Morgunblaðið - 05.11.1987, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1987
13
Flækjurnar hjá Fo
Lelklist
Jóhanna Kristjónsdóttir
Leikfélagið Allt milli himins og
jarðar sýndi f Verzlunarskólan-
um:
Næturbrölt á Kóngsbakka,
tveir skopleikir eftir Dario Fo
Lýsing: Éinar Helgason
Hljóð: Birgir Birgisson
Aðstoðarleikstjórar: Hrafnhild-
ur Arnarsdóttir og María S.
Baldursdóttir
Leikstjóri: Einar Jón Briem
DARIO Fo er vinsæll hjá
íslenzkum leikhúsgestum og all-
mörg verka hans hafa verið sýnd
í aðskiljanlegum leikhúsum okkar.
Minnisstæður er mörgum fyrsti
flutningur á verki eftir hann hjá
Leikfélagi Reykjavíkur á „Þjófum,
líkum og fölum konum." Sú sýn-
ing þótti um margt nýstárleg.
Dario Fo hefur sannarlega ver-
ið litríkur persónuleiki í leikhús-
bókmenntunum síðan hann kom
fyrst fram fyrir röskum þrjátíu
árum. Hann hefur beint háðskeyt-
um sínum í ýmsar áttir og engum
hlíft. Ádeila hans á spillingu er
þó jafnan krydduð undursamlegri
kímni, svo að verk hans hafa náð
til fjöldans og að verðleikum, að
mínu viti.
Þættimir tveir sem leikfélag
Verzlunarskólans færir upp á
listahátíð skólans eru komnir
nokkuð til ára sinna.„ Betri er
þjófur í húsi en snurða á þræði"
og„ Þegar þú verður fátækur,
skaltu verða kóngur." Þættimir
hafa yfir sér einkenni og svipmót
fyrri leikverka Dario Fos, hraði,
grín og læti, en handan orðanna
dýpri skilaboð. Sem við ráðum
hvort við meðtökum hvert og eitt,
eða skemmtum okkur bara yfir
gríninu.
Skólasýningar hafa jafnan í sér
glaðan og hressan tón. Það er
kannski ósköp þreytandi fyrir
nemendur að heyra sýknt og heil-
agt talað um leikgleðina, sem sé
alls ráðandi. En hjá þeim skólum,
sem ekki eiga því lengri leiklistar-
hefð að baki er leikgleðin auðvitað
meginmálið. Að leikendur og
áhorfendur skemmti sér. Þáð er
ekki ástæða til að gera lítið úr
kátínunni.
Margir leikendur koma fram í
þáttunum. Vert er að minnast á
nokkuð snjalla sviðsframkomu
Þórhildar Pétursdóttur í hlutverki
Konunnar í fyrri þættinum. Björg-
vin Már Kristinsson átti líka góða
kafla sem þjófurinn. í „Þegar þú
verður fátækur skaltu verða
kóngur" ríkti mikið flör og förðun-
in í þeim þætti hjálpaði lítt þjálf-
uðum leikendum heilmikið.
Athygli mína þar vakti Guðrún
Jónsdóttir, Trommuleikari fyrir
ágæta mfmík. Ingimundur Guð-
mundsson var snöfurlegur sold-
ánn og Hilmar Þórðarson ljómandi
góður Trompetleikari. Sigurbjöm
Einarsson í hlutverki Kóngsa
hafði raunar ekki förðun til að
hjálpa sér, en það sakaði ekki vit-
und og Sigurbjöm gerði hlutverk-
inu vemlega góð skil.
Leikstjóri hefði þurft að vanda
betur staðsetningar sérstaklega í
fyrri hluta og framsögnin var
gloppótt hjá leikendum. En hvað
um það. Allir skemmtu sér.
Einkavæðing og
markaðskerfið
Erlendar baakur
Guðmundur Heiðar Frímannsson
David Howell: The New Capit-
alism, Center for Policy Studies,
1986.
Það mun flestum kunnugt að
brezka ríkisstjómin hefur á umliðn-
um árum ráðizt í umfangsmikla
einkavæðingu. Hún felst í sem allra
styztu máli í því að ríkið hefur selt
töluvert af eigum sínum til einkaað-
ila. Þetta hefur gerzt með margvís-
legum hætti. Þegar orðið
einkavæðing er notað er verið að
vísa til margbrotins fyrirbæris, sem
þó á þennan þátt sameiginlegan að
einstaklingar eignast hluti, sem
áður vom í eigu hins opinbera.
Ég held að ekki sé ofsagt að
einkavæðing sé áhrifamesta að-
gerð, sem ríkisstjórn Margaret
Thatcher hefur gripið til á vald-
atíma sínum sl. átta ár. Er þó af
mörgu að taka. Með einkavæðingu
hefur hún breytt pólitísku landslagi
í Bretlandi, ef svo má að orði kom-
ast.
Fyrsta atriðið, sem ber að nefna
í einkavæðingunni, er sala á íbúðum
í eigu bæjarfélaga. Annað atriði er
aukin kvöð á sveitarfélög að bjóða
út þjónustu sína. Þriðja atriðið er
sala á ríkisfyrirtækjum. Fyrr á ár-
inu vom flugvellimir seldir og nú
stendur yfir auglýsingaherferð á
hlutabréfum í BP, sem verður
stærsta sala á hlutabréfum, sem
nokkm sinni hefur farið fram. Cec-
il Parkinson, núverandi orkumála-
ráðherra, er þegar farinn að
undirbúa sölu á raforkufyrirtækjum
í landinu.
En hvers vegna er verið að fram-
kvæma einkavæðingu? Hvaða rök
hniga til þess að losa ríkið við eigur
sínar með þessum hætti? Þessu má
svara með ýmsum hætti. Það er
verið að þessu til að styrkja ríkis-
sjóð og draga úr lánsfjárþörf hans
og þar með úr þenslu á fjármála-
mörkuðum. Það væri hægt að segja
að fyrirtæki í einkaeigu séu að öllu
jöfnu betur rekin en fyrirtæki í
ríkiseign. En þótt þetta séu mikil-
vægar ástæður, sem eiga við ýmis
rök að styðjast, þá er þetta samt
ekki mikilvægast.
Denis Howell, höfundur þessa
bæklings, rekur hugmyndimar að
baki einkavæðingunni, hvemig þær
áttu undir högg að sælqa vegna
andsnúins almenningsálits og sér-
fræðinga. En smám saman náðu
þær fótfestu og í leiðtogatíð Thatc-
her hafa þær orðið mikilvægur liður
í efnahagsstefnu stjómvalda. How-
ell starfaði að stefnumótun fyrir
íhaldsflokkinn á valdaárum Heath
og Thatcher og hefur verið áhrifa-
mikill talsmaður einkavæðingar.
Mikilvægustu rökin fyrir einka-
væðingunni að mati Howell og
ýmissa annarra forystumanna
Ihaldsflokksins em þau að útbreidd
hlutafjáreign gefur almenningi kost
á því að hafa aðrar tekjur en ein-
vörðungu laun af vinnu sinni og
skapar honum þar með meira ör-
yggi. Ef fjármagnseign verður
almenn, eins og stjómvöld stefna
að leynt og ljóst, má líka búast við
auknum sveigjanleika á launamark-
aðinum.
Einkavæðingin er hluti af efna-
hagsstefnu stjómvalda. Stefna
ríkisins í Qármálum miðar að því
að halda verðbólgu niðri og skapa
almenn skilyrði til hagvaxtar. Én
stefnan í fjármálum ríkisins ein
saman skapar ekki hagvöxt. Einka-
væðingin og ýmsar aðgerðir aðrar
til að ýta undir það að einstaklingar
stofni fyrirtæki sjálfir, til að laða
fram fmmkvöðla og framkvæmda-
menn, hafa átt þátt í því að
hagvöxtur heur verið meiri í Bret-
landi en víðast annars staðar á
Vesturlöndum. Fjármálaráðherrann
spáir að hann verði um 3% á næsta
ári, sem yrði þá sjöunda árið í röð,
sem hagvöxtur yrði um 3%. Minni
fyrirtækjum hefiir fjölgað og ein-
staklingum, sem vinna hjá sjálfum
sér, hefur fjölgað vemlega. Jafnvel
í verst leiknu hlutum stórborganna
hefur tekizt að ýta undir smáfyrir-
tæki, þótt þar þurfi meira til.
Ef stjóminni tekst ætlunarverk
sitt að Ijármagnseign verði almenn,
þá má búast við að því fylgi breyt-
ingar á öðmm hlutum í stjóm-
málum. Aðalbreytingin yrði að
líkindum sú að verkaskipting ríkis
og einstáklinga, sem felst í því að
ríkið sér um viðamikið velferðar-
kerfi á meðan atvinnulífið stjómast
af hagnaðarvoninni einni, verði
önnur. Fjármagnseign skapar ör-
yggi og ábyrgð. Hver einstaklingur
mun að líkindum bera meiri ábyi’gð
á eigin velferð en verið hefur og
velferð annarra honum nákominna.
Þessi breyting er óhjákvæmilegur
fylgifiskur þess að æ færri em fé-
lagsbundnir í verkalýðsfélögum og
verða sjáifir að bera ábyrgð á að
tryggja sig gegn áföllum. Upplýs-
ingaiðnaðurinn, sem í nánustu
framtíð mun hafa víðtækari breyt-
ingar en nokkum óraði fyrir, ýtir
undir þessar breytingar, því að hann
gerir mögulega einstaklingsbundna
vinnu í mun ríkara mæli en áður.
Aukin einkaeign húsnæðis og út-
breiddari eign á hlutabréfum skapa
ömggara og ábyrgðarmeira sam-
félag, því svo undarlega sem það
kann að hljóma, þá er einkaeign
ágæt leið til að efla samfélags-
kennd.
Einkavæðing er raunvemleg
valddreifing og framkvæmd eins
og hún er hér í Bretlandi, gefur hún
almenningi kost á að njóta þess að
láta fjármagn vinna fyrir sig að
hluta. En það krefst þess að þróað-
ur fjármálamarkaður sé fyrir hendi.
Rúna Gísladóttir
sýnir á Kjarvalsstöðum
RÚNA Gísladóttir opnar einka-
sýningu á Kjarvalsstöðum
laugardaginn 7. nóvember kl.
14.00.
Þetta er fyrsta einkasýning
Rúnu, en hún hefur tekið þátt í
nokkmm samsýningum á undan-
fömum ámm, m.a. FÍM sýningum
árin 1981 og 1983, Reykjavík í
myndlist sumarið 1986 á Kjarvals-
stöðum og kirkjulistasýningu á
Kjarvalsstöðum um páska 1983.
Rúna Gísiadóttir er fædd í Kaup-
mannahöfn 3. september 1940. Hún
lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla
íslands 1962 og stundaði almenna
kennslu í Reykjavík og á Vatns-
leysuströnd um tíu ára skeið. Hún
nam síðan málun og myndvefnað í
Noregi og var við nám í Myndlista-
og handíðaskóla íslands á ámnum
1978 til 1982 þaðan sem hún út-
skrifaðist úr málaradeild.
Rúna starfar nú sem listmálari á
vinnustofu á Selbraut 11 á Seltjam-
amesi þar sem hún stundar einnig
myndlistarkennslu.
Á sýningu Rúnu á Kjarvalsstöð-
um verða málverk og collage-
myndir sem hún hefur unnið á
undanfömum ámm.
Sýningin stendur til 22. nóvem-
ber og er opin daglega kl. 14.00-
22.00.
HANDVERKFÆRI
alls konar
SKIPTILYKLAR
RÖRTENGUR
TENGUR
FJÖLBREYTT ÚRVAL
SKRÚFÞVINGUR
KLEMMUR
KLEMMUÞVINGUR
HORNAÞVINGUR
ÞJALIR
TRÉSPAÐAR
MIKIÐ ÚRVAL
MÚRARAVERKFÆRI
MÁLBÖND
alls konar
•
KÓKÓS DYRAMOTTUR
margar stærðir
•
STAMUR NETDÚKUR
Á SKIPSBORÐ KOMIN
AFTUR
Rúna Gísladóttir við eitt af verkum sínum.
STILL-LONGS
ULLARNÆRFÖT
NÆLONSTYRKT
DÖKKBLÁ FYRIR
BÖRN OG FULLORÐNA
NÆRFÖT ÚR KANÍNU-
ULL
SOKKAR MEÐ
TVÖFÖLDUM BOTNI
ULLARLEISTAR
•
LOÐFÓÐRAÐIR
SAMFESTINGAR
KAPPKLÆÐNAÐUR
ULLARPEYSUR
SKYRTUR
KLOSSAR
ÖRYGGISSKÓR
GÚMMÍSTÍGVÉL
•
KLUKKUR
LOFTVOGIR
ÁTTAVITAR
SJÓNAUKAR
ÁLPOKAR
MERKJABYSSUR
VASAUÓSOG LUKTIR
SKIPASKOÐUNAR-
VÖRUR
njuMtn
Ánanaustum
Grandagarði 2
Opið laugardag 9—12
Sími28855