Morgunblaðið - 05.11.1987, Page 72

Morgunblaðið - 05.11.1987, Page 72
72 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1987 .4- * Slgurjón Krlstjánsson Siguijón tii Keflavíkur? Miklar líkur eru á því að Siguijón Kristjáiisson, miðvallarspilarinn sterki úr Val, sé á fðrum til Keflavíkur. „Eg er að hugsa málin. Hef mikinn áhuga á að leika aftur við hlið- ina á Ragnari Margeirssyni. Við náðum mjög vel saman með Keflavíkurliðinu fyrir tveimur árum. Þá vorum við miklir mát- ar utan vallar," sagði Siguijón í gærkvöldi. „Eg mun þó ekki taka ákvörðun hvað ég geri fyrr en um ára- mót. Eg hef kunnað mjög vel við mig hjá Val þau tvö ár sem ég hef verið hjá félaginu. • » «---- Farrell áfram í Keflavík Enski knattspymumaðurinn Peter Farrell verður áfram f herbúðum Keflvíkinga næsta keppnistímabil. Farrel) kunni vel við sig í Keflavík í sumar. Aðalfundur knatf- spymudeildar Breiðabliks Aðalfundur knattspymu- deildar Breiðabliks verður haldinn í kvöld, fímmtudags- kvöld, kl. 20.30, í Alþýðuflokks- heimilinu, Hamraborg 14 A. KNATTSPYRNA / MALTA Óskabyijun hjá Guðmundi með Hibs - skoraði á fyrstu mínútu ífyrsta leiknum Guðmundur Baidursson fyrr- um í Breiðabliki og Fylki, er nú kominn í eldlínuna í 1. deildinni á Möltu á nýjan leik, að þessu sinni með Hibernians og hann gerði sér lítið fyrir og skoraði á fyrstu mínútu fyrsta leiks sfns og það var jafn framt fyrsti sig- urleikur Hibs á keppnistímabil- inu, óskabyrjunin sem Guðmundurfærði liðinu fleytti þvítil 2-1 sigurs gegn Zurrieg, sem aftur tapaði þar með sfnum fyrsta leik. Guðmundur skoraði að sögn blaðsins The Times með sér- lega smekklegu einstaklingsfram- taki, hann náði knettinum eftir aukaspymu og náði að snúa sér við og skora glæsilega úr þröngu færi. Þetta var þriðja umferðin í deildar- keppninni á Möltu og Hibs hafði tapað tveimur fyrstu leikjunum án þess að skora mark. Markið hleypti nýju blóði í leikmenn Hibs sem voru betri aðilinn það sem eftir lifði leiks og sigurinn var því sanngjam. Framheijar Zurrieg áttu þó sín augnablik og er einn þeirra hafði betur gegn markverði Hibs rétt fyrir leikhlé, þá var það enginn annar en Guðmundur Baldursson sem var mættur á réttum stað á réttu augnabliki til að bjarga á marklínu. í Möltublaðinu The Times er farið lofsamlegum orðum um Guðmund og sagt að koma hans til Hibs kunni að breyta hlutum til betri vegar fyrir liðið, „hann skap- aði mikla ólgu í vöm Zurrieg," segir orðrétt í blaðinu. Þess má geta, að þijú síðustu árin hefur Guðmundur leikið hvíldar- Iaust knattspymu, á summm á Fróni með Breiðabliki og á vetmm á Möltu, tvo vetur með Senglea, nú með Hibs eins og fram hefur komið. GuAmundur Baldursson KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA / EVRóPUKEPPNI LANDSLIÐA Strachan, Miller og Johnstone ekki með Skotum ANDY Roxborough, landsliðs- þjálfari Skota í knattspyrnu hefur tilkynnt landsliðshópinn sinn sem mætir Búlgaríu 11. nóvember f Evrópukeppni landsliða. Mesta athygli vakti, að Roxborugh valdi ekki þá Willie Miller frá Aberdeen, Gordon Strachan frá Manc- hester Utd og Mo Johnstone frá Nantes. Um þá tvo fyrr- nefndu sagði Roxborough, að hann vildi gefa yngri mönnum tækifæri. Aftur átti Johnstone erfitt með að fá sig lausan frá hinu franska félagi sínu þar sem allir framherjar þess að honum undanskildum eru á sjúkralista. Það er ekki óeðli- legt að þjálfarinn noti leikinn til að gefa nýjum mönnum tækifæri, Skotar eiga enga sig- urvon í riðlinum, aftur dugar Búlgörum jafntefli til að vinna riðilinn. Roxboragh valdi annars eftir- talda leikmenn til leiksins: Markverðir: Jim Leighton. Aberdeen og Henry Smith, Hearts. Varnarmenn: Steve Clarke, Chelsea, Derek Whyte, Celtic, Steve Nicol, Liverpool, Morris Malpas, Dundee Utd, Alex McLeish, Aberdeen, Gary Gillespie, Liverpool og Richard Gough, Rangers. Miðvallarleikmenn: Roy Aitken, Celtic, Jim Bett, Aberdeen, Brian Durrant, Rangers, Paul McStay, Celtic, Ian Wilson, Everton. Framheijar: Ally McCoist, Ran- gers, Brian McClair, Man. Utd, Graeme Sharp, Everton, Gordon Durie og Pat Nevin frá Chelsea. Landsliðshópur Wales Þá hefur Mike England, þjálfari Wales, valið hópinn sem hann ætlar með til Prag fyrir leikinn gegn Tékkum þann ellefta. Sá leikur er í ö.riðli. Vinni Wales óvæntan sigur McColst er í landsllAshóp Skota. í Prag, þá blasir sigur í riðlinum við. England valdi eftirtalda leik- menn: Markverðir: Neville Southall, Everton, Eddie Niedzwiecki, Chelsea. Varnarmenn: Neil Slatt- er, Oxford, Clayton Blackmore, Man. Utd, Kevin Ratcliffe, Everton, Pat Van Der Howe, Everton. Miðvallarleikmenn: Gereint Will- iams, Derby, Dave Phillips, Co- ventry, Peter Nicholas, Aberdeen, Barry Home, Portsmouth, Dave Williams, Norwich. Framheijar: Andy Jones, Charl- ton, Glyn Hodges, Watford, Ian Rush, Juventus, Mark Hughes, Barcelona og Kenny Jackett Wat- ford. Þrír aftur uppá Skaga „ÞAÐ er blóðtaka fyrir okkur ef bæði Sveinbjörn Hákon- arson og Olafur Þórðarson fara frá okkur. Þeir hafa verið lykilmenn í Skagalið- inu undanfarin ár,u sagði Sigurður Lárusson, þjálfari Skagamanna. „Það þýðir ekkert að örvænta. Við höf- um fengið þrjá leikmenn aftur." Sigurður Már Harðarson, sem lék með KA sl. sumar og Gunnar Jónsson, sem lék með Skallagn'mi, hafa snúið aftur í herbúðir Skagamanna. Einnig Smári Guðjónsson, sem hefur verið við nám í Danmörku und- anfarin ár. Sigurður Lámsson, sem hefur hug á að leika áfram með Skagaliðinu, hefur fengið góðan aðstoðarmann. Hörður Jóhann- esson, fyrmm leikmaður Skagaliðsins, verður hægri hönd Sigurðar. KEILA / REYKJAVÍKURMÓTIÐ 1987 Halldór og Asdís meistarar HALLDÓR Sigurðsson og Ásdís Steingrímsdóttir urðu Reykjavíkurmeistarar í keilu. Keppt var í karla- og kvenna- flokki og tóku 73 keppendur þátt. Ikarlaflokki kepptu 60 og 13 í kvennaflokki. Fyrst vom leiknir 9 leikir í undankeppni. Tíu efstu í hvomm flokki komust í milliriðil. í milliriðli var nýtt fyrirkomulag þar sem allir kepptu við alla. Þá vom gefln 20 aukastig fyrir að vinna leik og 5 aukastig fyrir leiki sem vom yflr 200. í lok mótsins afhenti Sveinn Bjömsson forseti ÍSÍ verð- launin ásamt Sigríði Guðlaugsdótt- _ ur fegurðarmær. í undankeppninni urðu úrslit eftirfarandi: Karlaflokkur: stig: Sigurður V. Sverriss. 1724 Alois Raschhofer 1694 Halldór R. Halldórss. 1620 Vaigeir Guðbjartsson 1600 Halldór Sigurðsson 1585 Bjöm Baldursson 1582 DavíðLöve 1579 Hjálmtýr Ingason 1579 Gunnlaugur Gunnlaugss. 1569 Höskuldur Höskuldss. 1568 Kvennaflokkur: stig: Dóra Sigurðardóttir 1480 Sólveig Guðmundsdóttir 1465 Ásdís Steingrímsdóttir 1457 Heiðrún Þorbjömsdóttir 1437 Elín Óskarsdóttir 1420 Þorbjörg Hafsteinsdóttir 1383 Björg Hafsteinsdóttir 1301 Hrafnhildur Ólafsdóttir 1297 Ragna Matthíasdóttir 1294 Bima Þórðardóttir 1286 Fimm efstu í milliriðlum: stig: Halldór Sigurðsson 1897 Halldór R. Halldórsson 1877 Alois Raschhofer 1816 Davíð Löve 1789 Sigurður V. Sverriss. 1771 Kvennaflokkur: 8tig: Ásdís Steingrímsdóttir 1744 Dóra Sigurðardóttir 1602 Sólveig Guðmundsdóttir 1537 Björg Hafsteinsdóttir 1523 Heiðrún Þorbjömsdóttir 1460 Úrslit í kvennaflokki: 1. leikur: Heiðrún Þorbjömsdóttir 160 Björg Hafsteinsdóttir 144 2. leikur: Heiðrún Þorbjömsdóttir 142 Sólveig Guðmundsdóttir 134 3. leikur: Heiðrún Þorbjömsdóttir 184 Dóra Sigurðardóttir 138 Úrslit: Heiðrún Þorbjömsdóttir 116 Ásdís Steingrímsdóttir 192 Úrslit í karlaflokki: 1. leikur: Sigurður V. Sverrisson 162 DavíðLöve 186 2. leikur: DavíðLöve 187 Alois Raschhofer 179 3. leikur: Davíð Löve 182 Halldór R. Halldórsson 202 Úrslit: Halldór R. Halldórsson 168 Halldór Sigurðsson 182 Svelnn BjAmsson, forsotl ISI og SlgrlAur QuAlaugsdóttir, fogurA- ardrottnlng, sjást hér ésamt slgurvogurum. DavíA LSvo, Halldórl SlgurAssynl, Asdisl Stslngrfmsdóttur. Fromrl röA: Halldór R. Halldórsson, Dóra SlgurAardóttlr, HelArún Þorbjörnsdóttlr og Valgelr Quðbjartsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.