. klst.
Bergen 10 skúr
Helsinki 8 rigning
Jan Mayen -3 snjóál
Kaupmannah. 11 skúrás.klst.
Narssarssuaq 10 skýjað
Nuuk 7 alskýjað
Osló 12 léttskýjað
Stokkhólmur 11 þokumóða
Þórshöfn 7 rignlng
Algarve 24 þokumóða
Amsterdam 24 þokumóða
Aþena 27 léttskýjað
Barcelona 26 léttskýjað
Berlín 12 skruggur
Chicago 6 léttskýjað
Feneyjar 24 léttskýjað
Frankfurt 1S skýjað
Glasgow 12 skýjað
Hamborg 13 hálfskýjaA
LasPalmas 27 hálfskýjað
London 15 skýjað
Los Angeles 19 þokumóða
Lúxemborg 12 skýjað
Madrfd 19 þrumuv. á sfð.
klst.
Malaga 25 skýjað
Mallorca 29 léttskýjað
Montreal 6 skýjað
NewYork 11 léttskýjað
Parls 15 skýjað
Róm 28 léttskýjað
Vfh 20 skýjað
Washington 18 skýjað
Winnipeg 1 heiðskfrt
A fundi
með verzlunarskólanemum
Lord Francis Arthur Cockfield, varaformaður framkvæmda-
nefndar Evrópubandalagsins er staddur hér á landi um þessar
mundir og í gærmorgun flutti hann erindi fyrir nemendur Verzl-
unarskóla íslands. Þetta er nýbreytni í skólastarfinu og er stefnt
að því að fá bæði innlenda og erlenda gesti til að halda fyrir-
lestra. Lord Cockfield kynnti Evrópubandalagið og heimamarkað
þess fyrir nemendum skólans. Landsnefnd Alþjóðaverslunarráðs-
ins gekkst fyrir almennum fundi með Lord Cockfield í gær þar
sem hann gerði grein fyrir EB, en hann er höfundur „Hvítu
bókarinnar" (The white Peper on Completing the Internal Mar-
ket). Þar er lýst í einstökum atriðum 300 fyrirætlunum EB til
að mynda fijálsan markað innan bandalagsins, sem yrði 30%
stærri en Bandaríkjamarkaður.
Úr umferðinni í Reykjavík 24. september 1987
Árekstrar bifreiða urðu samtals 27 og maður varð fyrir bíl á Hverfís-
götu v/Rauðarárstíg.
30 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur og þar af 2 sviptir
ökuleyfí, ekið var með 122 km/klst. hraða um Ártúnsbrekku og 112
km/klst. hraða um Kringlumýrarbraut.
Hraðast var ekið um Ártúnsbrekku og Kringlumýrarbraut, Kleppsveg
88—92 km/list. og Reykjavík 68—84 km/klst.
5 ökumenn voru kærðir fyrir að aka mót rauðu ljósi á götuvita.
Og kvartað var undan unglingum á bifhjólum sem óku um göngu-
sígavið Gyðufell, Fannarfell og Iðufell.
Frétt frá Lögreglunni í Reykjavík.