Morgunblaðið - 09.10.1987, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987
49
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 13-14
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . . .
Bætum kjör fisk-
vinnslufólks
Anna hringdi:
„í umræðum um kaup og kjör
undanfarið hefur komið fram að
það fólk sem vinnur við undir-
stöðuatvinnuveg þjóðarinnar,
fiskvinnsluna, hefur einhver lök-
ustu kjör sem þekkjast. Þetta er
ekki efnilegt fyrir þjóðarbúið því
það er einmitt fiskvinnslufólkið
ásamt sjómönnunum sem skapar
þjóðarauðinn. Það yrði áreiðan-
lega til aukinnar hagsældar ef
kjör fiskvinnslufólks yrðu bætt.
Sjálf vann ég við fískvinnslu á
yngri árum og veit því af eigin
raun að fiskvinnlustörf eru erfið.
Það ætti að borga betur fyrir
þessa vinnu, þá þyrfti ekki að
flytja inn útlent verkafólk til þess-
ara starfa."
Of mikill hraði í
umferðinni í
Reykjavík
Kona á Norðurlandi hringdi:
„Ég var í Reykjvík fyrir
skömmu og það gekk alveg yfir
mig hversu hraðinn í umferðinni
er gífurlegur þar. Það er hræði-
legt til þess að vita hvemig
ástandið er orðið í umferðinni þar
og engin furða þó slys séu tíð.
Það er ekki nema lítill hluti öku-
manna sem ræður við þennan
gífurlega hraða en allir verða að
fylgja þessum ógnar hraða sem
út í umferðina fara. Þetta getur
ekki gengið eins og umferðar-
þunginn hefur aukist mikið, það
hljóta allir að sjá. Ökumenn verða
að gefa sér meiri tíma til að kom-
ast leiðar sinnar og allir verða að
draga úr hraðanum. Það er eina
ráðið til að fækka slysunum."
Lyklakippa
Lyklakippa með sex lyklum
gleymdist á Thorváldsen basar
fyrir nokkru og getur eigandinn
sótt hana þangað.
Peysa
Gul adidaspeysa tapaðist í KR-
heimilinu á laugardag. Síminn hjá
eigandanum er 76720.
HÁVAÐAMENGUN
Til Velvakanda.
Það er ekki óalgengt að popp-
hljómsveitir, búnar öflugum
mögnurum, komi sér fyrir á Lækj-
artorgi og hafí þar uppi slíkan ógnar
hávaða, að ólíft verður á meðan í
nokkrum hluta miðborgarinnar.
Þannig verður t.d. vinnustaður
minn, Safnahúsið við Hverfisgötu,
jafnan illilega fyrir barðinu á svona
tónleikahaldi. Þetta gerðist nú
síðast þann 1. október sl. Þá skaut
reyndar nokkuð skökku við að því
leyti, að fólk það sem stóð f þetta
skipti fyrir að menga umhverfíð
með ærandi hávaða, flutti milli ösk-
urþátta sinna þarfar hugvekjur
gegn megnun af völdum kjamorku,
ýmiss konar iðnaðar o.s.frv. Þetta
ágæta fólk virtist hins vegar ekki
gera sér grein fyrir því, að tónlist
sem mögnuð er upp úr öllu valdi
með þar til gerðum tækjum, er
hvorki meira né minna en ein teg-
und stórskaðlegrar mengunar.
Hér er reyndar aðeins um að
ræða eitt dæmi af mörgum um þá
herfilegu misnotkun ýmiss konar
tónlistar, sem nú tröllríður þjóð-
félagi okkar. Á fjölmörgum vinnu-
stöðum láta menn útvarpstæki o.fl.
glymskratta kyija tfmunum saman
í kappi við vinnuvélagný, hamars-
högg, glamur í bárujáirii o.s.frv.,
ýmsum samverkamönnum og jafn-
vel íbúum heilla hverfa til hrelling-
ar. Alkunna er að nokkrar verzlanir
í miðborg Reykjavíkur láta sér ekki
nægja síbyljutónlist innanhúss, en
dæla henni auk þess yfir vegfarend-
ur og aðra nágranna með gjallar-
homum. Og kannski viðgengst slíkt
siðleysi víðar. Oftar en ekki er hald-
ið uppi gjallandi tónlist á veitinga-
stöðum og f áætlunarbílum og
strætisvögnum. í fjölbýlishúsum
hrella íbúar löngum hver annan
með háttstilltu útvarpi, sjónvarpi
og alls konar hljómflutningstækj-
um. Á góðviðrisdögum á sumrin
hefur fólks glymskrattana með sér
út í húsagarða og almenningsgarða
skafandi innan eyru nágranna
sinna. Og hver kannast ekki við
menn, sem láta útvarpstæki bíia
sinna ganga á fullu, svo að heyrist
um alla götuna og jafnvel lengra,
er þeir dytta að farkostunum utan
við hús sín?
Sjúkrahúsin fara ekki heldur var-
hluta af hávaðaplágunni. Nýlega
þurfti ég að dveljast nokkra daga
í sjúkrahúsi. Þar var öll aðhlynning
ágæt og ákvæðum gegn reykingum
í sjúkrastofiium og aðliggjandi
göngum og setustofum virtist vera
vel framfylgt. Hins vegar undraðist
ég, að útvarp og sjónvarp í setu-
stofu við enda gangsins voru
löngum stillt svo hátt, að glymjand-
inn barst unnvörpum inn í sjúkra-
stofumar. Og ekki nóg með það.
Tveir ungir menn sem unnu á dag-
inn við að gera hreinar stofur (sem
tæmdar voru á meðan), höfðu með
sér sitt útvarpstækið hvor, er þeir
létu garga meðan þeir unnu verk
sín. Að vísu var hlutaðeigandi stofa
oftast höfð lokuð á meðan, en ekki
fór þó hjá þvf að talsvert af þessum
hávaða bærist fram á gang og inn
í næstu stofur.
Hér hefur aðeins verið stiklað á
stóm varðandi þann skefjalausa
hávaða, sem ýmsir hugsunarlausir,
kærulausir, óprúttnir og hávaða-
sjúkir aðilar demba hvarvetna yfir
samborgara sína. Gegn þessu sið-
leysi þarf auðvitað að setja skil-
merkileg lög og reglugerðir eins og
gegn annarri mengun umhverfisins.
En meira þarf vitanlega til. Það
er t.d. lágmarkskrafa að hávaða-
framleiðendur eins og útvarps-
og sjóuvarpsstöðvar minni fólk
reglulega á að stilla ekki tæki
sin svo hátt, að nágrannar verði
fyrir ónæði. Ennfremur þyrfti al-
menningur að vera vökulli en raun
er á, bæði gagnvart þessum og alls
konar öðrum ósóma og yfírgangi,
sem menn láta alltof oft bjóða sér
umyrðalaust. Hér vantar semsé
sterkt almenningsálit.
Að lokum vil ég þakka Steingrími
Gauti Kristjánssyni fyrir hina ýtar-
legu grein Háreysti og hávaða-
sýki, sem birtist í Morgunblaðinu
24. f.m. og Sigurði Þór Guðjónssyni
og Vigdísi Jónsdóttur fyrir greinar
í Morgunblaðinu þann 1. og 3. þ.m.
um þá hávaðaplágu, sem farþegar
í strætisvögnum Reykjavíkur og
áætlunarbifreiðum verða jafnan að
búa við.
Sigfús Haukur Andrésson
Sjómenn
Kynnið ykkur staðsetn-
ingu handslökkvitækja
um borð í skipi ykkar.
Kynnið ykkur notkun
þeirra.
Kynnið ykkur ástand
þeirra.
Munið: Hafíð ávallt
greiðan aðgang að
handslökkvitækjum,
það er aldrei að vita
hvenær grípa þarf til
þeirra.
ALrr
ÁHREINU
MEÐ
&TDK
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháasemlága!
AS-TENGI
Allar gerðir
Tengið aldrei
stál - í - stál
SíM?tSM@)UIF tMs(ril©©®OT a <B®
VESTURGOTU Ib SIMAR 14680 P1480
MUM-BÚTS
Verð
595 kr.
Stærðir: 23-35 Póstsendum samdægurs.
Litur: Gult og rautt 5% staðgrolðsluafsláttur.
1§
Kringlunni,
sími 689212
TOPg
5^5-----SKORTHN
VELTUSUNDI 1
21212
möguleiki
fyrir alla.
MAXI plastskúffur og festiplötur.
Margar stærðir og margir litir.
Hentar verslunum, lagerum. verkstæðum og
heimilum fyrir smáa hluti og stóra.
4-
LANDSSMIÐJAN HF.
Sölvhólsgötu 13 — Reykjavík — Sími 91 — 20680
Verslun: Ármúla 23.