Morgunblaðið - 28.11.1987, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1987
55
Lögbrot landbúnaðarráðherra á sauðfjárbændum:
Rakalaus mismunun á fram-
leiðslurétti milli landshluta
Augljóst lögbrol er verið að
fremja á stórum hluta sauðfjár-
bænda í landinu með nýrri reglu-
gerð um fullvirðisrétt og fram-
leiðslu sauðíjárafurða fyrir
verðlagsárið 1988—1989 og það er
ekki nóg með að lögbrot sé framið
heldur er verið að skapa fordæmi
sem er stórhættulegt fyrir land-
búnaðinn í heild og opnar allar
gáttir fyrir geðþóttaákvarðanir í
málum bænda. Til slíks er óbjörgu-
legt að horfa þegra hætta er á að
framsóknarmennskan kollríði öllu
sem heitir skynsamleg vinnubrögð.
Lögbrotið er ákvörðun land-
búnaðarráðherra að mismuna
landshlutum og svæðum í fram-
leiðslurétti. Það er farið varlega í
sakimar í fyrstu lotu, en með for-
dæminu er málið komið í hurðalaust
helvíti og hið mesta óöryggi sem
hægt er að hugsa sér. Landbúnað-
arráðherra leyfír sér að skerða
framleiðsluna um 0,3% hjá sumum,
0,6% hjá öðrum og 0,9% hjá þeim
þriðju svo sem í Árnessýslu, Rang-
árvallasýslu og Eyjafirði. Næst
getur skerðingin á þennan hátt
þess vegna orðið 10% hjá einum,
30% hjá öðrum og svo framvegis.
Ef skerðingin næði jafnt yfir alla
má segja að hún sé lögmæt, en
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁDHÚSTORGI
með þessu lögbroti, ef það nær fram
að ganga, er kominn grundvöllur
til þess fyrir stjómvöld með einföldu
reglugerðarákvæði að leggja heilu
svæðin í auðn, atvinnulega séð.
í Sauðfjárskýrslunni sem nýlega
var lokið við og fjallað er um stöðu
og stefnu sauðfjárbúskapar til árs-
ins 2000, er landinu skipt upp í
svæði, en þrátt fyrir þá skiptingu
sem þar er sett 'fram sem hugmynd
er gert ráð fyrir því að mörg þess-
ara svæða verði áfram sauðfjár-
ræktarsvæði og jafnvel sé ástæða
til að ganga svo langt í málum að
skoða einstakar jarðir til þess að
ná fram sem mestri hagræðingu.
Það má nefna mörg dæmi um
vitleysuna í þessari skerðingarað-
ferð fyrir utan lögleysuna. Undir
Eyjafjöllum, á jörðinni Ytri-Skóg-
um, er mikill fallþungi fjár, góður
hagi, góð nýting og búrekstur á
allan hátt. Þessi jörð fær nú 0,9%
skerðingu. Á jörð í Dalasýslu, sem
hefur um 600 fjár, er haginn eins
konar frímerki fyrir þennan bústofn
og hann leitar um allar trissur
bændum og búaliði til leiðinda.
Jörðin er einfaldlega of lítil fyrir
bústofninn. Þessi jörð fær 0,3%
skerðingu.
Það er einnig skylt að nefna í
lokin að mismunun á kvótaaf-
greiðslu til sauðfjárbænda víða um
land, mismunun sem liggur ljós
fyrir að er af pólitískum toga og
með geðþóttaákvörðunum en ekki
rökum og réttlæti í garð allra
bænda, hefur skapað vaxandi tor-
tryggni, sölu framhjá kerfinu og
sitthvað fleira sem er ekki til þess
að styrkja stöðu landbúnaðarins á
íslandi. Þegar einn og einn bóndi
fær aukinn kvóta rétt fyrir kosning-
ar án þess að sá sem býr við sömu
aðstæður fái nokkuð, þá er verið
að hlaða undir spillingu Og siðleysi,
sem er svo sem alveg í sama dúr
og sú mismunun sem landbúnaðar-
ráðherra, Jón Helgason, leyfir sér
nú að dengja yfir sunnlenska bænd-
ur og bændur víðar um landið. Það
er vitnað til þess af ráðamönnum
að lagastoðir standi fyrir þessari
mismunun, en þær stoðir er hvergi
að finna. Skera þarf upp herör gegn
þessum vinnubrögðum.
Hártoppar - Hártoppar
Nýr hártoppur frá TRENDMAN fyrir þá, sem aðeins
vilja það besta. Pantið tíma hjá Villa rakara í Aristó-
kratanum í síma 687961. Opið á laugardögum.
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsin
Skrifstofan opnuð
TýríKópavogi
Naestkomandi laugardag, þann 28. nóvember kl. 17.00, opnar Týr,
FUS, í Kópavogi skrifstofu sína í Hamraborg 1, 3. haeð.
Stjórn félagsins býður unga sjálfstaeðismenn og aðra velunnara fé-
lagsins hjartanlega velkomna.
Stjórn Týs.
§Sjálfstæðismenn í
Kópavogi
Týr og stjórn fulltrúaráðsins
Týr og fulltrúaróö sjálfstaaðisfólaganna í Kópavogi halda eitt af sinum
geysivinsælu skemmtihófum nk. laugardag í Hamraborg 1, 3. hæð.
Mæting kl. 21.00.
Sjálfstæðismenn fjölmennið og eflið fólagsandann.
Týr og stjórn fulltrúaráðsins.
Akranes - aðalfundur
Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akranesi verður hald-
inn í Sjálfstæðishúsinu viö Heiðargerði mánudaginn 30. nóvember
nk. kl. 20.00.
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Almennar umræður.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega.
Stjórnin.
HEIMDALim
F U ■ S
Breyttirtímar
í húsnæðismálum
Selfoss - Selfoss
Aðalfundur
sjálfstæðisfólagsins Óðins verður haldinn á Tryggvagötu 8 mánudag-
inn 30. nóvember kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf. _ .. .
Stjórnm.
Sjálfstæðisfólk
í Rangárvallasýslu
Sjálfstæðisfélögin boða til fundar i Hellubíói miðvikudaginn 2. des.
nk. kl. 21.00.
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæöisflokksins og Eggert Hauk-
dal, alþingismaöur, ræða flokksstarfið og stjórnmálaviðhorfið.
Allt sjálfstæðisfólk er hvatt til að mæta.
Stjórn sjálfstæðisfélaganna.
Aðalfundur
Aðalfundur Heimis, félags ungra sjálfstæð-
ismanna í Keflavík, verður haldinn sunnu-
daginn 6. desember kl. 14.00 í Sjálfstæðis-
húsinu Keflavik.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Gestur fundarins verður Árni Sigfússon,
formaður Sambands ungra sjálfstæöis-
manna. Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
Sunnudaginn 29.
nóvember heldur
Heimdallur FUS
fund um húsnæðis-
málin með þeim
Geir Haarde alþing-
ismanni og Þórhalli
Jósepssyni for-
manni verkefna-
stjórnar SUS um
húsnæöismál.
Þeir munu ræða leiðir til úrbóta á núverandi vanda og kynntar verða
hugmyndir ungra sjálfstæðismanna um framtíðarskipan húsnæðis-
mála. Fundurinn hefst kl. 15.30. Kaffi og kleinuhringir á boðstólum.
Stjórnin.