Morgunblaðið - 06.10.1987, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1987
Morgunblaðið/Þorkell
Frá fundi Útvarpsréttarnefndar. Ingvar Gíslason, varaformaður
nefndarinnar, Jón Óttar Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 og
Kjartan Gunnarsson, formaður nefndarinnar. Honum á vinstri hönd
situr Þórunn Hafstein, lögfræðingur menntamálaráðuneytisins.
Útvarpsréttarnefnd og fijálsu ljósvakamiðlarnir:
Gagnrýni á starf-
semi menningarsjóðs
Aherzla lögð á bætt málfar
Útvarpsréttarnefnd hélt um
helgina fund með þeim, sem
fengið hafa leyfi til útvarps- eða
sjónvarpsrekstrar síðan núgild-
andi lög þar að lútandi tóku gildi.
A fundinum kom fram, að eig-
endur þessara stöðva ætla að
stofna með sér hagsmunasam-
tök. Ennfremur kom fram
óánægja með starfsemi menning-
arsjóðs, en honum er ætlað að
styrkja innlenda dagskrárgerð.
Kjartan Gunnarsson, formaður
nefndarinnar, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að þetta hefði verið
góður fundur og skoðanaskipti um
framkvæmd laganna jákvæð. Fund-
urinn hefði staðið í heilan dag og
ávörp hefðu flutt Ingvar Gíslason,
varaformaður nefndarinnar, Ámi
Gunnarsson, einn nefndarmanna,
Jón Óttar Ragnarsson, sjónvarps-
stjóri Stöðvar 2 og Einar Sigurðs-
son, útvarpsstjóri Bylgjunnar. Til
fundarins hefðu verið mættir allir
fulltrúar þeirra, sem hafið hefðu
rekstur og nokkrir frá þeim, sem
væru að hefja hann.
Kjartan gat þess ennfremur að
talsverð gangrýni hefði komið fram
á Menningarsjóð, sem ætlað væri
að styrkja innlenda dagskrárgerð.
Menn segðu að hann væri tilgangs-
lítið vandræðabam og milliliður,
sem ekki þjónaði tilgangi sínum
nægilega vel. Honum væri ætlað
að styrkja innlenda dagskrárgerð,
en svo virtist sem allt fé hans færi
í rekstur Sinfóníunnar. Þá hefði
einnig komið fram að útvarpsstöðv-
amar og Stöð 2 hygðust stofna
með sér hagsmunafélag. Loks gat
hann þess, að af hálfu útvarpsrétt-
amefndar hefði verið lögð áherzla
á bætt málfar starfsmanna fijálsu
stöðvanna og hefðu stjómendur
þeirra tekið því vel.
Óskar Hallgrímsson félagsmálaráðuneyti:
Frystíhús mikið tíl búin
að ráða erlent verkafólk
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 05.10.87
YFIRLIT á hádegi í gnr: Hæð er yfir Græniandi en lægö austur
af Jan Mayen. Líklega myndast lægð á Grænlandshafi á fimmtudag
og mun hún fara suðaustur.
SPÁ: f dag verður norðan- og norðaustanátt á landinu, víða hvöss
vestanlands en eitthvað hægari austanlands. Él eða slydduél verða
að heita má um allt land, Þó er von til að úrkomulaust eða úrkomu-
lítið verði suðaustanlands. Frost 2—4 stig vestan- og norðanlands
en 1 til 4 stiga hiti suöaustan- og austanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
MIÐVIKUDAGUR: Norðanátt, viða nokkuð hvöss. Hiti nálægt frost-
marki að deginum og bjart veður sunnanlands, en eljagangur og
frost um norðanvert landið.
FIMMTUDAGUR: Enn veröur norðlæg átt á landinu, en orðin mun
hægari vestanlands. Él verða á Noröur- og Norðausturlandi en ef
til vill einnig suðvestanlands, en bjart á Suðausturlandi. Kalt verð-
ur áfram.
VEÐUR VÍÐA UMHEIM
kl. 12:00 ígar aö ísl. tíma
Akurayri Reykjavik hlti 6 2 veður tkflað
Bergen 12 rlgnlng
Heltlnki 13 Iðttakýjaó
JanMayen 6 rigning
Kaupmannah. 13 léttakýjað
Naraaaraauaq 0 helðaklrt
Nuuk + 2 lóttakýjað
Oaló 8 þokumóða
Stokkhólmur 13 akýjað
Þórahðfn 10 aúld
ÍDAGkl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
Algarve
Amsterdam
Aþena
Barcelona
Berifn
Chicago
Feneyjar
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
LaePalmae
London
Los Angeles
Lúxemborg
Madrfd
Malaga
Mallorca
Montreal
NewYoric
Parfi
Róm
Vín
Washington
Winnlpeg
23 léttskýjað
18 mittur
vantar
22 •kýjoð
16 akýjað
11 vantar
17 þokumóða
18 akýjað
14 rignlng
16 mlstur
24 akýjað
18 akýjað
18 helðakírt
16 akýjað
16 akúr
23 hálfakýjað
26 akýjað
vantar
8 heiðaklrt
17 rigning
26 moldrok
16 lóttskýjað
7 heiðakírt
7 aúld
TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- 10q Hitastig: 10 gráður á Celsius
Heiöskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. • V * Skúrir
<£ Léttskýjaö r r r r r r r Rigning V Él Þoka
Hátfskýjaö / / / * / * 5 5 Þokumóða Súld
^^Skýjað ' * r * Slydda ' * r oo Mistur
# # # Skafrenningur
Jg. Alskýjaö # * * * Snjókoma # * # K Þrumuveður
FRYSTIHÚS eru mikið til búin
að ráða erlent starfsfólk til
starfa í fiskvinnslunni fyrir vet-
urinn og áskorun Verkamanna-
sambands íslands til aðildarfé-
laganna um að þau leggist gegn
ráðningum útlendinga kemur þvi
ekki til með að breyta miklu
næstu mánuðina.
Þessar upplýsingar fékk Morg-
unblaðið hjá Óskari Hallgrímssyni,
deildarstjóra vinnumálaskrifstofu
félagsmálaráðuneytisins. Hann
sagði að frystihúsin réðu einkum
til sín eflent verkafólk á tímabilinu
júní til október og frá því á miðtju
ári væri vinnumálaskrifstofan búin
að veita um 200 fyrirframleyfí til
fískvinnslunnar. Auk þess hefðu
atvinnuleyfi verið framlengd, þann-
ig að gera mætti ráð fyrir að alls
væru þetta um 300-350 manns.
Hópurinn hefði fjölgað um 100-150
manns, því undanfarin ár hefðu um
200 útlendingar unnið í fiskvinnsl-
unni að staðaldri. Stærð þessa hóps
takmarkaðist af húsnæðisástandinu
og hann hefði ekki trú að hægt
væri að útvega fleira fólki húsnæði
en þegar væri búið að veita atvinnu-
leyfí.
Óskar sagði að reiknað væri með
að alls 10-11 þúsund manns ynnu
í fiskvinnslu hérlendis. „Erlent
verkafólk er með meira móti í ár
og staðimir, sem eru með útlend-
inga, eru_ fleiri en við eigum að
venjast. Ég hygg að þetta sé að
mestu ieyti gengið yfír. Það kann
að vera að örfáir staðir séu ennþá
að athuga með ráðningar, en þeir
em ábyggilega ekki margir," sagði
Óskar.
Hann sagði að talið væri að 10-11
þúsund manns ynnu alls í físk-
vinnslu hérlendis. Mest væri um
erlent verkafólk á Hellissandi, Ól-
afsvík, Gmndarfírði, Bíldudal,
Flateyri, Bolungarvík, Seyðisfírði,
Neskaupstað, Djúpavogi, Breið-
dalsvík, Höfn í Homafírði og
Þorlákshöfn. Lítið sem ekkert væri
um erlent verkafólk á Norðurlandi,
en nú væm byggðarlög á Suður-
nesjum í fyrsta skipti um margra
ára skeið að ráða fólk Grindavíkur
og Njarðvíkur.
Hert gæsla við
bústað f orsetans
„TILEFNIÐ var lítilvægt, en þó
var talin ástæða tíl að herða eft-
irlit við bústað forseta íslands
við Aragötu," sagði Böðvar
Bragason, lögreglustjóri i
Reykjavík.
I nokkra daga hefur verið hert
gæsla við bústað forsetans, sem í
gær hélt í opinbera heimsókn til
ltalíu. Böðvar sagði, að lögreglan
hefði haft af því spumir að ákveðn-
ar persónur, sem forseti taldi ekki
ástæðu til að hitta, myndu leita á
hans fund. „Fólk fær ýmsar skringi-
legar hugmyndir og því vom tveir
lögreglumenn settir í að fylgjast
með mannaferðum við húsið," sagði
Böðvar. „Þetta var ekki herútboð
af neinu tagi, okkur barst engin
hótun. Við vonumst til að málin
verði komin í eðlilegt horf þegar
forsetinn snýr aftur heirn."
Úr umferðinni í Reykjavík
sunnudaginn 4. október 1987
Árekstrar bifreiða: 9.
Ökumaður var fluttur á slysadeild eftir tveggja bíla árekstur á Skúla-
torgi kl. 21.43. Þar til gerð tækjabifreið var fengin á vettvang svo
losa mætti um ökumanninn.
Samtals 40 kæmr fyrir brot á umferðarlögum á sunnudag.
ökumenn vom kærðir fyrir að aka með 101 km/klst hraða um Ártúns-
brekku.
92 og 93 km/klst hraða um Kringlumýrarbraut.
72 til 93 km/klst hraða um Kleppsveg.
83 og 91 km/klst hraða um Sætún.
Klippt vom númer af 18 bifreiðum vegna vanrækslu á að færa til
aðalskoðunar.
Gmnur féll á 2 ökumenn um ölvun við akstur á sunnudagskvöld.
Frétt frá lögreglunni í Reykjavík.