Morgunblaðið - 09.12.1987, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1987
Búið að þróa hug-
myudir um ný-
byggingu Alþingis
SKRIFSTOFA Alþingis sendi frá
sér eftirfarandi fréttatilkynn-
ingli um nýbyggingu Alþingis:
I tilefni af hundrað ára afmæli
Alþingishússins efndi Alþingi til
samkeppni um gerð og skipulag
nýrrar byggingar fyrir starfsemi
þingsins. Var samkeppnin við það
miðuð að heimkynni Alþingis yrðu
áfram í núverandi þinghúsi, en
nýbyggingunni ætlað að hýsa þá
starfsemi sem ekki rúmast í Al-
þingishúsinu.
Samkvæmt úrskurði dómnefnd-
ar hlaut tillaga Sigurðar Einarsson-
ar arkitejcts _ 1. verðlaun í
samkeppninni. í framhaldi af því
ákvað Alþingi með samþykkt sinni
um fjárveitingu á fjárlögum 1987
að he§a hönnun á grundvelli verð-
launatillögunnar.
Hugmyndir um starfsemi og
megingerð byggingarinnar hafa
verið þróaðar undanfarna mánuði
og hefur þingmönnum og starfs-
fólki þingsins nú verið kynnt þessi
frumáætlun.
Nýbyggingin séð frá Austurvelli.
Alþingishúsið og nýbyggingin
séð ofan af Hótel Borg.
í skipulagi miðbæjarins er gert
ráð fyrir að ný hús myndi hlut-
fallslega smáar einingar sem eldri
hús einkennast af. Við hönnunina
hefur verið lögð aukin áhersla á
að nýbyggingin aðlagi sig þessu
skipulagsmarkmiði, nú fá götuhlið-
ar nýbyggingarinnar yfirbragð
þriggja húsa og það sama gildir
um bakhliðar byggingarinnar. Af
þessum orsökum hefur stærð bygg-
ingar ofanjarðar minnkað nokkuð
miðað við verðlaunatillögu.
Meginhugmyndir keppnistillög-
unnar eru óbreyttar. Þær eru
annars vegar yfirbyggt torg og
göngugata umlukin af byggingum
til beggja handa. Hins vegar sú
hugmynd að nýbyggingin taki mið
af Alþingishúsinu hvað varðar hlut-
föll, uppbyggingu og efnisnotkun.
Hæð nýbyggingarinnar er sú sama
og Alþingishússins og húseiningar
eru af svipaðri stærð. Byggingin
verður klædd steini áþekkum þeim
sem notaður var í Alþingishúsið.
í nýbyggingunni er gert ráð fyr-
ir aðstöðu fyrir þingflokka og
þingmenn, þingnefndir, skrifstofu
Alþingis, bókasafn, skjalasafn, Al-
þingistíðindi, tölvuvinnslu og
fréttamenn. Auk þess er gert ráð
fyrir mötuneyti fyrir þingmenn og
starfsfólk.
Bílastæðum er komið fyrir í
tveimur kjöllurum. Heildarbrúttó-
stærð byggingar miðað við frum-
áætlun er 13.100 fermetrar, þar
af eru 6.650 fermetrar ofanjarðar.
Grunnflötur byggingarinnar er
2.550 fermetrar.
Fréttatilkynning þessi er liður í
að kynna hönnunarvinnu nýbygg-
ingar Alþingis. ,
Horft yfir miðbæinn úr austri.
Hið nýja ráðhús er efst til vinstri.
Horft yfir Alþingisreitinn úr norð-vestri í átt að Tjörninni.
Horft yfir Alþingisreitinn úr.suð-vestri í átt að Austurvelli.