Morgunblaðið - 28.11.1987, Page 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1987
fclk í
fréttum
Peter umkringdur ungnm aðdáendum þegar stuttur
söngferill hans stóð í mestum blóma.
Þau tíðindi hafa borist að hinn
bláfátæki Peter Holm sé gift-
ur, enn einu sinni. Ekki eru liðnir
margir mánuðir síðan Peter kvein-
aði og barði sér á brjóst vegna
nísku sinnar fyrrverandi eiginkonu
Joan Collins er skilnaður þeirra
hjóna fór fyrir dómstólana og dóm-
urinn reyndist honum ekki í hag.
Hann leitaði sér fljótlega huggun-
ar í faðmi milljónamæringsdóttur-
innar Kathy Wardlow og eru þau
nú orðin eitt.
Því spyrja menn sig nú, hvað
er það við Peter Holm sem hrífur
konur upp úr skónum? Smekk-
menn segja hann alls ekki laglegan
mann, hann er ekki ungur lengur
og ekki ríkur, því hann lifir á fram-
færslueyri frá konunum sínum.
efnuð. ^ k°nan hans’ Kathy Wardlow, er bæði ung 0g
Konur á öllum aldri láta hrífast
af hinum fertuga Holm sem má
muna sinn fífil fegri. Hann er
nýskilinn við Joan Collins sem er
orðin 56 ára og hans nýjasta eigin-
kona, Kathy, er heilum þremur
áratugum yngri en Joan. Þau hjón-
in búa nú í lúxusvillu Peters á
mm
mcingehiing!
fólin nálgast, leufóu okkur
að létta þérjólánreingeminguna. \
Við bjóðum gœóavörurá
góðu verði... ^
DOPRI RllÐUtlÐI
FLJÓTANDI BLAUTSÁPA^
SJÁLFGLJÁI ^lRÆSTIKREM $ ^
RÆSTIDUFT^MOPPUR^ ^
P
Hsí
mé
SÁPUGERÐIN AN
JRIGG V
frönsku rivierunni og vekur það
furðu margra þar sem Peter hafði
marglýst því yfír eftir skilnaðinn
við Joan að hann hefði ekki efni
á að borða annað en hamborgara.
Þegar á unga aldri sýndi Peter
hvað í honum bjó. Hann var ákaf-
lega latur og einkunnabækurnar
hans þótti ekki til neinnar prýði.
En hann var afar duglegur að
syngja og hafði ágæta söngrödd.
Það leiddi til þess að hann vann
söngvakeppni í heimalandi sínu
Svíþjóð og kom tveimur lögum
hátt á vinsældalista í Svíþjóð og
Frakklandi. Hvert sem hann fór
var hann umkringdur kvennafans.
Peter lifði kóngalífi, en þar kom
að aurana þraut og svo litla rækt
hafði Peter lagt við söngferilinn
að þar átti hann sér ekki viðreisn-
ar von. Hann reyndi að koma á
fót matsölustöðum og danshúsum
en það reyndist ekki happasælt,
sum fóru á hausinn og önnur
brunnu til grunna. En þó að
heilladísimar virtust hafa yfirgefíð
Peter, tók kvenþjóðin honum ætíð
opnum örmum. Þær voru þó fljót-
ar að losa sig við hann og sagði
ein þeirra að hans eina takmark
væri að ná sér í eins ríka konu
og kostur væri. Og það tókst hon-
um. „Hæ, ég heiti Peter,“ sagði
Peter við Joan Collins þegar þau
hittust fyrst. „Gleður mig,“ svar-
aði hún og þau fylgdust að til
Beverly hæða. Ástin blómstraði á
fyrstu mánuðunum, en þá var Joan
búin að fá nóg af ágirnd Peters
og henti honum út. Hann kvartaði
yfír peningaleysi, en þegar hún
og dómstólar skelltu skollaeyrum
við kröfum hans, leitaði hann á
náðir milljónaungfrúnnar Kathyar
Wardlow. Hvemig það ævintýri
endar er of snemmt að spá um,
af peningunum er nóg.
PETER HOLM
Flagarinn
hefur
náðsér
ínýtt
Peter með konunni sem gerði hann að heimsfrægum flagara,
Joan Collins.
fómarlamb