Morgunblaðið - 09.10.1987, Page 7
___________________MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987
Háskóli íslands:
7
Ritgerð Ólafs fjallar einkum um
list Einars á tímabilinu frá aldamót-
um og fram til 1920. Fjallað er
m.a. um formræna þróun og inntak
verka Einars í hugmyndalegu og
stílfræðilegu samhengi. Þá tekur
höfundur til meðferðar notkun Ein-
ars á myndtáknum og samverkan
tákna og formgerðar og hvemig
Einar sótti í kenningar guðspekinn-
ar í senn myndefni og stuðning
fyrir táknræna og allegóríska fram-
setningu.
Fallið frá
iiuiheimtii
söluskatts
Fjármáiaráðuneytið hefur
ákveðið að falla frá innheimtu
söluskatts vegna sölu á stöðluð-
um hugbúnaði á timabilinu 24.
nóvember 1983 til 1. september
i ár.
í fréttatílkynningu frá ráðuneyt-
inu segir um þessa ákvörðun að
viðkomandi aðilar hafi verið i góðri
trú og reglur um skattskyldu tölva
og tölvuþjónustu hafi ekki verið
nægilegar skýrar. Það er áréttað
að umrædd fyrirtæki lögðu ekki
neinn söluskatt á hugbúnað á um-
ræddu tímabili og því sé ekki um
það að ræða að þau hafi hagnast
um það sem nam söluskattinum.
Þá sé á það að líta að oft á tíðum
sé erfítt að draga mörkin á milli
þess sem kallast staðlaður hug-
búnaður og þess sem telst sér-
hannaður hugbúnaður, en slíkur
hugbúnaður hafi verið undanþeginn
söluskatti.
Loks er þess getið í fréttatilkynn-
ingunni að nú hafi verið settar nýjar
reglur um skattskyldu tölva, tölvu-
búnaðar og tölvuþjónustu er varðar
söluskatt og sérstakan söluskatt.
Samkvæmt þessum reglum ber
framvegis að greiða 10% söluskatt
af tölvuþjónustu, en tölvuþjónusta
telst meðal annars vera vinna forrit-
ara og kerfisfræðinga við hönnun,
viðhald og aðvinnslu á hugbúnaði
svo og sala forrita ásamt uppsetn-
ingu þeirra.
Fyrsta nýnemahátíðin
Dr. Ólafur Kvaran
NÝNEMAJKÁTÍÐ Háskóla ís-
lands verður haldin í Háskólabiói
í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem
hátið af þessu tagi er haldin til
að bjóða nýja nemendur form-
lega velkomna, en einnig er
ætlunin að veita þeim ýmsar upp-
lýsingar um námið og starfsemi
háskólans.
Hátíðin verður sett klukkan 14,
en að því loknu mun háskólakórinn
Varði doktorsritgerð
um Einar Jónsson
ÓLAFUR Kvaran listfræðingur
varði doktorsritgerð við Háskól-
ann í Lundi 26. sept. sl. um list
Einars Jónssonar myndhöggv-
ara. Ritgerðin, sem komið hefur
út í bokaformi, heitir á sænsku
„Einar Jónssons skulptur, form-
utveckling och betydelsevárld“.
Andmælandi var dr. Áke Fant
dósent við Háskólann í Stokk-
hólmi, en i dómnefnd áttu sæti
prófessor Bernt Olsson, Ingrid
Sjöström dósent og Bo Ossian
Lindberg dósent. Dr. Sven
Sandström prófessor við Háskól-
ann í Lundi stjórnaði doktors-
vörninni.
Ólafur Kvaran lauk fil.kand.-
prófi í listasögu frá Háskólanum í
Lundi árið 1974. Hann starfaði sem
safnvörður við Listasafn íslands
1975-80. Frá 1980 hefur Ólafur
verið forstöðumaður Listasafns
Einars Jónssonar og jafnframt sl.
þrjú ár listráðunautur Norræna
hússins.
syngja stúdentasöngva. Sigmundur
Guðbjamason, háskólarektor, og
Ómar Geirsson, formaður stúdenta-
ráðs munu flytja ávörp, og síðan
verða nýnemum kynnt ýmis atriði
er varða námið í háskólanum, svo
sem námsráðgjöf og námstækni,
bókasafnsþjónusta og námslán.
Boðið verður upp á veitingar og
tvær kvikmyndir sýndar, „tJr sögu
Háskólans", sem gerð var í tilefni
af afmæli skólans á síðasta ári, og
„Radio Days“, nýjasta mynd Woody
Allen.
Að sögn Sigmundar Guðbjamar-
sonar háskólarektors er megin-
markmið hátíðarinnar að efla kynni
meðal nýstúdenta, um leið og at-
hygli þeirra er vakin á þeirri
þjónustu sem háskólinn býður upp
á. Á undanfömum árum hefur stúd-
entaráð staðið fyrir nýnemakynn-
ingu, en nú standa Háskólinn og
stúdentaráð sameiginlega að veg-
legri hátíð í fýrsta sinn. „Við viljum
reyna að aðstoða nýstúdenta í því
erfíða námi sem þeir eru að hefja,
en fyrst og fremst er þetta hátíð í
léttum dúr til að bjóða þá velkomna
í skólann." sagði Sigmundur.
Ómar Geirsson, formaður stúd-
entaráðs, sagði í samtali við
Morgunblaðið það ekki síður tilgang
hátíðarinnar að gefa nemendum frá
hinum ýmsu deildum tækifæri á að
hittast„ en að kynna þeim námið
og starfsemi skólans. „Félagslíf í
Háskólanum hefur verið í nokkurri
lægð á undanfömum árum, þó að
sumar deildir hafi haldið uppi nokk-
uð öflugu starfi. Nú er að koma inn
í skólann ungt fólk sem hefur starf-
að í félagslífí í framhaldsskólunum,
og ef það verður áfram virkt í fé-
lagsstarfí þá er von til þess að það
breytisttil batnaðar." sagði Ómar.
Umferðardagur í
Þingholtum í dag
í DAG verður haldinn sérstakur
umferðardagur í Þingholtunum,
en fyrir honum standa íbúasam-
tök Þingholta í samvinnu við
Austurbæjarskóla og bamaheim-
ilin þar i hverfinu. Tilgangurinn
með þessu er að vekja athygli á
þvi hvernig umferðarmálum er
háttað í hverfinu og benda á leið-
ir til úrbóta.
í dag, umferðardaginn, munu
nemendur í Austurbæjarskóla safn-
ast við helstu gatnamót á útjöðrum
svæðisins kl. 15.00 og ganga svo í
lögreglufylgd upp á Skólavörðuholt,
þar sem flutt verður stutt ávarp og
skemmtiatriði að því loknu. Þá
munu böm úr dagheimilum hverfis-
ins einnig ganga upp á holtið og
taka þátt umferðardeginum.
Að sögn aðstandenda íbúasam-
taka Þingholta er gert ráð fyrir því
að fundurinn á Skólavörðuholti
hefjist kl. 15.30 og vonast þeir til
þess að íbúar hverfísins, og þá sérs-
taklega foreldrar, sjái sér fært að
koma á Skólavörðuholt og taka
þátt í deginum.
** ■«-- *■ -■ •■ -'r**1
■ ■
-
.«*■"
MKT
V. ■....
Þetta er einstakt tækifæri ^
fyriralla þá, sem dreymt ■ =*
hefur um að eignast
'fallegan pels, til aðlátá
■ nú drauminn rætast. Við
bjóðum þessa glæsilegu
pelsa í öllum stærðum fyr-
. ir konur á öllum aldri - en
ítakmörkuðu magni!
Einnig bjóðum við að sjálf-
sögðu mikið úrval annarra
pelsa í öllum stærðum fyr-
irallarkonuráöllumaldri!
.. IMUTRIAPELS
;'V. Dökkbrúnn. Glæsilegur pels,
; sterkur, góðuroghlýr.
- ;-Verðkr. 95.000,v
Útborgun kr. 35.000,-^
Eftirstöðvar á 10 mánuðum.
‘n* ;•» 'v ... -*m
PELSDSTN
Kirkjuhvoli sími 20160