Morgunblaðið - 09.10.1987, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987
35
Kirkjudag-
ur Oháða
safnaðarins
Á sunnudaginn þann 11. okt. kl.
14.00, verður hátíðarguðsþjónusta
í kirkju Óháða safnaðarins.
Kirkjudagnrinn er árviss hjá
Óháða söfnuðinum og er ávallt
haldinn hátíðlegur á sunnudegi í
októbermánuði. Guðsþjónustan er
þungamiðja hátíðarinnar, en fyrir
messu verður hljóðfæraleikur og
eftir messu gefst kirkjugestum
kostur á að ræða saman yfir kaffí
og góðu meðlæti, sem kvenfélag
safnaðarins sér um og selur til
styrktar safnaðarstarfínu.
Allir fá eitthvað við sitt hæfi.
Þegar bömin hafa fengið sínar veit-
ingar, verður sérstök samvera með
þeim í kirkjunni. Starfsstúlkur
kirkjuskólans sjá um að bömunum
leiðist ekki: Söngur — leikir — og
upplestur verður m.a. á dagskrá.
Þórsteinn Ragnarsson,
safnaðarprestur.
Kirkja Óháða safnaðarins
Christian skemmt-
ir í Þórscafé
SKOSKI söngvarinn og lát-
bragðsleikarinn Christian mun
skemmta gestum í veitingahús-
inu Þórscafé um helgina og
næstu helgi.
Christian hefur verið með eigin
skemmtiþætti í skoska sjónvarpinu
og komið fram víða á Bretlandseyj-
um, að því er segir í fréttatilkjmn-
ingu frá Þórscafé. Hann hefur gefið
út fjórtán hljómplötur, og komið
nokkrum lögum inn á vinsældar-
lista, þar á meðal laginu „We have
a dream" sem hann söng með
skoska landsliðinu fyrir heims-
meistarakeppnina í knattspymu
1982.
Skoski söngvarinn og látbragðs-
leikarinn Christian.
ÁRÉTTING
Selfossi, 5. okt.
Agæti ritstjóri.
Sl. laugardag, 3. október, naut
ég við hins ágæta blaðs þins,
Morgunblaðsins, sem birti fyrir
mig minningargrein um Þóri
Þorkelsson frá Selfossi.
Eitt er í sambandi við birtingu
greinarinnar, sem ég get ekki látið
ógert að ,jagast“ út af. Þar var að
mínum dómi gerð alvarleg breyting
til hins verra á textanum.
Eg skrifaði: „. . . þar sem þau
bjuggu frá 1916 til 1958 að þau
brugðu búi og fluttu að Selfossi."
Þessu var breytt: „. . . og fluttu
til Selfoss." Ekki var nóg með það
að þetta væri tvítekið, heldur var
„. . . að Smáratúni 14“ breytt í:
„. . . í Smáratúni 14. Með þessum
breytingum var unnið alvarlegt
skemmdarverk á greininni.
Ég hefí átt heima á Selfossi og
í grennd alla mína æfi og veit því
um málvenjur fólks á þessu svæði.
Hér um sveitimar í kring fara menn
að Selfossi, en ekki til. Þetta man
ég glöggt í a.m.k. 45 ár. Aftur á
móti verð ég var við það á allra
síðustu ámm að menn em famir
að koma til Selfoss. Ekki er þar
með sagt að hið fyrra sé rangt,
þótt einhveijir spjátmngar vilji
breyta. Selfossnafnið er meira en
bara hreppurinn og síðar kaupstað-
urinn, við skulum ekki gleyma
Selfossbæjunum og „Selfossinum"
sjálfum þótt ekki sé hann fallhár.
Ég skal líka taka dæmi. í fyrra
fór Raisa Gorbatsjefa í heimsókn
að Búrfelli en ekki til Búrfells.
Meira að segja heyrði ég aldrei
málóðum fréttamönnum verða hált
á þessu.
Þekktur er bærinn Birtingaholt.
Enginn fer til Birtingaholts, allir
að Birtingaholti.
Virðingarfyllst,
Hergeir Kristgeirsson
Freedom Quartett frá Noregi syngur negrasálma í Bústaðakirkju á
morgun, laugardag.
Norskur kvartett syngnr
negrasálma í Bústaðakirkju
HAUSTÁTAK ’87 gengst fyrir
tónleikum í Bústaðakirkju laug-
ardaginn 10. október kl. 17.00. Á
tónleikunum syngur kvartett frá
Noregi, Freedom Quartett,
negrasálma.
Hreyfingamar sem standa að
Haustátaki ’87 em KFUM og
KFTJK, Samband íslenskra kristni-
boðsfélaga, Kristileg skólasamtök
og Kristilegt stúdentafélag.
KONUR ATH. FÖRÐUNARMEISTARI Á STAÐINN I _ VSv ^ Nú er tækifærið fyrir kunningjakonur og vinahópa að koma sdman og fó förðunar- tfV w ^ meistara á staðinn til að kenna ykkur hina réttu förðun. F )'■ » Sandra Grétarsdóttir Förðunarmeistari uppl e.h. í síma 33 11 2 •
| raöauglýsingac — raöauglýsingar — raöauglýsingar j
Borgarnes - Egill FUS
Fundur á vegum ungra sjálfstæðismanna i Borgarnesi verður haldinn
í Sjálfstæðishúsinu, Brákarbraut 1, nk. laugardag kl. 17.00.
Frummælendur á fundinum verða þeir Gísli Kjartansson, sveitar-
stjórnarfulltrúi og Jóhann Kjartansson, varasveitarstjórnarfulltrúi.
Málefni fundarins: Bæjarmálin og önnur mál. Kemur Baldrún á óvart?
Stjórnin.
Sjálfstæðismenn
Hafnarfirði
Kjördæmisráð Sjálf-
stæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi
og fulltrúaráð Sjálf-
stæðisfélaganna i
Hafnarfirði boða til
fundar með fulltrúa-
ráösmönnum og
öðrum trúnaðar-
mönnum Sjálfstæðis-
flokksins í Hafnarfirði
í Sjálfstæðishúsinu,
mánudaginn 12. okt.
kl. 20.30.
Gestir fundaríns veröa Ólafur G. Einarsson, alþingismaöur og Bragi
Michaelsson, varaformaður kjördæmisráös.
Selfoss - Árnessýsla
Sjálfstæðisfélagiö
Óðinn og Félag
ungra sjálfstæöis-
manna halda sam-
eiginlegan fund á
Tryggvagötu 8, Sel-
fossi, fimmtudaginn
8. október kl. 20.30.
Frummælendur
verða þeir Þorsteinn
Pálsson forsætis-
ráðherra og Ólafur
Björnsson stjórnarmaöur SUS.
Málefni fundarins:
Landsmálin og önnur mál.
Mætum sem flest yngri sem eldri og gerum góöan fund betri.
Stjórnimar.
Akranes - bæjarmálefni
Fundur um bæjar-
málefni verður
haldin í sjálfstæöis-
húsinu við Heiðar-
gerði sunnudaginn
11. október kl.
10.30. Bæjarfulltrúar
sjálfstæöisflokksins
mæta á fundinn.
Mætum öll.
Sjálfstæðisfélögin Akranesi.
Aðalfundarboð sjálf-
stæðisfélags Kjalnesinga
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Kjalnesinga verður haldinn í Fólkvangi
mánudaginn 12. október og hefst fundurínn stundvfslega kl. 20.30.
Gestir fundarins verða alþingismenn Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
neskjördæmi.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf. ,
Kaffiveitingar.
2. Önnur mál.
Allir félagar Sjálfstæðisfélags Kjalnesinga eru hvattir til að mæta.
Nýir-félagar velkomnir.
Stjómin.