Morgunblaðið - 09.12.1987, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987
orðið ljóst að framlag Bandaríkja-
manna á ijárlögum fyrir árið 1987
var ofáætlað um 160 mkr. (sem þó
reyndist verða hærra). Pjárhags-
vandi var þá orðinn amk. 300—320
mkr.
Ennfremur var framlag Banda-
rikjamanna ofáætlað í þeim fjárlaga-
tillögum um 205 mkr. Þessu til
viðbótar stefndu framkvæmdir ársins
1987 verulega fram úr áætlun.
Með hliðsjón af því sem hér hefur
verið rakið má ljóst vera að fjárvönt-
un að upphæð 890 mkr. samanstóð
því af eftirfarandi: j^kr.
— uppsafnað frá 1985 og 160
1986
— ofáætlaðframlagUSA 205
vegna 1987
— áætlaður framkvæmda- 525
kostnaður 1987 ogtil verkloka
umfram flárveitingu 1987 ______
Samtals 890
Ríkisendurskoðun bendir á að ekki
var sótt um aukafjárheimild og ekki
vakin athygli fjárveitingavaldsins á
vandanum fyrr en með bréfí dags.
29. april 1987. Ríkisendurskoðun
hefur ekki fengið viðhlítand skýringu
á þessu.
A byggingartímanum hefur orðið
misgengi á þróun gengis USD ann-
ars vegar og byggirígavísitölu hins
vegar. Seðlabanki Islands hefur
reiknað út að ef gengi USD hefði
þróast eins og byggingavísitala þá
hefði framlag Bandaríkjamanna orð-
ið 236,9 mkr. hærra miðað við
verðlag 1. september 1987. Þetta
þýðir að framlag íslendinga til fram-
kvæmdanna varð að sama skapi
hærra.
2.5 Lærdómur sem draga má af
framkvæmdinni
Ríkisendurskoðun telur, að af
þessu máli megi draga ýmsar álykt-
anir í sambandi við meiri háttar
opinberar framkvæmdir, m.a. eftir-
farandi:
1) Vanda til við undirbúning fram-
kvæmda, einkum að fyrir liggi góð
skilgreining á verkefninu og væntan-
legum gangi þess.
2) Vanda til áætlanagerðar, einkum
samræmdra framkvæmda- og fjár-
hagsáætlunar, framkvæmda stöðuga
endurskoðun meðan á verkefni
stendur og tryggja upplýsingagjöf
til réttra aðila.
3) Vanda til vinnubragða við gerð
fjárlagatillagna og fjárlagagerðar.
4) Varast skal breytingar á verktíma
og áður en ákvörðun er tekin um
breytingu frá samþykktri áætlun
og/eða hönnun, skal athuga svo sem
unnt er hvaða afleiðingar breytingin
hefur.
Sjá einnig bls. 66 og 67.
Stærð og kostnaður
Hér fer á eftir sá kafli í skýrslu ríkisendurskoðunar, sem
fjallar um stærð flugstöðvar og kostnað í rúmmetrum og fer-
metrum
8.9. Útreikningur á stærð flugstöðvar og kostnaði í rúmmetr-
um og fermetrum.
Almenna verkfræðistofan hefur reiknað út stærð flugstöðvarinnar
miðað við IST 50 og er niðurstaðan samkvæmt eftirfarandi:
1. Grunnflötur kjallara
. —óinnréttað 4.135 m2 11.751 m3
— innréttað 2.022 m2 7.721 m3
Samtals 6.157 m2 19.472 m3
2. Grunnflöturjarðhæðar 6.022 m2 29.042 m3
3. Grunnflötur II. hæðar 6.262 m2 44.246 m3
4. Grunnflötur III. hæðar 3.711 m2 29.913 m3
5. Grunnflötur landgangs 1. hæð I. áfangi 457 m2 1.898 m3
II. áfangi 156 m2 647 m3
Samtals 613 m2 2.545 m3
6. Grunnflötur landgangs 2. hæð I. áfangi 1.261 m2 5.366 m3
II. áfangi 797 m2 3.300 m3
Samtals 2.058 m2 8.666 m3
Samtals 1.—6. 24.823 m2 127.884 m3
Miðað við þessar stærðir reiknar Almenna verkfræðistofan út að
kostnaður á stærðareiningu sé eftirfarandi:
Kostn. í Með óinnr. kj Með 50% af óinnr. kj.
millj. kr. kr. m2 kr. m3 kr.m2 kr. m3
1. Bygging ásamt
landgangi 2.250 90.462 17.594 98.875 18.441
2. Búnaður 334 13.858 2.690 15.117 2.819
3. Lóð 193 7.775 1.509 8.481 1.582
4. Aðveitulagnir xx 195 7.855 1.525 8.569 1.598
5. Þjónustu-
byggingar x 10 403 78 439 82
Samtals: 2.992 120.533 23.396 131.481 24.522
Með óinnréttuðum Með 50% af óinnr.
kjallara kjallara
Heildarflatarmál: 24.823 m2 22.756 m2
Heildarrúmmál: 127.884 m3 122.009 m3
x Ekki tilheyrandi flugstöðvarbyggingu.
xx Að hluta tilheyrandi flugstöðvarbyggingu.
Aðveitulagnir þjóna jafnframt öllu flugstöðvarsvæðinu, flugskýlum,
olíustöð og annarri þjónustustarfsemi við flugið. Kostnaður við vei-
turnar er háður staðsetningu flugstöðvarinnar fyrst og fremst, en
ekki stærð eða fýrirkomulagi byggingarinnar.
Byggingarkostnaður í framangreindum útreikningi er án aðflutn-
ingsgjalda og fjármagnskostnaðar.
Hérlendis eru ekki um að ræða neinar sambærilegar byggingar
þannig að kostnaðarsamanburður á stærðareiningu milli flugstöðvar-
byggingarinnar og annarra mannvirkja er ekki raunhæfur.
EINKAUMBOÐ
Jón Ðf Cs\sp
24930
LAUGAVEGI
70
Kl_
MONTRES
LAGERFELD
KARL
RARIS
Vöruhús Vesturlands Borgarnesi sími 93-71 200
- er birgðamiðstöðin ykkar.
L oV»aI , a saff‘a' ro °gY)
X V -nVCtx^
3ö