Morgunblaðið - 06.10.1987, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 06.10.1987, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1987 AF INNLENDUM VETTVANGI eftir BENEDIKT STEFÁNSSON Neyðarbíllinn fimm ára: Læknar standa neyðarvakt þótt útköllum sé ekki sinnt FIMM ÁR eru liðin frá því að neyðarbíllinn í Reykjavík var tekinn i notkun. Á daginn er bíllinn mannaður lækni og hjúkr- unarfræðingi, en á nóttunni fara sjúkraflutningamenn einir í neyðarköll á bilnum. Þjónusta við þá sem þarfnast neyðarhjálp- ar er því skert allar nætur, sunnudaga og helgidaga þótt Tryggingastofnun hafi undan- farið ár borgað laun lækna á neyðarvakt allan sólarhringinn. Samkvæmt kostnaðaráætlun sem slökkviliðið vann fyrir borgar- stjórn í vor hlytist 1-2 milljóna króna aukakostnaður af því að manna bílinn á Borgarspítalan- um allan sólarhringinn. Ekki reyndist meirihluti fyrir slíkri fjárveitingu. Þótt flestir séu sammála um að nauðsynlegt sé að veita fulla neyð- arþjónustu 24 tíma á dag, 365 daga á ári, hefur ekki náðst sátt um lausn vandans. Hugmyndin sem lögð var til grundvallar við umræður í borg- arstjóm í vor var sú að fjölgað yrði um tvo menn á vakt slökkviliðsins nætur og helgidaga. Þeir yrðu til taks á Borgarspítalanum og færi neyðarbíllinn fullskipaður í útköll allan sólarhringinn. Stjómendur slökkviliðsins eru ekki fylgjandi þessu fyrirkomulagi. Þeir vilja held- ur veita sjúkraflutningamönnum aukin réttindi í meðhöndlun sjúkra og slasaðra. Þá yrði hægt að senda neyðarbílinn á undan lækninum á vettvang, eins og lýst verður nánar hér á eftir. Þarf að breyta heildarskipulagi Hrólfur Jónsson aðstoðarslökkvi- liðsstjóri bendir á að til þess að manna neyðarbílinn allan sólar- hringinn þurfi tveir sjúkraflutn- ingamenn að vera til taks á Borgarspítalanum að næturlagi. Bíllinn væri aðeins sendur í neyðar- útköll sem eru innan við fimmtung- ur allra sjúkraflutninga og sjaldgæf á nóttunni. Þetta væri ekki góð nýting á mannafla. „Ef neyðarkall berst á nóttunni þegar bíllinn er úti getum við ekki veitt viðkomandi sjúklingum jafn góða þjónustu og þeim sem fyrstur bað um aðstoð. Við gætum því eft- ir sem áður aðeins sinnt hluta neyðarkalla. Það leysir ekki vandamálið að láta sjúkraflutningamenn standa vaktir á Borgarspítalanum allan sólarhringinn. Við þurfum að breyta heíldarskipulagi sjúkraflutninga til þess að geta mannað allar vaktir þjálfuðum mönnum. Þannig munu allir sem þurfa þessa þjónustu sitja við sama borð,“ sagði Hrólfur. Slökkviliðið rekur tvo sjúkrabíla auk neyðarbílsins. Vakt á neyð- arbílnum lýkur kl. 23.30 og eftir það er einn bíll hafður til taks við slökkvistöðina. Sé hann upptekinn þegar beiðni um aðstoð berst _er hægt að senda sjúkrabílinn í Ár- túnsstöð á staðinn. Honum aka slökkviliðsmenn á vakt. Neyðarbíll- inn er betur búinn en venjulegir sjúkrabílar og læknar og hjúkrunar- fræðingar fara með honum. Þarf ekki að fjölga í sjúkraflutningum Gunnar Sigurðsson yfirlæknir á lyfjadeild Borgarspítalans dregur í efa að slökkviliðið þurfi að fjölga í starfsliði sínu til þess að manna bílinn allan sólarhringinn. „Mér vitanlega eru þessir menn á vakt á slökkviliðsstöðinni á þess- um tíma og fara í sjúkraflutninga þaðan. Þegar vaktinni lýkur á Borg- arspítalanum klukkan hálf tólf á kvöldin taka aðrir menn við á slökkvistöðinni," sagði hann. „Við höfum stefnt að því að bíllinn verði notaður allan sólar- hringinn og teljum mjög brýnt að svo verði. A Borgarspítalanum hafa verið gerðar þær ráðstafanir sem þarf til að sinna þessari þjónustu. Samvinna við slökkviliðið hefur ver- ið góð og ég sé enga meinbugi á að hún geti aukist." Aðstoðarslökkviliðsstjóri segir að málið sé mun flóknara en margir vilji vera að láta. „Málið snýst ekki um það hvort neyðarbíllinn er til taks eða ekki. Við þurfum að skoða það í samhengi, hvemig hægt er að veita fullnægjandi þjónustu á öllum tímum dagsins," sagði hann. Komið á stefnumóti læknis og sjúkrabíis Ein ábendinga Hrólfs er að koma á „stefnumóti" neyðarlæknis og sjúkrabíls. Þegar neyðarkall kæmi færi læknir af Borgarspítalanum til móts við sjúkrabílinn af slökkviliðs- stöðinni. Neyðarbílnum ækju sjúkraflutningamenn á vakt slökkvistöðvarinnar. Hugmynd Hrólfs er að hópur slökkviliðsmanna verði sérþjálfaður í því að fást við neyðartilvik og öðlist aukin réttindi til þess að veita sjúklingum aðstoð þar til læknir kemur á staðinn. Með góðri skipu- lagningu ætti læknirinn að vera laus í næsta útkall mun fyrr en nú er, að mati hans. Aðstoðarslökkviliðstjóri taldi einnig mögulegt að sameina bak- vakt lækna vegna þyrlu Landhelgis- gæslunnar og neyðarvaktina í Reykjavík. Þyrluvaktin hefði byggst á frumkvæði og sjálfboða- vinnu ungra lækna og væri ekki um framtíðarlausn að ræða. Með betra skipulagi og nýtingu íjár mætti sennilega veita betri þjónustu á öllum sviðum. „Stefnummótin" eiga hljóm- grunn meðal þeirra lækna sem starfa við neyðarþjónustuna. í Kaupmannahöfn er komin löng reynsla á þessa aðferð og þykir hún hafa gefið góða raun. Aðferðin myndi ekki borg-a sig Gunnar Sigurðsson sagði að stefnumótin gætu vissulega átt rétt á sér, en hér hefði einfaldlega verið þróað annað kerfi. „Stefnumótaað- HAÞRÝSTIDÆLA Vandað, sérlega handhægt vestur-þýskt tæki fyrír atvinnumenn. HEFUR: • þrískiptan stút • handfang með snúanlegri slöngu • 10 metra háþrýstislöngu Vinnuvistfræðileg hönnun, góð ending, tímasparnaður. SKEIFUNNI3E, SÍMAR 82415 & 82117 Gódan daginn! Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Frá undirritun samningsins í Glóðinni í Keflavík í vikunni. Það er Skúli Skúlason, formaður körfuknattleiksdeildar ÍBK sitjandi lengst til hægri, sem er að skrifa undir, en honum á hægri hönd er Arni Þór Árnason, forstjóri, Austurbakka. Sitjandi lengst til vinstri er Stefán Kristjánsson í stjórn ÍBK og fyrir aftan þá má sjá tvo leik- menn ÍBK í nýju búningunum. Keflavík: Körfuboltamenn með 2ja ára auglýsingasamning Keflavík. KÖRFUBOLTAMENN í ÍBK hafa gert auglýsingasamning við Austurbakka í Reykjavík um að auglýsa Nike-fyrirtækið á keppnisbúningum félagsins. Samkomulagið er til 2ja ára. Skúli Skúlason formaður körfú- knattleiksdeildarinnar sagði að menn væru ákaflega ánægðir með þennan samning. Ekki væru bein- harðir peningar í spilinu, en Austurbakki leggði úrvalsdeildar- liðinu til allan keppnisbúnað auk þess sem aðrir flokkar fengju álit- legan afslátt af Nike-vörum. Þá mætti nefna að ákvæði um sér- stakan bónus ef liðið ynni bikar eða íslandsmeistara titil. - BB.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.