Morgunblaðið - 14.11.1987, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1987
ANNA MARGRÉT ÞRIÐJA í KEPPNINNI UNGFRÚ HEIMUR
Hissa og
glöðþegar
úrslitin
lágu fyrir
segjaforeldrar
Onnu Margrétar
SPENNAN var dálítið mögnuð á
heimilinu þegar við horfðum á
úrslit keppninnar," sagöi Marín
Samúelsdóttir, móðir Önnu
Margrétar Jónsdóttur sem varð í
þriðja sæti keppninnar „Ungrú
heimur" á fimmtudagskvöldið, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Foreldrar Önnu Margrétar sögðu
að þau hefðu gert sér vonir um að
hún yrði ein þeirra 12 stúlkna sem
kæmust í undanúrslit. Jón Kristó-
fersson faðir hennar sagði að Anna
Margrét væri mikil keppnismann-
eskja og þetta hefði verið hennar
takmark.
Hún ber þetta vel
- segir Ami Harðarson, unnusti Ónnu Margrétar
„Það var nú farið að fara allhrikalega um mig, þegar kom í ljós að
Anna Margrét var stigahæst fyrir síðustu lotuna,“ sagði Arni Harðar-
son laganemi, unnusti Önnu Margrétar Jónsdóttur, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi. „En ég er auðvitað himinlifandi með úr-
slitin, þótt ég hafi nú kannski ekki átt von á þessu - hún ber þetta vel.“
„Við höfum ekki sést í 22 daga, vísu með hléum, að sögn Áma.
þannig að það er sjálfgefið að ég
er ánægður að fá hana heim,“ sagði
Ámi. „Maður verður væntanlega að
sætta sig við það að sjá minna af
henni á næstunni, þar sem það verð-
ur áreiðanlega mikið að gera hjá
henni. En það þýðir ekkert að kvarta
undan því.“
Ámi og Anna Margrét hafa verið
saman frá fimmtán ára aldri, að
„Við sáumst fyrst tólf ára, það var
kannski ekki ást við fyrstu sýn, frek-
ar svona smáskot."
„Ég á ekki von á að það verði
haldið upp á þetta af miklum krafti
í kvöld,“ sagði Ámi að lokum. „Hún
er þreytt eftir keppnina og svo búin
að þeytast milli sjónvarpsstöðva og
skemmtihúsa. Ætli kvöldið verði
ekki bara rólegt."
Morgunblaðið/Þorkell
Að loknu hófinu í Broadway sótti Árni, unnusti Önnu Margrétar, hana og heimsóttu þau foreldra henn-
ar, þau Marínu Samúelsdóttur og Jón Kristófersson. Hér hefur fjölskyldan stillt sér upp í stofusófanum
fyrir ljósmyndara Morgunblaðsins.
„Ég var spenntust þegar tilkynnt
var hveijar hefðu komist í undanúr-
slitin, en að hún skyldi lenda í þriðja
sæti var meira en við gerðum okkur
vonir um. Hún sendi okkur kort frá
Möltu og tók fram að vil skyldum
ekki gera okkur of miklar vonir, því
keppnin yrði örugglega hörð. Við
vomm því auðvitað afskaplega glöð
þegar úrslitin vom ráðin. Anna
Margrét hringdi í okkur í nótt. Það
lá vel á henni og hún var mjög án-
ægð,“ sagði Marín.
Jón sagði að það væri erfitt að
lýsa tilfinningunni þegar úrslitin
lágu fyrir. „En maður var bæði hissa
og glaður. Það var spennandi að
horfa á keppnina. Þetta jafnaðist á
við góðan Iandsleik,“ sagðihann.
Morgunblaðið/RAX
Anna Margrét hringir heim til
foreldra sinna úr anddyri flug-
stöðvarinnar.
Morgunblaðið/Þorkell
Önnu Margréti gafst lítill timi til hvíldar í gær eftir erfiða keppni og langt ferðalag. Hún byrjaði á þvi að mæta í viðtal hjá Stöð 2, en siðan
var haldið i Broadway, þar sem hún hitti Björn Borg, tennisleikara og tiskufrömuð, og unnustu hans Jannike. Onnu og Jannike voru færð
blóm við innganginn i Broadway, og hér sjást þær ásamt Birni.
Hlakka mest til að komast
heim og hitta kærastann
„AUÐVITAÐ er ég ofsalega ánægð með þennan árangur. Ég átti
eiginlega alls ekki von á þessu,“ sagði fegurðardrottning Islands,
Anna Margrét Jónsdóttir, og brosti geislandi brosi, nýstigin út úr
flugvél Flugleiða sem flutti hana heim til íslands á fimmta tímanum
í gær. Anna Margrét kom beint frá Lundúnum, þar sem hún ienti
í þriðja sæti keppninnar um fegurstu konu heims. „Mér líður mjög
vel með þetta allt saman, en nú er ég svolítið þreytt og hlakka mest
til að komast heim og hitta kærastann."
Starfsmenn Flugleiða tóku á
móti Önnu Margréti við landgang-
inn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og
færðu henni blóm. „Við erum stolt
af að þú skulir vera starfsmaður
okkar, og vonum að þú getir byijað
hjá okkur sem fyrst aftur," sagði
Erna Hrólfsdóttir, yfírflugfreyja
Flugleiða, en Anna Margrét hefur
starfað sem flugfreyja hjá fyrirtæk-
inu.
Foreldrar fegurðardrottningar-
innar voru ekki til staðar að taka
á móti henni. „Það átti enginn von
á mér,“ sagði Ánna Margrét í sam-
tali við Morgunblaðið, „ég bjóst við
að verða í London fram á sunnudag
að vinna fyrir Flugleiðir, en því var
frestað þar til í desember, svo að
ég flaug heim alveg óvænt.“
Var þetta erfið keppni?
„Hún var ekki erifið fyrir mig,
en þetta var hörð keppni. Það var
hins vegar mjög vel að henni staðið
og snúist í kring um okkur á allan
máta. Það var góður andi meðal
stelpnanna og eftir á finnst mér
mjög gaman að hafa fengið að taka
þátt í þessu. Ég kynntist stelpunum
vel og eignaðist þama margar nýjar
vinkonur. Það var dálítið einkenni-
leg tilfinning að kveðja þær, vitandi
að kannski sæi ég sumar þeirra
aldrei aftur. Hins vegar ferðast ég
ódýrt, þannig að það eru líkur á
að ég geti hitt margar þeirra
seinna."
Hvemig brástu við þegar úrslitin
í keppninni voru ljós?
„Æ, ég veit það varla. Ég var
ósköp róleg. Ég vissi ekki þá að ég
hefði verið stigahæst í síðustu eink-
unnagjöfinni, sem var bara eins
gott, ég var ekkert of spennt og
fannst bara ágætt að þetta væri
búið, sérstaklega viðtalið, sem mér
fannst erfiðast. Mér fannst Ungfrú
Austurríki eiga fyllilega skilið að
vinna, og ég samgleðst henni inni-
lega. Við kynntumst vel í keppninni
og erum góðar vinkonur."
Aðspurð sagði Anna Margrét að
ekki kæmi hún beinlínis stórrík út
úr ævintýrinu. „En ég fékk þúsund
pund (um 65.000 ísl. krónur) í verð-
laun, og svo verðlaunagrip frá Top
Shop.“ Top Shop er fyrirtækið, sem
stendur að keppninni.
Hveijar eru svo framtíðaráætlan-
imar hjá þriðju fegurstu konu
heims?
„Ég er ekki farin að hugsa svo
langt ennþá. Núna er ég fyrst og
fremst fegin að vera komin heim
og geta hvílt mig og slappað af.
Svo hlakka ég auðvitað til að hitta
fjölskylduna og kærastann minn
aftur. Unnusti Önnu Margrétar,
Ámi Harðarson laganemi, reyndist
svo bíða hennar í anddyri flugstöðv-
Ulla Weigerstorfer, austurríska
stúlkan, sem nú ber titilinn
Ungfrú heimur 1987. „Hún átti
fyllilega skilið að vinna,“ sagði
Anna Margrét. „Við kynntumst
vel og erum góðar vinkonur."
arinnar, og urðu með þeim fagnað-
arfundir.
Heldurðu að þau hafi átt von á
því að þér gengi svo vel sem raun
bar vitni?
„Örugglega ekki. Áður en ég fór
sagði ég öllum að gera sér engar
væntingar, ég myndi bara reyna
að standa mig og gera mitt besta."