Morgunblaðið - 06.10.1987, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1987
41
Þorpið Marla er dæmigert eyðimerkurþorp þar sem aðeins nokkur hús eru og óralangt i næstu
byggð. Það þarf varla mörg orð um hvað slík þjónusta, eins og „læknirinn fljúgandi“ getur veitt
íbúum slíks þorps mikið öryggi þvi tæplega myndi læknir setjast að i svo litlu þorpi.
Fljúgandi lækn-
ir í Astralíu
Hugsið ykkur óendanlega
víðáttu rauðrar eyðimerkur, kyrk-
ingslegar eyðimerkurplöntur á víð
og dreif sem reyna að geyma vel
þá fáu vatnsdropa sem fallið hafa.
Moskítóflugur og ótal tegundir
annarra skordýra. Snákur skríður
hljóðlega milli plantnanna og get-
ur allt í einu verið kominn upp
að þér. Himinninn er orðinn blá-
grár en við sjóndeildarhringinn
ber endalausa rönd sem sýnist
dökkappelsínurauð. AUt í einu er
komið kolniðamyrkur og eina
hugsanlega ljósið sem kann að
sjást er flugvélarljós og þá helst
hið frelsandi ljós hins fljúgandi
læknis.
Eitt af einkennum Ástralíu eru
hinar víðáttumiklu óbyggðir, eyði-
merkur og mikil svæði inni í landi.
Þar eru einnig bújarðir og svæði
frumbyggja. Þessi svæði eru mjög
langt frá því sem við köllum „hið
siðmenntaða" svæði svo fólk hefur
orðið að búa yfír miklu æðruleysi
I öryggisleysi engrar læknishjálp-
ar né annarrar félagslegrar
þjónustu til að geta búið á slíkum
stöðum.
Við upphaf þessarar aldar var
uppi í Astralíu maður sem bæði
var prestur og læknir og hét John
Flynn. í starfí sínu í Oodnadatta
sem er lítið þorp langt inni í landi,
um það bil sjö hundruð kílómetra
norðvestur af Adelaide, reyndi
hann að þjóna þessu fólki sem
best hann gat, en langaði til að
geta komist í enn frekari snert-
ingu við það, svo hann gæti
hjálpað því betur í nauðum.
Arið 1912 fékk hann kirkjuna
til að stofna litla heilsugæslustöð
i þorpinu í skóginum. Og árið
1926 hafði hann fengið talstöð til
að komast í beint talsamband við
fólkið í óbyggðum. Tveim árum
síðar rættist síðan langþráður
draumur hans þegar hann fékk
litla flugvél frá Quantas, De Ha-
villand.
Þá hófst hið eiginlega starf
„hins fljúgandi læknis“, hins sér-
ástralska fyrirbæris sem nú er
orðið viðamikið fyrirtæki og
styðst við net bækistöðva um
landið.
En eins og vill verða með þjón-
ustu, sem stofnuð er af hugsjón
án þess að seilst hafí verið í vasa
ríkisins, þiggja nú allir þessa þjón-
ustu sem svo sjálfsagðan hlut, að
þeir gleyma að hugleiða hvaðan
þeir peningar koma sem gera
hana mögulega. Ríkið hefur ekki
tekið að sér reksturinn þrátt fyrir
að þjónustan sé innan ramma
þess sem því opinbera er almennt
ætlað að annast. En aftur á móti
hafa þeir, sem eiga líf sitt undir
þjónustunni, fjármagnað fyrir-
tækið á sama hátt og staðið er
undir ýmsum góðgerðarmálum
heima á íslandi, með kökusölu,
bösurum og ýmsu samkomuhaldi.
Einnig gerist það stundum að
þakklátir þiggjendur ánafna
læknaþjónustunni eigur sínar í
Kort af Ástralíu. Punktamir og örvamar sýna hvar miðstöðvar.
og starfssvæði þjónustunnar eru.
erfðaskrá. En samt á fyrirtækið
í fjárhagsörðugleikum.
Nú eru það ekki eingöngu
óbyggðabúar sem njóta þjón-
ustunnar. Því til hennar er leitað
við hinar ýmsu uppákomur eins
og þegar bflslys verður, einhver
hefur verið bitinn af snák eða
fengið hjartaáfall.
Þó að flestir geri sér grein fyr-
ir gildi og mikilvægi þessarar
þjónustu eru þeir einnig til, sem
ekki hafa skilning á henni og sjá
ofsjónum yfír að þessu fólki skuli
hjálpað. Þeir sjá þessa þjónustu
sem einhvers konar dekur við ófrí-
skar bændakonur, en aðrir líta á
það sem fjár- og tímasóun að
bjarga lífi bama frumbyggja-
kvenna sem ekki geta annast þau
sjálfar.
Á hveijum bæ og í flugvélunum
eru sjúkrapakkar sem gengið er
frá á sérstakan hátt. Það er pakki
The OODNAMBA
TRACK’
CHAWL£R(h«í)X> OÓPNM0TA
»TO ADEUIDC^FLIMOERS Ra. <
FUtt,MllttGES st
SERVICES AVMLABLE EN
ROUrE DETAíLED ONTtff
BACK OF THIS SIGN l
Skilti sem vísar veginn til Oodnadatta. Fram- og bakhlið þess
sýna vel hve afskekkt þetta þorp er ef myndin prentast vel. Og
einnig hvaða þjónustu er að fá i hverju þorpi eða borg.
ÖJTsíMttA 242. • • > ••••••
Aso
"émc ?03 • • • »I ••*•
LYNOMliWT 745 • ••■'«» • •
UOHa-fb** »09 • • • • :«'•>• •:•
6H.T4N4 £»•••' •
fMAOttLHA ■»*»•••* • *
VIJ4LNA 941 • • • •' . ?
hawkir 9?« •:••■• • •••■«
fT.AUWSTA • ♦ • * * # J *
,mm '**•••••*•• •
6tR9SW.‘.t 1166 • • •
TRAVLUERS PIEASE NOTE
fyrir hvem hluta líkamans og allt
er númerað. Úr Qarlægð getur
læknir beðið fólk, sem leitar að-
stoðar, að ná í pakka og nota
hann í samræmi við sjúkdóms-
greininguna.
Þar sem þetta starf gerir mikl-
ar kröfur er ekki úr vegi að athuga
hvemig gangi að manna slíka
þjónustu. Mun auðveldara er að
fá hjúkmnarkonur til starfsins en
lækna og stundum þarf að leita
til annarra landa eftir þeim.
Venjulegur starfstími hjúkmna-
rkonu í þessari þjónustu er eitt
og hálft ár, en þó em undantekn-
ingar þar á. Systir Verona Keen
er ein þeirra, sem hefur starfað
við þetta í tvö ár, getur hún einn-
ig notað menntun sína sem
ljósmóðir. Vinsamlegt viðmót
„outback“-fólksins, eins og þau
kalla það, yljar henni um hjartar-
ætur.
Ástralíu er skipt í sjö hémð
fljúgandi lækna. í Mið-Ástralíu
em sex flugvélar, þijár em sendar
frá Port Augusata sem er rétt hjá
Flinders Rangers-þjóðgarðinum.
Þrjár frá Alice Spring sem er inni
í miðju landi. í Queensland em
fímm en í Nýja Suður-Wales tvær
sem fara frá Broken Hill. Fjórar
fara frá Kalgoorlie. Aðrar tólf
þjóna hinum hlutum Vestur-Ástr-
alíu en §órar em í Victoríu og til
nánari skýringa má geta þess að
ekkert flug tekur minna en tvo
tíma og þá I meðvindi. Á því
fyrsta ári, sem draumur prestsins
og læknisins rættist, var farið í
fímmtíu flugferðir, flognir þijátfu
og tvö þúsund kólímetrar, tvö
hundmð tuttugu og fímm sjúkl-
ingar skoðaðir og tuttugu og fímm
mannslífum bjargað. Nú fljúga
þeir 4,8 milljónir kflómetra á ári,
skoða tuttugu og sex þúsund
sjúklinga, sem búa í óbyggðum,
en áttatíu þúsund í allt. Hafa tíu
þúsundir verið fluttar á sjúkra-
hús, og allt þetta er gert ókeypis.
Vélamar verða að lenda við
mjög frumstæðar aðstæður og
læknamir þurfa jafnvel einnig að
aka langan veg til að komast á
slysstað. Þeir verða að sinna mik-
ið særðum sjúklingum, jafnvel ná
þeim út úr bílflökum í ryki og
hita og síðan að fljúga með þá
við frumstæðar aðstæður í litlum,
þröngum flugvélum á sjúkrahús.
Hugsjón prestsins og læknisins
við upphaf þessarar aldar hefur
valdið meiri straumhvörfum í lífi
þessarar þjóðar en hann gat órað
fyrir þegar draumurinn rættist í
Oodnadatta. Bændur í óbyggðum,
frumbyggjar og ferðafólk, eiga
flugþjónustunni líf sitt að launa
og eiga einnig allt undir henni ef
eitthvað hendir á ferðum um vegi
og óbyggðir landsins.
TEXTI OG MYNDIR:
Matthildur Björnsdóttir.
(Lauslega þýtt og enduraagt úr grein
eftir Alex Kennedy „Flying Doctnrs" i
„The Adventiser" f Adelaide.)
Með einu símtali er hægt að breyta inn-
heimtuaðferðinni. Eftir það verða áskriftar-
gjöldin skuldfærð á viðkomandi greiðslu-
kortareikning mánaðarlega.
■ tmtn ■
SÍMINN ER
691140
691141