Morgunblaðið - 05.11.1987, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1987
Carlucci tekur við
starfí Weinbergers
Tel Aviv, Washington, Reuter.
RICHARD Armitage, aðstoðar-
varaarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, staðfesti í gær að
Ermarsundsgöngin:
198 bankar
veita fram-
kvæmdalán
London, Reuter.
FULLTRÚAR 198
þykktu f gser að
frönsku fyrirtæki,
banka sam-
veita ensk-
Eurotunnel,
Caspar Weinberger myndi láta
af starfi varnarmálaráðherra og
að Ronald Reagan, Bandaríkja-
forseti, myndi útnefna Frank
Carlucci, öryggisráðgjafa sinn,
sem eftirmann Weinbergers f
dag.
Armitage staðfesti afsögn Wein-
bergers á fundi með blaðamönnum
við lok tveggja daga heimsóknar
til ísraels. Hann sagði að kveðrjuat-
höfn og embættistaka Carlucci færi
fram í Hvíta húsinu í dag.
Armitage er fyrstur embættis-
manna til að staðfesta afsögn
Weinbergers. Eiginkona Weinber-
ger, Jane, hafði áður sagt að hann
væri að hætta. Hún sagðist hafa
átt við veikindi að stríða að undan-
fömu en mótmælti að afsögn hans
tengdist þeim. Weinberger hefði
lengi beðið eftir tækifæri til að
draga sig í hlé en það hefði ekki
gefist fyrr en nú. Vinir ráðherrans
hafa skýrt frá slæmu heilsufari
Jane, sem berst við krabbamein.
Að þeirra sögn eru veikindi hennar
og uppsöfnuð þreyta Weinbergers
eftir sjö ár í starfi ástæða afsagnar-
innar.
Búist er við að Colin Powell, þel-
dökkur hershöfðingi, verði skipaður
öryggisráðgjafi Reagans í stað
Carlucci.
Reuter
Caspar Weinberger (í miðið) og eiginkona hans, Jane, taka á móti
gestum í mótttöku, sem haldin var vegna fundar varnarmálaráð-
herra NATO-ríIqa f Monterey í Kalifomíu á þriðjudag.
fimm milljarða sterlingspunda lán
til þess að grafa göng og leggja
járnbraut undir Ermarsund. Það
skilyrði var þó sett fyrir lánveit-
ingunni að hlutafjárútboð fyrir-
tækisins takist vel.
Lánveitingin er ein sú mesta sem
um getur í sögunni, en lánið er jafn-
virði 325 milljarða íslenzkra króna.
Vegna þessa risaláns er nú líklegra
en nokkru sinni fyrr að ráðist verði
í að gera göng undir Ermarsund.
Bankamir settu það þó sem skilyrði
að Eurotunnel takist að selja hluta-
bréf að upphæð 750 milljónir punda
á almennum markaði. Útboð á þeim
fer fram seinni hluta nóvember en
vegna óróleikans á verðbréfamarkaði
um heim allan ríkir óvissa um eftir-
spumina.
Eurotunnel vonast til að jám-
brautargöng undir Ermarsundið
verði tilbúin árið 1993. Munu þau
liggja frá stað skammt frá Folke-
stone í Englandi að frönsku hafnar-
borginni Calais. Með göngunum
myndi lestarferð milli Lundúna og
Parísar styttast úr sjö klukkustund-
um í þijár.
Reagan Bandaríkjaforseti um afvopnunarsáttmálann í sjónvarpsræðu:
Mun styrkja tengsl Bandaríkj-
anna og Evrópu — ekki veikja
Lét í ljós ósk um að þeir Gorbachev gætu hafið niðurrif Berlínarmúrsins
RONALD Reagan, Bandaríkjaforseti, sagði i gær að væntanlegur
afvopnunarsáttmáli risaveldanna um upprætingu skamm- og meðal-
drægra flauga myndi frekar styrkja tengsl Bandarfkjanna og Evrópu
en veikja þau. í sjónvarpsræðunni, sem send var um gervihnött til
Evrópu, sagði Reagan bandamönnum sínum m.a.: „Ég vil fullvissa
ykkur um það, að hvaða sáttmála sem ég undirrita, verður hann
raunhæfur og öUum meðlimum bandalagsins til góða þegar fram í
sækir. Ella verður hann ekki undirritaður.“ í ræðunni vék Reagan
að fjölmörgum atriðum, sem eru mönnum ofarlega f huga vegna
væntanlegs leiðtogafundar í Washington hinn 7. desember næstkom-
andi.
Hann hóf mál sitt á því að benda
á undur tækninnar, sem gerðu
Fundur varnarmálaráðherra NATO:
Ekkí samið um bandarísk-
ar herstöðvar á Spáni
Montery í Kaliforníu, Reuter.
ÞEIR Caspar W. Weinberger og
Narcis Serra, varnarmálaráð-
herrar Bandaríkjanna og Spán-
ar, náðu ekki samkomulagi um
framtíð bandarfskra herstöðva á
Spáni, þegar þeir ræddu málið á
fundi Kjarnorkuáætlananefndar
NATO í Monterey f gær. Fundinn
sátu allir varnarmálaráðherrar
NATO. Spánveijar tilkynntu á
hinn bóginn að hvernig sem færi
myndu þeir segja gamla samn-
ingnum upp í næstu viku.
Helst deila Bandaríkjamenn og
Spánverjar um flugstöð nokkra
skammt frá höfuðborginni Madrid,
en þar eru 24 F-16 orrustuþotur.
Menn eru nú vondaufir um að samn-
ingar takist, fyrst ráðherrunum
varð ekkert ágengt, en í dag og á
morgun munu háttsettir embættis-
menn ríkjanna hitast í Madrid.
Spænskir embættismenn í
Madrid segja að í næstu viku yrði
núverandi samningi sagt upp með
sex mánaða fyrirvara, því verði
honum ekki sagt upp fyrir 14. nóv-
ember gildir hann í ár til. Astæðuna
fyrir uppsögninni segja Spánveijar
þá, að ljóst sé að gera þurfi nýjan
samning og að þá sé eins gott að
hafa ýtt hinum gamla út í ystu
myrkur.
áheyrendum sínum kleift að fylgj-
ast með honum handan hafsins í
sama mund og hann flutti ræðuna
í Washington, og sagði að fyrir til-
stilli tækninnar væri heimurinn
óðum að breytast í eitt órofa sam-
félag, eina fjölskyldu. Vonaðist
hann til þess að fyrir vikið yrði tor-
tryggni og óvild þjóða á milli minni.
Hann vék að hlutverki NATO.
„Fjórir áratugir friðar í Evrópu eru
engin tilviljun . . . Við höfum öll
þurft að leggja okkar til, annars
hefði það ekki gengið og það hefur
gengið . . . Friðarspillar þurfa ekki
að velkjast i neinum vafa um banda-
lagið, því skilaboðin eru stutt og
einföld: .Reyndu ekki einu sinni að
hugsa um það.‘“
Afvopnunarsáttmálinn
Hann beindi talinu að afvopnun-
arsáttmálanum, sem til stendur að
undirrita í Washington að mánuði,
og benti á að Sovétmenn fjarlægðu
fjórum sinnum fleiri flaugar en
Bandaríkjamenn, til þess að gera
skamm- og meðaldrægar flaugar
Reagan Bandaríkjaforseti.
útlægar. „Afrek sem þetta er hvorki
afrakstur óskhyggju né háværra
yfirlýsinga um friðarvilja. Raun-
verulegar framfarir má rekja til
yfirvegaðs raunsæis, samningsvilja
og þess að hvika ekki frá grundvall-
arstefnu." Fullvissaði hann síðan
bandamenn sína um að hann myndi
aldrei undirrita samning, sem ekki
væri öllum bandalagsríkjum NATO
til góða.
Þá vék Reagan að umræðu um
breytingar í Sovétríkjunum og
sagðist vona að slíkt tal ætti við
rök að styðjast. Hann sagði það þó
horskra manna hátt að bíða þess
að sjá áþreifanlegar breytingar.
Sagðist Reagan t.a.m.. munu fylgj-
ast grannt með mannréttindamál-
um þar eystra. „Það er erfítt að
ímynda sér að ríkisstjóm, sem brýt-
ur frelsi á bak aftur í eigin landi
og rýfur trúnað við þegna sína, sé
treystandi til þess að halda loforð
við aðra.“ '
Afganistan og
Austur-Evrópa
Reagan sagði ennfremur að
Bandaríkjastjóm vonaðist eftir
breytingum í utanríkisstefnu Sov-
étríkjanna. „Hemám Sovétrílqanna
í Afganistan er orðið eitt allsheijar
kviksyndi. Afganir hafa sýnt að
þeir eru allra þjóða hugrakkastar."
Hann beindi talinu að Austur-
Evrópu. „Hví skyldu þjóðir Evrópu
vera aðskildar mep gaddavír, varð-
tumum og vélbyssum? Hví skyldu
ekki allir Evrópubúar hafa frelsi til
þess að ferðast, heimsækja hveijar
aðra eða eiga viðskipti saman? Er
ekki tími til kominn að gefa Brez-
hnev-kenninguna loksins upp á
bátinn? Af hveiju skyldu 17 milljón-
ir Þjóðveija enn vera sem fangar í
eigin landi, fjórum áratugum eftir
styijaldarlok?" Hann nefndi Berlín-
armúrinn og sagði hann ör á
meginlandi Evrópu. „Væri það ekki
fagnaðarefni ef Gorbachev, aðalrit-
ari, og ég gætum einn góðan
veðurdag hist í Berlín og tekið nið-
ur fyrstu múrsteina Berlínarmúrs-
ins? — og við gætum haldið áfram
að rífa niður múra þar til vantraust-
ið milli þjóða okkar er horfíð og
gömul sár gróin.“
Evrópa og- Banda-
ríkinjafningjar
Gjaldeyrís- og verðbréfamarkaðir;
Beðið eftir aðgerðum
Bandarikjasljórnar
London, New York, Washington, Reuter.
GENGI dollarans hækkaði dálítið
f gær en hlutabréf lækkuðu í
verði á verðbréfamörkuðum um
allan heim. Breskir bankar lækk-
uðu almenna vexti um hálft
prósentustig og er þess nú beðið,
að bankar i Vestur-Þýskalandi
fari að dæmi þeirra.
Seðlabankar í Japan og Vestur-
Þýskalandi keyptu mikið af doll-
urum og varð það með öðru til að
gengið hækkaði aðeins. Hlutabréf
halda hins vegar áfram að falla í
verði og segja verðbréfasalar, að
áhyggjur manna af fjárlaga- og
viðskiptahallanum f Bandaríkjunum
og veikum dollara séu að bijótast
upp á yfírborðið á nýjan leik. Fjár-
festendum finnst ekki lengur taka
því að kaupa dollara eða hlutabréf
fyrr en Bandaríkjastjóm veit hvað
hún ætlar að gera og þjóðir, sem
hafa mikinn viðskiptaafgang, t.d.
Vestur-Þjóðveijar, hafa gert eitt-
hvað til að örva efnahagslífíð.
Bankar í Bretlandi lækkuðu í gær
almenna vexti um hálft prósent, í
9%, og fóru í því að dæmi Hollend-
inga fyrir nokkrum dögum. Er þess
beðið með nokkurri óþreyju, að
Vestur-Þjóðveijar geri slíkt hið
sama. Hagfræðingar segja, að til-
hneigingin til að hækka vexti og
gera þar með atvinnulífínu erfíðara
fyrir hafi m.a. átt þátt í, að verð-
hrunið í Wall Street árið 1929
breyttist í kreppu.
Fall dollarans gagnvart
þýska markinu
Gengi dollars gagnvart v-þýsku marki eftir verðhrunið
19. október síðastliðinn
1,82
1,80
1,78
1,76
1,74
1,72
1,70
Október Nóv.
y.
./ m
./
y
y
./
./ —
19 20 21 22 23 26 27 28 29 30 2 3
Reagan ræddi ótta, sem vart
hefur orðið við í Evrópu, þess efhis
að með væntanlegum afvopnunar-
sáttmála myndi bilið milli Banda-
ríkjanna og Evrópu breikka. Vísaði
hann honum á bug og sagði tengsl-
in ekki myndu rofna. „Tengslin
munu styrkjast, ekki veikjast, takist
samningar. Slík söguleg fækkun
kjamorkuvopna myndu myndi
glögglega sýna einingu, styrk og
eindrægni bandalagsins."
Hann vék að fundi og ályktun
Vestur-Evrópubandalagsins og
sagði hana staðfesta mikilvægi
Vestur-Evrópu innan NATO. „Und-
anfama fjóra áratugi hefur tíðkast
að líta á Bandaríkin sem helsta
aðildarríki bandalagsins. Nú þegar
efnahagsstyrkur Vestur-Evrópu og
Bandaríkjanna er fyllilega sam-
bærilegur, er löngu kominn tími til
þess að við lítum á okkur sem jafn-
ingja. Samskipti jafningja ætti ekki
að verða til þess að þau minnki,
heldur styrlq'a þau.“
Heimildir: USIS, Worldnet og
Reuters.