Morgunblaðið - 06.10.1987, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1987
33
í þessu húsi
varð sprengingin
Dyr sprungu út „_-
\ R J| .1
Morgunblaðið/Rax
Fríðrik Magnússon við staðinn, þar sem sprengingin varð
„Hélt fyrst að
allt væri búið“
„ÉG HÉLT fyrst að allt væri
búið. Eldhafið var mjög mikið í
nokkrar sekúndur og þær voru
lengi að líða. Fyrsta hugsunin
var að forða sér, en í fyrri dyrun-
um, sem ég reyndi, mætti
eldhafið mér og svo var einnig
um þær næstu. Eg reyndi þá fyrri
dyrnar aftur og þá var eldurinn
kulnaður og ég komst út. Þetta
hefur aðeins staðið yfir i 10 til
15 sekúndur og fór vissulega
betur en á horfðist,“ sagði Frið-
rik Magnússon, starsfmaður á
Grundartanga, i samtali við
Morgunblðaið.
Friðrik var ásamt Ólafí Ólafssyni
staddur í ofnhúsi Jámblendiverk-
smiðjunnar á Grundartanga, er
mikil sprenging varð þar á laugar-
dagskvöldið. Friðrik var staddur
inni í smáhýsi og var að losa jám-
hleif í kælikassa, en Ólafur var úti
í sal í skjóli við vél þar.
„Hýsið skýldi mér að nokkru
leyti, en Ólafur var verr staddur úti
í salnum, þar sem alls konar drasl
hrundi úr loftinu í kringum hann.
Þetta er hættulegur vinnustaður og
við höfum sloppið vel til þessa.
Blautir kælikassar hafa áður farið
inn og ekkert gerzt. Því átti enginn
von á þessu, en einhver sérstök
skilyrði hafa valdið sprengingunni
nú.
Okkur starfsmönnum hér fínnst
að um of hafí verið hallað á okkur
í fréttaflutningi af sprengingunni.
Ef um mistök hefur verið að ræða,
eru þau ekki bara okkar, heldur
einnig yfírmanna, sem stjóma
gangi mála hér. Mistökin virðast
liggja í því að setja kassana út. Við
höfum engin tæki tii að losa vatn
úr þeim, þurfí á því að halda. Því
má segja að starfsemin sé að
sprengja húsnæðið utan af sér og
það sé upphaf alls þessa," sagði
Friðrik Magnússon.
Ólafur Ólafsson var i skjóli við þessa vinnuvél, þegar sprengingin varð
Morgunblaðið/R&x