Morgunblaðið - 14.11.1987, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1987
4
Leyniskýrslur Tangens í Lesbók Morgunblaðsins 1976:
Hvergi minnst á Stefán
Jóhann í gögnum Tangens
STEINGRÍMUR Hermannsson utanríkísráðherra upplýsti á frétta-
mannafundi í gær að svokölluð nýfundin bandarísk leynískjöl, sem
norski sagnfræðingurinn Dag Tangen hefur undir höndum, voru
að mestu ieyti birt í Lesbók Morgunblaðsins 24. mars 1976. Hvergi
í þessum skjölum er minnst á Stefán Jóhnann Stefánsson þáver-
andi forsætisráðherra, og segir í skýrslu íslenska sendiherrans í
Osló, sem hitti Tangen að máli á fimmtudag, að Tangen segist
hafa séð bréf í Truman safninu, að hann minnir, þar sem fram
komi að „Prime Minister SJS“ hafi verið „contaktmaður1* Banda-
ríkjanna á íslandi. Tangen segir að ekki hafi verið minnst á CIA
í því sambandi og vildi hafa alla fyrirvara á með hvers eðils bréf-
ið var og tók fram að ekki væri hægt að byggja á minni í þessu
sambandi.
Utanríkisráðherra lét dreifa á
fréttamannafundinum afriti af öll-
um skjölum sem Tangen hafði
varðandi ísland. Er þarna um að
ræða skjöl 40. fundar Þjóðarör-
yggisráðsins frá 29. júlí 1949,
Memorandum on Iceland, og ýmis
skjöl sem varða herstöðvar Banda-
ríkjanna á Grænlandi og íslandi.
Mest af þessum skjölum birtist í
Morgunblaðinu fyrir 11 árum og
utanríkisráðuneytið birti einnig 3.
maí 1976 íslenskar fundargerðir í
sambandi við för þriggja ráðherra
til Washington í marsmánuði 1949
í því skyni að kynna sér efni fyrir-
hugaðs Atlantshafssáttmála.
Steingrímur sagði á fundinum
að mjög óeðlilegt mál hefði verið
gert úr þessu og jafnvel gefíð í
skyn að hinir ágætustu menn, sem
hann væri sannfærður um að
hefðu ekkert haft í huga nema
hagsmuni íslands, hefðu haft
óeðlilegt samband við Bandaríkin.
Steingrímur sagði þó að hann
myndi biðja sendiráðið í Washing-
ton að afla viðbótargagna ef
einhver væru, því vafalaust yrðu
uppi einhveijar efasemdir þar til
annað sannaðist.
Steingrímur bætti við að frá
honum hefðu verið að fara bæði
bandaríski og sovéski sendiher-
rann sem áttu við hann ýmis
erindi. „Ætli ég sé þá ekki orðinn
„contaktmaður" þessara þjóða í
dag,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson.
VEÐURHORFUR í DAG, 14.11.87
YFIRUT á hádegl í gær: Yfir Norðaustur-Grænlandi er 1.016 mb
hæð en milli Færeyja og Noregs er minnkandi 975 mb lægð.
Skammt norðaustur af Nýfundnalandi er 970 mb lægð á hreyfingu
norðaustur.
SPÁ: Norðaustanátt, víða stinningskaldi á annesjum norðan og
austanlands í fyrstu, enn mun hægari í öðrum landshiutum. Aust-
an- og noröanlands verða skúrir, en slydduól vestanlands. Á
sunnanverðu landinu verður bjartviöri.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
SUNNUDAGUR og MÁNUDAGUR: Austanátt, líklega nokkuð hvöss
um sunnanvert landið, en hægari annars staðar. Rigning sunnan-
og austanlands en að mestu þurrt í öðrum landshlutum.
TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- ■j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus
Heiðskírt ▼ stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. • V * V Skúrir Él
'CÍÉl Léttskýjað / / / / / / / Rigning Þoka
Hálfskýjað / / / * / * Þokumóða Súld
/ * / * Slydda / * / OO 4 Mistur Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * R Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UMHEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavfk hm 1 1 vaóur akýjað léttakýjað
Bergen vantar
Helsinki 0 anjókoma
Jan Mayen 2 skýjað
Kaupmannah. 7 akýjað
Narssarssuaq +4 snjóðl
Nuuk +6 snjóél é 8. kls.
Osló 6 skúr
Stokkhólmur 6 hálfskýjað
Þórshöfn 8 akýjað
Algarve 18 léttskýjað
Amsterdam 8 akýjað
Aþena 20 léttskýjað
Barcelona 20 skýjað
Bertln 8 skýjað
Chicago 3 léttakýjað
Feneyjar 11 þokumóða
Frankfurt 10 akýjað
Glasgow 7 skúr
Hamborg 8 léttakýjað
LasPalmas 24 helðskfrt
London 7 mistur
LosAngeles 18 þokumóða
Lúxemborg 8 akýjaö
Madr/d 12 alskýjað
Malaga 22 lóttskýjað
Mallorca 20 léttskýjað
Montreal 2 alskýjað
NewYork vantar
Parfs 9 rlgn. á a. klst.
Róm vantar
Vín 8 akýjað
Washington +1 láttskýjað
Winnipeg +2 helðskfrt
Valencia 20 láttskýjað
Morgunblaðið/Bjami
Steingrímur Hermannsson utanrfkisráðherra hampar Lesbók Morg-
unblaðsins á fréttamannafundi í utanrikisráðuneytinu í gær.
Fær eina milljón í
hvatmngarverðlaun
Þrír brautryðjendur heiðraðir
DR. JAKOBI Kristjánssyni voru i gær veitt svonefnd hvatningarverð-
laun, sem nema einni milljón króna, fyrir rannsóknir i þágu atvinnu-
veganna. Verðlaunin voru veitt af Rannsóknarráði rikisins á
afmælisráðstefnu á Hótel Loftleiðum í tilefni af 50 ára afmæli Atvinnu-
deildar Háskólans. Þrír brautryðjendur í rannsóknum tengdum
atvinnuvegunum voru heiðraðir af sama tilefni; þeir Haraldur Ás-
geirsson, Jón Jónsson, og Þór Gu
Hvatningarverðlaunin voru veitt í
fyrsta sinn þetta ár, en þau eiga að
fara til efnilegs vísindamanns sem
sinnir rannsóknum í þágu atvinnu-
veganna, er ekki orðinn fertugur,
og hefur fengið birtar greinar eftir
sig í viðurkenndum tímaritum. Hug-
myndin er að veita verðlaunin árlega
á ársfundum Rannsóknaráðsins.
Jakob er fæddur árið 1952, lærði
líffræði við Háskóla íslands og fékk
doktorsgráðu í lífefnafræði við Bran-
deis-háskólann í Bandaríkjunum árið
1980. Hann vinnur nú á Iðntækni-
stofnun við rannsóknir á sviði
líftækni, einkum á ensímvirkni í
hverabakteríum, auk þess sem hann
er lektor í örverufræði við Háskóla
íslands.
Þeir þrír menn sem voru heiðrað-
ir fyrir brautryðjendastörf í þágu
rannsókna fyrir atvinnuvegina eru:
Haraldur Ásgeirsson, fyrrverandi
forstjóri Rannsóknarstofnunar
Byggingariðnaðarins og formaður
framkvæmdastjómar Rannsóknar-
ráðs, Jón Jónsson, fyrrverandi
forstjóri Hafrannsóknarstofnunar,
og Þór Guðjónsson, fyrrverandi
veiðimálastjóri. Bjöm Dagbjartsson,
formaður Rannsóknarráðs ríkisins
afhenti þeim viðurkenningargripi
sem eru „af íslensku bergi brotnir",
en það voru molar af íslensku gijóti
sem áletrun hafði verið greypt í.
Morgunblaflið/Þorkell
Björn Dagbjartsson afhendir Dr. Jakobi Kristjánssyni verðlaunin.
Sitjandi eru þeir þrir brautryðjendur á sviði atyinnurannsókna sem
voru heiðraðir (f.v.): Jón Jónsson, Haraldur Ásgeirsson, og Þór
Guðjónsson.
Fjöguira og þriggja
bifreiða árekstrar
EINN maður slasaðist injög al-
varlega í fjögurra bíla árekstri
á Reykjanesbraut f gærmorgun
og liggur þungt haldinn á gjör-
gæslu. Mikil hálka var á veginum
og á hún sinn þátt í hversu illa
fór. Skömmu síðar skullu þrir
bílar saman á brautinni.
Slysið varð um kl. 7.30, skammt
sunnan við álverið í Straumsvík.
Ökumaður bíls á leið til Reykjavíkur
ók fram úr bflnum á undan. Bfll
hans snerist þá á veginum vegna
hálku og skall framan á jeppa, sem
var ekið í suður. Ökumenn næstu
tveggja bfla á eftir þeim fyrsta, sem
voru fólksbíll og rúta, náðu ekki
að stöðva og skullu á hinum tveim-
ur. Ökumenn bílanna sem fyrst
lentu saman voru báðir fluttir í
slysadeild og er ökumaður jeppans
mjög alvarlega slasaður. Þá meidd-
ist ökumaður rútunnar einnig. Að
sögn lögreglu í Hafnarfirði var að-
koman að slysinu ákaflega ljót og
bflamir illa famir, þó sérstaklega
þeir tveir sem fyrst lentu saman.
Skömmu síðar varð annar árekst-
ur aðeins sunnar á Reykjanesbraut.
Þar var tveimur bflum á leið til
Reykjavíkur ekið aftan á þann
þriðja. Engin meiðsli urðu á mönn-
um.