Morgunblaðið - 06.10.1987, Síða 31

Morgunblaðið - 06.10.1987, Síða 31
MORGUNBLAÐIB, ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1987 31 Mexicó: Eftirmaður for- setans útnefndur Mexicó City, Reuter. STJÓRNARFLOKKURINN í Mexicó hefur útnefnt Carlos Sa- linas de Gortari sem forsetaefni flokksins í konsingum sem fram fara í júlí á nœsta ári. Tekur hann við af Miguel de la Madrid forseta og hefur de Gortari heit- ið að vinna áfram að endurskipu- lagningu efnahagslífs landsins. Fullvíst er talið að de Gortari verði næsti forseti landsins en stjómarflokkurinn hefur ekki tapað forsetakosningum frá því hann var stofnaður árið 1929. Carlos Salinas de Gortari hefur átt dijúgan þátt í að skipuleggja efnahagsstefnu stjómar de la Madrid, sem hefur einkennst af aðhaldsaðgerðum auk þess sem leitað hefur verið leiða til að draga úr skuldasöfnun erlendis. í ræðu sem hann hélt eftir að hafa hlotið útnefningu flokksins sagði de Gorteri að hann myndi vinna í anda de la Madrid hlyti hann til þess umboð kjósenda. Hafði hann á orði að ekki væri veijandi að kasta því á glæ sem áunnist hefði en að sögn hagfræðinga hefur efnahagsstefnan skilað nokkrum árangri á þessu ári. Stjómmála- skýrendur kváðust búast við að de Gorteri myndi fylgja stefnu stjómar de la Madrid en bentu jafnframt á að hefð væri fyrir því í Mexicó að Zambía: Sonur Kaunda dó úr alnæmi Lusaka, Reuter. KENNETH Kaunda, forseti Zambíu, skýrði frá þvi á sunnu- dag, að sonur hans hefði látist úr alnæmi og skoraði hann jafn- framt á alþjóðastofnanir og heim allan að sameinast í baráttunni við þennan banvæna sjúkdóm. Masuzyo, sonur Kaunda, lést í desember í fýrra og á blaðamanna- fundi á sunnudag var Kaunda spurður hvort rétt væri, að hann hefði látist úr alnæmi. „Það er ekk- ert að fela,“ sagði Kaunda. „Ég veit ekki hvemig sonur minn smitaðist en það þarf ekki dauða hans til svo ég skori á alþjóðastofnanir að takast á við þennan vágest, sem ógnar allri heimsbyggðinni," sagði Kaunda og fór hörðum orðum um þá, sem telja alnæmið upprunnið í Afríku. í Zambíu hefur verið skýrt frá 395 alnæmistilfellum en margir læknar telja þá tölu vera út í hött, hún sé I raun margfalt hærri. í Zambíu er læknum bannað að birta upplýsingar varðandi starf sitt nema með leyfí yfírvaldanna. verðandi forsetar lýstu yfir stuðn- ingi við forvera sína þar til þeir tækju við völdum. Sagan sýndi að eftir það gæti allt gerst. Salinas de Gorteri hefur beitt sér fyrir því að tekin verði upp aukin harka í samskiptum við erlenda lánadrottna landsmanna. Þannig tókst stjóminni að semja um hag- stæðari kjör á endurgreiðslum lána á þessu ári. Hann hefur einnig hvatt til þess að átak verði gert á sviði iðnframleiðslu í því skyni að gera landsmenn síður háða tekjum af olíuútflutningi. Carlos Salinas de Gorteri er 39 ára gamall og lauk hann námi ( hagfræði árið 1969. Hann hefur verið við nám I Harvard-háskóla ' Bandaríkjunum og lauk þaðan dokt- orsprófí í hagfræði og stjómmála- fraeði. Interpolis- skákmótið: Timman heldur forystu HOLLENSKI skákmaðurinn Jan Timman heldur enn for- ystu sinni á Interpolis skákmót- inu í Hollandi. Hann gerði jafntefli við sænska skákmann- inn Ulf Anderson í þrettándu umferð og hefur nú 8 vinninga. Vestur-þýski skákmaðurinn Ro- bert Hiibner og Júgóslavinn Nikolic eru í 2. og 3. sæti með 7*/2 vinning. Hubner gerði jafn- tefli við Júgóslavann Ljubojevic í þrettándu umferð. Aðrar skákir í umferðinni fóm sem hér segir: Nikolic gerði jafntefli við Sovét- manninn Sokolov og Viktor Korchnoi lagði Sovétmanninn Yu- supov að velli. Korchnoi og Yusupov eru í 4. og 5. sæti með 6V2 vinning, And- ersson er í 6. sæti með 6 vinninga, Sokolov hefur 5V2 vinning og Ljubojevic 4V2 vinning. í tólftu umferð bar Nikolic sig- urorð af Hubner. Ljubojevic tefldi við Andersson, Yusupov við Tim- man og Korchnoi við Sokolov og lyktaði skákum þeirra öllum með jafntefli. -Aiit fm°9.reglu! ^rú,k<*tím é B72St| 25%sóluskattur yamstcnaur kr „ Teskeidar(50 r' 4S<-- ***'00?°* £ 2°* i ,7* 2.451 Samta'sV"1^64 pUjli Ulv,aoQ io Duni er ódýrasti barinn í bœnum- <DUSHR. DUSCHEN Á. Bergmann Hinir heimsþekktu sturtuklefar og baðhurðir Stapahrauni 2, Hafnarfírði, s: 651550 Útsölustaðir: Vald. Poulsen, Rvík B.B. byggingavörur, Rvík HúsiÖ, Rvík Pensillinn, ísafiröi Byggirsf., PatreksfirÖi Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi Þ. Skagfjörö, Sauöárkróki KEA byggingavörur, Akureyri Kaupf. Rangæinga, Hvolsvelli Skapti hf., Akureyri Kaupfélagiö Þór, Hellu Kaupf. Þingeyinga, Húsavík GÁ Böövarsson, Selfossi Kaupf. Héraösbúa, Egilsstööum Kaupfélag Vestmannaeyja, byggingavd. Kaupf. Fram, Neskaupstaö Jám og skip, Keflavík Kaupf. A.-Skaftfellinga, Höfn Hvíldar, hressingar og heilsubótarferð eldri borgara á luxushótelið 3ja vikna hressingardvöl á luxus heilsubótarhóteli. íslensk hjúkrunarkona með í ferðinni. 5000 kr. afsláttur fyrir ellilífeyrisþega. Hægt er að fara sérferðir til Saloniki í Grikklandi og ýmissa staða í Búlgaríu. Mögulegt er að dvelja nokkra daga í Kaupmannahöfn í upphafi og lok- um ferðar. Sandansky 19. október ^ ERUM FLUTT í MIÐBORGINA FERÐA^VAL hf Hafnarstræti 18 sími 14480 - 12534

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.