Morgunblaðið - 14.11.1987, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1987
Jt
FYRIRALLA FJÖLSKYLDUNA
MÆatn er mismunandi víða
W um heim. Pess vegna
skiptir máli að nota sjampó
með réttri efnasamsetningu
fyrir íslénskt vatn. Man sjampó
er unnið af vísindalegri ná-
kvæmni af efnafræðingum
okkar. Pað hefur rétt pH gildi
fyrir íslenska notkun. Man
sjampó er til i átta tegundum:
• Milt • Balsam
• Fjölskyldu * Flösu
• Eggja • Barna
• Húð og hár • Hárnæring
Man-sjampó er fyrir allar gerðir
hárs og fæst lika í heils lítra
umbúðum.
Ronnsóknorstofo
FRIGG
/]
Lyngási I Oarðabæ, sími 651822 ''
Fróðleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
ifltofjpsttMjtfrife
Greinargerð VMSÍ um kjaramál:
A sama tíma og góðæri er mest
verður tekjuskipting ójöfnust
Morgunblaðið birtir hér í heild
greinargerð, sem lögð var fram
með ályktun um kjaramál á þingi
Verkamannasambands íslands
fyrir skömmu.
Frá síðasta þingi Verkamanna-
sambandsins ber samningana í
febrúar 1986 hæst. Þá má segja
að brotið hafí verið blað í samninga-
gerð hérlendis. Reynt var í samningi
aðila vinnumarkaðarins að binda
hendur ríkisvaldsins til að koma í
veg fyrir frekara kjararán og um
leið að gera samkomulag við ríkis-
stjómina um ýmsar stuðningsað-
gerðir. Markmið þessarar víðtæku
samningagerðar var að bæta kaup-
mátt með umfangsmeiri aðgerðum
en kauphækkun einni saman. Þá
var og gert samkomulag um lífeyr-
issjóði og húsnæðismál. Eflaust em
enn eitthvað skiptar skoðanir um
ágæti þeirrar samningagerðar.
Reynslan virðist þó ótvírætt vera
sú, að þeir samningar hafí skilað
verkalýðshreyfingunni vemlega
fram á leið eftir tveggja ára niður-
lægingarskeið.
Meginniðurstaða febrúarsamn-
inganna var sú, að brotið var blað
í fræðslumálum verkalýðshreyfíng-
arinnar með námskeiðum fyrir
fískvinnslufólk og að kaupmáttur
fór vaxandi, einkum vegna þess að
verðlag var stöðugra en um áratuga
skeið. Sá víðtæki íhlutunarréttur
um framvindu og stjóm efnahags-
mála með febrúarsamningunum
1986 var nauðsynlegur vegna þess
stjómmálaástands sem var í
Iandinu. Undir lok ársins var svo
gerður annar samningur, sem gildir
til loka þessa árs. Við gerð hans
vom sömu markmið höfð í huga
og við gerð hins fyrri samnings, en
vegna batnandi ástands í þjóðfélag-
inu urðu samningsaðilar sammála
um, að hægt væri að hækka laun
lægst launaða fólksins allvemlega.
Þetta gekk eftir miðað við prósentu-
tölur, en miðað við krónutölu varð
hækkunin ekki stórvægileg vegna
þess hve lág launin vom fyrir og
vegna þess að hluti kaupauka var
látinn falla inn í fastakaupið. Sam-
ið var um minni hækkanir til þeirra,
sem meira höfðu áður. Samtök
launþega töldu að markvert spor
hefði verið stigið til launajöfnunar
í landinu."
Öfugsnúin kjaraþróun
I framhaldi af þessum samning-
um hefur kjaraþróun ársins 1987
orðið aðildarfélögum VMSÍað ýmsu
leyti öfugsnúin. Bæði kjarasamn-
ingar annarra launþegasamtaka
svo og sú mikla spenna í efna-
hagslífínu sem fyrrverandi ríkis-
stjóm hleypti af stokkunum fyrir
mitt þetta ár hefur leitt af sér
meira misgengi í launum en menn
hafa kynnst áður.
Segja má að um mitt þetta ár
hafí ekki staðið steinn _yfir steini í
kjarasamningum VMSI-félaganna.
Þrátt fyrir mikið góðæri og almenna
jákvæða kjaraþróun hafa þjóðfé-
lagshópamir borið mjög misjafnt
úr býtum. Það óréttlæti hefur kom-
ið hvað harðast niður á verkafólki
innan VMSÍ og verður að leiðrétta
þess hlut. Sú einkennilega þver-
stæða er komin upp að á sama tíma
og góðærið er mest verður tekju-
skiptingin ójöfnust.
Reynsla verkalýðshreyfíngarinn-
ar af samingum með þátttöku
ríkisvaldsins hefur verið með ýmsu
móti. Oft hefur verkalýðshreyfíngin
náð fram sfnum mestu og varanleg-
ustu áfongum í þríliða samningum.
Stundum hefur hún verið blekkt og
orðið að þola svik ríkisvaldsins beint
eða óbeint. Rejmsla verkalýðshreyf-
ingarinnar af hlutdeild ríkisstjóm-
arinnar í síðustu samningum er
mjög slæm. Skoðanir fólks innan
raða verkalýðshreyfingarinnar um
að taka þann þráð upp að nýju eru
því óhjákvæmilega all neikvæðar.
Hugmyndir ríkisstjórnarinnar um
samninga geta því ekki orðið verka-
lýðshreyfíngunni neitt leiðarljós í
komandi samningum. Þar verður
hreyfíngin að hafa eigin heill og
velfamað eigin fólks að leiðarljósi.
Ríkisstjómir koma og fara. Þótt
haga þurfi seglum eftir vindi til að
tryggja á hveijum tíma hag launa-
fólks má verkalýðshreyfingin ekki
missa sjónar á grundvallarhugsjón-
um sínum, sem em jöfnuður og
bræðralag vinnandi fólks. Ef aukinn
jöfnuður næst auðveldar með samn-
ingum við ríkisvaldið hlýtur sú leið
að verða að skoðast vandlega. Það
getur því ekki verið neitt takmark
í sjálfu sér að neita öllum samning-
um við ríkisstjórnina. Meginþungi
samninganna verður þó að vera á
herðum samningsaðila. Atvinnurek-
endur verða að gera sér grein fyrir
því að þeir verða að axla byrðamar
sjálfír og að þeim verður ekki velt
yfír á herðar neytenda í formi
hækkaðs vömverðs eða gengisfell-
ingar. Verkalýðshreyfingin er
minnug þjóðfélagslegrar ábyrgðar
sinnar og gengst við henni. Hún
hefur sannað það í samningum
undanfarinna ára og mun enn
ganga til nýrra samninga með
ábyrgð að leiðarljósi.
Staðgreiðsla skatta
og kjarabaráttan
Ábyrgð verkalýðshreyfíngarinn-
ar er þó mest gagnvart eigin
félögum svo og gagnvart þjóðinni
allri því örlög þeirra fara saman.
Það hlýtur að vera markmið hreyf-
ingarinnar að ná samningum um
betri kjör án þess að til almennra
verðlagshækkana þurfí að koma,
því það er að borga sjáfum sér laun.
Verkalýðshreyfingin fagnar upp-
töku staðgreiðslukerfis skatta. Um
leið verða allir að gera sér grein
fyrir því, að það hefur í för með
sér ýmsar breytingar fyrir kjarabar-
áttu launafólks. Eftir þá breytingu
verða verðlagshækkanir mun
skeinuhættari afkomu verkafólks
en áður og því meira í húfí að halda
niðri verðbólgu. Sérhver launa-
hækkun er nú skattlögð strax og
ef verðlagshækkanir fylgja einnig
í kjölfarið getur heildarávinningur
af kauphækkun horfíð samstundis.
Við aðstæður eftirágreiddra skata
horfði þetta öðm vísi við. Þá vom
það bara verðlagshækkanimar sem
hirtu ávinninginn. Árangur allrar
atvinnustarfsemi er betri og getan
til að greiða hærri laun er meiri við
stöðugt verðlag en mikla verðbólgu.
Verkalýðshreyfíngin leggur því
megináherslu á fast gengi og stöð-
ugt verðlag og vill leggja sitt af
mörkum til að það megi styrkja.
Hins vegar vísar hún á bug þeirri
kvöð að vera eini ábyrgi aðilinn á
því sviði. Þar verða allir að taka
saman höndum, launafólk, atvinnu-
rekendur og opinberir aðilar.
Verkalýðshreyfíngin mun verða á
varðbergi gegn öllum nýjum skött-
um og mótmælir sérstaklega
sköttum á brýnustu nauðsynjar, s.s.
matvæli. Sú skattlagning er ekki
beinlínis til þess fallin að liðka fyr-
ir samningum. Það er ljóst að ný
ríkisstjóm er að undirbúa umfangs-
miklar breytingar á skattalöggjöf-
inni og framkvæmd skattamála.
Það hlýtur að vera meginsjónarmið
verkalýðshreyfíngarinnar að ef
skattbyrði eykst, þá verði henni
deilt niður í anda jöfnuðar og sann-
gimi.
Verkafólk sem starfar við vinnslu
sjávarafla er burðarás þeirrar gjald-
eyrisöflunar sem velmegun þjóðar-
innar byggist svo mjög á. Það er
því þjóðinni allri nauðsynlegt að til
þessara starfa fáist dugandi fólk.
Nú er málum þannig háttað víða
út um land að verulegUr skortur er
á fólki til fiskvinnslustarfa. Hér er
um margþætt vandamál að ræða
sem leysa þarf á næstu misserum.
Einn stærsti hluti þessa máls em
launakjör fólksins sem verður stór-
Iega að bæta. Þá verður að tryggja
nægilegt hráefni til vinnslustöðv-
anna og koma í veg fyrir óheftan
útflutning á hráefni til evrópskra
fiskvinnslustðva. Þá verður físk-
vinnslan að taka í sína þjónustu
bætta tækni og stoþka upp skipulag
og auka sérhæfíngu svo stöðvarnar
séu betur í stakk búnar til að taka
á sig hærri laun án þess að hrópa
í síbylju á gengisfellingar. Skipu-
lagsmál og framleiðniástand fryst-
ingarinnar í landinu eru eitt allra
stærsta viðfangsefnið í atvinnumál-
um okkar íslendinga og lýsir VMSÍ
Skuldaskil eftir
Hammond Innes
IÐUNN hefur gefið út nýja bók
eftir Hammond Innes. Nefnist hún
Skuldaskil.
í kynningu forlagsins segir:
„Geoffrey Bailey hefur yfirgefíð
sjóherinn og vill he§a nýtt líf. Skipa-
félagið Strode & Co gerir honum
dularfullt tilboð þar sem frekari frami
er undir því kominn að hann leiti
uppi hinn svarta sauð fjölskyldunnar,
ævintýramanninn Peter Strode, og
snúi honum til heimahaga. Bailey
lætur slag standa en er fyrr en varir
staddur í hringiðu ófyrirsjáanlegra
atburða og átaka á framandi slóðum.
Á Maldíveyjum er lífíð ljúft en undir
niðri leynast ógnir og skelfingar. En
lífshættuleg kóralrifin og afskekktar
eyjamar eru þó jafnvel saklausari en
harðsoðinn heimur fjármálastríðs og
því yfír að það er reiðubúið til að
taka þátt í því verkefi að leita
lausna á þessu sviði. Við gerum
okkur grein fyrir því, að ef físk-
vinnslan drabbast niður þá versna
kjör þjóðarinnar allrar að sama
skapi.
Misjöfn kjör
Þrátt fyrir þá áherslu sem VMSÍ
leggur á kjör fískvinnslufólks verð-
ur að undirstrika nauðsyn þess að
standa vörð um launakjör annars
verkafólks. Kjör þess eru mjög mis-
jöfn og verður að stefna að því að
jafna þau frá því sem nú er. Um
áratuga skeið hafa verið í undirbún-
ingi samningar vegna byggingar-
verkamanna. Þrátt fyrir sífelldar
ítrekanir á því máli er það enn
óleyst. Sama gildir um ýmis ný
þjónustustörf sem verkafólk vinpur
við. Þar á eftir að fullgera ákvæði
um starfsskilyrði og launakjör. Enn
er ekki lokið fastlaunasamningum
úr síðustu samningum, þótt nú sé
langt liðið á samningstímann.
Á undanfömum árum hefur átt
sér stað bylting í atvinnuháttum í
verkamannavinnu. Tækninni hefur
fleygt fram og vinnubrögð gjör-
breyst. Sem dæmi má nefna
hafnarvinnu. Verkafólk sem þessi
störf vinnur gerir kröfu til að fá
sinn skerf úr aukinni hagræðingu
og betri fjárhagslegri afkomu fyrir-
tækjanna. Þá er og orðið tímabært
að huga að markvissu starfs-
fræðslukerfi fyrir ófaglært verka-
fólk. Sérhæfing nútímavinnubragða
er slík að þau verða ekki almenni-
lega af hendi leyst nema af
sérhæfðu slarfsfólki. Þetta er verk-
efni sem hreyfíngin í samstarfi við
vinnuveitendur og ríkisvald verður
að takast á við á næstu ámm.
En þrátt fyrir misjafnar aðstæð-
ur og ólík störf sem leiða kunna til
einhverra mismununar í kjörum, þá
má hún ekki kljúfa samstöðu verka-
fólks með því að hólfa það niður í
hópa sem innbyrðis takast á um
launahlutföll. Forysta VMSÍ verður
sameinuð að reyna til hins ítrasta
að leita lausna fyrir allt verkafólk
og leiða samningaviðræður við
vinnuveitendur til lykta í innbyrðis
sátt og samlyndi.
HAMMOND
INNES
Skuldaskil
valdabaráttu. Forstjórar Strode & Co
höfðu kannski of miklu að tapa til
að láta líf eða dauða einnar mann-
veru skipta sköpum."
ALLT TIL PÍPULAGNA
VEKJUM SÉRSTAKA ATHYGLI Á
JÁRNFITTINGS FRÁ 3/8"-4
OPIÐ ALLA DAGA KL. 7.30-18.30.
LAUGARDAGA KL. 8.00-16.00.
HEILDSALA - SMÁSALA
VATNSTÆKI
BYGGINGAVÖRUR
Hyrjarhöfða 4-112 Reykjavík
Sími673067
■■■■......... —~
^^^^