Morgunblaðið - 28.11.1987, Side 68

Morgunblaðið - 28.11.1987, Side 68
68 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1987 t Elskuleg dóttir okkar og systir, GUNNHILDUR SIF GYLFADÓTTIR, lést af slysförum í Kanada 26. nóvember sl. Þuriður Jónsdóttir, Gylfi Baldursson, Arngunnur Ýr Gylfadóttir, Bryndi's Halla Gylfadóttir, Baldur Gylfason, Yrsa Þöll Gylfadóttir. t Litli drengurinn okkar, STYRKÁR SNORRASON, Mávahlfð 38, Reykjavík, lést af slysförum þriðjudaginn 24. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Snorri Styrkársson, Dagrún Magnúsdóttir, Kristrún Ragnarsdóttir. t Maðurinn minn, ÞORLEIFUR THORLACIUS skipasmiður, Nýlendugötu 20a, Reykjavík, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn 26. nóvember. Ágústa Thorlacius. Jónína Jóelsdóttír, Bolungarvík - Mhming Fædd 18. nóvember 1903 Dáin 20. nóvember 1987 Mig langar með örfáum fátæk- legum orðum að minnast elskulegr- ar ömmu minnar, Jónínu E. Jóelsdóttur, sem lést í sjúkrahúsi Bolungarvíkur 20. nóv. sl. eftir langa legu. Amma fæddist að Tröð í Álfta- firði 18. nóv. 1903. Hún bjó allan sinn búskap í búðinni sinni við Hafnargötu með afa og bömunum sínum 5, en eina dóttur misstu þau unga. Áfí lést fyrir nær 30 árum og bjó amma áfram með yngsta bami sínu, þar til hún fluttist á heimili foreldra minna og síðan aft- ur til yngsta bamsins síns og bjó þar þangað til hún fór á sjúkrahús- ið á árinu 1980. Ég átti því láni að fagna að fá að búa um nokkurt skeið á heimili ömmu sem bam meðan foreldrar mínir luku byggingu nýs húss. Síðan fylgdi hún okkur á nýja heim- ilið okkar. Amma vann alla tíð hjá Einari Guðfinnssyni og eiga ömgglega margir góðar og glettnar minningar um hana frá þeim ámm. Alltaf sat í fyrirrúmi hjá henni að gleðja aðra. Er mér minnisstæðast þegar jólin fóm að nálgast. Þá fór hún að skrifa á jólakortin og pakka inn jólagjöfunum handa bamabömun- um og var þar meira en einn pakki á mann, því það átti að vera ömggt að enginn gleymdist, því fóikið hennar var henni allt. Ég veit að ég mæli fyrir munn alira frændsystkina minna þegar við þökkum elsku ömmu fyrir allt sem hún var okkur. Svo vil ég flytja hinstu kveðju frá langömmuböm- unum. Elsku pabbi, Gestur, Unna og Kristný. Þið áttuð yndislega móður. Við þökkum góðum guði fyrir að gefa henni hvíldina. Hvíli hún í friði. „Þó að kali heitur hver hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er aldrei skal ég gieyma þér.“ Stína Karvels Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og alit er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. fýrst sigur sá er fenginn fyrst soigar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði er frá (V. Briem.) Hún amma er dáin. Ekki get ég sagt að þessi fregn + Útför föður okkar, téngdaföður, afa og langafa, GUNNARS ÞORVARÐSSONAR rafeindavirkjameistara, Stífluseli 8, Reykjavik, fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 30. nóvember kl. 15.00. Lárus Gunnarsson, Árni Gunnarsson, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Sonur minn og bróðir okkar, JÓN SIGURÐS JÓNSSON, Lundarbrekku 2, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 30. nóvember kl. 13.30. Ingigerður Þorsteinsdóttir og systur hins látna. + Þökkum innilega hlýhug og samúð við andlát og útför BALDURS ÞÓRHALLSSONAR, Fellsmúla 2. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks Vífilsstaðaspítala fyrir góða umönnun. Guörún Sigurðardóttir, Erna Björg Baldursdóttir, Ólafur Ingi Óskarsson, Baldur Ingi Ólafsson, Vala Ósk Ólafsdóttir og aðrir vandamenn. Guðjón Pálsson Í dag verður lagður til hinztu hvíldar frá Landakirkju Guðjón Pálsson, skipstjóri og útgerðarmað- ur j Vestmannaeyjum. Að leiðarlokum vil ég með þess- um fátæklegu kveðjuorðum minnast samferðamanns, sem setti svip sinn á umhverfíð. Þegar svipmikilla manna er minnst er hætt við að minningar um þá verði eins og myndir á vegg, hver og einn minnist þess, sem hann sá og kynntist. Guðrjón var í mínum huga nátt- úrubam. Hans náttúra var hafið bláa hafið. Þar hafði hann hugann við stjóm á skipinu sínu, Gullberg- inu. Helzt við veiðar með nót eða öðru stórvirku veiðarfæri, laxveiði taldi hann ómerkiiega. Hann vildi afla sjávarfangs. í upphafi held ég að báðum hafí fundist ákveðinn stirðleiki í sam- skiptum okkar. Báðum fannst hinn ósanngjam í viðskiptum, hvor um sig horfði á málefnið frá sinni hlið. En við höfðum fyrir löngu lært að taka tillit til og skilja hvom annan og var Guðjón einn þeirra manna, sem mér var hlýjast til þeg- ar ég flutti frá Vestmannaeyjum. Guðjón tók veikindum sínum af dæmafárri karlmennsku. Hann sótti sjóinn á milli sjúkrahúsvista. Hann ætlaði að sanna sigur iífsins yfir dauðanum. Ef allt gengi vel vildi hann hafa skipið í lagi og hafði hann ákveðið endurbætur á Gull- berginu, en ef illa færi, þá vildi hann að allt væri í röð og reglu. Og það gekk eftir. Og hann vildi njóta þess, sem lífið gaf. Þannig spiiaði hann á harmonikku heila þjóðhátíðamótt í sumar. Þegar Guðjón siglir skipi sínu um ókunn höf kveð ég hann með orðum skáidsins, sem orti Fljótið helga, því báðir þráðu þeir sama niðinn í eyru, skáldið vatnanið en skipstjór- inn öldunið. Mér dylst að visu þín veröld á bak við hel, en vænti þess samt og fer þar að presisins orðum að þú megir yfirleitt una hlut þínum vel, því okkar megin gengur nú flest úr skorðum. Og hér eru margir horfnir frá þeirri trú, að heimurinn megi framar skaplegur gerast, og sé honum stjómað þaðan, sem þú ert nú, mér þætti rétt að þú létir þau tíðindi berast. (T.G. Bréf til látins manns.) Við hjónin vottum eiginkonu hans, frú Elínborgu Jónsdóttur, bömum þeirra, þeim Önnu og Eyj- ólfi, foreldrum og tengdamóður samúð okkar og óskum þeim styrks í sorg. Hvíli Guðjón Pálsson í friði. Vilhjálmur Bjamason í dag verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmannaeyjum Guðjón Pálsson, skipstjóri og út- gerðarmaður. Samskipti Guðjóns, eða Gaua Páls, og okkar starfs- manna í Net hófust nær strax eftir að fyrirtækið var stofnsett eða á árinu 1984, en þá var Gaui skip- stjóri á ms. Gullver NS. Stuttu síðar tók hann við Gullberginu, sem var í eigu sömu útgerðar. Það skip keypti hann síðan árið 1970 í félagi við Leifa, tengdaföður sinn, og Ólaf Sigmundsson. Eftir að Gaui hóf sjálfur útgerð jukust þessi samskipti enn frekar og má segja að Gaui og hans út- gerð hafi ávallt verið einn tryggasti viðskiptavinur fyrirtækisins. Einnig var hann tryggur félagi og óspar á góð ráð í sambandi við útbúnað veiðarfæra. Þegar Gaui var í landi leit hann við á verkstæðinu oft á dag og urðu umræður um málefni líðandi stundar oft á tíðum fjörleg- ar, enda má segja að gustað hafi að Gaua og ávallt lét hann skoðan- ir sínar í ljós umbúðalaust. Það má + Öllum þeim sem fyrr eöa síöar sýndu + Þökkum innilega samúö og hlýhug viö andlát og útför JENNÝJU MAGNÚSDÓTTUR, ERLENDAR PÁLS GRÍMSSONAR Kvistum, bifvélavirkja, vináttu og tryggö og studdu okkur feögana við andlát hennar og Selsvöllum 14, Grindavík. jarðarför færum viö innilegar þakkir. Guö blessi ykkur öll. Kolbrún Einarsdóttir, Ragnar Böðvarsson, Grfmur Helgi Pálsson, Helga Valtýsdóttir, Grimur Pálsson, Böðvar Jens Ragnarsson. Valtýr Grímsson, Auður Þórhallsdóttir. hafi komið mér á óvart, því hún amma er búin að vera veik í mörg ár og er ég viss um, að hún er hvfldinni fegin. Hún Jónína amma fæddist 18. nóvember árið 1903 að Tröð í Álfta- firði. Hún var dóttir hjónana Jóels Einarssonar frá Kleifum í Seyðis- firði og konu hans, Kristínar Aradóttur frá Uppsölum. Það fyrsta sem ég man eftir ömmu, var þegar hún fluttist á heimili foreldra minna á Traðar- stígnum í Bolungarvík. Þar bjó hún í herbergi með okkur krökkunum fyrstu árin og var þá oft glatt á hjalla, því hún var einstaklega skemmtileg manneskja og lék mikið og gantaðist við okkur. En hún Jónína amma gerði fleira en að leika sér, því hún var forkunnar dugleg kona og stundaði fulla vinnu í segja, að þeir dagar, þegar hann kom ekki við á verkstæðinu, hafi verið hálf tómlegir og því mun Gauja verða sárt saknað. Eftir að Gaui veiktist sýndi hann enn sem fyrr tryggð við okkur í Net og ávallt reyndi hann að líta við og eiga við okkur orðastað. Þegar hann kvaddi okkur félagana, rétt viku fyrir andlátið, var hann óvenjuhress og lét bara vel af sér miðað við aðstæður, enda var Gaui ávallt jákvæður og lífskraftur hans aðdáunarverður. Það er því mikið skarp höggvið í okkar hóp og sárt að eiga ekki eftir að fá Gaua aftur í heimsókn. Um leið og við ljúkum þessum fátæklegu minningarorðum um góðan vin og félaga; sendum við Elínborgu, Eyjólfi, Önnu og fjöl- skyldunni allri okkar dýpstu samúðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja þau í sorg sinni. Net hf. og starfsmenn. Sú harmafregn barst sl. föstudag til Vestmannaeyja að Guðjón Páls- son, útgerðarmaður og skipstjóri, hefði látist þá um daginn, aðeins 51 árs að aldri. Guðjón hafði stundað sjó alla sína tíð. Hann flutti til Vestmannaeyja ungur að árum og þar var starfs- vettvangur hans. Hann var skip- stjóri á ýmsum bátum, en árið 1970 keypti hann eigin bát, Gullberg, ásamt tengdaföður sínum og Ólafi Sigmundssyni, vélstjóra. Eftir það var hann alltaf kenndur við það skip. Árið 1974 keyptu þeir félagar nýjan bát frá Noregi, sem bar sama nafn, og stundaði það skip ýmsar veiðar. Frá 1970 var Guðjón félagi í Útvegsbændafélagi Vestmannaeyja og tók virkan þátt í starfí þess fé- lags eins og annars staðar, þar sem hann var þátttakandi. Hann mætti vel á fundi í félaginu, hafði ákveðn- ar skoðanir á mönnum og málefnum og talaði hreint út um hlutina. Hann var mikill félagsmálamaður og mikill áhugamaður um sjávarút- vegsmál og vildi sjávarútveginum allt hið besta. Útgerð hans var rek- in af miklum myndarskap og var til fyrirmyndar á allan hátt og þau störf, sem hann innti af hendi, voru til fyrirmyndar. Útvegsbændafélag Vestmanna- eyja vill senda ástvinum Guðjóns innilegar samúðarkveðjur vegna andláts hans og biður þeim Guðs blessunar. __ Útvegsbændaf élag Vestmannaeyja.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.