Morgunblaðið - 28.11.1987, Síða 61
61
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1987
Minning’:
Jón S. Sigfússon,
Sauðárkróki
Tengdafaðir minn, Jón Sigtrygg-
ur Sigfússon, Skógargötu 26 á
Sauðárkróki, lést á sjúkrahúsinu
þar þann 17. nóvember sl. á 85.
aldursári. Þar er genginn mætur
maður, sem mig langar til að
minnast með nokkrum orðum.
Hann fæddist í Brekku í Svarfað-
ardal 1. september 1903. Foreldrar
hans voru hjónin Soffía Margrét
Zóphoníasdóttir frá Bakka og Sig-
fús Kristinn Bjömsson frá Syðra-
Garðshomi. Þau bjuggu í Brekku,
en Sigfús drukknaði vorið 1904,
þegar hákarlaskipið Kristján fórst
með allri áhöfn út af Rit í ofviðri.
„Var hann stýrimaður á því skipi
og þótti góður sjómaður," segir í
bókinni Svarfdælingar eftir Stefán
Aðalsteinsson.
Böm Sigfúsar og Sofflu em:
Anna Sigfúsína, f. 1895, kona
Magnúsar Sölvasonar sjómanns á
Litla-Árskógssandi; Kristjana Guð-
rún, f. 1897, kona Péturs Sigurðs-
sonar smiðs og tónskálds á
Sauðárkróki; Bjöm Haraldur, f.
1899, bílstjóri í Reykjavík; Zóphoní-
as, f. 1901, pípulagningamaður í
Reykjavík og Jón Sigtryggur, sem
hér er minnst.
Soffia giftist síðar Guðmundi
Bimi Sigvaldasyni. Þau bjuggu í
Ölduhrygg um skeið, en fluttu til
SkagaQarðar og settust að á Sauð-
árkróki árið 1915 og áttu þar
heimili til æviloka. Böm Soffíu og
Guðmundar vom: Svanhildur Berg-
þóra, f. 1907, kona Georgs Karls-
sonar á Akureyri; Svafa, f. 1909,
kona Gests V. Bjamasonar hafnar-
varðar á Akureyri; Sigfús Svarfdal,
f. 1911, verkamaður á Sauðárkróki
og Skarphéðinn Valdemar, f. 1915,
dó sem bam.
Jón Sigtryggur dvaldist fyrstu
árin hjá móður sinni og stjúpföður,
en mun snemma hafa farið í vist á
ýmsum bæjum í Skagafirði. Seinna
lá svo leiðin til Reykjavíkur og þar
munu svo hafa legið saman leiðir
hans og Sigurbjargar T. Guttorms-
dóttur frá Síðu í Vesturhópi, dóttur
hjónanna þar, Amdísar Guðmunds-
dóttur og Guttorms Stefánssonar,
sem ættaður var af Fljótsdalshér-
aði. Þau Jón og Sigurbjörg gengu
í hjónaband þann 11. október 1931
og bjuggu fyrsta veturinn á Síðu.
Þá fluttu þau að Bjarghúsum,
næsta bæ við Síðu, og bjuggu þar
í tvö ár og síðar að Efra-Vatns-
homi. Árið 1936 fluttu þau svo til
Sauðárkróks og áttu þar heima
síðan.
Þau eignuðust sjö böm, sem öll
em á lífi. Þau em: Guttormur Am-
ar, f. 1932, kvæntur Hrefnu Þ.
Einarsdóttur úr Ytri-Njarðvík, þau
búa í Ytri-Njarðvík og eiga fímm
dætur; Bjöm Haraldur, f. 1933,
kvæntur Elísu Vilhjálmsdóttur, ætt-
aðri úr Skagafírði, þau búa í
Keflavík og eiga íjögur böm;
Hrafnhildur Svafa, f. 1934, gift
Jóhannesi Sigmundssyni i Syðra-
Langholti, þau eiga sjö böm; Lissy
Björk, f. 1936, ógift en á einn son,
hún býr í Keflavík; Anna Soffía, f.
1940, gift Jósep Þóroddsyni frá
Hofsósi, búa á Sauðárkróki, þau
eiga þijú böm; Sigurlaug, f. 1941,
gift Stefáni Vagnssyni bónda á
Minni-Ökmm í Blönduhlíð, þau eiga
§ögur böm; Viðar, f. 1946, kvænt-
ur Steinunni Egilsdóttur úr Kefla-
vík, þau búa þar og eiga þrjú böm.
Eins og fyrr segir fluttust þau
hjón, Jón og Sigurbjörg, til Sauðár-
króks árið 1936 ásamt bömum
sínum, sem þá vom fædd. Þetta
vom frekar erfiðir tímar og atvinnu-
leysi víða, en Jónvar annálaður
dugnaðarmaður að hveiju sem hann
gekk, og gekk honum því oft betur
en öðmm að fá vinnu. Hann átti
einnig skepnur, eins og þá var títt
í þéttbýli, kýr, kindur og hesta.
Morgunblaðið/Sverrrir
Ræðismaður Júgóslavíu, Milutin Kojic, Frú Dobrila Smiljanic og
Rade Ljubojevic
Ullariðnaður:
Júgóslavneskur fata-
framleiðandi kaup-
ir íslenskan lopa
Hefur hannað
peysur ár Alafos-
slopa i yfir 20 ár
NÝVERIÐ voru tödd hér á landi
þau Dobrila SmOjanic og Rade
Ljubojevic, fuUtrúar júgóslavn-
eska fyrirtækisins Sirogojno.
Fyrirtækið Sirogojno er fata-
framleiðslufyrirtæki sem framleiðir
aðallega handpijónaðar peysur.
Hefur fyrirtækið keypt íslenskan
lopa til að pijóna úr í yfír 20 ár.
Dobrila hefur frá upphafi hannað
flíkumar en sveitakonur í íjallahér-
uðum Serbíu i grennd við þorpið
Sirogonjo pijóna þær. Nú era
2-3.000 konur sem starfa við
pijónaskap á vegum fyrirtækisins.
Frú Dobrila hefur getið sér gott
orð fyrir hönnun sína víða um lönd
og hefur meðal annars hlotið verð-
laun ítalskra fataframleiðenda fyrir
peysur úr íslenskum lopa. Sagði
Dobrila í samtali við Morgunblaðið
að eftir að hafa reynt ull frá mörg-
um löndum þá hafi henni fundist
eiginleikar íslenska iopans, hvort
heldur er í sauðalitunum eða í lituð-
um lopa, henta vel þeim flíkum sem
hún hannar.
Ræðismaður Júgóslavíu á ís-
landi, Milutin Kojic, um árabil haft
milligöngu um þessi viðskipti sem
hafa verið hvati að frekari sam-
skiptum þjóðanna á sviði menningar
og lista.
Hann hafði alla tíð mikið yndi af
hestum og átti jafnan margt góðra
hesta, sem hann annaðist af stakri
kostgæfni sem og allar sínar skepn-
ur. Að heyskap gekk hann með
einstökum dugnaði og átti jafnan
gnótt heyja.
Sigurbjörg lést árið 1952, langt
um aldur fram. Hún var að sögn
allra er til þekktu mikil fríðleiks-
og myndarkona, eins og hún átti
kyn til. Þetta var að vonum mikið
reiðarslag fyrir alla fjölskylduna,
en Jón var ekki þeirrar gerðar að
bugast eða gefast upp. Hann bar
harm sinn í hljóði, staðráðinn í því
að sjá sér og sínum farborða og
koma bömum sínum til manns. Öll
em þau systkin vel gefín og vel
gerð og koma sér hvarvetna vel.
Jón, tengdafaðir minn, verður
mörgum minnisstæður er honum
kynntust. Hann var ákaflega fastur
fyrir og hafði ákveðnar skoðanir á
mönnum og málefnum, en á hinn
bóginn gat hann verið blíður og
einstaklega bamgóður. Hin síðari
ár bjó hann einn í litla húsinu sínu
undir brekkunni, Skógargötu 26,
Ketu. Þangað var gott að koma og
spjalla um heima og geima, en fljót-
lega vildi talið berast að eftirlæti
hans, hestunum. Þrátt fyrir heilsu-
leysi og nokkra fötlun síðari hluta
ævinnar stundaði hann vinnu fram
á hin síðari ár. Hann vildi vera
óháður og sjálfbjarga alla tíð og
ekki upp á aðra kominn, en hann
naut nágrennis við dóttur sína,
Önnu, og hennar fjölskyldu, sem
býr á Sauðárkróki.
Um sl. mánaðamót dró svo mátt
úr þessari öldnu kempu. Hann varð
að leggjast á sjúkrahús, þar sem
hann andaðist eftir stutta legu þann
17. þessa mánaðar. Þar með var
lokið langri vegferð, sem hófst í
Brekku í Svarfaðardal, líkt og hjá
frænda hans, Snorra Sigfússyni,
fyrmm námsstjóra, sbr. bók hans,
Ferðin frá Brekku.
Blessuð sé minning Jóns S. Sig-
fússonar.
Jóhannes Sigmundsson
Viðtalstími borqarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til við-
tals í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá
kl. 10-12. Er þartekið á móti hvers kyns fyrirspurn-
um og ábendingum og er ölium borgarbúum boðið
að notfæra sér viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 28. nóvember verða til viðtals Páll Gíslason, formaður bygginga-
nefndar aldraðra, sjúkrastofnana og veitustofnana og Sigurjón Fjeldsted,
formaður stjórnar SVR og í stjórn skólanefndar og fræðsluráðs.
3
DÍSIL-L YfTARAR
2,5 tonna lyftigeta -3,3 metra lyfthæð.
Kosta aðeins 750.000
REISIItJGAR
- Einstök greiðslukjör.
Áreiðanlegir vinnuþjarkar
sem þola stöðugt álag.
Gott útsýni,
driflæsing, loftpressa og vökvastýri.
ETÍ77TM Til afgreiðslu strax.
íslensk tékkneska verslunarfélagid hf.
Lágmúla 5, simi 84S25, Reykjavik.
DESTXK
dísil-lyftararnir eru
einsaklega hagkvæmir
í rekstri, þeir eru
neyslugrannir og
verð á varahlutum
er í sérflokki.
Auk þess má tengja
þá við ótal fylgihluti.
Sýningarlyftari
á staðnum
- Líttu við!