Morgunblaðið - 14.11.1987, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 14.11.1987, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1987 53 Björgvin Filippus- son - Kveðjuorð Þann 6. nóvember sl. lést hann afi minn á Hjallaveginum. Þó afí hafi alltaf verið hluti af tilveru minni hófust náin kynni okkar ekki fyrr en fyrir 12 árum þegar við hjónin fluttum í kjallarann hjá hon- um, þá nýlega gift. Afí var þá að verða áttræður. Ef við höfum haft kvíða í brjósti yfir því að fara í sambýli við þennan gamla mann þá reyndist sá kvíði ástæðulaus, því þægilegri mann hefðum við varla getað fengið í sambýli. Það sem fljótt vakti athygli mína var hvað afí tók öllum hlutum með opnum huga og fordómalaust þó þarna færi maður sem mundi tímana tvenna og væri ekki tæknilega sinn- aður. Það var oft gaman að ræða við hann undir Hawaii-rósinni um heima og geima, og var þá sama hvort hann var að rifja upp liðna atburði eða ræða um og reyna að fræðast um málefni nútíðarinnar. Það var einkenni á afstöðu hans til manna og málefna að hann studdi þann sem minna mátti sín, og mátti fátt aumt sjá án þess að finna til. Umhyggja hans fyrir dýrum og plöntum var einstök. Það voru ófá- ar ánægjustundimar sem við afi áttum saman í hesthúsinu í garðin- um hans og á hestunum í Klepps- holtinu á þessum árum. Á þessum stundum var afi í fínu formi, það var stutt í grín hjá honum, og þama var hann glaður og gefandi. Afí naut virðingar og velvildar meðal nágrannanna og voru krakkamir í hverfinu tíðir gestir í og kring um hesthúsið hans. Sem dæmi um hug krakkanna til afa er að þegar ég hóf kennslu í Langholtsskólanum þá töldu nemendur mínir mig held- ur meiri mann að eiga kallinn á hestinum fyrir afa. Þó samvemstundimar við afa hafí orðið stijálli eftir að við fluttum af Hjallaveginum þá var alltaf gam- an að hitta hann og spjalla. Það var auðvelt að gleðja afa og það þurfti ekki að gera honum stóran greiða til að hann yrði þakklátur. Hann sýndu okkur Bimu alveg ein- staka hlýju og þegar við eignuðumst böm okkar frá Sri Lanka kom enn fram hvað afí var jákvæður, hann hampaði þeim og var þeim hlýr. Það gæti margur maðurinn tekið sumt í fari hans afa til eftirbreytni og orðið fyrir vikið betri maður, alla vega yrði þenslan í þjóðfélaginu minni ef lífsviðhorf manna eins og afa yrðu meira ríkjandi. Nú þegar afi er farinn yfír móð- una miklu vil ég þakka honum fyrir samferðina og megi Guð blessa minningu hans. Helgi, Birna og börn. Jóhannes H. Péturs- son — Kveðjuorð Það ríkti mikil sorg hjá mér sem öðmm er ég frétti hvað hafði kom- ið fyrir vin minn Jóhannes Halldór Pétursson eða Dóra P. eins og hann var oftast kallaður. Ég kynntist honum fyrir um 4 ámm er hann hóf störf hjá föður mínum. Við urð- um strax góðir vinir og töluðum mikið saman. Þó að aldursmunur hafi verið mikill þá gat hann alltaf sett sig í mín spor og átti til nóg af góðum ráðum. Það er stór miss- ir að missa svo góðan vin sem Dóra P. , Ég votta samúð mína eiginkonu hans, bömum og öðmm aðstand- endum. Sigrún Einarsdóttir Morgunblaðið/Þorkell Finnska listakonan, Elina Liikanen, við eitt verka sinna. Hafnarborg: Liíkanen sýnir olíumálverk FINNSKI listmálarinn EUna Liikanen sýnir nokkur verka sinna í sýningarsal Hafnar- borgar, Menningar- og lista- stofnunar Hafnarfjarðar, við Strandgötu 34 dagana 14.-22. nóvember. Elina Liikanen hefur dvalið í listamannaíbúð Hafnarborgar í nær 3 mánuði, en íbúðin er á vegum Norræna myndlistar- bandalagsins og geta myndlistar- menn frá öllum Norðuriöndum sótt um að hafa not af henni. Á sýningunni, sem hefst í dag, laug- ardag, klukkan 15 verða sýnd sýnishom af þeim olíumálverkum sem listakonan vann að meðan hún dvaldi í listamannaíbúðinni. Liikenen dvelst hér á landi til næstu mánaðamóta. AF ERLENDUM VETTVANGI Eftir SUE MASTERMAN Austurríki: Fráfarandi sendiherra Bandaríkj anna svívirtur AP Ronald Lauder, fráfarandi sendiherra Bandaríkjastjórnar í Austurriki. FRÁFARANDI sendiherra Bandaríkjanna í Austurriki, ítonald Laud- er, hefur orðið fyrir hatrömmum ofsóknum flestra blaða í Austurríki fyrir ummæli sem hann viðhafði við heimkomuna til Bandaríkjanna fyrir skemmstu. I veizlu þar sem hann tók við sérstakri viðurkenningu frá Simon Wiesenthal - sem þekktur er fyrir áratuga leit sína að stríðsglæpa- mönnum nazista - sagði Lauder fyrrum sendiherra að Austurríkis- menn hefðu lifað í sjálfsblekkingu undanfarin 45 ár, og séð sjálfa sig sem fómarlömb Hitlersstjómarmn- ar en ekki samstarfsmenn af fúsum vilja. Kjör Kurts Waldheims fyrrum aðalritara Sameinuðu þjóðanna í embætti forseta landsins - þrátt fyrir staðhæfingar um þátt hans í hiyðjuverkum nazista og viðbrögð umheimsins við þeim - hefði neytt þá til að horfast í augu við bitran sannleikann. Framtíðarstaða þeirra gagnvart umheiminum færi eftir því hvemig þeir brygðust við þess- um sannleika. Sendiherrann fyrrverandi tók einnig fram að sem gyðingafjöl- skylda i Vínarborg hefðu hann og fjölskylda hans fundið fyrir þeirri öldu Gyðingahaturs, sem reis eftir ákvörðun Bandaríkjanna um að setja Kurt Waldheim forseta á lista yfír óæskilega ferðamenn sem hafa bæri eftirlit með ef þeir kæmu til Bandaríkjanna. Aðdróttanir og óbóta- skammir Viðbrögðin hafa birzt í flaumi aðdróttana og óbótaskamma í aust- urrí8kum blöðum, og mikilli heift innan raða austurríska Þjóðar- flokksins, sem studdi forsetakjör Waldheims og er nú minnihluta- flokkurinn í samsteypustjóm sósfalista og fhaldsmanna. „Lauder var ekki diplómat þegar hann kom til Vínarborgar, og hann verður enginn diplómat í framtíð- arstörfum. Þar hefur engin breyt- ing á orðið," segir í útbreiddasta blaði landsins, Die Presse. Ekki gleymdist þó að geta þess að Lauder, sem er viðurkenndur sérfræðingur og safnari „Art No- uveau" listmuna, stóð undir öllum kostnaði við endumýjun og viðgerð á einu af kennileitum Vínarborgar, sem borgaryfirvöld höfðu vanhirt um f áratugi. Hann vildi gjaman stuðla enn betur að austurrískri mennt og menningu, en var jafnan hindraður í að fá að leggja sitt af mörkum. Harðasta árásin kom frá Alois Mock, utanríkisráðherra og vara kanslara Austurríkis, en stjóm- málaandstæðingar hafa gefið honum viðumefnið „vamarráð- herra Waldheims". Hann sagði ummæli Lauders „algera smekk- leysu", sakaði hann um henti- stefnu, og ásakaði hann fyrir að halda öðra fram við heimkomuna en meðan hann var f Austurríki. í stuttu máli má segja að viðbrögð hans hafi verið þessi: „Bandarískur Gyðingur talar tungum tveim". Skítkast sorpblaðanna Að sjálfsögðu stóð ekki á að æsifréttablöðin notfærðu sér þetta tækifæri til að velta sér upp úr rógburðinum um Lauder og flöl- skyldu hans. Gerðu þau lítið úr Kurt Waldheim, forseti Aust- urríkis, á einiun af mörgum blaðamannafundum þar sem fortíð hans hefur verið til um- ræðu. Lauder og skipan hans f embætti sendiherra í Áusturríki, sem þau sögðu hafa verið smá endurgreiðslu fyrir framlag móður hans, Estée Lauder, í kosningasjóð Ronalds Reagan Bandaríkjaforseta fyrir forsetakosningarnar. Nú þegar Ronald Lauder er far- inn frá Vín er kominn tími til að varpa réttu ljósi á sumt það sem hann og fjölskylda hans urðu fyrir í Austurríki. En staðreyndin er sú að Lauder brást, og bregzt enn, mjög diplómatfskt við þeirri erfiðu reynzlu að vera sendiherra, og þar að auki af gyðingaættum, meðan á kosningabaráttu Waldheims stóð og þegar bandarísk yfirvöld ákváðu að Waldheim væri óvelkominn gestur þar í landi. Hann bannaði starfsmönnum sínum í sendiráðinu að minnast einu orði á þann flaum svívirðinga og ókvæðisorða sem féll f hans garð, fjölskyldu hans og þjóðar. Má vera að Lauder hafi ekki verið þjálfaður sem diplómat, en hann er hygginn kaupsýslumaður, og honum var það ljóst að ef hann skýrði frá reynslu sinni gæti það haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir viðskipti Austurríkis og Bandaríkjanna, og fyrir ferða- mannaiðnaðinn. Á svipaðan hátt og Simon Wies- enthal var Lauder í því erfiða hlutverki að þurfa að sigla milli skers og bára með því bæði að halda góðum tengslum við utanrík- isráðherrann, Alois Mock, þótt Michael Graf fórmaður flokks ráð- herrans væri sífellt að gefa yfirlýs- ingar með lítt duldu Gyðingahatri, og við Israel Singer aðalritara Al- þjóðasamtaka Gyðinga, sem lét einskis ófreistað til að steypa Wald- heim af stóli. Bandarfska utanríkisráðuneytið auðveldaði ekki Lauder störfin þar sem ákvarðanir teknar í Washing- ton birtust oft í Qölmiðlum áður en Lauder var tilkynnt um þær. Sjálfur var hann í upphafi alls ekki sannfærður um að ákvörðunin um að setja nafn Waldheims á lista yfir óæskilega gesti í Bandaríkjun- um væri rétt eða tímabær. Mælti hann eindregið með því að Banda- ríkjastjórn sendi hóp virtra lög- fræðinga til Vínarborgar til að sýna austurrískum yfirvöldum fram á að samkvæmt bandarískum lögum væri engan veginn hjá því komizt að setja nafn Waldheims á listann. Smygl á tæknibúnaði Lauder ávann sér einnig óvild Austurríkismanna vegna harðrar afstöðu hans í öðra máli - ólögleg- um flutningi tæknibúnaðar frá Bandaríkjunum yfir Austurríki til kommúnistaríkjanna. Hér var um að ræða viðskipti sem öllum var ljóst að fóra fram, en enginn vildi viðurkenna. Það eina sem Lauder fór fram á, og stóð fast á, fyrir hönd rfkisstjómar sinnar var að austurrisk yfirvöld sýndu einhvem lit í að hafa hendur í hári smyglaranna, ekki sízt þeirra sem vora starfsmenn ríkisrekinna iðnfyrirtækja. Á þeim 19 mánuðum sem Laud er gegndi sendiherraembættinu f Austurríki bárast honum heilu bílfarmamir af hatursfullum bréf- um, og sendiráðinu þúsundir raddalegra upphringinga. Algeng- ast var að sendiherranum væri hótað lífláti. Margir minntust á gasklefana og þörfina á að ljúka því verki sem Hitler hafði látið ógert. . Aðeins ein hjáróma rödd heyrðist mæla honum bót í öllum þessum flaumi hrakyrða, en það var rödd höfundar foiystugreina málgagns sósfalista, dagblaðsins AZ. Hann rakti staðhæfingar Lauders og komst að þeirri niðurstöðu að sendiherrann fyrrverandi væri að- eins að segja það sem öllum Austurríkismönnum væri ljóst, þótt ekki væra allir fúsir til að viður- kenna það. Höfundur er blaðamaður við brezka blaðið The Observer.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.