Morgunblaðið - 28.11.1987, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1987
29
Sonartorrek heitir þessi stórfenglega mynd Ásmundar Sveinssonar
sem stendur að Borg á Mýrum.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Magnús Magnússon
nútímamenn hafí að þeim greiðari
aðgang en áður og geti þá ef til
vill af þeim lært. Eg reyni líka að
varpa nýju ljósi á ýmsar persónur
úr sögunni með því að tengja þær
frásagnir af þeim sem til eru. Með
þessari aðferð koma fram á sjónar-
sviðið manneskjur sem stinga
kannski í stúf við þá mynd sem
menn hafa yfírleitt gert sér af
þeirri."
„Dæmi um þetta er Þorgerður
Egilsdóttir Skallagrímssonar. í
Eglu kemur hún fram sem yfirve-
guð og notaleg manneskja sem ein
er fær um að tjónka við föður sinn
þegar hann er að bugaður af harmi
eftir Böðvar. í Landnámu lætur hún
sannarlega að sér kveða þegar hún
eggjar syni sína og Ólafs pá að
ganga milli bols og höfuðs á Bolla
og það þótt Helgi Harðbeinsson
hafí þegar rekið hann i gegn með
spjóti sínu. Þetta dæmi er aðeins
eitt af mörgum sem fyrir koma í
Landinu, sögunni og sögunum, en
það nægir til að sýna að þetta við-
fangsefni býður upp á endalausar
athuganir og vangaveltur um þau
atriði sem koma í ljós þegar að er
gáð. Og sá er líka tilgangur minn
með því að skrifa þetta verk, - að
fá lesendum í hendur nýjan lykil
að sínum eigin fjársjóði svo þeir
megi njóta hans enn betur en hing-
að til.“
„Þú gerír því semsé skóna að
það þurfi að kynna sjálfa bóka-
þjóðina fyrir sjálfum þjóðararf-
inum?“
„Já, því ekki það. Kannski á ég
betra með það en þeir sem lifa og
hrærast í íslenzku þjóðfélagi. Ég
er íslendingur og þekki land og
þjóð mjög vel enda þótt ég sé alinn
upp í Bretlandi og hafi átt þar heima
alla tíð. Það er sagt að glöggt sé
gests augað og það er einmitt vel
mögulegt að ég eigi hægara með
það en margir aðrir að setja söguna
í samhngi og tengja hana nútíðinni
af þeirri ástæðu. Ég held því til
dæmis fram að eftir fjögurra alda
efnahagslega stöðnun hafí fram-
farir á Islandi fyrst orðið á þessari
öld. Ég tel skýringuna vera þá að
á meðan bændur stjómuðu útgerð
var ekkert svigrúm fyrir frjálst
framtak í sambandi við sjávarúveg.
Það voru bændur sem áttu land að
strandlengjunni og stjómuðu þar
af leiðandi öllu athafnalífí þar. Þeir
vildu ekki missa vinnukraftinn úr
landbúnaði í sjósókn, og því varð
engu um þokað í atvinnulífí lands-
manna allan þennan tíma.“
En ég vil að bókaþjóðin átti sig
á því að íslendingasögur em ekki
bara eitthvað sem fer vel í bókahill-
um. Sögfuna er ekki síður að fínna
á þeim stöðum þar sem hún gerð-
ist. Það sér sá sem ferðast um
landið og talar við það fólk sem þar
býr. Mér er til dæmis minnisstætt
atvik frá í sumar þegar ég var að
viða að mér efni. Þá kom ég að
Orlygsstöðum og bóndinn var að
girða. Ég tók eftir því að á einum
stað var girðingin ekki bein heldur
var á henni skrýtið útskot. Ég
spurði bónda hveiju þetta sætti og
hann sagði mér þá frá því að eina
nóttina eftir að girðingarvinnan
byrjaðj hefði sig dreymt Sigfús sem
bjó á Örlygsstöðum og féll í Örlygs-
staðabardaga. Hann hefði farið
fram á það í draumnum að girðing-
in færi ekki yfir þennan tiltekna
blett því að þama hefði hann látið
lífíð. Ég spurði bónda hvemig Sigf-
ús hefði verið í draumnum, -mér
datt í hug að hann hefði verið yggld-
ur á brún - en hann kvað svo ekki
vera. Þetta hefði verið hinn alúðleg-
asti maður og ekki farið fram á
þetta með neinu offorsi. Og auðvit-
að gerði bóndi eins og Sigfús vildi.
Svona er sagan enn að gerast út
um allt land og þetta er hreint og
beint heillandi. Óg styrkur íslend-
ingasagna er ekki bara fólginn í
því sem öraggar heimildir era til
um - hann er fólginn í því sem
höfðar til hvers einstaklings, á
hvaða tíma sem hann lifir. Sannan-
imar kom’a frá hjartanu en ekki
skynseminni, fínnst mér.
ÖBBnRANDSTÆKl
^sdlBasp'^baB
ÚLPUR
BUXUR
SKYRTUR
FRAKKAR
íflestum bestu herra-
fatabúðum landsins.
■ ■ IVIIXM
Ert þú í húsgagnaleit?
Leðursófasett, verð aðeins kr. 108-000 stgr.
Nýjar sendingar af vönduðum leðursófasettum
og hornsófum í miklu úrvali.
Hægstætt verð.
Opið til
kl. 16.00 ídag.
VALHUSGÖGN
ÁRMÚLA 8. SÍMI 82275.
FIBER SEAL
HREINSIKERFIÐ
FYRIR STIGAGANGINN
Fiber Seal hreinsikerfið er fyrir teppin á stiga-
ganginn.
Fiber Seal hreinsikerfið auðveldar þrif og tjöru-
bletti og skóstrik er auðvelt að hreinsa, sé það
notað.
Með Fiber Seal líta teppin út sem ný lengur og
ending þeirra verður allt að 50% meiri.
Við bjóðum húsfélögum einnig teppahreinsunar-
samninga þar sem fagleg vinnubrögð og öflugar
vélar tryggja góðan árangur og þekking okkar í
faginu kemur viðskiptavinum okkartil góða.
SKULD H.F.
Pósthólf 7088
127 Reykjavík
Sími: 1.54.14 og 2.57.72
Bításími 985-2.57.73.