Morgunblaðið - 05.11.1987, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1987
Mataræði og hjartasjúkdómar:
Nýjar rannsóknir j ákvæð-
ar fyrir mjólkuriðnaðinn
eftir Jeanne Soehlen
Grein sú sem hér birtist er
eftir Jeanne Soehlen, sem starfar
við matvæla- og næringafræði-
deild háskólans í Ohio i Banda-
ríkjunum. Hún er lauslega þýdd
af Olafi Sigurðssyni, matvæla-
fræðingi, sem ritar jafnframt
nokkur lokaorð.
Mjólkuriðnaðurinn hefur oft mátt
þola óverðskuldaðar árásir af hönd-
um þeirra sem telja að minnka eigi
neyslu matvæla sem innihalda
mettaða fitu og kólestról eða snið-
ganga þau með öllu. Ýmis samtök
og stofnanir erlendis eins og t.d.
Bandaríska heilsufarsstofnunin
NIH (National Institute of Health)
og samtök um hjartavemd AHA
(American Heart Association) hafa
gefið út manneldismarkmið fyrir
Bandaríkjamenn. Þetta eru eins-
konar leiðbeiningar um „hollt
mataræði" (prudent diet) sem geng-
ur m.a. út á að fítuneysla eigi ekki
að nema meir en 30% af daglegri
orkuþörf. Þar af ætti mettuð fita
ekki að vera meir en 10%.
Vegna þess íjölda sem deyr úr
hjarta- og æðasjúkdómum, hefur
þótt ríða á að finna orsök þeirra
og leiðir til lækninga. Þessar kröfur
um auknar rannsóknir ogjafnframt
niðurstöður, hafa leitt til útbreidds
misskilnings af ýmsu tagi og valdið
miklum deilum meðal fræðimanna.
Hvað er rétt og
hvað er rangt?
Mjög erfitt er að komast að nið-
urstöðu hvað varðar rétt mataræði
og kólestrólmagn. Hægt er að lesa
heilu ritsöfnin um þessi mál án
þess að fá skýr svör um hvað sé
rétt mataræði og hollt eða hvað
muni minnka líkur á hjarta- og
æðasjúkdómum. Margir þættir virð-
ast hafa áhrif þar á og jafnframt
hvor á annan.
Manneldismarkmið þeirra sem
fylgt hafa svonefndri fitukenningu
eru einungis leiðbeiningar en ekki
trygging fyrir betra og lengra lífi.
Þessar leiðbeiningar eru líklega það
besta sem stofnanir, sem sinna
næringarráðgjöf, geta gert fyrir
áhyggjufullan almenning. Þó hafa
þessar stofnanir og fylgjendur fitu-
kenningarinnar gefíð ráðleggingar
sem ætlaðar eru öllum almenningi
þrátt fyrir að þær geti aðeins gagn-
að hluta hans.
Jafnvel Nóbelsverðlaunahafamir
í læknisfræðum 1985 benda á að
þótt hátt kólestrólinnihald í fæðu
geti haft á hrif á hjarta- og æða-
sjúkdóma eru til einstaklingar sem
æðakölkun mýndast ekki hjá, þrátt
fyrir mikla fítuneyslu og hátt hlut-
fall neikvæðs blóðkólestróls (LDL).
Vegna þess hve enn er mikið
óvitað í rannsóknum á hjarta- og
æðasjúkdómum erí raun verið að
afvegaleiða almenning þegar lögð
er áhersla á að takmarka neyslu
ýmissa matvæla (t.d. smjör, mjólk
og kjöt jórturdýra o.fl.). Ymsir trúa
því að breyting á fituneyslu muni
gefa þeim heilbrigðara hjarta. Al-
menningur verður að gera sér ljóst,
að ýmsir aðrir þættir hafa mikil
áhrif þar á t.d. háþiýstingur, hreyf-
ingarleysi, offita og einnig þættir
sem ekki verður við ráðið eins og
aldur, kyn og erfðaþættir.
Niðurstöður rannsókna
koma á óvart
Rannsóknir á mikilvægi fítusýru-
hormóna og sérstaklega á fjöló-
mettuðum fítusýrum úr fiskfítu
hafa einnig sýnt fram á nýja og
mikilvæga áhrifaþætti. Niðurstöður
rannsókna á neyslu Omega-3 fitu-
sýra úr fiskmeti eða lýsi hafa sýnt
fram á verulega lækkun blóðfitu.
Fræg er niðurstaða hollenskra
vísindamanna sem sýndi fram á
50% lægri dánartíðni vegna hjarta-
og æðasjúkdóma hjá þeim sem
neyttu a.m.k. 30 gramma af fiski
að meðaltali á dag samanborið við
þá sem borðuðu engan fisk. Rann-
sókn þessi stóð yfir í 20 ár og tóku
850 manns þátt í henni.
Dr. B.E. Phillipson sem starfar
í Portland-háskólanum í Oregon í
Bandaríkjunum rannsakaði áhrif
fiskfitu á sjúklinga með of hátt
blóðkólestról (hypercholesterol-
emia). Fiskfitan lækkaði blóðkólest-
ról um 27% og blóðfitu (þríglys-
eríða) um 64%. Einnig voru
rannsakaðir sjúklingar með of háa
blóðfitu (hypertriglyceridemia),
sem er erfðagalli og lýsir sér í því
að blóðfítumagn er um fimmfalt
meir en eðlilegt getur talist. í þess-
um sjúklingum lækkaði fita og
kólestról marktækt við neyslu físk-
fitu.
En þegar fískfítu var skipt út
fyrir fjölómettaða plöntuolíu, hækk-
aði blóðfita aftur þar til uppruna-
lega gildi var náð, eða eins og það
var fyrir neyslu fiskfitunnar. Lækk-
un blóðfitu á sér einnig stað hjá
heilbrigðum einstaklingum sem
neyta fiskfitu ef þeir hafa ekki gert
það áður.
Þó að rannsóknir sem þessar
sýni ekki fram á hvað nákvæmlega
er að gerast í líkamanum við neyslu
Omega-3 fítusýra úr fiskfitu eða
Omega-6 fitusýra úr plöntuolíum,
þá sýna niðurstöðumar framá
hversu takmörkuð núverandi þekk-
„Því telur greinar-
höfundur að þeir ein-
staklingar sem mælast
með of hátt blóðkólest-
ról ættu einir að þurfa
að breyta um fæðuvenj-
ur og leita læknisað-
stoðar. Einnig' ítrekar
greinarhöfundur þær
skoðanir ýmissa fræði-
manna að það sé ekki
rétt að gefa út mann-
eldisleiðbeiningar sem
ætlaðar eru öllum al-
menningi. Slíkt gæti
haft aðrar og alvarlegri
afleiðingar en til var
ætlast.“
ing fræðimanna er á þessum
málum, eins og þeir reyndar segja
frá sjálfir. Samt er það nú svo að
manneldismarkmið eru byggð á
þessari takmörkuðu vitneskju.
Manneldismarkmiðum
mótmælt!
Ýmsir fræðimenn hafa því lagt
áherslu á einstaklingsbundna með-
ferð, þ.e. að hver og einn geri sér
grein fyrir áhættuþáttunum og
bregðist við þeim á viðeigandi hátt.
Leiðbeiningar um „rétt mataræði"
eru sjálfsagt fullstrangar fyrir
suma, en aðrir þurfa jafnvel strang-
ari kúr.
Dr. Robert E. Olson sem starfar
í háskólanum í New York hefur
lagt til að einstaklingar sem gætu
verið með ættgenga hjarta- og
æðasjúkdóma láti fylgjast með sér
reglulega. Olson hefur mótmælt
Ieiðbeiningum Bandarísku heilsu-
farsstofiiunarinnar NIH þar sem
segir að allir Bandaríkjamenn yfir
tveggja ára aldri ættu að neyta fítu-
minna fæðis til að fyrirbyggja
hjarta- og æðasjúkdóma. Þessar
leiðbeiningar eru óháðar aldri, kyni
eða öðrum áhættuþáttum einstakl-
inganna sem eiga að fylgja þeim
eftir.
Olson hefur sagt að þessháttar
leiðbeiningar fyrir böm séu ekki við
hæfi. Manneldismarkmið eða „rétt
mataræði" fyrir heilbrigð böm var
ráðlagt af bandarískum samtökum
um hjartavemd (AHA) 1983. Þessu
var harðlega mótmælt af samtökum
Bandarískra bamalækna (The Am-
erican Academy of Pediatrics) á
þeirri forsendu að mataræði sem
★ TETíTÐ SJAETi'EJAIÍ GA ★
Útsölustaöir um land allt:
Bensín- og olíustööin, Stykkishólmi. Póllinn hf., ísafirói. Straumrás sf., Akureyri. Bensinstööin
v/Tjarnargötu, Siglufiröi. Raftækjaverslun Gríms og Árna, Húsavik. Ellingsen, Reykjavík. Shollskál-
inn, Hverageröi. Olíufélagiö Skeljungur, Sauöárkróki. Olíufélagiö Skeljungur, Eskifiröi. Rafbúö
Jónasar Þórs, Patreksfiröi. Vólsmiöja Hornarfjaröar, Höfn. Verslun Haralds Jóhar.nssen, Seyöis-
firöi. Kaupfélag Vopnfirðinga, Vopnafirði. Kaupfélag Skaftfellinga, Vík. Kjami sf, Vestmannaeyjum.
Olíuverslun íslands, Selfossi. Kaupfólag Húnvetninga, Blönduósi. Oliufélagiö Skeljungur, Borgar-
nesi. Bílaverkstæöi Dalvíkur, Dalvík. Olíufólagiö Skeljungur, Egilsstööum. Rafmagnsverkstæöi
Björns Jónssonar, Djúpavogi. Kaupfélagiö Fram, Neskaupstaö.
Það hefur hent okkur flest að gleyma
Ijósum á bílnum og öll þekkjum við
óþægindin sem það getur valdið, sér
í lagi ef langt er í næsta síma og ef
veður er slæmt.
Með D-BOOSTER neyðarhleðslu-
tæki er rafgeymirinn hlaðinn upþ
innan úr bifreiðinni, gegnum vindl-
ingakveikjarann, á 10-15 mínútum. A
meðan slappar þú af inni í bifreiðinni
í skjóli fyrir veðri og vindum vitandi
að bifreiðin fer í gang eftir að
D-BOOSTER hefur lokið hleðslunni.
Eigum einnig loftdælu með inn-
byggðri lugt. Dælir lofti í bíldekk,
gúmmíbáta, bolta, vindsængur
o.m.fl.
S? /7 / /7 Borgartúni 27,
s. 91-621980.
væri snautt af hitaeinungum, mett-
aðri fitu, kólestróli og salti, hefði
ekki fengpð neina staðfestingu um
að vera öruggt mataræði fyrir böm.
Úr öskunni í eldinn
Að auki yrði að taka tillit til þess
sem mundi koma í staðinn fyrir
mjólkurvörur ef þeim væri sleppt
úr daglegu mataræði. Það má ekki
gleymast að mjólkurvörur eru mjög
góð uppspretta kalks, steinefna og
ýmsa vítamína. Það gæti verið að
valda ennþá verri sjúkdómum hjá
bömunum en stóð til að forðast í
upphafi.
Dr. Olson hefur vitnað í grein
eftir Dr. E.H. Ahrens frá Rockefell-
er- háskólanum. Dr. Ahrens telur
að ýmsum spumingum varðandi
mataræði og hjarta- og æðasjúk-
dóma hafi ekki verið svarað. Hann
hefur einnig gert athugasemdir við
manneldismarkmið NIH nefndar-
innar. Hann telur að nefndin hafi
um of treyst á rannsóknir byggðar
á stómm hópum fólks (faraldurs-
fræði) og tekið um of tillit til
almenns heilsufars, heldur en að
horfa meir til sjúkdómseinkenna
einstaklingsins. Faraldursfræðileg-
ar rannsóknir hafa sýnt sterk tengsl
milli kólestrólsmagns og hjarta- og
æðasjúkdóma. Áframhaldandi
rannsóknir sýndu fram á að hægt
væri að breyta kólestrólmagni með
fituneyslu. Þetta leiddi til fitukenn-
ingarinnar sem tengir lækkun
hjarta- og æðasjúkdóma við lækkun
blóðkólestróls. Þessi fitukenning
hefur verið margprófuð í yfir 25
ár og aðeins ein rannsókn, þar sem
lyf vom notuð samhliða lækkaðri
fituneyslu, sýndi jákvæðar niður-
stöður.
Dr. Ahrens telur að nefndin
(NIH) noti óraunhæfar nálganir frá
áðumefndum rannsóknum sem
fitukenningin byggir á (þátttakend-
ur vom einungis karlmenn í
áhættuflokki) til að mjmda kenn-
ingar sem allur almenningur eigi
svo að fylgja eftir.
Hvar eiga mörkin
að liggja?
Nokkrar andstæðar skoðanir
komu fram vegna áðumefndra
manneldismarkmiða fyrir Banda-
ríkjamenn þegar þrjár lykilspum-
ingar vom lagðar fram:
1. Er hægt að lofa bandarískum
almenningi lækkun á tíðni
hjarta- og æðasjúkdóma ef
„rétta mataræðið" yrði almennt
tekið upp?
2. Er „rétta mataræðið" ömggt
fyrir alla eldri en tveggja ára?
3. Er „rétta mataræðið" besti kost-
urinn af mörgum sem sýnt hafa
fram á lækkun blóðkólestróls?
Svarið við fyrstu spumingunni
er nei. Svarið við annarri spuming-
unni er að óvíst er um öryggi þess
og svarið við þriðju spumingunni
er ekki vitað.
Meginandstaða Dr. Ahrens gegn
áliti nefndarinnar byggist á því að
manneldismarkmiðin væm ekki
byggð á því sem þekkt væri og það
sem væri óþekkt yrði þá að rann-
sakað nánar í framtíðinni. Með þvf
að lofa bata þegar slíkt væri órök-
stutt, væri nefndin að draga úr
vægi þess sem væri óþekkt og
þyrfti að rannsaka frekar.
Dr. Olson hefur einnig fjaliað um
þau hámörk blóðkólestróls sem
nefndin setti tilteknum aldurshóp-
um. Nefndin ákvað eftirfarandi
hámörk áður en viðkomandi kæmist
í áhættuhóp.
2-19 ára 170 mg/dl
20-29 ára 200 mg/dl
30—39 ára 220 mg/dl
eldri en 40 ára 240 mg/dl
Dr. Olson dró í efa þessi mörk.
Þijár rannsóknir vom framkvæmd-
ar til að meta áhættu vegna hjarta-
og æðasjúkdóma í tengslum við
blóðkólestrólmagn. Þær rannsóknir
sýndu að enginn munur væri á sjúk-
dómatíðni hjarta- og æðasjúkdóma
hjá einstaklingumm með bloðkól-
estról á bilinu 194—240 mg/dl.
Flestir ekki í
áhættuhóp
Það kom á óvart að þeir sem
höfðu lægra blóðkólestról en 194
mg/dl höfðu 18% hærri sjúkdóma-
tíðni en þeir sem væm í 194—240
mg/dl hópnum. Tíðni hjarta- og
æðasjúkdóma hækkaði ört einungis
hjá þeim sem vom með blóðkólest-
ról yfir 240 mg/dl.
Önnur rannsókn sem var fram-
kvæmd í Evrópu sýndi einnig fram
á að tengsl milli blóðkólestróls og
hjarta- og æðasjúkdóma væri ekki
fyrir hendi ef blóðkólestról væri
minna en 240—240 mg/dl. Hvemig
á svo að túlka þessar niðurstöður
fyrir almenning?
Dr. Olson heldur því fram að
þeir sem hafa lægra bóðkólestról
en 210 mg/dl (þ.e. 50% bandarískra
karlmanna, flestar konur undir fer-
tugu og næstum öll böm fyrir
kynþroskaaldur) séu ekki í áhættu-
flokki. Hann leggur einnig til að
hver og einn láti mæla í sér blóð-
kólestrólmagnið og fylgist þannig
með stöðu sinni og að það sé raun-
hæfara en að ætla að breyta
mataræði almennings með ijöldaað-
gerðum.
Því telur greinarhöfundur að þeir
einstaklingar sem mælast með of
hátt blóðkólestról ættu einir að
þurfa að breyta um fæðuvenjur og
leita læknisaðstoðar. Einnig ítrekar
greinarhöfundur þær skoðanir
ýmissa fræðimanna að það sé ekki
rétt að gefa út manneldisleiðbein-
ingar sem ætlaðar em öllum
almenningi. Slíkt gæti haft aðrar
og alvarlegri afleiðingar en til var
ætlast. Mælingar á blóðkólestról-
magni í einstaklingum er orðinn
vemleiki í dag og má telja þær
mælingar mun betri viðmiðun fyrir
einstaklinginn en meðaltalsgildi til-
tekinna þjóðfélagshópa. Þetta em
vissulega góðar fréttir fyrir mjólku-
riðnaðinn sem gæti auglýst vömr
sfnar til hinna fjölmörgu einstakl-
inga sem ekki em í áhættuhópnum,
og gætu því áhyggjulaust neytt
mjólkurvara af ýmsu tagi.
Lokaorö
Grein þessi er ein af fjölmörgum
sem skrifaðar em í erlend tímarit
um nýjar kenningar í fítuefnafræð-
um. Þessar greinar skýra frá
mismunandi viðhorfum fræði-
manna. Hér er því aðeins greint frá
einni hlið málsins. Hins vegar er
sameiginlegt mörgum þessara
greina gagnrýni á eldri viðhorf. Þá
má geta þess að lokum að umræðan
um jákvæð áhrif fiskfitu og lýsis
er mjög áberandi bæði í greinar-
skrifum og á vísindaráðstefnum um
næringar- og fituefnafræði. Fjallað
var um manneldisstefnu á íslandi
á ráðstefnu sem manneldisfélag
Islands hélt helgina 31/10—1/11.
Samband
íslenskra
bankamanna;
Pólitískri
ráðningu
bankastjóra
mótmælt
STJÓRN Sambands íslenkra
bankamanna mótmælir harðlega
að bankastjórar séu pólítfskt
ráðnir eftir ákvörðun stjóm-
málaflokka og tekur heilshugar
undir þá kröfu starfsmanna
Landsbanka íslands að banka-
stjórar verði skipaðir úr röðum
bankamanna.
Tillaga þessa efnis var samþykkt
einróma á fundi stjómar og vara-
stjómar sambandsins 29. október.
Tilefnið er umræður um eftirmann
Jónasar Haralz bankastjóra Lands-
bankans sem láta mun af störfjim
á næsta ári.